Dagfari


Dagfari - 25.04.1906, Qupperneq 4

Dagfari - 25.04.1906, Qupperneq 4
bezta, er skáld Norðmanna hafa skrifað á seinni tímum. Kjeliand var maður fríður sýnum og hinn höfðinglegasti. Hann var norð- maður með lífi og sál og bera bækur hans þess Ijósastan vottinn. Stórslys. —o— Sú sorgarfregn barst hingað í gær með Hólum, að þrjú fiskiskip hafi farist í ofsa-veðrinu skömmu fyrir páskana og allir farist, er á skipunum voru, 68 menn. Eitt fiskiskipið, íngvar, eign Duus verzlunar í Reykjavík, skip- stjóri Tyrfingur Magnússon frá Engey, strandaði nálægt Viðey 7. þ. m. þar fórust 20 menn. Hin tvö skipin hafa farist fram undan Mýrum. Annað skipið hjet Emelie, eign Th. Thorsteinssonar kaupm. í Reykjavík, skipstjóri Björn Gíslason frá Bakka í Reykjavík. A því voru 24 menn. Hitt skipið hjet Sophie Wheatly, skipstjóri Jafet Ólafsson. Var skipið fjelags- eign skipstjórans og tveggja manna annara. Á þessu skipi voru 24 menn. Nákvæmar í næsta blaði. Ymislegt. Grænlandsfarinn Mylius Eriksen ætlar að leggja á stað í hina aðra grænlands-för sína í byrjun júlí. Kem- ur hann við hjer á Eskifirði til að taka kol og hesta, en eigi mun hann koma inn á aðrar hafnir .hjer við land. Til Þórarinns Tuliniusar kom fyrir nokkru sendinefnd þess erindis, að fara þess á leit við hann, að hann gæfi kost á sjer í bæjarstjórn- ina í Kaupmannahöfn, en eigi sá hann sjer það fært vegna annara starfa. 40 Norðmenn fara með Perwie frá Christiansand 4. maí áleiðis til Reykjavíkur; eiga þeir að vinna að ritsímalagningunni undir forustu Forbergs verkfræðings. Fljót ferð. Með hraðskreiðustu skipum, er koma hingað til lands, er Kong Inge. Síðast er hann hjelt til útlanda var hann eigi meir en rúm sjö dægur frá Akur- eyri til Khafnar og kom þó við á þrem höfnum á Austurlandi, tveim höfnum á Færeyjum, og stóð lengi við í Leith. Prentvilla hefur orðið slæm i skattamála-grein- inni í 8. tölubl. Dagf. Þar stendur í annari ogþriðju línu áeptir strykinu: «getur eigi komið til mála að hækka beinu skattana,» á að vera: lækka beinu skattana. Skip. Otto Wathne, (skipstj. Houeland), hið nýja skip Vathnes erfingja, koni hingað frá útlöndum 17. þ. m. Með því voru meðal annara farþega: A. Figved kaupm. | hjer, Evensen forstjóri hvalveiðastöðvar- innar við Reyðarfjörð, Þórarinn kaupm. Ouðmundsson af Seyðisfirði og sonur hans Guðmundur, Stefán Th. Jónsson ^ kaupm. og Kristján veitingam. Hallgríms- í son af Seyðisfirði. Kong Inge, (skipstj. F. Schiöttz), kom hingað frá útlöndum 18. þ. m. Með honum var fjöldi farþega, þar á meðal Fr. Hallgrímsson kaupm. hjer, Sig. Joharrsen kaupm. á Vopnafirði. Jón Jónsson alþm. Sig- urður Jónsson kaupm. á Seyðisfirði, Magnús kaupm. Blöndal og Kolbeinn kaupm. Árna- son frá Akureyri, Jörgensen bakari af Seyðisfirði ásamt konu. Oufuskipið Á. Ásgeirsson kom hing- að 22. þ. m. með kol til hvalveiðastöðvar- innar við Reyðarfjörð. Hólar, (skipstj. Örsted), kom liingað í gær . Farþegar voru: Jón Arason prestur á Húsavík, Þorleifur Jónsson prestur á Skinnastað, Jón Jónsson, er nýlega er veitt Flróarstungu-læknishjerað, Bjarni Benediktsson verzlunarmaður frá Húsavík, Júlíus Ólafsson frá Vopnafirði, konsúll 1. M. Hansen, P. Bjering verzlunar-erindreki, Björn Klemenzson, Ólafur verzlunarstjóri Metúsalemsson o. m. fl. U SÝeuioUatv vmWyW k\i motova, zx otyxyxst h,\í tatl 5). ‘SuUtYYus Búnaðarsambandið. Sýningar vorið 1906 o. fl. Búfjársýning í Nesjum er ákveðin 11. júní. — í Breiðdal - — 13. — — á Vopnafirði - — 25. — Á sýningum þessum verður ráðanautur sambandsins Halldór Vil- hjálmsson til aðstoðar og leiðbeininga. Á ferðinni á hann einnig fundi með bændum, heldur fyrirlestra og leiðbeinir í því, sem óskað verður, á eptir-töldum stöðum: Á Djúpavogi 4. júni. í Lóni 6. — í Suðursveit 8. — Á Mýrum 9. — í Breiðdal 14. — í Hofteigi 18. — Á Ströndum (Skeggjast.) 21. — z - Vopnafirði 26. — - Sleðbrjót 27. — Formenn búnaðarfjelaganna í hverri sveit útvega fundarstaði og boða til fundanna. í stjórn sambandsins: Björn Þorláksson. Magnús Bl. Jónsson. Björn Hailsson. Búnaðarskóllnn á Eiðum óskar, að þeir menn gefi sig fram fyrir 1. júní, sem gjöra vildu tilboð í byggingu á nýju vönduðu skólahúsi, að stærð 24 x 14 ál. tvílypt, með kjallara undir. í öðru lagi óskast tilboð um útvegun á efnivið, (trjám, borðvið, pappa, járni, cementi), upp fluttum á Selfljótsós. Menn snúi sjer til undirritaðar stjórnarnefndar skólans, sem gefur nánari upplýsingar. P. t. Vallanesi 9. apríl 1906. Björn Hallsson. Jón Bergsson. Magnús Bl. Jónsson. PRENTSMIÐJA DAOFARA. 42 Olduiigis eins og hundur.» «Já, á meðan þjer getið gengið meðfram húsunum, en ef þjer til dæmis ætlið að fara þvert yfir götu?» spurði jeg. «Þegar dansgleðinni er lokið, svona undir morguninn, og jeg geng heim á leið, er engin umferð. Til vagnanna og mannanna heyri jeg. Jeg hef ágæta heyrn, hún bætir mjer því nær upp sjónina.» Jeg spurði hann hvort hann hefði verið blindur frá því fyrsta. «Frá því jeg var átján ára gamall.» Nú slitum við aptur talinu, og dansleikurinn tók til á ný. Þar sem jeg nú var fíkinn í að kynna mjer hagi þessa blinda manns, minntist jeg á hann við kvennmanninn, sem jeg dansaði við í næsta skipti. Það var lágvaxin, lítilfjörleg og merkileg kvennsnift, er Ijezt vita allt, og hafði sína skoðun á hverju einu. Hún svaraði með hálfgerðri fyrirlitningu. «Já, biindi maðurinn, hann er fallinn úr sögunni, sem mannleg vera.» Þessi orð settu að mjer ógleði. Á vissan hátt gat hún haft rjett fyrir sjer. — Síðar á dansleiknum hitti jeg fylkisdómara, sem að fyrra bragði fór að tala við mig um piano-leikandann. Hann minnt- ist á iátleysi hans og hið þýða viðmót og hversu vel hann Ijeki á hljóðfæri. Já svona er það i heiminum hugsaði jeg, einn sjer Ijósið annar skuggann. En sarnband milli ljóss og skugga sjá fæstir. Á heimleiðinni frá dansleiknum var jeg í ágætu skapi og vissi þó ekki hversvegna. Ekkert óvanalegt hafði fyrir mig komið. Dansleikurinn hafði 43 verið svipaður öðrum þess kyns. En samt sem áður var jeg ágætlega fyrir kallaður. Sjerhver samfylgd mundi hafa verið mjer ógeðfelld. Hugsið ykkur að einhver hefði þarna f tunglskininu talað við mig um, að vínið hefði verið gott, um ókurteysi þessa eða hins óvið- komandi manns, eða um fegurð og þokka einhverrar lítilfjörlegrar konu. * Nei, þá kaus jeg heldur að vera einn og hugsa uin það, er mjer sýndist, því þá þurfti jeg ekki að leggja heilann í bleyti yfir því, sem öðrum kynni að detta í hug að þvaðra um. Af ásettu ráði hafði jeg slórt stundarkorn í fata-klefanum, til þess að láta hina fara á undan. Eptir var aðeins mjer ókunnir menn og svo riddara-hersir, sem jeg vissi að ætlaði gagnstæða leið. «Jeg fór í hægðum mínum niður stigann og jafnvel aula-andlit daglauna-þjónsins gat ekki fargað unaðskennd minni. Hann stóð þarna hróið, og beið drykkjupeninganna, átti eftil vill konu ogtíu börn heima. «Jeg gaf honum tveggja krónu pening, án þess að hugsa um það, að ef til vildi eyddi hann honum á næstu drykkjukrá, svo að þessi tíu börn sáu ekki einn eyrir af honum, ef þau voru þá nokkur til. Jeg lötraði í hægðum mínum eptir götunni með stóru skóhlíf- arnar á fótunum, kveikti í vindli og púaði bláum reykjarstrókunum út í berlyptið. Þá heyrði jeg allt í einu þunglamalegt fótatak á eptir mjer, og maður gekk fram hjá, hikandi í ganginum. Annari hendinni hafði hann stungið niður í vasa sinn, í hinni hjelt hann á göngustaf, er hann hjelt Iítið eitt út frá sjer. Jeg þekkti strax piano-leikandann og yrti á hann.

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/172

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.