Dagfari


Dagfari - 12.07.1906, Qupperneq 1

Dagfari - 12.07.1906, Qupperneq 1
DAG FARI e\$&\\&\*. J\\\ 3 ónssow caud. \wx. I. árg. Eskifirði fimtudaginn 12. júlí 1906. 19. tölubl. isisisiiisisisisisisisisisrasisisisisisisisisisiiisiii Dagfari kemur út að minnsta kosti þrisvar á mánuði. Verð árgangsins: 3 kr. innan lands, er borgist fyrir 1. september; 4 kr. eriendis, er borgist fyrirfram. Uppsögn bundin við áramót, ógild nema skrifieg sje og komin til útgefanda fyrir 1. nóvember. ISISISISISISISISISISISISISflKISISISISISISISISISISISISI y 5oa ód^xt, um len^ú eða ^iemxtm Uma, áf\óte^„^rxe&etis5ox$”, ^JesVev- ooVdasde 9\, yaupmannaWóÍn. 3sle\\d\x\^um ve\Uar ^óóat v\5Vó&ut. Harald Paaske. ^ess ev a5 $e\&, sem ^exV ex. —o--- Svo sýnist mjer, sem nú sjái fyrir morgunroða nokkrum í hug íslend- inga, er þeir taka að muna svo rnikið til rjettinda sinna og manngildis, að þeir dirfast að ala von um sjálfstæði þessa lands. Er næsta gott til þess að vita, er óskir manna stefna að því, að hjer verði þjóðveldi sem fyrrum, en enginn góður drengur gerir minni kröfur en svo, að hann heimtar fullt drottinvald oss til handa í öllum vor- um málum, en vill eigi lengur una því, að Danir skamti oss úr hnefa, hverju vjer skulum ráða. Viljum vjer nú eigi lengur því una, að vera undirlægjur annarra, þótt vjer kynnum að sætta oss við, að vera í fullu jafnrjettis-sambandi við Dani. Viljum vjer og vona, að eigi skyggi hafísþokan á þenna morgun- roða í hug þjóðarinnar, þótt vor þetta sje kalt og valdi fjártjóni. En vel verða menn hinns að gæta, að sjálfstæði fylgja meiri fjárútlát og meiri áhætta og ábyrgð. En hundrað- falt endurgelzt það fyrir þá sök, að meiri verða þá framkvæmdir og þroski þjóðarinnar. Ef vjer viljum vera sjálf- stæð og frjáls þjóð út á við, nuin oss ærin þörf að auka andlegan þroska almennings og víðsýni. En miklu er það meira og erfiðara starf en mönn- um nú er ljóst og þarf allmiklu til að kosta. Eigi eru þau kjör þolandi, sem nú eru boðin kennarastjett landsins, og verður kennaraefnum fyrir þá sök ókleyft að afla sjer þess andans þroska, er þau þurfa að hafa. Má þar dæmi taka af höfuðstað landsins. Efnamenn þar gjalda hærra kaup þeim manni, er þrífur salerni þeirra, en hinum, er Ieggja skal grundvöllinn undir andleg þrif barna þeirra. Þeim manninum er svo illa goldið og slælega, að það er til athlægis. Þó eru aðrar greinar enn ver farn- ar en kenslumálin. Má þar telja allar listir. En ef það er vilji vor að vera sjálfstæð þjóð og frjálsir menn, þá er oss einsætt að forðast þá þjóðarskömm, að vilja ekkert leggja í sölurnar fyrir þá hluti, sem nauðsynlegir eru til sálar- þroska og veita hug manna hreinasta og bezta nautn. Og ef vjer höldum uppteknum hætti í þessu, þá verður afleiðingin sú, að vjer ölum upp lista- menn og skáld handa öðrum þjóð- um. í ungdæmi mínu þótti sveitarstjórnun- um hjer á landi þjóðráð að senda styrk- þurfa, sem flesta, til Vesturheims.meðöllu skylduliði þeirra. Vóru þær eigi svo framsýnar, að þeim kæmi til hugar að vinnukraftar væru og yrðu ónógir hjer á landi. Sama gerir nú þing og stjórn við Iistamenn vora. Til dæmis má nefna Einar jónsson, myndasmið. Hann var sendur utan til lærdóms með lúsarlegum styrk og ónógum. Með dugnaði sínum náði hann þó þroska í list sinni. En eigi skeytir þingið því, hvort hann deyr úr hungri frá hálfunnu verki og eigi gerir það neiu- ar ráðstafanir til þess, að ættjörð hans eignist verk hans. Árna-Magnússonar safnið í Höfn sýnir, hversu fslending- ar voru hirðulausir um sinn hag á hans dögum. En nú ætti hugur þeirra að vera annar og víðsýni þeirra meiri. Þingið ætti að gjalda Einari kaup sæmi- legt og fá hann til að flytja búferlum til Reykjavíkur, en gera það að skilyrði, að hann seldi landinu verk sín. Yrðu þau þá upphaf að listasafni voru. Það munu synir vorir setja á stofn, ef eigi gerum vjer það sjálfir, en hægra mun þeim verða við að bæta, en að byrja frá grunni. Ef vjer viljum eigi sinna manni þessum, þá verður niðurstaðan sú, að Danir eða aðrir gera safn af listaverkum íslendinga. Verðurþað þeim til gagns og ágætis, en ekki oss, eins og safn Árna Magnússonar, og munu kom- andi kynslóðir bregða oss um glæp við þjóðerni vort. — Einari hafa kom- ið slík boð, sem jeg nefndi, frá Þjóð- verjum. Mun hann verða því að sinna, ef vjer bjóðum eigi lík boð. Því að í Danmörku verður honum ofaukið, því að heimskir skriffinnar munu þar láta hann gjalda þess, að hann er ís- lendingur og eigi unna honum sann- mælis. — En ef vjer hrekjum hann til útlanda, munum vjer taka þar með fyrir kverkar þessari fögru list hjer á landi og leiða öllum viðleitni til að auðga oss að iistaverkum. Maður nefnist Jóhann Sigurjónsson, gáfumaður og skáld gott. Hann hef- ir tekið upp það óyndisúrræði að rita bækur sínar á dönsku. Er þegar komin út ein bók eftir hann, Dr. Rung, vel samin og að sumu ágæt. Efast eng- inn um, að maðurinn sje gott skáld, sá er les þá bók. Þar höfum vjer alið Dönum upp skáld. Er það naum- ast efamál, að fleiri fara þar eftir, ef íslendingar halda uppteknum hætti, að kaupa eigi sómasamleg verk landa sinna, en láta moka í sig óhemju af »illilegum þýðingum illilegra skáld- rita«, sem eiga það erindi eitt til al- þýðu að ausa auri og saur þann gim- stein, sem vjer eigum dýrastan, móður- mál vort. Mun jeg síðar senda þjer nokkrar línur þessu til sönnunar, Dagfari sæll. Því að vita þykist jeg, að þú munir þar halda uppi landvörn- um. Ritað í maímánuði 1906. Starkaður Áludrengur. Aths. Ef liinn háttvirti greinarhöf. á við «personal-union->, en ekki algerðan aðskilnað, þar sem hann talar um, að vjer 'kynnum að sætta oss við að vera í fullu jafnrjettissambandi við Dani», þykir ritstjóra blaðsins vissara að láta þess getið, að í því efni er hann honum ekki sammála. Nema það verði sýnt og sannað, að vjer getum ekki þrifizt alsjálfstæðir eða án þess að vera í einhverju sambandi við aðrir þjóðir eða ríki, fellum vjer oss ekki við annað en algerðan aðskilnað, hversu frjálslegt og áferðarfagurt seni sambandið kann að verða. Handan um haf. —o— Höfn 28. júní. Rússland. Eins og fyrri daginn gjörist margt sögulegt a Rússlandi enn þá. Þess var getið síðast, að óeirð- ir fóru vaxandi og daglega komu fregnir um alls konar hryðjuverk víðs- vegar um landið. En allt það voru þó smámunir í samanburði við Gyð- ingamorðin, sem framin voru í Bjel- ostok þ. 14. þ. m. Bjelostok er bær með hjer um bil 70,000 íbúa og er margt þeirra Gyðingar. Þenna nefnda dag veittust aðrir bæjarbúar að Gyð- ingum og drápu þá hrönnum saman, bæði karla, konur og börn, segja sum- ir 5—600. Og ekki nóg með það, að þeir drápu þá, en lífið var kvalið úr þeim með verstu pyntingum. Eru sögurnar af blóðbaði þessu svo hrotta- legar, að naumast myndi þeim trúað, ef mönnum væri eigi í fersku minni Gyðingamorðin í Odessa ogjekaterin- osi?.v í fyrra. Þannig er t. d. sagt, að maður einn hafi verið bundinn við staur og svo hlutaður sundur, lið fyrir lið, konum misþyrmt, áður en þær voru drepnar o. s. frv. Þeir Gyð- ingar, sem því fengu við komið, flýðu úr borginni, en morðingjarnir Ijetu greipar sópa um eigur þeirra og rændu öllu, sem hönd varð fest á, og spilltu öðru. Orsakirnar til manndrápa þessara eru eins og áður, hatur Slafa á Gyð- ingum. Það er og almæli, að embætt- ismennirnir og lögreglan hafi komið þessu af stað. Að minnsta kosti gjörði lögreglan ekkert til þess að afstýra vígunum, en jafnvel hjálpaði til, og sömuleiðis herliðið. Má tilfæra dæmi þessu til sönnunar: Morðingjarnir höfðu ráðizt inn í hús úrsmiðs nokk- urs og rændu búð hans. Veslings úrsmiðurinn flýði út á götuna til lög- regluþjóns og bað hann að veita sjer hjálp. Lögregluþjónninn snerist illa við og sagði, að hann gæti varið sig sjálfur. Til frekari árjettingar skaut hann svo með skammbyssu á úrsmið- inn, en hitti þó ekki. Þá má og geta þess, að lögreglustjórinn í Bjelostok hefir fengið hærra embætti, svo aö það er full ástæða til þess að halda, að stjórnin sjálf sje í vitorði með glæpamönuum þessum og hafi því viljað launa íögreglustjóranum, hvað vígin tókust vel! Áuðvitað veldur

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/172

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.