Dagfari - 12.07.1906, Side 2

Dagfari - 12.07.1906, Side 2
Vísindaleiðangur til Grrænlan'ds. —o'— Á næsíu dögum er rithöfundur- inn. og Orænlandsfarinn danski, Mylius Erichsen, væntanlegur hingað til Eskifjarðar. Er hann lagður af stað í nýja Grænlandsför og all- margir aðrir vísindanrenn danskir í för með honum. Hann verður um 2 ár í þessum leiðangri, að því er ráð er fyrir gert. Myiius Erichsen var um tvö ár í fyrri Grænlandsför sinni og lenti þá í ýmsum mannraunum. Hann kynnti sjer Grænlendinga, líf þeirra og háttu. Hefir hann reynzt þeim hinn bezti drengur. Ber þeim hið bezta söguna og fór hörðum orð- um um óstjórn Dana í Grænlandi ! og kvað þá eiga mikinn hlutaðfá- j tækt Grænlendinga og menntunar- j leysi. Hefir lrann hvergi sparað i krafta sína til að telja landa sína á að bæta kjör þeirra — og ættu aliir j mannúðarvinir að kunna honum þakkir fyrir það. Mylius Erichsen var í stúdenta- förinni dönsku til ísiands árið 1900. ! Mylius Erichsen, þegar hann kom frá Orænlandi. Ritaði hann ferðapistla í Politiken og voru þeir hiýir í garð lands vors og þjóðar. — Allmikið var um dyrðir, þegar hann fór frá Höfn. Skip hans heitir Danmörk. Frú hans kom hingað á Kong Inge um deginn og bíður komu hans hjer á Eskifirði. Með henni var og rússnesk kona, sem er trú- lofuð einum þeirra Grænlandsfar- anna. í næsta blaði munurn vjer skýra nákvæmar frá þessurn merkilega leiðangri. Grænlandsskipið Danmörk fer frá Kaupmannahöfn. Mylius Erichsen heldur á hattinum í hendinni. þetta megnri gremju um »llan mennt- aðan heim, en Bandaríkin í Norður- ameríku hafa þó ein orðið til þess að láta í Ijós opinberlega andstyggð sínaá glæpaverkum þessum. Öldunga- ráðið í Washington samþykkti þings- ályktun, sem tók það skýrt fram. Aðrar þjóðir vilja ekkert skipta sjer af því, til þess að styggja ekki Rúss- land, eða rjetíara sagt, stjórnina. Von- ar.di verða þetta þó síðustu Gyðinga- ofsóknirnar, en það er samt undar- legt, hvað hatrið á Gyðingum og fyrirlitningin situr fast í mönnum, og liggur næst að halda, að það stafi af því, að kirkjan hefir vakið hatrið og viðhaldið því. Af þinginu er lítið að segja, nema það gekkst fyrir því, að rannsakað væri málið í Bjelostok. Þá hefir og þingið aptur gefið stjórninni vantrausts- yfirlýsing. Má því merkilegt heita, ef hún situr lengi að völdum, því að allt af sýnir það sig betur og betur, hvað ómöguleg hún er í alla staði. Rán og morð eru daglegir viðburðir og auk þess hefir talsvert borið á óeirðum meðal hermanna síðustu dag- ana og það jafnvel meðal Kósakka, en þeir hafa verið hingað til stytta stjórnarinnar og bregðist þeir, þá má segja, að svo bregðist krosstrje, sem önnur trje. Hungursneyð mikil er sögð í Wolgafylkjunum og hefir ver- ið skorað á stjórnina að hjálpa. Austurríki og Ungverjaland. Nefnd manna hefir verið sett til þess að koma í samkomulagi milli ríkjanna. Nefnd þessi kom saman í Vínarborg. Nokkru eftir að ungversku nefndar- mennirnir voru komnir, bar við atvik, sem ekki verður til þess að mýkja huga þeirra. Fjöldi manna í Vínar- borg, og þar á meðal var Lueger borg- arstjóri, hjelt fund með sjer, halimæltu þeir mjög Ungverjum og einkum Koss- úthsliðum. Hjelt svo mannfjöidinn í fylkingu til húss þess, er Ungverjar bjuggu í, og köstuðu inn um glugga grjóti og öðru, er hendi var næst. Var það mesía heppni, að enginn beið bana af. Mælt er, að ríkiserfingjanum hafi eigi verið ókunnugt um þetta. Auðvitað fiýttu austurrísku ráðherrarn- ir sjer aö afsaka þetta tiltæki, en ekki er þó ólíklegt, að Ungverjar muni eftir því fyrst um sinn. Engíand. Kvenfólkið er ekki af baki dottið enn þá. Starfar það af miklum krafti að því að ná í kosninga- rjett. Sem kunnugt er, tók það mik- inn þátt í kosningabaráttunni í vetur og aflaði stjórninni, sem nú er, margra atkvæða. Þykjast þær því eiga nokkra heimting á, að stjórnin sje þeim fylgj- andi að málum. Nýlega gjörðu þær aðsúg að Asquith ráðherra og varð lögreglan að skerast í leikinn. For- sprakkinn, Miss Billington, var tekin föst. Var hún dæmd annað hvort til þess að greiða 180 kr. í sekt eða sitja í fangelsi að öðrum kosti, en hún kaus það síðara. Má nærri geta, að odd- borgararnir hneyxlast mikið á þessu, en konurnar láta það ekki bíta á sig og sitja við sinn keip. — Látinn er Mr. Leddon, forsætisráðherra á Nýja- Sjálandi; var hann mjög mikils met- inn meðal Englendinga. Upphaflega var hann fátækur verkmaður á Eng- landi, flutti til Nýja-Sjálands og var þar 25 ár þingmaður og 13 síðustu árin forsætisráðherra.' Meðan hann var forsætisráðherra, voru samþykkt ýms mjög markverð lög, sem mikil deila er um í öðrum löndum og sjálf- sagt víða eiga langt í land. Til dæmis má taka kosningarjett kvenna, 8 tíma vinnudag, lög um ellistyrk, sem þykja mjög góð. Annars var Leddon mik- il! fylgismaður Chamberlains. Noregur. Eins og tilstóð, var Há- kon konungur krýndur 22. júní í Þrándheimi (Niðarósi) með mikilli viðhöfn. Hafði safnazt saman mikill fjöldi stórmenna og höðingja til þess að sjá dýrðina. Vantaði sízt, að allar gamlar siðreglur væru notaðar. Er það stórrnikil furða, að Norðmenn skyldu hafa slíkan hjegóma. Þykir mörgum nóg um, hvað gömlu þjóðveldissinn- arnir láta mikið með konungsættina. Sem tízka er við þess háttar tækifæri, ljetu flestir þjóðhöfðingjar hjer í álfu sendimenn vera viðstadda til þess að heiðra nýja konunginn, nema Oskar Svíakonungur; frá honum kom eng- inn. Nýjar kosningar eiga bráðum að fara fram. Stjórnin hefir birt stefnu sína og getur þess meðal armars, að hún vilji gjöra málið norskara. Tals- verða eftirtekt hefir það vakið, að Björnstjerne Björnsson var ekki endur- kosinn í Nobelnefndina. Menn voru nefnilega mjög óánægðir með fram- komu hans í konsúlamálinu. í hans stað vaf kosinn Hagerup háskólakenn- ari. Látinn er hertoginn frá Almadouar. Flann var fuiltrúi Spánverja á Marokko- fundinum og forseti fundarins. Enskur maður, Wellman að nafni, ætlar að reyna að ná til norðurheim- skautsins í stýranlegu loftfari. Verða þeir 5 á loftfarinu. Þeir hafa með sjer sleða og verkfæri til þráðlausrar firðritunar. Wellman leggur upp í sumar frá Spitzbergen, ef loftfarið reynist vel; hann er kominn til Þránd- heims á leiðinni þangað. Allmiklir jarðskjálftakippir urðu í gær í Wales á Englandi. Mörg hús skemmdust og nokkrir menn meidd- ust. ísland erlendis. —o— Grein er í F.kstrablaðinu 13. júní, sem hljóðar um heimsókn íslenzkra þingmanna í Danmörku. Segir blaðið, að það muni ekki verða eintómur fögnuður að þessum samfundi íslenzkra og danskra þingmanna, og það á hvoruga hliðina. Raunar muni allt lenda í mat og víni og minnaræðum, að því er til Dana komi, og þar við sitji. Þeir treysti því, að svo sje allt í góðu gengi og sambandið milli ís- lendinga og Dana hið bezta. Stafi þetta af vanþekkingu þeirra á íslandi og íslenzkum málefnum. Öðru máli sje að gegna um íslendinga. Menn fari alvarlega villir vegar, ef þeir haldi, að hægt verði að sveigja þá að ein- hverju leyti, að því er kemur til þjóö- Iegra krafna þeirra. Ef stjórnin hafi ætlað sjer að gera þeim hlýrra í skapi til Dana með ástúð sinni, þá sje það nú um seinan. Það takist ekki að stemma stigu við skilnaðar-hreyfingunni. Allar tilraunir, sem gerðar verði í því skyni, beinlínis eða óbeinlínis, verði til ills eins. íslenzka málið (det islandske Spörgsmaal) sje mjög vandasamt við- fangs, og úr því verði alls ekki leyst. Það versta sje, að íslendingar og Danir liafi ekkert sameiginlegt sem þjóðir og að ísland sje bundið þeim bönd- um við Dani, sem stafi af fátækt þess og fólksfæð. Ef íslendingum þætti sómi að því að vera einn hluti í danska ríkinu, þá væri að vísu vandkvæði á því, að koma því skipuiagi á samband Islands og Danmerkur, að þeir fengju nægilegt sjálfstæði. Það myndi þó ekki ókleyft. En þegar svo sje háttað, að íslendingum sje kalt í skapi til Dana, og þyki minnkun og mjúklæting í því að vera að einhverju leyti þeim undirgefnir (staa i et vist underordnet Forhold til Danmark), þá vanti undir- stöðu góðs samkomulags milli þjóð- anna. Það sje mergurinn málsins í allri íslenzkri stjórnmálabaráttu. Menn sjá, að blaðið lýsir meir því, sem ætti að vera, en því, sem er. Ekstrablaðið hefir annars flutt marg- ar greinir um ísland í síðasta mánuði. Þar er skopgrein um heimboðið, frem- ur ófyndin og ekki í frásögur færandi. Þar var og saga ein af því, að dansk- ur iðnarmaður hefði átt þriggja ára dvöl í Reykjavík. Hefði svo neyðst til að hrökklast þaðan sakir Danahat- urs og tortryggni íslendinga gagnvart þeim, einkum meðal alþýðu manna. Dönum sje alls ekki vært á íslandi af þeirri ástæðu. Þessu svarar Lúðvík Kaaber, verzl- unarmaður, Flann er danskur maður, en hefir verið 4 ár í Reykjavík við

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/172

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.