Dagfari - 23.07.1906, Qupperneq 3
meðal annars húðir frá Orænlandi,
og þótti þeim ýmislegt vel gert, en
svo segir einn: »Það versta er
óhræsis lýsislyktin, sem ómögulegt
er að ná í burt«. Pá segir annar:
»Það sama er á íslandi. Þegar mað-
ur kemur þangað, þá leggur um
vitin á manni sauðargærulykt og
þorskaþræsluþef. Jeg hefi verið í
boði hjá æðsta embættismanni
landsins. Þar vóru allra beztu
veitingar, ágæt vín, en jeg gat ekki
borðað nema með mestu kvölum,
vegna gærulyktar og þorskaþræslu.
Og þegar maður kemur út á göturn-
ar í Reykjavík og kernur í nánd
við einhverja af »fínustu frökenun-
um« í bænum, þá hrekkur maður
til baka vegna sama óþefsins. Auð-
vitað venst maður innan skamms
þessum óþægilega ódaun, og eins
er það með Grænlendinga. Svona
er sagan. Jeg var sjálfur viðstadd-
ur, svo ekki er um neinar missagnir
að ræða. Þetta er maður, sem er
»velviljaður Islandi«, og hann sagði,
að þetta væri álit og reynsla allra
þeirra, sem hefðu verið heima og
hann þekkti. Pað getur auðvitað
verið, að þetta sje svona, — en því
fremur íslendingar en Norðmenn?
Hann fjasaði ekkert um þetta og
talaði ekki um þetta af neinni illgirni,
sagði mjer þetta miklu fremur í
trúnaði. Hann sagðist hafa heyrt,
að danskir sjóliðsforingjar hefðu
sagt, að margir Danir, sem kæmu
tii Reykjavíkur (hann tók fram
Reykjavík), gætu að eins með þján-
ingum bragðað matinn í fínum
veizlum.
Notkun
hestaflsins.
--O--
í engu af menningarlöndum norð-
urálfunnar byggist tilvera og fram-
kvæmdir þjóðarinnar að eins miklu
leyti á hestinum og hjá okkur
íslendingum; óvíða er brúkun hestsins
jafn margbrotin sem á íslandi. Hest-
urinn er okkur lífsnauðsyn, án hans
getum við ekki lifað, nema við þá
hefðum eitthvert húsdýr í hans stað,
sem vart mundi þó fullnægja þeim
kröfum, sem gerðar eru til hestsins.
Óhjákvæmilegt húsdýr er hesturinn,
ekki sízt þar sem eins hagar til og á
Islandi. Haiin er aðalsamgöngu-
færi til lands; aðrar þjóðir nota
gufuafl og rafmagn. Við höfum hest-
kraftinn eingöngu. Hestinn brúkum
við til vöruflutninga úr og í kaup-
staðinn, til að flytja heyið heim af
túni og engjum o. m. fl. Hjer við
bætist brúkun hans til reiðar, sem er
annað aðalatriðið í notkun hestsins
hjá okkur íslendingum. Erlendis er
brúkun hestsins í þeim greinum, sem
taldar hafa verið, hlutfallslega stórum
minni, vörurnar ganga hjer með
eimlestunum, þegar um vegalengd er
að ræða og bændur hafa að eins stutta
tíð að flytja vörurnar heim til sín, og
brúka til þess vagna með hestum fyrir.
Brúkun á hestunr erlendis til vöru-
flutninga er því hlutfallslega mjög
lítil, borin saman við íslenzka stað-
háttu; hjer ríða menn einnig sjaldan.
í þess stað aka menn í vögnum, sem
taka 2-6 menn; við það sparast marg-
sinnis hestur.
Mestan hluta hestaflsins nota menn,
hjer í Danmörku og annarstaðar, í
þarfir jarðyrkjunnar, mannsaflið hjálpar
að eins til og stýrir verkinu.
Plógurinn er undirstöðuverkfæri allrar
jarðyrkju; á hestum og plógi byggist
öll jarðrækt. Án þessa verkfæris, sem
er jafngamalt akuryrkjunni, er öll
viðleitni til að gera sjer jörðina
undirgefna ómöguleg. Vanalega draga
hestar plógana, þó er sumstaðar á
stórmn búum gufuafl eða rafmagn
látið gera það.
Hjá okkur íslendingum eru hestar
lítið brúkaðir við jarðyrkju í saman-
burði við það, sem gerist hjá öðrum
þjóðum. Við höfum svo að segja
ekkert yrkt land. Þó eru á íslandi
margar ferhyrningsmílur, sem liggja
vel til ræktunar og ef til vill hafa
fólgið í sjer meira gróðrarmagn en
nrenn almennt hafa hugmynd uin.
Túnin, sem eru einu ræktuðu blett-
irnir fyrir utan kálgarðana, eru víða
þannig útlítandi, að þau naumast geta
kallast ræktað land, víða meira og
minna þýfð, sem gjörir þessa bletti
lítt aðgengilega til ávinnu. Þar sem
náttúran hefur búið svo vel í haginn,
að túnin eru sljett, er jarðvegurinn
fastur, þar sem hann ekki hefur verið
hreyfður í ómuna tíð; loptið nær ekki
að verka á hann, sem er þó aðalskil-
yrði fyrir því, að efnabreytingar geti
átt sjer stað og jörðin borið tilætlað-
an ávöxt. Eins og því nú er ástatt,
geta túnin ekki heitið ræktuð jörð,
meðan við ekki látum plóginn rista
þau, sem nú er byrjað á, þó í smáum
stíl sje enn, að kalla má. Aðferðin sú
að stinga jörðina upp með spaða
getur varla talizt til jarðræktar; þess-
háttar aðferð á að eins heima hjá vilt-
um þjóðum, sem ekki þekkja plóginn.
Þegar menningar-þjóðirnar koma með
plóginn og leggja þessar þjóðir undir
sig, þá fyrst byrjar akuryrkjan og
menningin, sem henni er samfara.
Það er því mál komið fyrir íslend-
inga að hætta þeirri úreltu aðferð að
róta jörðinni með spaðanum, en taka
plóginn í hönd. Á íslandi, eins og
annarstaðar, verður plógurinn fyrsta
og helzta jarðyrkjuverkfærið. Án hans
eru allar jarðabætur of kostnaðarsamar
og vinnan ekki annað en kák.
I flestum tilfellum eru tveir hestar
hafðir fyrir einum plógi, eru stundum
að eins einn og einstaka sinnum þrír,eptir
stærð plóganna og eðli jarðvegsins.
Á íslandi mun ekki veita af þremur
hestum, þegar óbrotin jörð er plægð,
sjerstaklega ef grasrótin er með og
verkið á að ganga nokkurn veginn
fljótt, en í því efni verður reyndar að
kenna mönnum, hvað bezt hentar á
hverjum stað.
Það leiðir nú af sjálfu sjer, að brúkun
hesta á íslandi hlýtur að að aukast,
jafnframt því að plægingar og önnur
jarðyrkjustörf verða almennari og víð-
tækari.
Gerum nú ráð fyrir, að hestaflið
verði innan fárra ára notað mörgum
pörtum meira við jarðyrkju en nú
gerist og menn því þyrftu að
auka hestatöluna; en er þá ekki
ástæða til að spyrja: Geta menn
ekki heimtað meira af þessum hestum,
sem menn hafa, er brúkun hestanna
almennt svo mikil, að ekki verði ætl-
ast til, að meira megi bjóða þeinr? —
Svarið verður óhikað neitandi. Það
ætti hverjum, sem hugleiðir"þetta mál,
að vera augljóst, að brúkun hesta á
íslandi er mjög lítil með tilliti til
fjöldans. Hestatalan er gífurlega stór
á íslandi í samanburði við Danmörku,
eins og eptirfarandi tölur sýna.
í Danmörku er hestatalan c. 500,000
Áíslandiárið 1902 — c. 45,000
Eptir því koma á hverja hundrað
íbúa:
í Danmörku um 20 hestar.
Á íslandi - 50
Þetta er óneitanlega stór mismunur,
sem staðhættirnir heima á íslandi
eiga mikinn þátt í, og þar að auki
er nokkur hluti af hestatölunni á Is-
landi verzlunarvara og einnig verður
að taka tilit til þess, að dönsku hest-
arnir eru stærri og sterkari og afkasta-
meiri.
Framhald sfðar.
Outtormur Pálsson.
Handan
um
haf.
—o
Höfn 7. júlí.
Rússland. Sama rifrildið er á
þinginu enn þá og rekur þar hvorki
nje gengur. Þingið hefur samþykkt í
einn hljóði, að dauðahegning skuli af-
numin. Lítlar líkur eru þó til þess,
að stjórnin skeyti því neitt; hefir henni,
að jafnaði, ekki vaxið f augum að af-
höfða menn. Svo lítur þó út, sem
hún sjái, að eitthvað þurfi að gjöra
tii þess að sefa alþýðu manna. Hefir
hún því lofað að úthluta meðal bænda
jörðum krúnunnar og, ef á þarf að
halda, jafnvel að kaupa jarðir handa
þeim á ríkisins kostnað. Veitir og
eigi af, að bændum sje hjálpað, því
að víða hefir verið uppskerubrestur og
þar af leiðandi mikil nauð meðal þeirra.
Óspektir, rán og manndráp fara alls
ekkert minnkandi. í Varsjav skaut
þeim kvitt upp, að drepa ætti alla
löggæzlumenn og vóru margir drepnir
á einum og sama degi. Hafa þeir
því neitað að gegna lögreglustörfum
á götum úti og er herlið látið gjöra
það. Þá fara óeirðir meðal hermanna
stöðugt vaxandi. Neita þeir oft að
hlýða foringjunum, og það jafnvel
í lífverði keisarans sjálfs.
Roshdestvenski og fleiri herforingjum,
sem voru í bardaganum í Tushima-
sundinu í fyrra, hefir verið stefnt fyrir
herrjett. Eru þeir ákærðir fyrir það,
að hafa staðið illa í stöðu sinni.
Austurríki. Á þinginu slóg þar í
svo harða rimmu, at sjaldan hefir annað
eins borið við og er þó engin nýung,
þótt þingmönnum slái saman. Til-
efnið var það, er nú skal greina:
Frants keisari var á ferð í Bæheimi og
tóku menn honum almennt vel. Meðal
annars kom keisarinn til bæjar nokkurs,
er nefnist Gablonz. Þar f bænum var
Bismarksvöllur og endurminningar
margar um gamla Bismark. Nú tóku
bæjarbúar allt sem um hann gat minnt
á brott; hugðu þeir, að það mundi
minna gamla keisarann óþægilega á
ófarirnar 1866 og hvernig Bismark
fór með Austurríki. En þegar þýsku
þingmennirnir fengu að vita þetta,
urðu þeir æfir við. Drógu þeir það
frain við umræður á þinginu, og sögðu,
að þýskt þjóðerni væri svívirt með
slíku. Ljetu jafnvel sumir á sjer heyr-
ast, að rjettast væri fyrir Þjóðverja í
Austurríki að segjast í lög með Þjóð-
verjum á Þýskalandi. Það eru margir,
sem helzt vilja sameina alla Þjóðverja
í eitt ríki og má búast við, að fleiri
hallist að þeirri stefnu, þegar nýju
kosningarlögin komast á og Þjóðverjar
hætta að ráða lögum og lofum í
Austurríki, eins og þeir i raun og veru
hafa gjört hingað til. Gamli Bismark
sagði einu sinni, að Þjóðverjar í Aust-
urríki drægjust af aðdráttarafli til Þjóð-
verja í Þýskalandi; átti hann þar við
þjóðernistilfinninguna. Er það nú, ef
til vill, að koma í ljós, að gamli mað-
urinn hefir haft rjett fyrir sjer.
Frakkiand. Dreyfusmálið óútkljáð
enn þá. Margir spá því, að nú verði
hann sýknaður loksins. Margt bendir
á, að Frakkar sjeu loks orðnir þreyttir
á öllu málavastrinu. Það hefir koniið
til utnræðu að gefa öllum þeim, sem
óspektir frömdu við námuslysið í
Courriéres og eftir það, upp allar
sakir. Mjög er þó óvíst, að póstþjónar
þeir, sem gjörðu verkfall, verði teknir
í fulla sátt. Ráðaneytið neitar því
einarðlega, að þjónar ríkisins hafi rjett
til þess að gjöra verkfall. En það er
atriði, sem jafnaðarmenn greinir á um
sjálfa. En með þessu hefir Clemen-
ceau sýnt, hverju megin hann er í því
máli.
England. Járnbrautarslys mikið
varð þar við Salisburg-stöðina. Sagt
er að um 30 menn hafi farizt og
milli 10 og 20 fengu meiðingar, flest-
allt Ameríkumenn. Þá varð og slys
í kolanámum í Vales við að vatn
streymdi niöur námurnar og fórust
þar nokkrir menn.
Stórveldin. Það lítur út fyrir, að
stórpólitíska flokkaskiptingin í Norður-
álfunni sje að breytast. Talið er að
þríveldasambandið standi mjög vö'ltum
fótum. Þóttu Ítalír koma illa fram við
bandaríki sitt, Þýskaland, á Marokko-
fundinum; það er áreiðanlegt, að Ítalía
vill vináttu Frakklands og Englands
um fram allt. En nú er vinátta mikil
komin á með Englendingum og Frökk-
um og einmitt vináttan við Frakka
hefir dregið saman Englendinga og
Rússa, sem hingað til hafa verið svarnir
fjandmenn. Byrja Englendingar því
að senda flota sinn til Kronstadt til
heiðurs við keisara. Á það að verða
nú í ágúst. Hins vegar líkar Þýska-
landi þessi vináttumál illa og gjörir
sitt ítrasta til þess að spilla þeim.
Færeyjar. Effersöe sýslumaður,
sem getið hefir verið, að væri mest mót-
fallinn því, að Færeyingum sje veitt
heimastjórn, var kosinn með miklum
meiri hluta.
Frá heiðuni
til hafs.
Tíðin er allt af heldur köld og
leiðinleg.
Norðri flytur þær frjettir, að þeir
Ólafur Breim og Magnús Andrjes-
son hafi ekki verið í þingmanna-
leiðangrinum til Danmerkur.
Forberg, norski símafræðingurinn
kom hingað um miðja síðustu viku
að líta eftir lagning símastauranna
hjer um fjörðuna, Eskifjörð og
Reyðarfjörð.
Sklp.
Alphatros kom frá Seyðisfirði 21. þ.
m. Á því vóru: Friðrik Oíslason úr-
smiður og kaupmennirnir: Þórarinn Ouð-
mundsson, Stefáu Th. Jónsson og Fr.
Wathne.
Den bedste Shagiobak
er
“Marigold“,
som faas overalt paa
Island.