Dagsbrún - 26.05.1917, Síða 2

Dagsbrún - 26.05.1917, Síða 2
32 DAGSBRÚN Hámarksverð á heilagfiski. Síðan hámarksverðið kom á heilagfiski, hefir það að jafnaði verið selt í heildsölu, þannig, að lúður hafa ekki verið bútaðar sundur eins og áður, heldur seldar í heilu lagi; og þar sem þær kosta þetta frá 10 og upp í 40 kr. stykkið, þá verða það aðeins þeir, er peningaráðin hafa, sem geta keypt, en almenningur fer að mestu á mis við þessi kaup, og þó margir vildu slá sér saman og kaupa í félagi, og skifta með sér sjálfir, þá er það þeim vandkvæðum bundið, að ókleyft má kalla. Það þarf því að skifta heilag- fiski að minsta kosti í 3 flokka og setja verðlag á hvern fyrir sig. Mætti flokkunin vera þannig: að í 1. flokki væri heilagfiski í heildsölu, t. d. lúður yfir 5 kg., í 2. fl. sundurskornar lúður (miðstykki) og í 3. fl. smálúð- ur undir 5 kg. og hausar, sporð- ar og þunnildi af stærri lúðum. Verðið þyrfti að vera svo mis- munandi á þessum flokkum, að það borgaði sig t. d. eins vel, að selja lúðu sundurskorna, eins og að selja hana í heilu lagi, og þá mundu þessi matarkaup geta komið almenningi að not- um. Vænti eg svo góðs af verð- lagsnefndinni okkar, að hún taki þetta til greina sem fyrst. Verkamaður. Af Dagsbrún kemur i dag að eins hálft blað, 2 síður. Á laugardaginn kemur verður hún 4 siður og kemur þá framhaldneðanmáls- sögunnar. Skipstrand. f gær strandaði seglskip í Grindavík. Var það á leið hing- að með saltfarfn frá Spáni. Fiskiskipum sökt. Fregn hefir borist hingað um það að 6 færeyskum fiskiskip- um haíi verið sökt nýlega. Frá Danmörku. Fiskajli í Danmörku nam árið 1915 samtals 267* milj. króna, en árið áður (1914) 1774 milj. eða 97^ milj. kr. munur. Tæp 18 þús. manns stunda fiskiveiðar í Danmörku á samtals 15,390 bátum og skipum; þar af er 414 meira en 15 smálesta, Floti þessi var virtur 1915 á 13 milj. en veið- arfærin 10 milj. kr. Það aílað- ist viðlíka mikið 1914 eins og 1915 en verðið var þetta betra seinna árið. Af kola aflaðist 1915 32 milj. Meðalverð fyrir kolann óslægðan var 23 aurar pundið. Af þorski fengust 277s milj. meðal verð 1472 eyrir pundið óslægt. Þetta er verð- ið sem sjómennirnir fengu fyrir heldur fyrst um sinn fundi í bæjarþingsstofunni mánuðaga, miðviknðaga og jöstnðaga kl. 6—7 síödegis. Allir þeir, sem hafa mál að kæra um lög-meeti uppsagna á húsnæöum eða um upphæð húsaleigu í Reykjavíkurbæ, geta borið það mál undir nefndina, samkvæmt 2. og 4. gr. bráðabirgðalaga frá 14. þ. m. Menn mega gera hvort sem þeir vilja: senda for- manni nefndarinnar skrifleg erindi um ofannefnd mál eða koma á fundi til hennar og tjá henni þar mál sín munnlega. 1 Hú^aleiguneíndiii. fiskinn. Neytendunum varð hann rnikið dýrari þegar fisk- salarnir voru búnir að okra á honum. Við áramótin 1915 voru í Kaupmannahöfn 867 lögreglu- þjónar, 31 »lírukassa«-menn, 1283 bifreiðarstjórar (skýrteinið tekið af 10 á árinu) 74 sendi- menn (bybud). Um nýlendur á austurströnd Grænlands hefur verið mikið talað í Danmörku nú undan- farið. Er ráðgert að flytja þang- að Grænlendinga frá vestur- strönd Grænlands, því þeim hefur fjölgað mjög síðustu mannsaldrana en selur og önnur björg minkað. Er ráð- gert að fyrsta nýlendan verði stofnuð strax að stríðinu loknu við Stuartsnes við hinn 40 mílna langa fjörð Scoresby- sund. í Kaupmannahöfn voru árið 1915 nær 600 hundar »teknir fastir« á götum borgarinnar. Nálægt helmingur þeirra var drepinn af þvi enginn eigandi gaf sig fram. 173,000 verkamenn og verka- konur voru 1915 i verklýðsfé- lögum í Danmörku. Gröf frá því á tímum þjóð- ílutninganna miklu fanst nýlega á Jótlandi, var í henni sverð og ýmisl. fl., meðal annars um 200 perlur. í desember dó gömul og að því er virtist fátæk kona, sem bjó i Nörrevoldgade 42 í Kaup- mannahöfn (í því húsi hafa búið landar). Þegar skiítarétt- urinn fór að skoða það sem hún lét eftir sig, fundust 40 þús. krónur í peningum í kommóðuskúffu hennar. Nýr verkamannaháskóli heíir verið reistur í Esbjerg. Heíir kostað 66 þús. kr. Var vígður um miðjan fyrra mánuð. Meir en 1000,000,000 kr. veltu höfðu samvinnufélögin dönsku árið sem leið. S mjö rskorturinn. Engum smjörseðlum heíir verið útbýtt síðustu þrjár vik- urnar. Allur almenningur í bænum er því gersamlega við- bitslaus. Matvælanefnd bæjar- ins mun þó hafa átt rSð á liðl. 2 smálestum af smjörlíki, en í hálfsmánaðarskamt handa bæjarbúum mun þurfa alls 8 smálestir (16 þús. pd.), vantaði því um 6 smál. til að fá í einn skamt handa bænum. Lands- stjórnin kvað eiga hér smjör- líkisbirgðir og hefir matvæla- nefndin að sögn bæði skrifað og símað(!) stjórnarráðinu þessu viðvíkjandi, og hefir stjórnarráðið (á fimtudaginn) látið nefndinni í té 4 smálestir af smjörlíki. En matvælanefnd- in situr nú við með sveittan skallann að »reikna út« hvort og hvernig hún eigi að ráðstafa þessu. Á meðan stjórnir og nefndir, sem flestar eru skipaðar mönn- um, er hafa nóg að bita og brenna, eru að skrifa og síma og bollaleggja framkvæmdirnar, verður fátæk alþýða að svelta heilu og hálfu hungri vegna fyrirhyggju- og framkvæmdar- leysi valdhafanna. Það er sagt að sumir efna- menn bæjarins séu vel birgir að ýmsum nauðsynjavörum, einstaka jafnvel til margra ára. Yæri nú ekki ráð að láta rann- saka þær birgðir og taka eitt- hvað til úthlutanar hjá þeim, sem hafa óhóflega mikið, en draga skamtana af hinum. _ V. Fúkyrða-heildsalinn. Heildsali nokkur hér í Reykja- vík hefir fundið hvöt hjá sér til þess að koma fram sem dálkafyllir í »ísafold«, og jafn- framt hrúga þar saman óvirðu- legum orðum um ýmsa menn sem berjast fyrir samvinnufé- lögum. Viðhefur hann þar sömu aðferðina gagnvart samvinnu- félagsmönnum og auðvalds- sinnar í öllum löndum hafa nótað móti þeim sem barist hafa gegn auðvaldinu hvort sem það nú hafa verið jafnað- armenn, samvinnumenn eða aðrir, að reyna að skaða mál- stað þeirra, með þvi að reyna að sverta þá sjálfa, persónulega. En reynslan ætti að vera farin að sýna hver árangur er af þesskonar árásum, og er ein- kennilegt að þó ekki heimskari maður en nefndur heildsali er sagður, skuli ekki hafa séð það, og er sennilegra að svo hafi verið, en að skynsemistýra hans hafi ekkert mátt sin í því níðamyrkri stórmenzku, hroka- skapar og gikksháttar, sem ein- kennir heimskingjann sem græðist fé, og sem jafnauðveld- lega má þekkja hann á, írá öðrum efnamönnum, eins og asnann á eyrunum. þessi vaðall heildsalans sem nú í tvigang hefir verið rekinn ofan í hann aftur í blaðinu »Tíminn«, mundi hafa verið látinn afskiftalaus hér í blaðinu, ef beildsalinn hefði ekki farið að blanda »Dagsbrún« ogjafn- aðarmönnum inn í fúkyrða- moldviðri. það er hann rótar upp, og það á mjög einkenni- legan hátt. Hann brúkar sem sé orðið »socialisti« (jafnaðar- maður) sem skammaryrði og þarf til þess meiri fáfræði en ætla má honum, jafnvel þó »ísafoldar«-greinarnar bendi á að óþarfi sé að draga af hon- um í því efni. ólkurmálið var útrætt á síðasta bæjarstjórn- arfundi, en fékst þá ekki út- kljáð af því klukkan var nokkr- ar mínútur yfir tólf. Rétt fyrir tólf voru greidd atkvæði um, hvort halda skyldi áfram um- ræðum eða ekki, og greiddu fimm atkvæði með, en fjórir móti; en samkvæmt fundar- sköpunum þarf 2/3. Tveir full- trúar sem beðið höfðu um orð- ið féllu frá því, og hefði auð- veldlega mátt afgreiða málið, með því að halda fundinum áfram nokkrum mínútum leng- ur, en formaður (hr. Sighv. Bj. bankastjóri) sagðiriL ekki láta slík brot á fundasrköpunum(I) viðgangast og sleit fundi. usjálf- rátt varð manni á að hugsa.: Hefði sama aðferðip verið við- höfð ef það hefði verið dverg- rafmagnsstöð fyrir bæinn, sem hefði verið á dagskrá? Nótur, bæjari'ns stærsta úrval í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur Pósthússtræti 14. Bókabúöin á Laugavegi 4 hefir til sölu innlendar og er- lendar brúkaðar bækur — mjög ódýrar. Tekur til útsölu gamlar og nýjar bækur, fyrir einstaka menn og félög, eða kaupir, ef um semur. Gtuðm. Davíðsson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Dagsbrún

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.