Dagsbrún - 04.08.1917, Blaðsíða 2

Dagsbrún - 04.08.1917, Blaðsíða 2
56 DAGSBRÚN Olíkar aðfarir. Bakararnir hafa sett brauðin upp óhæfilega mikið. Stjórn Ál- pýðusambandsins hefir kært brauð- verðið fyrir verðlagsnefnd og það hefir sannírétst, að sú nefnd hafi fyrir löngu kveðið upp um að brauðin væru seld dýrara verði en sanngjarnt er, en að hún hafi ekki séð sér fært að setja há- marksverð á brauðin, fyr en trygg- jng væri fengin fyrir því, að bak- ararnir gætu ekki gert bæinn brauðlausan. Loksins eftir langa mæðu, kom bjargráðanefndin með frumvarpið, sem heimilar að taka brauðgerðarhús eignarnámi, og getið hefir verið hér í blaðinu. Nú skyldi maður ætla, að þingið hefði hraðað málinu, svo hægt yrði sem allra fyrst að létta af þeim órétt- láta og óhæfa skatti, sem gróða- fíkn bakaranna hefir lagt á al- menning. En hvað gerir þingið — sama þingið sem rak dýrtíðarupp- bót embættismanna gegnum allar umræður á einum degi ? Það dreg- ur lögin dag eftir dag, og einstaka þingmenn sem þjást af ólæknandi kjaftæði, nota tækifærið til þess að svala málæðisfýsn sinni, og halda hrókaræður um rétt einstakling- anna, í þetta sinn helgan rétt bak- arameistaranna (til þess að okra á helztu lífsnauðsyn almennings, brauðinu). Viðstadclur. Við likbörur læknakosningafrumvarpsins. Frv. um að kjósa skuli lækna var strádrepið við fyrstu umræðu í þinginu. Sá sem þetta ritar, hafði áður enga. skoðun myndað sér um málið, en sanníærðist við um- ræðurnar um það, að rétta að- jerðin er að_ kjósa lœknana. Það er því eins gott að fara hér nokkrum orðum um umræðurnar, sem um málið urðu. Móti frv. töluðu Magnús Péturs- son, Benedikt Sveinsson og Þor- leifur Jónsson. M. P. var mjög gamansamur og fór mörgum skemtilegum orðum umþaðað lækn- arnir, sem ætluðu sér að ná kosn- ingu, yrðu að ferðast um héraðið með meðalakassann og lækna lýð- inn, til þess að menn gætu dæmt um hver bestur væri læknirinn o. s. frv. Hér kemur fram tvöföld villa. í fyrsta lagi: Við læknakosningu þýddi ekkert fyrir frambjóðendur að „sýna“ sig eins og við alþing- iskosningar, nema því aðeins að frambjóðendurnir væru aliir óþektir, því menn kysu þann frambjóend- ann sem mest orð færi af sem lækni, og menn því helst vildu hafa. Og þetta er aðalatriðið í málinu, en ekki hitt (sem er seinni hluti villunnar hjá M. P.) hvort almenningur sé fær, eðá ekki fær, að dæma um hver sé bezti lækn- irinn. Það verður ekki skilið, hvern- ig þeir, sem eru með prestkosn- ingalögunum, geta verið á móti læknakosningu, því enginn vafi er á því að almenningi er það miklu viðkvæmara mál, hvernig læknir- ínn er, heldur en hvernig prest- urinn er. Flestum er sama um hvort presturinn sem hjálpar þeim inn í heilagt hjónaband, skírir börnin þeirra o. s. frv. er lúthers- trúar eða andatrúar, hvort haun ■ er „góður“ prestur, eða poki. En það er bókstaftega engum, sem er sama um það hvort læknirinn sem hann þarf að leita til, er maður sem hann hefir álit á, eða maður sem hann enga tiú hefir á. En það er sjaldnast að sá læknir sem sjúklingurinn hefir ekkert álit á, geri gagn. Því þó læknar, þegar um beinbrot, liðhlaup, skurð og þessháttar er að ræða, geri altaf gagn, þá mun mönnum oftast, segjum 5 skifti af 6, batna af því líkaminn vinnur sjálfur bug á veikinni, en ekki af meðalasullinu, eins og líka langflestir af þeim sem deyja undir læknishendi, deyja eðlilegum dauða, en ekki af því læknarnir drepi þá á vitlausri meðferð. Hlutverk læknisins er því tvent, eða réttara sagt, það er á tvennan hátt að læknirinn gerir gagn, s. s. með því að lækna, og með því að veita þá ró og þann frið, sem það gefur sjúkum manni, að vera undir hendi læknis, sem hann hefir trú á. Og það er enginn vafi á því, að það er engu minna á hinn síðari hátt en hinn fyrri, að lækn- arnir vinna að almennri vellíðan þjóðarinnar, enda er algengt að heyra menn sem dvalið hafa í öðrum héruðum, telja góðan lækni meðal helztu kostanna, er héraðið hafi að bjóða. Enginn vafi er á því, að allir góðir læknar verða með lækna- kosningalögunum, þegar þeir hafa athugað þau, þar með talinn hr. Mag iús Pétursson. Að skussarnir meðal iæknanna séu á móti þeim er aftur skiljanlegt, því vitanlega er vonlítið fyrir þá að ná kosningu, er náð hafa prófi fyrir graut.ar- vorkunnsemi háskólans, eða eru þektir að því að vera óreglumenn — ekki að nefna þá sem hafa það til að detta ofan í rúmið til þeirra sem þeir eru sóttir til, og sofna þar út úr fullir, eða gefa þeim sem koma að vitja þeirra á kjaftinn, og henda þeim út um gluggann eða niður dyraþrepin. Framtíðarstefnan hlýtur, hvað læknunum viðvíkur, aðveraþetta: 1) Að héruðin fái sjálf að ráða hvaða lækni þau íái (ef kosning sýnir, að þau viiji einn fremur en annan). 2) Að iæknahéruðum sé fjölgað, alt að því um helming. 3) Að laun læknanna fari smátt og smátt hækkandi, en þóknun fyrir læknisbjáip iækkandi, þar til læknarnir hafa góð föst laun, en læknishjálp er orðin ókeypis. Þeim mönnum, sem eru sjálfir svo langt niðri í jörðinni, að þeim finst þriðji iiðurinn í tillögunni vera skýjaborgir, skal bent á, að það er margt sem við höfum ekki ráð á núna, sem við höfum ráð á, þegar þjóðin vitkast svo, að menn hætta að brenna taði í héruðum, þar sem hægt er að taka nógan mó, að menn fara að nota votheysgerð í stað þess að láta töðuna ár eftir ár skemm- ast á túnunum, og yfirleitt hætta að fleygja þúsundum króna í sjó- inn fyrir skilningsleysi og þekking- arleysi eins og nú á sér stað á ótal sviðum atvinnulífsins. Ráðning yerkamanna, Sá siður er farinn að tlðkast hér allmikið, bæði síðastliðið ár og farið vaxandi í ár, að þeir sem verkamenn þurfa að fá til fjar- lægari staða, auglýsa eftir þeim með engum fyrirvara, og hafa yfir- völdin gengið hér á undan með sínu eftirdæmi — eins og tveggja daga fyrirvari á að nægja þeim til undirbúnings, þó þeir eigi að fara norður á Tjörnes eða annað og vera í burtu í vikur og mánuði. Halda þessir góðu herrar að verka- menn hafi svo mikið undir hönd- um, að þeir áður en þeir fara til langdvalar burtu frá heimili sínu ekki þurfi að hafa neinn undir- búning hvað fatnað snertir o. fl.; og frá heimilum sínum, án þess að skilja eftir einhverja björg handa konu og börnum, er varla að búast við að menn fari. — Það lítur helzt út íyrir að þessir góðu vinnu-herrar álítí jafnt að kalla verkamenn til vinnu eins og að senda dreng eítir hestum í haga — og svo þegar þeir ekki fá nægi- legt fólk undir eins, þá segja þeir að fólk ekki vilji vinnuna — en það er víst að margur situr heima sem gjarnan mundi hafa til vinnu farið, ef lengri tími hefði verið gefinn til undirbúnings. Nói. M at v æl anef ndin. Enginn vafi er á því aö Mat- vœlanefndin gæti verið mjög þörf, ef í henni væru menn, sem hefðu opin augu fyrir þörfum al- mennings, og vakandi áhuga á því, að bæta úr þeim. Um hina starf- andi(!) Matvælanefnd verður hvor- ugt sagt, og afskiftaleysi hennar af íslenzka smérinu benda á, að hana vanti vilja til þess að gera annað eða meira en hið minsta, sem hægt er að búast við af henni. Því hinu trúir enginn, að hana vanti svo algerlega heilbrigða skyn- semi, að hún hafi haldið að hún mœtti ekki hugsa um íslenzkt smjör, af því að í erindisbréfi hennar sé ekki nefnt annað en smjörliki!! Garðeigendur! Þið sem ekki eruð enn þá búnir að reyta illgresið í rófu- og kartöflu- görðum ykkar, látið ekki lengur dragast að gera það! 1. maí 1917. 1. mai er dagur verkamann- anna. Þá er öllum verksmiðjum lokað. Verkamanna- og verka- kvennafélögin ganga í skrúð- göngu um borgirnar. Hvert fé- lag hefir sinn fána — og svo marga aðra með ýmsum áletr- unum, eggjunarorðum um, að vinna í þaríir jafnaðarstefnunn- ar, í þarfir réttlætis og mann- úðar. Dagurinn er fremur öllu öðru helgaður átta tíma vinnu- deginum. í Kristianíu höfðu menn bú- ist við óspektum. Menn héldu, að hungurs-uppþotin í Svíþjóð mundu hafa kveikt í hugum verkamanna hér. En svo fór sem fáa varði, að alt fór fram með kyrð og spekt. Einnig í Svíþjóð. Snemma dags gengu börnin í skrúðgöngu um bæinn. Fór hún vel fram. Mörg þeirra höfðu norsk smáflögg, en meira ber þó á rauðu flöggunum. Blakti það og á nokkurum hús- um í borginni. Seinna um daginn gengu verkamannafélögin í skrúð- göngu. Söfnuðust þau saman á ýmsum stöðum i bænum, á Holbergsplads, Stórtorginu o. v. Þaðan var svo haldið upp Karl Jóhannsgötuna og til Tullinlökken og voru ræðurnar haldnar þar. Alls staðar var svart af fólki. Lögregluþjónar stóðu með fárra metra miIlibihV en þurftu lítið að hreyfa sig. Ríðandi lögregluþjónar riðu fram með mannþrönginni ann- að veifið. En alt er svo rólegt. Og lögregluþjónarnir brosa. Þeir hafa séð það fyrir, að það verður rólegt í dag. Einn flokkurinn kemur á fætur öðr- um. Fölir og grannholda eru þeir margir þessir verkamenn. Auðséð, að það er sjaldan sem þeir fá að lyfta sér upp meðan sól er hátt á lofti. Auðséð, að það er sjaldan, sem þeir fá að anda að sér heilnæma loftinu, láta sólina skína á sig. En þeir bera höfuðið hátt. Það er eins og hver dráttur í andlitum þeirra sé höggvinn í marmara. Það skín vilji úr hverjum and- litsdrætti. Þessir menn hafa sett sér mark, sem þeir, ef því væri að skifta, létu lif sitt til þess að ná. Það er framtíð barnanna þeirra, sem þeir hugsa um. »Enn er dimt í hí- býlum okkar«, má lesa úr augum þeirra. »En niðjar okkar, börnin okkar — þau eiga ekki að búa við sömu kjör og við. í sólskini eiga þau að vinna, frjáls, hlekkjalaus. Og sól menningarinnar á að skína inn í huga þeirra«. — Einstöku drykkjumannsandlit lít ég. En þau eru fá — í skrúð- göngunni. En margur maður- inn er orðinn slitinn. — Nú koma konurnar. Saumakonu- félagið. En sá aragrúi. Fölar, kinnfiskasognar, niðurbeygðar. Þokkalega, en fátæklega klædd- ar.-----

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.