Dagsbrún - 04.08.1917, Blaðsíða 3

Dagsbrún - 04.08.1917, Blaðsíða 3
DAGSBRÚN 57 Ég stend á Karl Jóhanns- götunni. Við hlið mér stendur sælkei'alegur maður, ístrubelgur. Gullkeðjan dinglar á maganum. Hendur hans, luralegar og ljót- ar, eru alsettar hringum. Auð- sjáanlega einn, sem grætt hefir á stríðinu. Hann hefir gull- spangagleraugu. Ekki á nefinu. Hann heldur á þeim í hend- inni. Hann ber þau upp að augunum annað veifið, þegar fánarnir eru bornir fram hjá. Hann gerir það auðsjáanlega til þess að sýná gleraugun. Augun eru hvöss og bera engin merki sjóndepru. En á spönginni, sem festir saman »augun«, eru 5 smáir, skínandi steinar. Ég fer að líta kringum mig. Þeir eru inargir, sem líkjast þessum náunga með gullspanga- gleraugun. Þeir hafa tekið kon- urnar með. Þær eru klæddar i dýrindis skinnfeldi. Það er kalt enn þá. Annað veifið heyri ég þær tala um hvernig þær ldæði sig, verkamannakonurnar. Við og við leikur hæðnisbros um varir þeirra. Sumar sauma- stúlkurnar líta til þeirra dálítið starandi. Þær horfa beint fram aftur á fánann sinn. Ég lít einketmilega drætti kringum munnvikin. — Annað veifið hlæja þeir — ístrubelgirnir. Þá kreppa þeir hnefana — þeir með marmara andlitin. En alt er rólegt. En vara þig, vara þig, auðmaður. Hyldýpi gín við fætur þér. Hinumegin kreptir hnefar. Dagur réttlætisins er ekki fjarri. — Eg geng þangað, sem fylkingin sveigir inn á Tullin- lökken. — Ég heyri hláturfyrir attan mig og lít við. Það eru tvær konur, fátæklega klæddar. »Hví skyldi ekki liggja vel á okkur?«, segir önnur. »Þetta er dagur verkamanna. ög við eigum að vera kátar á okkar degi.« Eg tek ofan fyrir konunni og óska henni til hamingju með daginn. Hún verður hissa. »>Hélt ekki að þér væruð af okkar flokki.« — Eg ætlaði að svara henni, en þá er kallað með hárri raust: »Bravo, bravo!« Það er hrópað aftur og aftur. Það er hávaxinn, ungur stúdent. Eg lít fána i fylkingunni. Á honuin stendur: Niður með Oddmund Vik! Það er letrað með rauðum stöfum. Enginn tekur undir. Það er ekki af því, að þeim sé hlýtt til Oddmund- ar. Öðru nær. En stúdentinn er ekki af þeirra sauðahúsi, sem þarna standa. — Aftur á óióti þegar inn á Tullinlökken er komið þá húrra þeir fyrir Þessum sama fána. Annar »fáni« vekur eftirtekt. ^ann er borinn af fjórum ^önnum. Öðrumegin er máluð öiynd af ungnm manni í fanga- ^lefa. Hann byrgir andlitið í þöndum sér. Hinumeginn vel ^æddur maður, í »pels« með Þtpuhatt á hötði. Hann situr í hokks járnbrautarvagni og reykir góðan vindil. Þessi mað- ur brosir. Sá í fangaklefanum er ungur norðmaður, sem hefir neitað að gegna herþjónustuskyldu sinni. Hinn .er njósnarinn bar- on von Rosen. Undir mynd- inni stendur: Réttlætistilfinning norskra stjórnarvalda á því herrans ári 1917 — eða í þá átt. — Þegar þessi fáni er borinn fram hjá er eins og fari segulstraumur um mannþröng- ina. Þúsund augu stara á fán- ann. Eg lít allra varir bærast, en orðaskil heyri eg engin. Það er eins og allir bæli niður eitt- hvað, sem vilji brjótast út. — En—verumþolinmóðir.Seinna! Seinna! — Eg lcemst ekki þangað inn, sem ræðurnar eru haldnar; þröngin er svo mikil. Svo eg sný við. Hár, þrekinn maður með dálitið bréfspjald reynir að troða sér gegnum þröngina. Hann er auðsjáanlega hýrgað- ur af víni. Þegar það mishepn- ast að troðast gegnum þyrp- inguna, þá bölvar hann. Hann er blaðamaður. — Þann mann einan leit eg drukkinn þenna dag- Engan verkamann leit eg drukkinn. Vínsala að vísu bönn- uð. En þar eð drykkjuskapur er mikill í bænum, hefði það sjálfsagt verið auðgert að byrgja sig upp fyrir þá sem vildu. En dagurinn var bersýnilega of helgur í augum verkamanna til þess að vanhelga hann með drykkjuskap. Þess vegna fór alt fram með friði og spekt. — Sólin er hnigin til viðar. Þús- undir verkamanna og kvenna ganga heim. 1 þúsundum huga rikir þrá eftir réttlæti i hugum þeirra manna og kvenna, sem þrá frið á jörðu, þrá hann og vinna að því, að friðarhugsjónir mannanna verði að virkileika. 7. maí 1917. Axel Thorsieinsson. Aíhs. Oddmund Vik matvælaráð- herra Norðmanna. Árásirnar á hann hafa verið mjög hvassar. Hvað lengi? Hvað leugi á að draga það að koma brauðverðinu í viðunandi horf? Það er nú komið á annan mánuð sem Reykvíkingar hafa orðið að gjalda ósæmilega hátt verð fyrir brauð sín. Hvernig stend- ur á þvi að þessu er ekki kipt í lag? Á þetta að dragast þangað til bakararnir eru íarnir að brúka dýru kolin, sem að einhverju leyti réttlæta verðið? Jafnaðarmaður. Steingrímur Matthíasson læknir og rithöfundur, kom í vikunni landveg norðan af Akur- eyri. Kom Kjalveg, ætlar heim yfir Sprengisand. ísafold og áskorun andbanninga. Sýnt hefir það sig í seinni tíð, að ísafold er nú orðið ekki annað en skuggi einn hjá því sem hún áður var. — Lengi vel var hún talin með nýtustu vikublöðunum; og ekki síst vegna þess hvað hún, meðal annars, barðist einarðlega og sleitulaust fyrir því að koma á bannlögunum. Um daginn flytur ísafold athugasemdalaust áskorun frá andbanningum, gleiðletraða yfir alla fremstu síðu blaðsins, um það, að afnema bannlögin. Verður ekki annað séð en að áskorun þessi hafi átt að vera leiðandi grein í blaðinu og töluð út úr hug og hjarta ritstjórans. — „Gamli maðurinn" hefði sett hana með smáu letri einhvers staðar í horn- ið, en mergjaða athugasemd um hana á fremstu síðuna. Undirskriftarmennirnir eru yfir höfuð allir af sama sauðahúsi: kaupmenn, háembættismenn, fjár- málamenn og stóreignamenn. Sá flokkurinn er jafnan andstæðastur alþýðunni og kröfum hennar. Síðan bannlögin komust á, og hætt var að halda vínnautninni að alþýðustéttinni, hefir það komið í ljós að valdhafarnir hafa ekki náð sér eins niðri á því að dreifa ábyrgðartilfinningu alþýðumanns- ins gagnvart sjálfum honum og meðbræðrum hans, með því að ota að honum víninu. Jafnvel með einu staupi tókst stundum þeim háu herrum að kaupa eitt atkvæði sjálfum sér í hag. Vissu sem var, að drukkinn maður er ósiálfstæð- ari en þegar hann er alls gáður. Víst er um það, að heilladrjúg samtök verkalýðsins, sem orðin eru, væru ekki komin eins langt, ef vínnautnin í landinu hefði haldið áfram og aldrei þorrið. Alþýðu- menn ættu að muna nöfn þeirra manna, sem undir áskoruninni standa. Og ástæða væri til síðar að minnast á nokkur þeirra í sambandi við bannlögin o. fl. Óvart mun flestum hafa komið að sjá nafn fræðslumálastjórans undir slíkri áskorun. O-jæja, höfði kennarastéttarinn- ar, og leiðtoga uppvaxandi kyn- slóðar í landinu, hefir þótt stöðu sinni sæma, að stuðla til þess, ásamt sínum elskulegum embætt- isbræðrum, að æskulýður landsins verði í framtíðinni ofurseldur eitri áfengisins og allri þéirri bölvun, sem af því leiðir. Ástæður andbanninga fyrir því að afnema bannlögin eru mjög broslegar og skringilegar. Auðséð er að þær eru bornar fram af þeim, sem að eins hugsa um sinn eigin munn og maga. Enginn mað- ur með óbrjálaðri skynsemi gæti tekið þær til greina. Meðal annars færa þeir bannlögunum það til for- áttu, að heiðarlegustu menn hafi leiðst, þeirra vegna, út í lagabrot. Víst hefir margan góðan mann hent að brjóta boðorðin, og hefir þó enginn enn þá farið fram á, að nema þau úr gildi, nema ef það skyldi nú verða hér eftir að and- banningar réðust í það næst á eftir bannlögunum. Að nema ein- hver lög úr gildi fyrir þá sök, að þau eru brotin, er hið sama og rífa niður alla vita á landinu, ef skip yrði svo ólánssamt að stranda í grend við einhvern þeirra. Þá er það gamla sagan hjá and- banningum, að bannlögin séu skerðing á persónulegu frelsi ein- staklingsins, og að þau „komi í bága við réttmæta hagsmuni ann- ara og alment velsæmi. Víst er um það, að bannlögin koma í bága við hagsmuni kaup- manna. Vita þeir það að minsta kosti sjálfir, því einir 30 hafa skrifað undir áskorunina. Að bann- lög, sem þessi, komi í bága við alment velsæmi, er víst alveg ný kenning í heiminum. Vínnautn hefir víst aldrei, í augum þessara manna, komið í bága við alment velsæmi hér á landi. Ekki er nú siðferðisþroskinn á hærra stigi. Að bannlögin séu brot á per- sónulegu frelsi manna, um það þarf ekki að eyða orðum. Slíkt má segja um hver einustu lagaboð. Lög eru sett vegna ástríðu manna og tilhneigingar að gera eitthvað það sem rangt er, en ástríðurnar skapast ekki vegna laganna. Skynlausar skepnur neyta aldrei neins í óhófi, því þarf aldrei að setja þeim lög fyrir þá sök. Ef menn takmarka ekki nautna- fýsnir sínar með lögum, verða þeir verri en skynlausar skepnur. Hörður. Smjör á 2 kr. pundið. I einni verzlun hér í Rvík er selt íslenzkt smjör á 2 kr. pundið. Að sögn á smjörið einn löggjaf- inn sem nú situr á þingi, séra Eggert Pálsson. Hinn 31. maí síðastl. hélt G. Holt Thomas fyrirlestur í flug- mannafélaginu í Lundúnum. Dags- brún er ekki kunnugt um hver hann er þessi Thomas, en víst er, að hann er ekki trúlaus á fram- tíð flugvélanna, og að eitthvert til- lit megi taka til orða hans, má ráða af því, að aðalinnihald fyrir- lesturs hans var þegar símað um alt, og gaf að lesa það næsta dag í dönskum og sænskum blöðum. Aðalinnihald fyrirlestursins var þetta: Flugvélar mundu ekki koma í stað járnbrauta eða gufuskipa til þungavöruflutninga, en gætu orðið mikilvægt hjálparflutningstæki fyrir farþega og póst. Flugvélarnar gætu nú flogið yfir 100 enskar mílur á klukkustund, og kaupsýslumaður gæti farið frá Lundúnum að morgni til Barísar, þingað þar við viðskiftavini sína, og komið heim í miðdegismatinn! Til Bagdad mætti fara á hálfum öðrum sólar- hring, en til New York á tveimur. Ennfremur sagði hann, að ef föstum flugferðum ýrði komið á milli Lundúna og Parísar, þá mundu þær verða arðsamar, þó fargjaldið yrði ekki sett nenia 90 kr. fyrir

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.