Dagskrá II - 20.07.1901, Blaðsíða 1
'
Verð 50 cents. DAGSKRÁ II.
Keiímr út bvern
laugardag-.
1. BL.
20. JULÍ 1901.
T. ÁR.
STEFNA.
,,Dagskrá“ er ekki stór né fyrir-
ferðar mikil í byrjun, en það er
fremur sál blaðanna, ef svo mætri
segja, en líkami þeirra, sem um er
að gjðra. Eins og oft getur verið lít-
il sál í stórum búk, eins getur líka
verið stór sál í litlum búk.
Dagskrá fylgir.þeirri stefnu er hér
segir:
Hún verður algjörlega óháð öllum
flokkum; berst á móti öllu ranglæti,
hvaðan sem það kemur, en fylgir
því sem rétt er, hver sem það flytur.
Hún segir pólitískar fré.ttir með stutt-
um, óhlutdrægum athugasemdum;
og ræðir einkurn alls konar félags-
mál; talar um búnað og heldur taum
bænda; verður eindregið jafnaðar-
blað og ákveðið vínsölubanns og
bindindis blað; ræðir trúmál og
kyrkjulíf; flytur ritgerðir um ment-
un og siðmenning; segir fréttir al-
staðar að úr heiminum, en einkum
frá Islandi; tekur málstað íslands
og íslendinga þegar á þá er hallað;
fræðir og gleður og fjöfgar; hoppar
og dansar og leikur sér þegar það á
við, en segir alvarlega til syndanna
þegar því er að skifta hver sem í
hlut á; fylgir fram algjörðu jafnrötti
kvenna við karla í öllam efnum;for-
dæmii- strið og líflátsdóma sem óguð-
legt aithæfl; berst fyrir dýraverndun
ofl. ofl. Dagfekrá flytur skrítlur og
gamanyrði, kvæði og skáldsögur,
samtöl og eintöl; hefur ýmislegt
handa kvennfólki, að lesa og eins
lianda börnum; flytur ef til vill öðru
hvoru myndir; skiftir sér af öllu á
milli himins og jarðar. Dagskrá vill
vinna á móti hræsni og yfirdrepsskap
í öllum myndum; hugsar ekki um
vinsældir sprottnar af smjaðri; frarn-
fylgir réttlæti og sannleik óhikað,
hver sem í hlut á; viðurkennir ekki
þá reglu, að aldur og auður, staða
og ættgöfgi sé einkaleyfl til þess að
mega ræða, rita eða hugsa; skríður
og aldrei fyrir fótum stórmenna og
selur aldrei sannfæring sína fyrir
nokkurt verð.
Landar mínir! nú hafið þér söð
hver á að vera stefna Dagskrár; nú
segið þér hvort þör viljið styrkja
þess konar huginyndir, sem hér er
um að ræða. Ég hef þá trú að fólk-
inu falli betur í geð hreinlyndi og
sannleikur en hið gagnstæða. Ég
stýrði um tlma blaði heima á íslandi
er Dagskrá hét; mér þykir vænt um
nafnið og þvf liefl ég það á þessu
litla blaði, enda mun Dagskrá fjalla
um flest þau mál er ofarlega standa
á dagskrá meðal vor og annara
þjóða. Eg hefl byrjað blaðið í svo
litlum stíl, að ég sé viss um að geta
haldið því út og kostað það af vinn-
ulaunum mínum, þótt ekki komi
inn fyrir það eitt einasta cent. Það
hefir engann bakhjall nema tvær
hendur. Það leitar ekki styrks hjá