Dagskrá II - 22.05.1902, Qupperneq 3

Dagskrá II - 22.05.1902, Qupperneq 3
DAGSKRÁ II. 3 VALDIMAR ÁSMUNDARSON. Eru þar æfispor ágæts manns til grafar gengin. Meö síöasta pósti barst sú fregn, að ný- látinn er í Reykjavík þessi þjóðkunni og alþekti blaöamaöur og rithöfundur. Hann var þingeyingur aö ætt, fæddur 1852. Var hann af bláfátækum foreldrum kom- inn og naut aldrei á lífsleiðinni nokkurrar skólafræðslu. En þó má þaö víst með einsdæmum telja, hve prýðilega vel ment- aður maður hann var, alveg af eigin ram- leik og án þess að nokkur samferðamann- anna ætti að því leyti nokkra hönk í baki hans. það mætti skrifa langt mál um Valdimar og æfistarf hans, en hér skal þess aðeins minst, að hann var málfræð- ingur hinn bezti, talaði og skrifaði 6—7 útlend tungumál, auk þess sem hann var manna bezt að sér í íslenzkri tungu og skildi æði mikið í latínu og grísku. Hann var alla æfi mjög frjálslyndur í trúmálum eins og í hvívetna. Hann var frömuður að útgáfu “Fjallkonunnar” árið 1884, og var ritstjóri hennar og útgefandi til dauða- dags ; hefir hún að öllum jafnaði verið fjölbreyttasta og bezta blaðið sem ís- lenzka þjóðin hefir átt. Island. Skólahúsið á Möðruvöllum brunnið til kaldra kola. Jón Hjaltalín misti þar alt bókasafn sitt, og má að líkindum ráða að það sé óbætanlegt tjón.—Ekki hefir Bragi lagt frá sér hörpuna á íslandi ennþá. Nú birtast kvæði í “Eimreiðinni” eftir fjögur ung alþýðuskáld í Eyjafirði, öll býsna góð. Fyrst er Jón þorsteinsson á Arnarvatni; eitt kvæði hans heitir “ Smalavísur, ” og eru þar þessi eggjunarorð : ‘ ‘þú skilur, bróðir, íslands ungi son, með eggíhug.sem varla’ erþörfað brýna það skilur hver frá Skjálfanda til Don, þá skyldu blóðs að mölva hlekki sína. ” Næst kemur Sigurjón Friðjónsson, bróð- ir Guðmundar. I kvæðinu “Harpa” kemst hann þannig að orði: “þú vinur! sást ritað í fornum fræðum um Freyju með eplið í gjöfulli mund, að hver sem þess neytti fann eld í æðum og eilífðar morgun í lund. Enþað þarf ekki’ að grafa til gamalla sagna, því gróandi’ á allstaðar sömu hjú; já, æskan á strengi, sem aldrei þagna og enn fyllri tóna en þig grunar nú.” þetta er vel sagt.—þá er Indriði þorkels- son. Kvæði, er hann nefnir: “Áfram lengra, ofar, hærra!” er með því bezta, ær ég hefi séð lengi. þar er t. d. þetta: Barnið vitkast, verður stærra, vex frá reifum, gengur eitt; þráin kallar , hærra, hærra, hljóm þann bugar ekki neitt. Og svo þetta: “Grundin bundin gróðurtaugum, getum nærri að vera má hvimleið þeim, er allra augum eiga fyrir ryki að sjá. ” þetta er prýðilega sagt. Og ennfremur : “Ein er líkn: að enn má bæta axarsköft og mistök vor,” eða: “Gott er að vera ennþá ungur, eiga í vændum langan dag; numið geta nýjar tungur, nýja siði og háttalag.” Kvæði þetta flytur svo margar og heil- brigðar kenningar að það ætti að vera á hvers manns tungu. Loksins kemur Sig- urður Jónsson frá Helluvaði. Eitt kvæði hans er nefnist: “Sveitin mín, “ er undur fallegt. þar er þetta: “Alt það sem ég unni og ann er í þínum faðmi bundið; alt það sem eg fegurst fann, fyrirberst og heitast ann; alt sem gert fékk úr mér mann, og til starfa kröftum hrundið; alt það, sem ég unni og ann, er í þínum faðmi bundið.” það er enginn viðvaningsblær á ljóðagerð þessara alþýðumanna; það er ekkert mold- arbragð að hugsunum þeirra eða hugsjón- um, þótt þeir séu aldir upp við rekuna; þá ber búningurinn ekki vott um neina andlega fátækt; málið og rímið hreinasta ágæti, þótt þeir hafi aldrei á háskóla gengið. þetta eru alt ungir menn og má mikils af þeim vænta. Bragi unir sér furðu vel á forna Fróni og ekki hrökkva strengir hans þó frostið harðni; þeir eru býsna vel stiltir í höndum íslenzku drengj- anna, og ekki frýs moldin í aldingarði Iðunnar þar eystra; epli hennarhafa sjald- an veriö þriflegri en einmitt nú. Kvennaskólinn var fluttur í fyrra frá Ytriey að Blönduósi; vilja nú Norðlend- ingar koma upp einum sameiginlegum kvennaskóla fyrir alt Norðurland.—Einar Hjörleifsson amast við því að bændur séu sendir á þing; vill hafa þar tóma háskóla- gortara.—Sigurður Hjörleifsson vill láta byggja sjúkraskýli í hverju læknishéraði. —Nýútkomið minningarrit Möðruvalla- skólans með myndum og fjórum sönglög- um eftir séra Bjarna þorsteinsson.—Ný útkomin “Skólaljóð”; er það safn af kvæðum handa börnum, er séra þórhall- ur hefir valið.—Veitingamaðurinn á Siglu- firði afsalað sér vínsöluleyfi; átti eftir 2 ár. Goodtemplarfélagið ætlar að senda bænarskrá til Gránufélagsins um að hætta líka; það er nú eitt um hituna.— Vatnsdælir ætla að stofna rjómabú.— Torfi í Ólafsdal í óbotnandi skuldum; vilja sumir að honum séu veittar 30,000 kr. úr landssjóði.—Látinn Jón Grímsson hafnsögumaður á Stokkeyri.—Sjómanna- félag stofnað í Stykkishólmi, og heitir “Ægir”, á það að styrkja ekkjur drukkn- aðra sj ámanna. “ BER ER HVER AÐ BAKI SÉR NEMA BRÓÐUR EIGI.” Eins og ekki er í frásögur færandi bygði ég íveruhús í síðastliðnum mánuði handa mér og fjölskyldu minni. Að afloknu smíðinu heimsóttu okkur margir af nábú- um okkar og færðu okkur að gjöf mikið af húsmunum, og héldu í sambandi við það skemtisamkomu, sem fór mjög mynd- arlega fram. Sérstaklega viljum við til- greina þrjár heiðurskonur, sem gengust fyrir þessum samskotum : Mrs. G. Frið- riksson, Mrs. A. Gunnarsson og Mrs. G. Egilsson. Öllum hinum heiðruðu gefend- um vottum við okkar innilegasta þakklæti. Red Deer Point, Winnipegosis, 11. Apríl, 1902. Guðni Guðbrandsson, Sigurlína M. Hinriksdóttir. LÍFIÐ ER HVERFULT en hafir þú trygt líf þitt í People’s Life Insurance Company þá er eftirlifendum þínum borgið. Bréf það er hér fylgir á eftir sýnir áreiðanleik og hrein viðskifti félagsins og ætti að vekja hvern einasta mann til athugunar um gildi góðra lífsábyrgðarfélaga. Maður sá, sem hér er um að ræða, dó skyndilega úr lungnabólgu, og er það veiki sem allir geta fengið og er mjög hættuleg. Láttu þetta þér að kenningu verða og trygðu líf þitt á meðan þú hefir góða heilsu. VITNISBURÐUR BORGARSTJÓR- ANS í OSHAWA. Oshawa, Ont., 5. febr. 1902. Til Peoples Life Insurance Company Herrar mínir,—Mér er sönn ánægja að skýra frá því og lýsa gleði minni yfir því, hversu áreiðanlega og fljótt félag yðar hefir greitt lífsábyrgðarupphæð þá, er J. W. Davis hafði keypt hjá yður, samkv- skýrteini No. 1008. þar eð það var skylda mín að innheimta lffsábyrgðarféð, sendi ég sannanir fyrir dauða mannsins 3. febrúar og nú hefi ég veitt móttöku ávís- un fyrir allri upphæðinni, sem er dagsett 4. febr. (einum degi síðar en sannanirnar voru sendar.) Ég skal telja það mína ljúfustu skyldu, að gjöra alt er ég get fyr- ir jafnáreiðanlegt og trygt félag, sem ég veit að félag yðar er. Yðar einlægur, Fred. L. Forth.

x

Dagskrá II

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá II
https://timarit.is/publication/174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.