Auglýsarinn - 27.10.1922, Page 1
Útgefandi og' ábyrgðarmaður
Eyjólfur Stefánsson
Austurhverfi 3 Hafnarfirði
r
Afgreiðsla i Austurhverfi 3
Upplýsingar i síma 75
Auglýsingum úr Rcykjavík sé
skiiað í prentsmiðjuna Acta
1. ár.
Hafnarfirði, föstudaginn 27. október 1922
8. tbl.
Herra- og dömuklæðnaðir
eru teknir til hreinsunar og press-
unar. Aðgerðir vandaðar og ó-
dýrar. Efni tekin til sauma. öll
vinna er vel og vandlega af
hendi leyst. Virðingarfylst.
0. Rydelsborg.
Viðgerða vinnustofan er á Laufdsv. 25.
Ljósakrónur og allskonar
Jarðarför elsku drengins okkar sem andaðist 20 þ. m.,
fer fram á mánudaginn 30. þ. og hefst frá heimili okkar
Vesturhrú 19, kl. 12 á hádegi.
Hafnarflrði 26. október 1922.
Vigdís Guðmundsdóttir. Jón I'orkelsson.
Hengiiampar.
Við höfum feikna úrval af
allskonar lömpum og ljósakrón-
um. Verðið heflr aldrei verið
hegra en einmitt nú.
Notið því tækifærið og kaupið
lampa. hjá okkur það borgar sig.
H.f. Rafmf. Hiti & Ljós
Laugaveg 20 B. Sími 830.
RAFMAGNSLAGNINGAR
um hús leysum við vel og smekklega af hendi.
Allskonar lagninefni og lampar ætíð fyririiggjandi.
Halldór G-uðmundsson & Co. rafvirkjafélag.
Bankastræti 7 Reykjavík Sími 83 5,
Pappírs-pokar.
Ritföng, alskonar.
Er og verður altaf ódýr-
ast hjá
HERLUF CLAUSEN.
Kaupið þar sem ódýrast er.
Sími 39. Kirkjutorg 4
Samkepní getur
það kallast
að jeg sel
Karlm. alfatnaði
Spunakonan.
í jarðbrjóstin rennur regnið vægt,
og rósbörnin sjúga í sig þrótt.
Rökkrið er brumað, og hægt og hægt
úr hútnknappnum útsprungin rauöa nótt.
Nú smáþagnar rokksins bí bí og blaka,
þeir blunda sem vaka, þeir þegja sem kvaka
og það gerir hljóðið svo hljótt.
Mín örlaganótt? Eg þekki þig!
Og það eftir sextán ár!
þá var það, hann kom og kvaddi mig,
hann kraup mér í skaut, og eg strauk hans hár.
Æfilangt gat eg lagt ást hans í hlekki.
eg átti sverðið — en brá því ekki,
innibyrgð ógrátin tár.
Hafið þið séð hvernig sælan er lit?
þá sáuð þið augun hans.
Heyrt varir gefa orðunum vængjaþyt,
veikt eða sterkt: Það var röddin hans.
Og líkt eins og hvítbráðið steypustálið,
sem storknar við deigluna, ef slökt er bálið
svo fundust mér faðmlögin hans.
Eg hef elskað mig fríða við andlit hans,
eg hef elskað svo loftið varð heitt.
Eg kunni ekki gang, heldur dillandi dans,
og dagarnir, vikurnar biðu ekki neitt.
Og nú var alt glatt, sem var grátið áður,
og gildi heimsins var meira en áður:
að elska — var lífið eitt.
Það ástarlíf varð honum lifandi lind,
sem list hans drakk kraft sinn úr.
Og eg sá hann hefja sig tind af af tind
sem taminn örn hefði sprengt sitt búr.
Eg hét, að eg skyldi ekki hefta honum framann,
við hétum að eiga okkar forlög saman
hvort þau yrðu sæt eða súr.
Þá var það einn dag að hann hermdi það heit
að eg hefti ekki frama sinn.
»Þaö eru ekki svik við þig,« sagði hann, »eg veit,
að sæld mín er lögð undir úrskurð þinn.
En tryggðin við lífsstarfið heimtar mig hjeðan
og hvort annars tryggðir við reynum á meðan.
Og svo skal það sjást hvort eg vinn«.
»Að vita þig hugsa um mig hvar sem eg fer«
— og höndin hans klappaði milt.
»Að brúðurin þreyjir þolgóð hér!«
— hann þrýsti mér, kysti mig stjórnlaust, vilt.
»Og svo kemur hamingjan — svo kemur gjaldið«
þá sagði hann hægar: »Nei, þú hefir valdið,
og haltu mjer heima, ef þú vilt«.
Eg grét ekki, bað ekki, — bara fann
hve brjóstið varð þröngt um stund. — — —
Og síðan hvern dag eg sat og spann,
’eg sá ekki meir okkar næsta fund..........
Nú stendur hann hæzt upp á hæð sinnar frægðar,
en hjarta mitt kunni ekki að biðjast vægðar
og berst nú með ólífisund.
Það sló fyrir þig, og slær það enn
og slær fram í síðasta blund.
En vörin, sem þrýstirðu, þagnar senn,
eg þakka hvern einasta dag og stund.
Eg var sælli en allir veraldar gylfar,
eg veit eg hef kannað það bezta sem til var
á þessari glapsýnagrund. — —- —
Snúrurnar hrökkva: Snældan er full,
og snurðulaust alt sem eg spann.
þeir kalla það ull, en glóandi gull
úr greip minni rann — það var alt fyrir hann,
sem hóf mitt líf upp í hærra veldi,
minn hvíta prins, sem eg trúnað seldi
og heitast af öllum ann.
Eg orka ekki meir, enda þarf ekki það,
á þráðnum er hvergi gróm.
Ef blóðugur er hann á einum stað,
er orsökin sú að hann spannst inn í góm,
því þar var hnútur sem þurfti að renna,
og þá var sem eg fann hold mitt brenna
og skildi minn skapadóm.
Þú vitjar mín aftur, mín örlaganótt!
með allan þinn minninga-fans.
Hví læðistu svona — seint og hljótt?
Sérðu ekki að þetta er minn brúðardans?
Velkomin nótt! Eg fer nakin í háttinn,
því nú hef eg spunnið sterkasta þáttinn
í hamingjuþræðinum hans.
úr góðu efni, fyrir aðeins kr.
56.00
Ólafur H. Jónsson
Sími 48.
Stúlku vantar í vist á
barnlaust heimili í Hafnarfirði.
Upplýsingar á Kirkjuveg 16.
Góð eldavél
til sölu.
Upplýsing á Vestnrbrú 21.
Hjálpræðisherinn!
Heldur samkomu sunnudaginn
þ. 29. október. kl. 8 síðdegis.
Gestur J. Árskóg frá Reykja-
vík stjórnar.
Allir velkomnir.
Til sölu
eru svört föt úr góðu efni,
mjög ódýrt.
Einnig olíuofn og „Ernemannu
myndavél, stærð 6X12.
Afgr. vísar á,
Prjónaskapur
er tekinn i Austurhverfi 3.
Eyjólfur Stefánsson.