Frækorn - 01.06.1901, Blaðsíða 1
REYKJAVÍK 1. JÚNÍ.
1901.
11. TBL.
Ekki er allt sem sýnist.
„Mér himneskt ljós í hjar^a skín
í hvert sinn, er ep græt,
því drottinn telur tárin mín —
eg trúi’ og huggast læt.u
Kr. Jónsson.
Grœtir mig sumt,
þótt eg glaður sýnist,
alsæll er engi maður,
meðan hann verður
að velkjast í þessum
sorga’ og synda heimi.
Er mer ei auðs vant,
æsku né vina,
ei eg upphefð girnist;
skortir mig hvorki
skemmtan né heilsu,
græt eg ástvin engan.
Grætir mig það,
hve eg gleymi tíðum
forsjón föðurlegri
þakkir að færa,
þótt mér aldrei
gleymi gæzkan mild.
Grætir mig það,
hve góðum sjaldan
ásetning eg orka
fram að koma,
þótt feginn vilji,
en aðhefst illt mót vilja.
Þerraðu tár mín,
þrek mér gefðu,
almáttugi Abba,
boðum þinura
að breyta eftir —
þau eru’ ekki þung.
Guðm.
^lvarleg gpurning.
Hkfur sú snúið pér til guss?
Lesari minn! Pað er mikilsverð
spurning, sem þú horfir á.
Reyndu til að svara því. Biblían
segir, að án þess að snúa sér til guðs,
sé engin von um frelsi. Hefurðu
snúið þér til hans?
Þú ert máske kirkjurækinn. Þú
gengur til altaris. F*ú elskar væna
menn. Þú getur gjört greinarmun á
góðri og lélegri ræðu. Þú gefur til-
lag til útbreiðslu kristindómsins. Þú
gengur þangað, sem þú lærir guðrækni
og góða siði. Þú lest stundum guð-
legar bækur. Þetta er vel gjört, það
er mjög vel gjört. Pað er gott; það
er allt saman mjög gott.
Það er meira en maður getur sagt
um marga. En þetta er enn þó ekki
beinlínis svar upp á mína spurningu:
Hefurðu snúið þér til Guðs, eða hef-
ur þú ekki snúið þór til hans?
Ert þú vaknaður af þínum synda-
svefni? Hefurðu nokkurn tíma séð
syndir þínar, svo þú hafir viðurkennt
þær, og iðrast þeirra? Byggir þú
von þína um fyrirgefningu þinna
synda og von eilífs lífs einungis á