Frækorn


Frækorn - 25.04.1906, Page 1

Frækorn - 25.04.1906, Page 1
VII ÁRG. REYKJAVÍK 25. APRÍL 1906 17. TBL. Afnám rikiskirkjunnar. Mál þetta er fyrir alvöru komið á dagskrá í Noregi. Og skoðun manna þar á málinu álítum vér að menn hér á landi vildu kynna sér. Setjum vér því hér þýðing á ritstjórnargrein úr einu helzta blaði Norðmanna, »Dag- bladet« í Kristjaníu; greinin stóð í blaðinu þann 30. marz þ. á. í meira en hálfa öld hefir verið reynt hér í landi (Noregi) aðumbreyta og laga ríkiskirkjuna. Hingað til hef- ir þetta mishepnast. Rað hefir sem sé verið ómögulegt að sameina það, sem kallað er áhugamál hinna kirkju- legu, og það, sem er grundvallarregla frjálsræðisins. Ríkiskirkjan er margháttað samband. I söfnuðum hennar eru agnostikarar (óvissumenn) og alvörugefnirtrúmenn, afneitunarmenn og Grundtvigssinnar, áhugalausir menn og heittrúaðir, hver ínnan um annan. Allir hjálpa þeir í peningalfgu tilliti kirkjunni til þess að geta lifað, og allir hafa þeir því rétt til þess að vera með í stjórn hennar eða að hafa atkvæðisrétt í málum hennár. Hins vegar er það eðiilegt, að þeir, stm heilt og fult fylgja kirkjunnar kenningu, séu ófúsir á að gefa öllum meðlimum ríkiskirkjunnar atkvæðisrétt og vilji helst, að sá réttur sé takmark- aður til þeirra, sem eru »altarisgestir { kirkjunnar.« Pað, að þeir á þennan hátt opna hurðina fyrir hræsni, en úti- loka ærlega menn, virðast þeir hugsa minna um. En þegar ástandið er eins og það er, þá munu þeir, sem alvarlega hugsa sér málið, eiga hægt með að skilja, að það er mjög erfitt að veita ríkis- kirkjusöfnuðunum þá stjórn og það fyrirkomulag, sem ekki verður til þess að gjöra órétt á einn eða annan hátt. Pví er vert að geta þess, að hinir strang-kirkjulegu eru farnir að sjá þetta, og að þeir benda á aðskilnað ríkis og kirkju sem það takmark, er hinir »kirkjulegu« verða að setja sér. Sjálf stjórn hins vestlenzka innritrú- boðs-sambands hefir nú gjört þetta á mikilli samkomu í Bergen. Afnám ríkiskirkjunnar er þar sett sem tak- markið, og stjórnin hefir lýst því yfir, að »starfa eigi n eð það fyrir augum, að finna hina beztu vegi til þess að ná þessu takmarki.* í þessu starfi mun innratrúboðið finna fylgi hjá öllum frjálslyndum mönnum. Fyr á tímum hafa að vísu fundist þeir menn, sem hafa verið varhygðar- samir við aðskilnað ríkis og kirkju, enda þótt þeir vildu frelsið og álitu, að það væri salt mannlífsins; þeir hafa haldið því fram, að ríkiskirkjan, einmitt af því að hún er svo rúmgóð og þolir alla svo vel, væri frjáislynd-

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.