Frækorn


Frækorn - 25.07.1906, Síða 7

Frækorn - 25.07.1906, Síða 7
FRÆKORN 239 til sjálfs sín, mælti hann: »Rið þurfið ekki að hlægja að þessu, drengir mínir, því við getum allir lært mikið af þessu litla dýri, sniglinum. — En hvernig gaztu lært af honum, Tómas?« »Eg veitti því eftirtekt, þegar hann skreið upp vegginn, hve undur hægt hann fór. Hann hikaði ekki og sneri ekki aftur, heldur mjakaðist át'ram smátt og smátt. Eg ásetti mér að fara eins að, þegar eg lærði kvæðið. Eg lærði aðeins fáar línur í senn, en lærði þær vel. Eg fór þannig að, unz kvæðinu var lokið. ^Retta var hyggindalega athugað og vel gjört, Tómas,« sagði kennarinn. 'íRú munt í fleiru athugull verða.« Drengirnir, skólabræður Tómasar, sem oft voru vanir að draga dár að honum fyrir seinlæti hans og tornæmi, urðu nú með blygðun að horfa á, að honum voru veitt verðlaun fyrir að Ijúka með sóma við það verk, sem þeir gátu ekki komið í framkvæmd svo vel væri. — Flýtir er sjaldan til fagnaðar. (Pýtt úr ensku. J. J.) Hjálp við biblíurannsókn. III. Gjöf heilags anda. — Hvernig get- um vér fengið gjöf andans ? 1. Hvaða breyting á manninum er nauðsynleg áður en hann geti fengið gjöf heilags anda ? Postg. 2, 38. 2. Hvað á maðurinn næst að gjöra, eftir að hann hefir tekið sinnaskifti? Postg. 2, 38. 3. Stóð skírn Jesú í sambandi við það, að hann meðtók gjöf andans ? Lúk. 3, 21. 4. Gef dæmi upp á skírn sem skil- yrði fyrir gjöf andans. Posgtg. 19, 1—6 Postg. 8, 12. 17. 5. Er nokkur undantekning frá þess- ari reglu ? Postg. 10, 44. 45, 6. í hvaða tilgangi hefir þessi und- antekning gerst? Postg. 10, 47. 48. 7. Hvaða ahnent skilyrði er sett fyrir gjöf andans? Postg. 5, 32. 8. Verður guðs andi gefinn kæru- lausu fólki? Lúk. 11, 13. Es. 44, 3. 9. Hvað verður að fylgja bæn vorri um gjöf andans ? Mark. 9, 24. --------------- |Ppettir. „Breiðablik“ heitir nýtt tímarit, sem séra Frið- rik Bergmann er farinn að gefa út. Ress verður frekar minst í Ærækorn- um« hið fyrsta. Landlæknir dr. Jónassen hefir sótt um lausn frá embætti sínu frá 1. okt. í haust að telja. Heimboðið. »Politiken« flytur myndir af ísl. al- þingismönnunum og greinar um þá. „Sterling“. Svo nefnist skip, sem Thore-félagið hefir keypt til íslandsferða. Pað er 1047 smálestir að stærð, hefir 12 mílna hraða og á að verða raflýst. Byrjar ferðir hingað eftir nýár í vetur. Skipstjóri verður Emil Nielsen. Húsbruni. í fyrradag brann til kaldra kola í- búðar- og verzlunarhús Flygenrings kaupmanns í Hafnarfirði, Auk þess ^ brunnu 2 kolaskúrar. Bráðkvaddur varð, á mánudagskvöldið var, Jón j verzlunarmaður Bjarnason hér í bæ.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.