Frækorn - 26.06.1908, Side 6
110
FRÆKORN
voru við vinnu. Hann var hvattur
til að koma á veitingahúsið, og því '
miður, lét hann tilleiðast. Hann
vandist á að spila þar inni, hann
fór að sitja þar lengur. Einusinni
lenti hann í áflogum við drukna
menn, sjálfur hálf drukkinn; hann
barði kringum sig eins og vitlaus
maður og — drap mann. Hann
var dæmdur í 10 ára fangelsi. Eg
hafði ekkert að lifa á. Húsið okk-
ar var selt — og svo innanhúss-
munir. Eg flutti í lítið saggasamt
herberi. Elsti drengurinn minn,
Tómas, veiktist og dó, og litli Hans
skömmu seinna. Nú á eg einung-
is eftir þetta aumingja, veika barn,
sem eg held í fanginu — og eg
veit ekki hvert eg á að fara með
það.
»Ríkið veitti veitingaleyfi; það
hefir rænt mig börnum minum; en
faðir þeira lifir ennþá og getur
unnið fyrir mér og þessum litla. O,
fyrir guðs skuld, gefið mér mann-
inn minn aftur, og eg skal eilíf-
lega blessa yfir yður!«
Eg gaf honum frelsi, bætti land-
sjórinn við er hann hafði lokið sög-
unni.
Rver oill gefa atRwajöí með
veititiðaieyfi?
Pað var í snotrum bæ í Pensyl-
vaníu, að menn voru saman komn-
ir, til að ákveða, eins og þeir voru
vanir, hve mörg veitingahús skyldu
hafa leyfi til að selja áfengi á kom-
andi ári. Það voru margir saman
komnir. Lögreglustjórinn var for-
maður fundarins, auk hans voru
uppi á pallinum, presturinn, einn af
meðhjálpurum hans og læknirinn.
Eftir að fundur var settur stóð einn
af helstu borgurum bæjarins upp,
hélt stutta ræðu og endaði með
' þeirri uppástungu, að vínveitingaleyfi
væru gefin eins og árið sem leíð.
Hann héit það væri ekki vert að
vekja óánægju með því að banna
veitingaleyfi, það væri betra að gefa
vönduðum mönnum leyfi og láta
þá selja. Flestir voru ánægðir með
þessa uppástungu. Fronaður fund-
arins var að því kominn að leggja
spurninguna fram fyrir fundarmenn.
Pá stóð einhver upp lengst frammi
í salnum, allra augu litu þangað.
Rað var þá göinul kona, fátæklega
búin, og hrukkurnar á andliti henn-
ar sýndu, að hún hafði orðið að
þola miklar þjáriingar, en eldur sá,
sem brann úr augum hennar bar
vott um, að hún hafði einhvern tíma
átt berti kjör en nú. Hún talaði
til formannsins og fundarmanna, og
sagði að hún væri komin af því
hún hefði heyrt að ræða ætti um
veitingaleyfi.
»F*ið vitið allir hver eg er«, sagði
hún. »Eg var einusinni eigandi
að stærstu eigninni hér i bænum.
Eg átti mann og 5 syni. Engin
kona hefir nokkurn tíma átt ástúð-
legri mann, engin móðir átt betri
og elskuverðari syni. En hvar eru
þeir nú? Undir 6 leiðum í kirkju-
garðinum hvílir maðurinn minn og
allir synir mínir. Ó, hve hörmu-
legt, það eru alt drykkjumanna-
grafir!«
»Herra læknir, hvernig urðu þeir
drykkjumenn. Pér komuð og drukk-
uð með þeim og sögðuð þeir hefðu
gott af því að drekka hót'lega. Og
þér líka herra minn (sagði hún um
leið og hún sneri sér til prestins),
þér drukkuð með manninum mín-
um og synir mínir héldu það væri
hættulaust að drekka líka fyrst þeir
með því fyldgu yðar göfuga dæmi
»Og þér, herra minn«, sagði hún
við hinn þriðja, »þér selduð áfeng-
ið, sem kom því til leiðar að þeir
urðu drykkjumenn. Nú hafið þér
alt, sem eg átti, þér hafið fengið
það fyrir áfengið, sem eyðilagði
ástvini mína.«
»Og nú«, sagði hún, »hef eg lok
ið erindi mínu, og fer aftur á fá-
tækrahúsið, því Jaar er heimili mitt;
eg mun aldrei koma og mæta yð-
ur aftur og tala til yðar prestur
minn, eða til yðar hr. læknir, fyr
en eg mæti yður fyrir guðs dóm-
stóli, þar munuð þér líka mæta
vesalings manninum mínum og son-
um okkar, sem þér með áhrifum
yðar leidduð afvega, svo þeir dóu
sem drykkjumenn.*
Oamla konan settist niður. Pað
var dauðaþögn í salnum þangað
til formaðurinn stóð upp og spurði
þá, sem við staddir voru: »Eigum
vér að biðja yfirvöldin um leyfi til
að selja áfengi hér í bænum næsta
ár?«
’ Hið eindregna »nei«, sem berg-
málaði í húsinu, gaf það til kynna
hvílík áhrif orð gömlu konunnar
höfðu haft. Menn óskuðu ekki
frekar eftir veitingaleyfi.
Kæri lesari, þú hefir máske ekki
séð slfkar afleiðingar af brennivíns-
sölunni í bænum sem þú býr í, því
margar afleiðingar drykkjuskaparins
eru ókunnar fjöldanum, en þú hef-
ir eflaust séð eitthvað af því böli
sem drykkjuskapurinn hefir í för
með sér. Vér vonum því, að þú
viljir beita áhrifum þínum til að
styðja allar þær tilraunir sem miða
til þess að útrýnia áfengisbölinu.
-æ>-æx> -
Ruernið ðetur konn viðbnldið
ungkgu útliti?
Pessu svarar »Tit Bits« þannig!
Skynsöm kona borðar þrjár máltíðif