Frækorn - 07.03.1911, Blaðsíða 7

Frækorn - 07.03.1911, Blaðsíða 7
F R Æ K O R N 31 nefndu Fraunhoffs línur verði til í geislabandi litsjáarinnar. Þegar til dæmis D-línan í sóllit- unum er á sama stað og gula lín - an, er myndast af glóandi natríum, þá er með því hægt að sjá að gló- andi natríum hlýtur að vera í gufu- hvolfi sólarinnar. Og þegar til dæmis 2 Fraunhoffslínur, er mynd- ast af glóandi vatnsefni, sjást í sól- litunum nefnilega 1 á rauða kaflan- um, önnur { græna og þriðjaíþeim fjólubláa, þá er það auðsætt, að gló- andi vatnsefni hlýtur að vera í sól- unni. Þegar nú litsjáin var fundin, hlaut það að liggja næst að athuga, hvort sólkórónan, er sést við almyrkva, stafaði frá sama gufuhvolfi, sem er orsökin til Fraunhoffslínanna. Árið 1868 tóku því nokkrirstjörnu- fræðingar dg saman og ferðuðust þangað, er sólmyrkvinn 18. ágúst var ^lmyrkvi. Þeir fóru lieldur ekki erindisleysu, því þegar síðasti sólargeislinn hvarf og lithvolfið lýsti með rúsrautt kyndlakögur og silfurhvít kórónan blikaði bakvið, beindu stjörnufræð- ingar litsjánum að lithvolfinu, og alt í einu breyttist litband sólarinn- ar í greinilegt línulitband, og þá komu lýsandi línur einmitt þar sem Fraunkoffs línurnar eiga sæti í sól- litunum. t Þannig reyudist hugboð stjörnu- fræðinga rétt, að gufuhvolf sólar- innar héldi í sér geislum og skap- aði þannig eyðúr í litbandið. Litbandið af neðri lögum lithvolfs- ins — þ. e. af þeim hluta þess, er naestur er Ijóshvolfinu —- sýndi lýs- andi línur í því nær öllum Fraun- hoffslínunum. Efri lögín og sólkyndlarnir hafa færri línur, en meðal þeirra eru vatnsefnislínurnar greinilegastar, og stafar það eðlilega af því, að þyngri efnin leita niður á við, svo að létt- ustu efnin verða efst. Á síðast liðinni hálfri öid hafa stjörnufræðingar starfað ötullega að því, að rannsaka hver efni séu í Ijóshelda hluta sólgufuhvolfsins með því að bera saman Fraunhoffs lín- urnar við litlínur ýinsra glóandi frumefna. Þetta er þó miklu meiri erfiðleikum bundið, en menn hugðu í fyrstu. Vér skulum hugsa oss að vér létum sólarljósið streyma inn um efri hluta rifunnar í litsjánni, en Ijós frá glóandi natríum í gegnum neðri hluta hennar og þá mundi geta að líta natríumlínu litband fyrir neðan sóllitina og eru Ijóslínur natríums- gufunnar rétt niðurundan Fraunhoffs línunum, og þar af drögum vér, að natríum hlyti að vera í sólunni. Reyndar, eru mörg þúsund Fraun- hoffslínur í sóllitunum. fjæti þá ekki átt sér stað, að línur þfesar lægju svo nærri natríumslínunum að þær rynnu í þær en stöfuðu frá alt öðrum efnnm? Auðvitað gæti þetta átt sér stað um einstök efni, er sýna ógreinilega línur í litbandinu. Það sem þó einkum og sérílagi veldur örðugleikunum við litkönn- unina er að lína litbönd frum- efnanna geta tekið talsverðum breyt- ingum, eftir því hvort hitinn er mikill eða lítill og eíns hvé1 mikil þrýsting hvílir á þeim. Þegar vér því sjáum línur ísóllitunum erefna- fræðingar geta ekki fundið í rann- sóknarstofum sínum, getum vér eng- anveginn fullyrt, að þær stafi frá þemi efnum er vér þekkjum ekki, því þau frumefni, er finnast í sól- unni, eru háð miklu meiri hita og þrýstingi en unt er að framleiða í ran nsó knarstofu m eð I isfræð i ngan na. Og eins þorum vér heldur ekki að fullyrða, að það efni sé ekki til í sólunni, er enga línu á í Fraunhoffs línum sóllitanna. o = ■■■ ....-^=5 | HEILBRIGÐISBÁLKUR j ................'~0 DRYKKiARVATNIÐ. Vatnið er eitt helzta næringar- meðalið, sem sízt má án vera; því að í líkama okkar cr mest megnis vatn. Það er ekki minna en 64% af líkamanum, og séu beinin talin með, er það jafnvel yfir 70%. Und- ir því er komið starf vefanna og það eitt getur komið efnaskifting- unni á gang. Það er ómissandi til að leysa upp næringarefnin og það er í öllum meltingarvökvunum; það ber næringarsafann ýfir í blóðið sem partur af blóðinu ber það nýtt efni um allan iíkamann, til heitans, til vöðvanna og til tauganna og ber brenslu-efnin til lungnanna, nýrn- anna og húðarinnar, en síðan ber- ast þau burt. Og öll þessi starfsemi stafar frá hæfileika vatnsins til að leysa upp efni og gera þau fljótandi. Um nýrun, húðina, lungun og þarmana missum við stöðugt mik- ið vatn — það er talið hér um bii 4 pund á dag. Þegar þessi missir bætist ekki nægilega, gefir þorstinn vísbendingu um, að vefirnir séu þornaðir. Við getum ekki haldið heilsunni, nema nægilegt vatn fari um vefina í líkama okkar. Oflítið vatn gerir okkur veika; of mikið vatn getur í rauninni ekki komið til tals; berst fljótt burt með þvagi og svita. Með útgufun frá yfirborði húðar- innar hjálpar vatnið líka til að halda líkamshitanum eins, hvort sem heitt veður er eða kalt. Nú skiljum við, hversu ákaflega mikið ríður á því, að vatnið sé drekkandi, þ. e. hæft til þess, ai vera liður f næringu okkar.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.