Fylkir - 02.01.1923, Qupperneq 1
I
JVlinnisblað.
ísland hefur ýmsa kosti, sem mörg heitari lönd hafa ekki, svo sem:
afar hreint andrúmslopt, tærasta lindarvatn, aflmikla fossa, ágæt fiski-
mið og fagurt útsýni. Kostir íslands yfirgnæfa ókosti þess.
1. Helztu atvinnuvegir og fólksfjöldi. Land þetta getur hæglega
framfært 4 til 5 milliónir dugandi og reglusamra manna. Landbúnað-
urinn, sem nú fæðir, klæðir og hýsir um 60 þúsund manna, þ. e.
2/3 allra íbúa landsins, þó aðeins 200 □ km., þ. e. tæplega einn
hundraðasti af því landi, sem telst vel ræktanlegt, sé enn tún og
sáðgarðar, getur, þegar alt ræktanlegt land er ræktað, framfœrt a.
m. k. 3 (þrjár) milliónir manna. En af sjávarútvegi og iðnaði geta
1 til 2 milliónir manna lifað. Arð og nytsemi landbúnaðarins og
sjávarútvegsins á síðustu 27 árum geta menn séð nokkurnveginn af
því, að á sama tímabili námu útfl. landafurðir um 106 mill. kr., en
útfl. sjáyarafurðir um 350 mill. kr., samkv. Hagsk. ísl. Kostnaður til
landbúnaðar nam á sama tíma í aðfl. vörum rúml. 10 milliónum
kr., en til sjávarútvegs yfir 80 millión kr. (sbr. 25.—40. bls. VII. h. F.).
2. Vatnsorka íslands getur í meðalári alið um 5 millión t.h.ö.
(sbr. 78. og 79. bls. VII. h. F.), eða sem svarar 4 millión h.ö. raf-
magns og getur því fullnægt öllum þörfum landsbúa til herbergja
hitunar, ljósa og iðju, þó þeir verði 3 (þrjár) milliónir að tölu. Sé
orkan notuð þannig, sem mest má, gildir hún árlega á við 180 til
300 milliön kr. virði af kolum og steinolíu, reiknað með vaná verði
hér á íslandi fyrir heimsófriðinn, og getur um leið gefið 60 milli-
ón kr. hreinan arð á ári — 5% af 1200 millión kr. höfuðstól, svo
lengi sem sólin' skín og fljót falla til sjávar.
3. Steinaríki Íslands geymir svo mikið og goti byggingar efni
að landsmenn þurfa lítið byggingarefni að kaupa frá útlöndum ef
þeir aðeins kunna og nenna að nota innlend efni, t. d. ísl. blágrýti,
grágrýti, hraunstein, móhellu, sandstein, móruðning og leir, eins og
má í byggingar. Úr sjávarskeljum kringum landið mun mega vinna
árlega um 30—40 þúsund tn. kalk eða 50 þús. in. cement (með
75,000 kr. hagnaði) á ári, eða sem nægir til að byggja íveruhús
handa 8000 til 10000 manna á hverju ári. En það nægir til að
gefa öllnm landsbúum hlý, hrein, varanleg og snotur hýbýli á
minna en 12 árum og um leið ráða bót á húsnæðisleysinu og vinna
bug á hættulegusta siúkdómum, sem stafa af óhreinindum og kulda.
4. farðvegur og bergtegundir og jurtir íslands geyma öll þau
frjóefni, sem þarf til jarðræktar, sé úr þeim unnið.
5. Skógrœkt mundi þrífast betur hér á íslandi væri trjáfræ írá
Alaska og Nv. Kanada gróðursett í veðursælustu dölum landsins.
6. Til rafhitunar, Ijósa og iðju á hverju bygðu bóli á öllu land-
inu, ætlandi 1 kw. á mann, þarf, nú sem stendur, um 93 þús. kw.