Gjallarhorn - 20.03.1903, Síða 1

Gjallarhorn - 20.03.1903, Síða 1
Auka-númer. GJALLARHORJM. 1. ÁR. ^ Enn um kosningarnar. í 24. tölubl. „hlutafjelagsblaðsins" er rit- stjórnargrein með yfirskriptinni „Kosning- arnar". Kennir þar margra grasa — eins og opt áður í því málgagni — sem eiga að vera til uppfræðslu fáfróðs almennings. En sjer- staklega mun pó tilgangurinn með nefndri grein vera sá, að kjósendur í Eyjafjarðar- sýslu hafi hliðsjón af innihaldi hennar fyrir og um næstu kosningar. Jeg efast heldur ekki um, að þeir muni gjöra það, þó það verði talsvert á annan hátt, en höfundur hennar hefur ætlast til. Kjósendur í Eyja- fjarðarsýslu eru flestir svo skynsamir og sjálfstæðir menn, að það þarf miklu meira en samanhrúgaðar vandræðaspurningar og ástæðulaust brygsl um íhald af „Norður- landi" til þess, að fá þá til að trúa annari eins fjarstæðu og þeirri, að H. Hafstein hafi átt nokkurn hlut í kosningahreifingunni hjer í sýslu í fyrravetur; enda nær slíkt engri átt af þeirri einföldu ástæðu, að H. H. hugði alls ekki til framboðs hjer þá, heldur í ísa- fjarðarsýslu, eins og öllum er kunnugt, og eru slíkar dylgjur því vísvitandi ástæðulaus uppspuni greinarhöfundarins, til þess að reyna að sverta H. H. í augum kjósenda hjer. Það verður því alveg árangurslaust, bæði fyrir „Norðurl." og aðra, að æfa sig í grænlenzka fingrareikningnum í þeirri meiii- ingu, að sanna hið gagnstæða. Eyfirðingar — en með því meina jeg kjós- endur yfir höfuð í Eyjafjarðarsýslu — hafa frekar flestum öðrum kjósendum hjer á landi sýnt, að þeir eru menn sjálfstæðir, menn, sem ekki láta aðra hugsa fyrir sig nje leiða sig í gönur, hvorki við kosningar til alþingis nje í öðrum málum. En þeir hafa einnig sýnt það og munu sýna það enn, að þeir hafa bæði fastheldni og vit til þess að sam- laga sig, þegar því er að skipta, og dugar þá ekki fyrir „Norðurland" nje aðra að reyna til að flækja þá frá því marki, sem þeir hafa sett sjer, hvorki með vandræða- spurningum út í loptið, nje ástæðulausum aðdróttunum um apturhald. Ætti „Norðurl." sjerstaklega að vera þetta kunnugt frá því í fyrra, er það lagði mest á sig til þess að reyna að spilla fyrir kosningu Stefáns í Fagraskógi, án þess nokkurt minnsta tillit væri tekið til þess, er „hlutafjelagsblaðið" sagði um hann. Að öðru leyti er þess vert að geta, að til eru þau blöð, sem með lasti og aðdrótt- unum um einstaka menn, hefja hina sömu í almenningsálitinu og aptur á hinn bóginn með því að skjalla eða halda mönnum fram, á sína vísu baka hinum sömu óálit al- mennings. Aðdróttanir þær um apturhald í framfara- málum þjóðarinnar, sem talsverður fjöldi af kjósendum í Eyjafjarðarsýslu verður fyrir í nefndri grein vegna þess, að þeir hugsa rneira um þingmannaefni og kosningar til Akureyri, 20. marz 1903. alþingis, en almennt gjörist, virðist ekki framar en annað af innihaldi hennar, hafa við rök að styðjast. Eyfirðingar hafa aldrei haft mætur á hægrimanna apturhaldsstjórn- inni dönsku, nje heyrt þeim flokki til, eða mönnum hjer á landi, sem að henni hafa hallast. Þeir höfðu ekki kosið nokkurn af þeim mönnum, sem á þingi 1901 sam- þykktu hið alræmda óhappafrumvarp dr. Valtýs, sem lengst mun í mn.ni haft, í trausti þess, að apturhaldsveggur hægri- mannastjórnarinnar dönsku myndi ekki hrynja eins fljótt og hann gjörði. En þar sem að gengið er út frá því í greininni, að það sjeu allt íhalds- eða apturhaldsmenn, er hafi stutt sig við nefndan apturhalds- stjórnarmúrvegg, þá hefur einmitt valtýska »hlutafjelagsblaðið« með því viðurkennt, að dr. Valtýr hafi verið apturhaldsmaður, að minnsta kosti frá íslenzku sjónarmiði, því enginn liefur stutt sig fastar við vegginn en hann á síðari árum og enginn hefur misst annað eins við hann, eins og doktorinn og flokkur hans. Er gleðilegt að vita til þess, að augun eru nú svo opin á höfundi þessa „leiðara", „hlutafjelagsblaðsins", að hann sjer og viðurkennir hvílíkur apturhaldsmað- ur doktorinn hafi verið. Aptur á móti virð- ist doktorinn hafa ástæðu til að hugsa eitt- hvað á þá leið, að „svo bregðist krosstrje sem önnnr trje", enda hefur fallvelta heims- ins birzt honum í ýmsum myndum, síðan Ruinp sál. hætti að koma við söguna. Fleira hirði jeg ekki að tína til úr nefndri grein, enda munu flestir kjósendur virða hana og meta, eins og hún á skilið. Heimastjórnarmaður. > »Norðurland« cr fullt af friðarmálunum, og fóðurjurtum handa mögru sálunum.* (»Gjallarhorn« 5. tbl. I. árg.) »Ekki leiðist »Norðurl.» gott að gjöra.« — Síðu eptir síðu, blað eptir blað er gamla í- haldstuggan og kyrstöðuvaðallinn, sem ritstj. »Norðurl.« & Co. hafa verið að tyggja í les- endur sína í allan vetur, og mega mennirnir sannarlega ætla lesendurna eiga mikið af þolin- mæði, ef þeir halda, að þá fari nú ekki að væma við því sálarfóðri, svo geðslegt sem það er. Það er því ekki ófyrirsynju, að »Gjallar- horn«, og önnur heimastjórnarblöð, svona við og við, fletti grímunni af »Norðurl.« & Co., og sýni almenningi hina sönnu mynd þess málgagns, því vel getur verið, að mörgum gangi illa að sjá glögglega í gegnum þann þokuvef hræsni, ósanninda, orðagjálfurs og fram- sóknar-fimbulfambs, sem ritstjórinn og meðhjálp- arar hans hylja sinn eina og sanna tilgang með, en sá eini og sanni tilgangur er Valtýska — apturgcngin Valtýska — það og ekkert annað. Slagorðið hjá »Norðurl.« og öllum öðrum valtýskum uppvakningum er framsókn. Sjálfa sig kalla þeir framsóknarflokk (skammast sín ^ NR. 11. nú orðið fyrir Valtýs-nafnið), blöð sín kalla þeir framsóknarblöð o. s. frv. — Að sjálfsögðu kalla þeir svo mótstöðumenn sfna apturhalds- menn, blöð þeirra apturhaldsblöð o. s. frv. — Undir þessu falska flaggi er svo siglt allt hvað aftekur, ýkt og uppspunnið. En hjer fer sem optar, að »ekki er allt sem sýnist«, því ef maður fer að athuga, hvort þessir menn og þessi blöð sjeu í raun og veru miklir fram- faramenn og framfarablöð, þá mun víst flest- um óhlutdrægum finnast, að þeir kafni undir nafni. — Það er nefnilega enginn vandi að skýra sig hvaða nafni sem vera skal, en það er meiri vandi að bera nafn með rjettu. Þessi einfóldu sannindi ætti »Norðurl.« og Framsókn- arflokkurinn svonefndi að láta sjer skiljast, og ætti bara að kalla sig Valtýinga eða Hafnar- stjórnarflokk; undir því nafni mundu menn þessir ekki kafna, og mundu ekki þurfa að verja miklum tíma og mörgum blaðagreinum til að sannfæra fólkið um, að þeir væri póli- tískur flokkur, sem bæri nafn sitt með rjettu. Engum mun detta í hug að neita því, að síðan 1874 hafi miklar og góðar framfarir orðið hjer í landi, en enginn mun þó til þess vita, að neinar af þeim framtorum sje Valtýingum að þakka, eða að nokkrar af þeim framforum sje reistar á þeim pólitíska grundvelli, sem Hafnarstjórnarflokkurinn stendur á. Sá flokkur getur ekki bent á nokkurt framkvæmt verk, sem sanni það, að hann sje framsóknarflokkur; allar hans framfaraframkvæmdir eru bara orða- gjálfur, hljómur og bjalla, staðlaust og kjarna- laust. »Norðurl.« kann nú að segja, að það sje þó Valtýingum að þakka, að við fáum hluta- fjelagsbankann, og þar geti þeir þó bent á framkvæmt framfaraverk. — En það er ósatt. — Hlutafjelagsbankinn getur orðið til framfara aðeins fyrir aðgjörðir Heimastjórnar- flokksins. Hefði bankinn verið sniðinn eptir vilja og aðgjörðum Valtýinga, hefði hann orðið landi og lýð til bölvunar. Á einu þingi hafa Valtýingar haft yfirhönd- ina til sællrar minningar, það var árið 1901. Þá skyldi maður nú halda, að framsóknin hefði náð sjer á stryk, og margt nytsemdarfyrirtækið verið stofnað, en það var ekkert hætt við því. Mennirnir gátu ekki gengið svo frá eðli sfnu, að þeir færi að brjótast í neinu slíku. En hvað unnu þeir sjer þá til frægðar? — Ja, það er nú saga að segja frá því. — Þeir gjörðu Þing- söguna 1901 að þeim allra svörtustu blaðsíð- um, sem til eru í hinni pólitísku sögu þessa lands, og er þá mikið sagt, því mörg er þar síðan dökkleit, en þetta tókst þeim samt dánu- mönnunum og » Norðurlands « - dýrlingunum. Fjárveitingar þess þings sýndu bezt, hvers kyns pólitík það var, sem þá sat í öndvegi. Fje landsins var sóað til að fylla svanga maga valtýskra gæðinga. Má þar til nefna, meðal annars, styrkveitingarnar handa Þorsteini Erl- ingssyni, G. Finnbogasyni og St. Stefánssyni o. fl. álfka verðugum tilbeiðendum skurðgoðs- ins mikla — Hafnardoktorsins. Með líkri sann- girni var svo náttúrlega þeim, sem aðra póli-

x

Gjallarhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.