Gjallarhorn - 20.03.1903, Síða 2

Gjallarhorn - 20.03.1903, Síða 2
42 GJALLARHORN. Nr. 11 tíska trú höfðu, bægt frá notum af landsins fje. Það er ekki furða, þó »Norðurl.« sje hleina- gleitt af þessari makalausu framsóknarpólitík Valtýsliðsins. Hvílík sæla mundi það ekki verða fyrir það, og aðra jafnhlýðna doktors-drabanta, ef Valtýr & Co. gæti nú orðið ofaná í kosn- ingabardaganum í vor — og Valtýr svo kannske orðið ráðgjafi. — Þá væri nú hámarkinu náð. Þá gæti »Norðurl.« & Co. hætt þessu fram- sóknargjammi og kyrstöðuvaðli, og bara sezt að kjötkötlunum, sem því og þess liði mun vera miklu nær skapi. — En þangað til þetta er fengið, verður það að halda pínuna út. — Gjamma í sífellu og meiningarleysu á framsókn og framfarir, og þyrla sem allra mestu ryki í augu fólksins, þar til hinir sælu dagar upp- skerunnar koma. Aumingja, vesala »Norðurl.«. Það þykist vera af heilagri vandlætingasemi og einlægri ætt- jarðarást að berjast móti kosningu Hannesar Hafsteins ( Eyjafjarðarsýslu, og þykist þar með vilja forða þjóðinni frá hættulegum manni. En þetta er bara endaskipti á sannleikanum. Orsakirnar eru allt aðrar, þegar betur er at- hugað. »Norðurl.« er nefnilega hlutafjelagsblað, og Sk. Thoroddsen er einn af hluthöfunum; þess vegna þarf »Norðurl.« sjerstaklega að ráðast á þá M. Stephensen og H. Hafstein, sem Skúli virðist hata manna mest. Svo er hlutafjelagsblaðið »Norðurland« valtýkst flokks- blað, þess vegna þarf það að gjöra sitt ýtrasta til þess, að svipta mótflokk sinn, Heimastjórn- arflokkinn, hans bezta manni, sem er H. Haf- stein. — Þetta eru þær sönna orsakir til alls gauragangsins í »Norðurl.« móti H. Hafstein og M. Stephensen, en alls ekki kyrstaða eða íhald, sem blaðræfillinn er alltaf að flagga með frammi fyrir fólkið. — Það er bara orðagjálf- ur og ekkert annað. Hreggviður. * Ritstjórnin vill taka það sjerstaklega fram, að hún er að sumu leyti ekki samdóma »Hregg- viði« í greininni hjer á undan, en þykir óþarfi í þetta sinn að fara nánar út í einstök atriði. Úr heimahögum. Skagafirði 6. inarz. Fjörugt gengur lífið á Hólum í Hjaltadal í vetur og er það ólíkt því sem hefur verið undan- farið. Við Skagfirðingar erum nú farnir að vona, að hið »forna höfuðból« fari að vinna aptur álit sitt, sem það hafði í gamla daga, svo við getum með góðri samvizku sagt eins og for- feður okkar »heim að Hólum«. Frá 14.—28. febr. voru á mjaltaskólanum á Hólum 16 nemendur, allir úr Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum. Þessi nýja mjaltaaðferð fellur okkur vel í geð og berum við henni hrós mikið. Sá, sem kennir hana, er Flóvent bóndi á Hólum. Sett var í vetur upp beinagrind af hesti við skólann á Hólum og stendur hún í heilu líki. Hún er notuð við kennslu í húsdýrafræði og þykir nær því ómissandi. Við alla búnaðarskóla erlendis er meira og minna af svoleiðis kennsluáhöldum, en hjer á landi munu þau ekki véra til annars- staðar en við Hólaskóla. 14. marz á að byrja bændaskóli á Hólum og hafa sótt um hann talsvert fleiri en hægt er að taka. Búist er við, að á honum verði c.a 40 nemendur auk skólasveina. Þeir eru því ekki fáir, sem njóta kennslu á Hólum þettta ár, líklega nær 100 manns og er það meira en nokkur hefði líklega ímyndað sjer fyrir 2 árum síðan eptir því, sem þá leit út. Nýja skilvindu fjekk Flóvent bóndi sjer í haust — »Alfa Boby« — sem aðskilur 500 pd. af mjólk á kl.stund. Skilvinda þessi reynist ágætlega; hún kostaði nálægt 240 krónum og álítur þó hr. Flóvent, að hún muni borga sig á 1 ■/2—2 árum á móts við það, að »setja mjólk- ina«. Er þetta gott til athugunar fyrir þá, sem enga skilvindu hafa, og ættu þeir að snúa sjer til Flóvents bónda með allar nákvæmari upplýs- ingar. Hann hefur útsölu á þessum skilvindum, þekkir bæði þær og aðrar skilvindutegundir bet- ur en flestir aðrir og er áreiðanlegur maður. Alþingiskosningarnar að vori höfum við í huga, þó ekki sje eins mikill gangur í okkur með þær, eins og hjá ykkur Eyfirðingum. Það er þarft verk, sem þið vinnið með því, að reyna að fá Hannes Hafstein á þing og vonandi að ykkur heppnist það. * Heklugos. Að kveldi daganna 12. og 15. þ. m. heyrðu þeir, sem gengu um götur bæjar- ins nálægt »Hótel Akureyri«, óp mikil, sem þeim virtist vera frá »stóra salnum« á hótel- inu. Fór það eins og vant er, þegar fólkið heldur að eitthvað »sje á ferðinni«, að forvitni greip það, svo það flýtti sjer inn »á bauk«. Þar fjekk það að vita, að þetta var söngfje- lagið »Hekla« að halda samsöng, en það kall- ar náunginn hjer »Heklugos«. Samsöngurinn tókst mjög vel í bæði skiptin að dómi þeirra, sem vit hafa á söng. 15 lög voru sungin og voru 2 af þeim ný, annað eptir Mangnús Einarsson, við kvæðið »Fífilbrekka, gróin grund«, en hitt eptir Gísla Jónsson prent- ara, við kvæði eptir sjálfan hann: »IIaust«. »Egil«, skipstjóri Haueland, kom hingað 16. þ. m. Með honum komu cand. mag. Guðm. Finnbogason, sem sagt er að vilji fara á þing fyrir Eyfirðinga, og Jens Petersen skipstjóri á kútter »Samson«, sem hefur legið hjer í vet- ur. Danir hafa veitt honum 1000 króna verð- laun fyrir veiðitilraunir hans með botnnetum hjer 1' fyrra sumar. Frá Seyðisfirði kom með »Egil« fjölskylda Rolf Johansens afgreiðslumanns. »Egil« fór aptur þ. 18., og með honum til útlanda snögga ferð kaupmaður Snorri Jónsson. »Vesta«-, skipstjóri Godtfredsen, kom hingað 14. þ. m. og með henni frá útlöndum kaupm. Kolbeinn Árnason. Frá Austfjörðum Einar Hall- grímsson verzlunarstjóri á Seyðisfirði og Grímur Laxdal kaupm. á Vopnafirði. Með báðum skipunum kom mikið af vörum til flestra verzlana í bænum. Alþýðufyrirlestur hjelt Stgr. læknir Matthías- son á »Hótel Akureyri*, að kvöldi þess 18. þ. m. Fyrirlesturinn var »um tóbak«. Læknir- inn var á þeirri skoðun, að skaðlítið mundi vera fyrir fullhrausta menn að fá sjer við og við »upp í sig«, eða reykja einn vindil við tækifæri. Honum var einnig meinlítið við nef- tóbak -— á kláðatóbak minntist hann ekki, hvorki til böðunar nje reykinga. Ráðsmennska sjúkrahússins hjer er veitt frá 14. maí næstkomandi Einari Pálssyni. Hallgrímur Einarsson myndasmiður á Seyðis- firði ætlar að »fylla upp« út og fram af gamla bakaríinu (sáluga, sem brann). Ráðgjörir hann að byggja þar hús og setjast svo hjer að. * ÚR BRJEFI. Eskifirði 9. marz. »Tíðin hefur mátt heita góð, en þó nokkuð umhleypingasöm. Lítið ber á pólitískum hreyf- ingum, en vonandi fara menn nú bráðlega eitt- hvað að rumskast, enda segja sögurnar, að nógu margir ætli að bjóða sig hjer fram til þings: Ari, Guttormur, sr. Magnús í Vallanesi, sr. Jón í Nesi, Tulinius sýslumaður, Olafur læknir Thorlacius, Jón í Múla, Sveinn Ólafs- son og ef til vill bætast einhverjir við ennþá, en enginn veit hver af öðrum dregur. Afnám hvaladrápsins er hjá flestum hjer brennandi áhugamál, eins og vert er, en illa geðjast mjer að fundarsamþykkt Seyðfirðinga, finnst það vera kák, tollhækkunin hlægileg úr 50 au. upp í kr. 1.50 og kröfurnar yfirleitt litlar og ljelegar. Sagt er að verð á útlendum vörum norðan og austanlands muni verða þetta í reikninga og mót vörum í næstu sumarkauptíð: Rúgur pr. 100 pd...................... 9.00 Bankabygg............................13.00 Heilrís..............................16.00 Hálfrís.....................^ . . . . 14.00 Baunir...........,.................15.00 Rúgmjöl............................... 9.50 Flórmjöl.............................16.00 Heitimjöl............................12.00 Kaffi pr. pd.......................... 0.60 Export................................ 0.50 Kandís................................ 0.33 Melís................................. 0.28 Farin................................. 0.24 Munntóbak............................. 2.50 Roel.................................. 2.00 Brennivín pr. pott. . . .............. 1.25 Nú með s/s »Mjölnir< fjekk jeg miklar birgðir af allskonar vörum, sem scldar verða með mjög vægu verði. Þar á meðal steinoliu, sem sjerstaklega er seld mót peningum mjög ódýrt. Gegn peningaborgun út í hönd gef jeg 10 pct. af- slátt og jafnvel meira, ef mikið er keypt. Komið, skoðið, kaupið. Sn. Jónsson. í Laxdalsbúð kostar kaffi 0.48 pr. pd. rúgmjöl 4.50 » lU sekkur melís í toppum 0.22 » pd. tvíbökur 0.40 » export 0.44 » — og aðrar vörur jafn-ódýrar að sínu leyti. JMyjar vörur» Til verzlunar undirritaðra eru nú komnar miklar birgðir af vörum, mjög fjölbreyttar og vel viðeigandi (valdar af öðrum hlutaðeiganda). Verðið er fádæma lágt, flestar tegundir ódýr- ari en áður. Kolbeinn & Ásgeir. Gulrófufræ, frá Búðaðarfjelagi Suðuramtsins, er til sölu hjá Kolbeini & Ásgeir, Oddeyri.

x

Gjallarhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.