Gjallarhorn - 05.06.1903, Side 2

Gjallarhorn - 05.06.1903, Side 2
70 OJALLARHORN. Nr. 18 leikamaður okkar flokks, og sem þeir óttast manna inest að verði þeim slæmur „Pránd- ur í Götu", til að bana frumvarpi síðasta þings og koma landsbankanum fyrir kattar- nef. En svo er spurn: Eiga kjósendur að fylkja sjer í kringum »Norðurlands“-liðið, til að fella H. H.? Eða eiga menn að vinna á móti því af öllum kröptum, að H. H. falli ekki hjer við næstu kosningar? Fyrri spurningunni verður svarað á þá leið, að ef menn vilja dansa eptir hinum margbreyttu og hjárómuðu tónum Valtýs- liða, standandi á höfði og slá fótunum út í loptið og verða fyrir það sama að athlægi allra skynberandi manna, þá er bezt fyrir þá hina sömu að fylkja sjer í kringum >,Norðurlands"-klíkuna og kjósa ekki H. Hafstein. En ef kjósendur þar á nióti vilja stuðla að því af fremsta megni með atkvæði sínu, að málum þeim, sem okkar flokkur hefur mest barizt fyrir, með að fá æðstu stjórnina búsetta í landinu sjálfu og peningastofnun landsins blómgist og rjettur landsbankans sje ekki meira skertur, en orðið er, og í einu orði, að málum okkar flokks sje sem bezt borgið á þinginu, þá skulu þeir hinir sömu kjósa H. Hafstein fyrir þingmann. Allir sannir heimastjórnarmenn ættu að muna það, að hingað til hafa þeir aldrei gengið í lið með Valtýingutn hjer í Eyja- firði .með kosningarnar. En ef þeir nú ætla sjer að ganga í lið með þeim, til að fella H. H. frá kosningu hjer, þá setja þeir þann blett á kjördæmið, sern ekki hefur fallið á það enn, og sem seint yrði útskafinn. Heimastjórnarmaður. Fyrirspurn. I vetur var á Góunni haldinn fjölmennur fundur hjer á Akureyri. Herra Páll amtmaður Briem kom þar með uppástungu um innlent vá- tryggingarfjelag fyrir eldsvoða, sniðið eptir vá- tryggingarfjelögum til sveita í Noregi. Fylgdi þar með frumvarp til handa slíku fjelagi. Herra O. Myklestad kláðalæknir skýrði og frá fyrir- komulagi slíkra fjelaga í Noregi, og hvernig þeim hefði gengið. Kvaðst hann eigi sjá neitt því til fyrirstöðu, að slík fjelög gæti blómgazt hjer á landi. Málið fjekk beztu undirtektir á fundinum, og sýndust menn vera því mjög hlynntir. Þá var og tilnefnd fjölmenn nefnd, og samþykkt af fundarmönnum, til að annast fram- kvæmdir þessa máls. Síðan hefur lítið lífsmark sjest með þessari nefnd, og minnir mig þó, að hún væri að mestu eða öllu skipuð þeim mönnum, sem kalla sig framfaramenn. Með því að mjer þykir málefnið gott, eins °F jeg lýsti yfir á fundinum, vil jeg leyfa mjer að spyrja nefndina, hvort hún ætlar að gjöra nokkuð í þessu máli, eða hvort hún ætlar að láta það lognast svona út af. En það verða >framfaramenn« að vorkenna gömlum aptur- haldssegg eins og mjer, þótt mjer þyki lítið til þeirra >framfara« koma, sem eru í munnin- um aðeins, og komast ekki lengra. Akureyri 30. maí 1903. Jón A. Hjaltalín. Hverja á að kjósa á þing í Eyjafjarðarsýslu 6. júní 1903? Þetta verður sú spurning, sem hver og einn kjósandi hlýtur að leggja fyrir sjálfan sig, áð- ur en til kosninga er gengið. En af því að margt er athugavert við kosningarnar hjer, þá vil jeg leyfa mjer að fara um frambjóðend- urnar, hvern fyrir sig, fáeinum orðum. Um Guðm. Finnbogason er það að segja, að hann er ungur og óreyndur. Hann er gáf- aður og allvel máli farinn; en bæði eptir fram- komu hans áður, og nú á fundum hjer í kjör- dæminu, er óhætt að fullyrða, að hann hallast að Valtýsliðum, og mörgum kjósenda mun hafa komið til hugar, að honum hafi verið beitt hingað sem nokkurskonar agni, í þeirri von, að Eyfirðingar myndu bíta á krókinn, en nú lítur út fyrir, að Valtýingar hafi fundið aðra betri tálbeitu handa kjósendum, og Guðm. eigi að vera sem önnur varaskeifa fram að síðustu stundu, en ef hann reynist óbrúkandi sem kosningaagn, þá eigi að taka hann út af fram- bjóðendaskránni. Um St. Stefánsson mætti fleira segja en hjer verður gjört. Hann hefur nú setið á tveimur þingum, og hefur verið í áliti sem góður flokksmaður. En mörgum kjósanda mun finnast, að hanrí ætli heldur að kasta skugga á þetta góða flokksnafn sitt, með því að vera ófáanlegur til að rýma sæti fyrir sjer betri og fcerari manni, sem þar að auki er okkar flokks- foringi, þrátt fyrir það þó nokkrir af Stefáns beztu styrktarmönnum, sem hafa verið honum hjálplegir að komast hér að áður, hafi farið þess á leit við hann, að hætta við framboð sitt að þessu sinni; en þeirri beiðni hefur ekki verið sinnt. En mótstöðuflokkur hans, sem verið hefur að undanförnu, Valtýingar og þeirra fylgismenn, sem ekki hafa talið hann í nokkru nýtan sem þingmann, taka hann nú upp á sína arma, lofa að styrkja hann til að komast inn á þingið af ítrustu kröptum, og hætta að mæla með Guðmundi, og samlaga sig svo Stefáns mönnum til að Stefán vinni sigur hjer við kosningarnar, en H. Hafstein falli. Til þess er nú leikurinn háður af þeirra hendi. Ekki af einlægum brjóstgæðum við St^fán, nje góðu áliti á honum, heldur til þess að nota hann til að fella sjer færari mann, og hælast svo yfir sigrinum á eptir. Þetta er hið athugaverðasta við kosningarn- ar hjer f Eyjafirði. Jeg vil nú setja sem svo, að þetta bragð Valtýinga heppnaðist, og hugsa mjer svo afstöðu Stefáns á þinginu. Hvaða flokk getur Stefán fylgt, ef hann kemst með þessum ráðum inn á þingið? Ó- hugsandi er, að hann geti verið lengur í Heima- stjórnarflokknum, þegar hann er búinn að fella þeirra flokksforingja með tilstyrk Valtýinga. Illa mundi hann kunna við sig hjá Valtýingum, ef hann er ekki því breyttari, svo ekki gæti hann verið þar til lengdar, þó þeir þættust eiga einhvern kvóta í honum fyrir hjálpsem- ina. Hið líkasta yrði, að ef P. Briem kæmist inn á þingið og myndaði þar einhverja »mið- sijórn*, að St. lenti þar og yrði þar vel geymdur undir handarjaðri amtmanns, og gæti þar á sínum tíma gefið atkvæði um, hver ætti að verða fyrsti ráðherra okkar. Um hina báða þingmennina, sem eptir er að minnast á, Kl. Jónsson og H. Hafstein, má segja það, að báðir eru miklir hæfilegleika- menn, og hafa reynst þingskörungar, og fæstir landsmenn mundu gjalda Eyfirðingum þakkir fyrir það, að þeir fjellu hjer við næstu kosn- ingar, að undanteknum Valtýingum og þeirra liðum, sem óttast H. Hafstein manna mest, ef hann kemst á þing, og vildu um fram allt, að hann fjelli hjer við kosningarnar. >Norðurl.«, þeirra aðal málgagn hjer norðanlands, hefur því óspart blásið að kolunum í þá áttina, lagt sig svo í líma með að niðra H. Hafstein, að hver hugsandi maður er orðinn leiður á að lesa þann þvætting, enda mun blaðið fyrir það sama tapa áliti sínu, og missa fjölda kaup- enda. Hvað gjöra annars Valtýingar fyrir foringja síns flokks? Þeir fá einn duglegasta þingmann sinn, Þórð Thoroddsen, til að standa upp fyrir Valtý og styrkja hann til að ná sæti sínu í Kjósar- og Gullbringusýslu, og sýnir það, að þeim þykir mikið unnið við það, að fá sinn flokksforingja inn á þingið. En hjer er að- ferðin þveröfug að koma okkar flokksforingja að. Ófáanlegt af St. St. að rýma sæti fyrir honum, sem þó er talinn rýrari þingmaður en Þ. Thoroddsen, og mótflokkurinn, Valtýing- arnir og þeirra liðar, ná svo þeim tökum á St. St. að hann er styrktur af þeim flokk á allan hugsanlegan hátt, til að fella H. FI. hjer við kosningarnar. Það væri því verðug baksletta fyrir Valtý- inga, að kosningarnar hjer í Eyjafirði gengi þeim ekki að óskum í ár, og hver hugsandi heimastjórnarmaður ljeti ekki önnur kjördæmi landsins frjetta það, að kjósendur hjer gleypi ekki þessa síðustu tálbeitu Valtýinga, og sam- lagist þeim til að bíta á krókinn, til að fella H. Hafstein hjer frá kosningu. Hinn 6. júní verður þá barist um sóma og heiður þessa kjördæmis, og um framtíð og heill okkar heimastjórnarflokks í landinu, og hver sá kjósandi, sem hopar undan því merki, sem Eyfirðingar hafa borið hingað til, rýrir álit og sóma hjeraðsins. En þá lítilmennsku vildi jeg óska, að eng- inn Eyfirðingur sýndi. Bóndi. Úr Heimahögum. - —- Afli er sagður í byrjun úti fyrir Ólafsfirði. Það er vænn þorskur sem fengizt hefur, en heldur fátt ennþá. Um síldarafla hefur ekkert frjezt. Eldgos í Vatnajökli. Úr Mývatnssveit sást fimmtudagskvöldið 28. maí ösku-og reykjar- strókur upp úr Vatnajökli. Degi seinna var seglskipið >Carl« um 30 mílur austur af Langa- nesi. Fjell þá ofan á þilfarið aska, sem eflaust hefur borizt frá gosi þessu. Hafnarbryggjan á Torfunefi. Nú er byrjað að keyra fram uppfyllingu í bryggjuna. Á að gjöra hana svo í sumar, að uppskipunarbátar geti lagst að henni þótt fjara sje. Bjarni Ein- arsson skipasmiður stjórnar verkinu. Úr Svarfaðardal er nýlega skrifað: . . . Af því að Norðurlandsliðið og þess fylgifiskar munu bera það út á Akureyri og víðar, að H. Hafstein muni mjög lítið fylgi hafa hjer í dalnum, þá vil jeg láta yður vita, að mjer er kunnugt um marga hjer í grenndinni, sem ætla

x

Gjallarhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.