Gjallarhorn - 19.02.1904, Side 1
GJALLARHORJM.
Útgefendur : Bernh. Laxdal * Jón Stefánsson.
NR. 6.
Akureyri, 19. febrúar 1904.
2. ÁR.
*
Jl ferd og flugi.
-ass Prentlist
Eptir Síeingrím Matthíasson.
IV.
9ort Said og Súezskurðurinn.
geta tveir unglingspiltar numið með góðum
kjörum, ef samið er sem fyrst við prent-
smiðjueiganda Odd Björnsson á Akureyri.
Ágætt kaup eftir námstímann.
Snemma morguns i. desember sigld-
um vjer inn á höfnina við Port Said.
Höfnin er af mannahöndum gjörð;
langir múrgarðar verja hana brimróti
og aurleðju úr Nflarfljóti. Öðru megin
við innsiglinguna er hár vitaturn, hinu
megin þrekvaxið eyrlíkneski afFerdin-
and de Lesseps sem stóð fyrir greftri
Suezskurðarins og skildi sundur syst-
urnar Asíu og Afríku sem áður höfðu
verið samvaxnar líkt og tvíburarnir
systurnar frá Brasilíu, sem franski lækn-
irinn, Dogen, skar í sundur í fyrra.
Höfnin er ekki annað en breitt
minni Súezskurðarins — frá henni geng-
ur skurðurinn inn í eyðimörkina og
út í Rauða haf. Port Said á skurðin-
um tilveru sína að þakka, hjer var
eyðimörk áður. Nú eru hjer 50,000
íbúar, allskonar lýður, en Arabar mest.
Bærinn er að eins áfangastaður skipa
er fara gegnum skurðinn, hjer taka
þau kol og vatn og aðrar nauðsynja-
vörur, en standa lítið við.
Vjer leggjumst við atkeri til að
taka kol, reyndar höfum vjer nóg af
kolum í lestinni, en þau á Rússinn.
A höfninni er fjöldinn allur af stórum
gufuskipum — seglskip fara sjaldan
gegnum skurðinn. — Skip með ýmsum
fánum, herskip, vöruskip og póstskip,
einkum lízt mjer vel á póstskipið sem
gengur á milli, Brindísi og Port Said,
það er skrautleg skeið, mjög hrað-
skeið, sem tekur við póstsendingum
sem koma frá Asíu með öðrum skip-
um. A þessu skipi er eins og á öðr-
um stórum póstskipum í Miðjarðar-
hafinu Marconiloptritun í sambandi
við land og kemur út lítið dagblað á
hverju skipi með frjettum úr landi
handa farþegjunum. — Fyrsti bátur,
sem leggur að voru skipi, er bátur
hafnarlæknisins. Hann er grískur, en
talar ensku og frönsku, hann spyr um
heilsufar á skipinu, skrifar heilsuvott-
orð, kveikir í vindli, rabbar við mig
um stund, þýtur svo á stað um borð
f nýtt skip — nóg er af þeim — hans
praxis er að heimsækja skipsskrokka
allan daginn og hepta fór þeirra, ef
þeir hafa inni að geyma sóttnæm veik-
indi.
Sægur af bátum hefur safnazt kring-
um skipið og þegar læknirinn er far-
inn, kemur hópur af Aröbum um borð
til að selja vörur sínar. Þeir eru brúnir
'ii.il:. Á ' .ú: ú.-
að hörundslit, en frfðir sýnum, marg-
víslega búnir, í bláum, skósíðum káp-
um, hvítum og rauðum skyrtum, skálm-
víðum brókum, ýmislega litum, ber-
fættir, flestir með háa, rauða kollhúfu,
með svörtum hangandi skúf upp úr
kollinum, aðrir með trefil vafinn um
höfuðið til að verjast sólarhitanum. A
sumrin láta margir þeirra sjer nægja
með mittisskýlu. Allir hafa eitthvað á
boðstólum og hópast í kringum oss
skipverja eins og hrafnar við hræ og
bjóða varninginn. Ef þeir gjörast of
nærgöngulir, fá þeir vænan Iöðrung,
einkum hjá sjómönnum, sem eru vanir
að verzla við þá. Við það spekjast
greyin. Yfir höfuð er þetta mesti ó-
þjóðalýður og öllu verður að loka
fyrir þeim á þilfarinu og gefa nánar
gætur þvf þeir stela öllu steini ljett-
ara.— Vörurnar eru: Brjefspjöld með
myndum, allskonar forn-egyptskirmunir,
sem reyndar eru tilbúnir á Þýzkalandi,
glingur og krossar frá Jerúsalem, sem
sömuleiðis eru frá Þýzkalandi, ávextir,
döðlur, hnotur, epli, appelsínur o. fl.,
tóbak og vindlingar, myndir af nöktu
kvennfólki og allskonar myndir, sem
hvergi annarsstaðar er leyft að selja,
o. m. fl. Allt þetta á að kosta ærið
fje, en með því að prútta lengi, fær
maður að lokum hluti fyrir 25 aura,
sem áttu að kosta 5 krónur, en sjald-
an sleppur maður óprettaður úr við-
skiptunum.
Nú koma kolin. 6 stórir flatbotn-
aðir uppskipunarbátar fullir af kolum
og Aröbum leggja að báðum hliðum
skipsins. Frá hleraopum á skipshlið-
unum er borðum skotið niður f bát-
ana og eptir þeim býrja nú Arabarnir,
sem eru skitnir og illa búnir, að bera
körfur á bakinu fullar af kolum, sem
þeir hella úr niður í lest. Vinnan
gengur fljótt og fjörugt, hver körfu-
berinn rekur annan syngjandi og hó-
andi í stöðugri halarófu. Aðrir taka
við tómu körfunum og fylla þær niðri
í bátunum. Gamlir Arabar standa hjá
sem umsjónarmenn, með prik ( hendi,
reiðubúnir að berja hrygg þeirra, sem
ekki eru nógu fljótir, og það vill eigi
ósjaldan til, að maður sjer prikið
dansa eptir hryggnum á einum garm-
inum, sem var of seinn að tæma körf-
una. Fles-tir kolaberarnir eru ungling-
ar, þeir fá þess meiri borgun, þvf
fljótari sem þeir eru að tæma bátana
og það gengur Iíka undur fljótt. Þetta
lff og fjör í kolavinnunni í Port Said
er svo einkennilegt, einkum ef manni
er í fersku minni kolauppskipun f
Reykjavík, þar sem úttaugaðar aum-
ingja fátækar konur og gamalmenni
streyttust silalega með vættarpoka á
bakinu upp bryggjurnar. Kolakörfurn-
ar eru minni og íjettari við að eiga;
en Arabarnir eru svikulir þjónar. Það
er sagt, að þegar þeir á nóttunni
ferma skip með kolum, sje það al-
gengt, að þeir kasti stórum kolamæl-
um fyrir borð til þess að veiða þá
upp seinna og selja svo.
Nú höfum vjer sjeð nóg af þessu
og förum því í land. Arabarnir hafa
báta reiðubúna til að ferja mann, þeir
rífast um, hverjum eigi að hlotnast
heiðurinn og áður fyrr vildi eigi ó-
sjaldan svo til að sá, sem rifist var
um, datt í sjóinn og druknaði, en nú
er lögreglan orðin betri og eptirtekt-
arsamari.
Þegar maður stígur í land, mætir
manni svo margt nýstárlegt og óþekkt
áður, að heilanum veitir erfitt að átta
sig á öllu, sem augað sjer. Að eins
góðar litmyndir geta lýst því eins og
t. d. hinar ágætu myndir f Nýjatesta-
mentinu, sem Jones trúboði hefur gefið
út, margar þeirra geta vel verið mál-
aðar í Port Said. Ekki er maður fyrr
kominn í land, en hópur af iðjulaus-
um Aröbum, safnast utanum mann og
bjóða fylgd sína um bæinn. Rjettast
er að taka boði þess, sem virðist
sterkastur og mestur fyrir sjer. En
þó maður þvertaki fyrir alla fylgd og
hafni boðum allra, eltir samt hópur-
inn og að minnsta hangir einn þeirra
svo lengi aptan í manni, að það þarf
sjerstaka harðýðgi til að reka hann frá
sjer. Göturnar eru ekki verri en á
Akureyri. Húsin eru öll með flötum
þökum, flest eru fleirloptuð með lopt-
svölumog súlnaþökum, sem gefa skugga
og skýli fyrir sól. Allstaðar eru verzl-
anir með hitt og þetta og allar eru
sama markinu brenndar að þvf leyti,
að hvergi er vöruverð sanngjarnt og
hvarvetna er reynt að hafa af manni
fje. Kaupmennirnir eru enskir, þýzkir,
franskir, grískir o. s. frv., en Arab-
arnir eru einna verstir viðfangs.
Hjer ægir allskonar þjóðum saman,
ekki einungis ferðafólki sem kemur
og fer með skipinu, heldur hitt og
þetta fólk, sem hingað hefur safnazt
og á hjer heima.
Allir fátætlingar — og þeir eru marg-
ir í Port Said — ganga berfættir og
víða verða á vegi manns hálfnakin
Arababörn, óhrein í framan sem biðja
um »Backschisch« sem þýðir skilding-
ur. Ef maður gefur einu þeirra, þá
koma óðara öll hin og ætla mann að
æra. Jeg gaf þrem krökkum aura fyrir
að standa fyrir myndavjelinni minni,
en undireins fylltist gatan af krakka-
mori; öll’ vildu standa fyrir. Jeg tók
mynd af hópnum — en svo var friður-
inn úti; öll gjörðu tilkall til skildinga
fyrir, með dómadags hávaða og lát-
um, og jeg var í miðri þvögunni.
Mjer fannst jeg vera staddur f krfu-
varpi og hefði tekið egg, en hafði ekki
brjóst í mér til að berja frá mjer. En
fylgdarmaður minn, feitur Arabi, tók
til stafs síns og sannfærði þau — á
endanum—, og þá tvístraðist hópurinn.
Vjer förum inn í eitt musteri (Moské)
múhameðstrúarmanna. Snotur bygging,
með súlum fagurlega útskornum við
innganginn og háum laukmynduðum
turni með hálftungli efst, en það merki
er þeim jafn heilagt og krossinn kristn-
um mönnum. Að innan er húsið óbrotið
með litlu útflúri og engum myndum.
Prjedikunarstóll fyrir miðjum gafli og
yfir honum hálftungl. Hvergi sæti eða
bekkir en á gólfið voru breiddir dúkar
eða teppi, vel ofin. Prestur f ermvíðri,
skósíðri flakandi hempu tók á móti
oss mcð djúpri hneigingu um leið og
hann signdi sig. Það þótti oss óþarfa
kurteisi, en það átti að þýða að hann
með hug, hjarta og munni vildi þjóna
oss — hann bendir með hægri hönd
á enni, munn og brjóst; þetta er kveðja
Múhameðstrúarmanna. Til þess að ó-
hreinka eigi gólfið, ljet prestur oss
taka á oss skó fljettaða úr hálmi og
gekk síðan í broddi fylkingar um must-
erið. A gólfinu Iágu hjer og hvar Ar-
abar í þögulli bæn, sumir virtust sofa,
en enginn heyrðist orð mæla, flestir
lágu á hnjánum með enni niður við
gólf, en aðrir lágu í kút úti í horni
og virtust bókstaflega steinsofa. I for-
garði musterisins er brunnur; þar þvo
þeir sína syndugu limi áður en þeir
leggjast á bæn. Prestur sýndi oss að
lokum kóraninn og sverð, sem hann
sagði Múhameð hafa átt einusinni. Síð-
an kvöddum vjer prest og gáfum hon-
um 45 aura (6 pence) hver, sem offur,
en hann signdi sig.
Þegar vjer komum út, settum vjer
oss í forsælu súlnaþaks fyrir framan
veitingaskála og fengum oss tyrkneskt
kaffi. Það er borið fram sjóðheitt í
látúnskrukkum. Korgurinn er ekki sí-
aður frá og sykur er settur út í áður
en það kemur og svona drekkur mað-