Gjallarhorn


Gjallarhorn - 17.02.1905, Page 3

Gjallarhorn - 17.02.1905, Page 3
Nr. 6 GJALLARHORN. 23 Nýlátnir íslandsvinir. í Björgvin er nýlega sáluð ágæt kona: frú Bolette C. Pavels - Larsen, skáld og ritlistarkona og mikill vinur íslenzkra bókmenta, og svo er maður hennar, O. E. Larseti, bankafulltrúi og fræðimaður. Frú Larsen þótti rita jafnvel »landsmál« Norðmanna, eink- um mál Sygna, eins og bókmálið. Hún gekst mest fyrir ef fyrirlestrar um ís- land fóru fram í »Vestmannalaget« í Björgvin, og svo var, þegar sá, er þetta ritar, var síðast gestur þar í bænum. Frú Larsen var fríð kona og stórmannleg, og ætt hennar göfug. Hún andaðist skyndilega 8. desbr. f. á. af hjartaslagi, 58 ára að aldri. Rétt fyrir jólin mistu Norðmenn einn þeirra mesta friðarvin, og sama má segja um alla Norðurálfuna, við lát dr. O. Sauerweins, er dó rúmlega sjötugur. Hann var einhver málsnjall- asti og andríkasti maður allra hinna nýju friðar- og mannvina á Þýzka- landi og vel heima í öllu á Norður- löndum, einkum í Noregi. Þriðji merkismaðurinn dó rétt eftir nýárið. Það var hinn ágæti Liverpóls kennimaður Robert A. Armströng, rúml. sextugur. Hann heimsótti oss Islend- inga fyrir fjórum árum síðan. Hann var einn hinna góðu, gömlu Englend- inga, sem eru jafn-mikilhæfir sem góðir menn. Það var hann, sem sendi fátækl- ingum, sem mest mistu hér á Akur- eyri við brunan 1901, 100 pund sterl- ing. Armströng var talinn með allra fremstu framfara-, bindindis- og frels- isskörunga meðal frjálstrúandi presta á Englandi, spekingur að viti, djarfur og einarður, og þó einhver hinn ást- sælasti borgari í Liverpól og öðrum hinum frjálslyndustu borgum á norður Englandi. Hann fylgdi Unítaraskoðunum og þótti skæður öllum kreddulýð hins mikla enska ríkis, enda var hann snillingur að rita og tala. Útför Armströngs var hin vegleg- asta. Llann var trúmaður hinn mesti, og bauð að brenna skyldi leifar sín- ar. Það var gert. ýþj I xlngólfur* skifti um ritstjóra nú um ára- mótin. Bjarni Jónsson frá Vogi hætti vegna þess að útgáfufélag blaðsins gat eigi boðið honum þau kjör, er hann gæti gengið að framvegis. Er að mörgu eftirsjá að Bjarna setn ritstjóra, því margar greinar hefir hann ritað góðar, sérstaklega um „listir og vísindi" og íslenzka tungu ritar hann flestum mönn- um hreinni og betri. Ættu allir að geta viður- kent það þó þeir hafi aðra pólitíska skoðun en þá er „Ingólfur" hefir haldið fram. Sá, sem tók við ritstjórn „Ingólfs", er Benedikt Sveinsson kand. phil. frá Húsa- vík. Hann er Þingeyingur að ætt og upp- runa, gáfaður vel, skarpur og einarður og teljum vér „Ingólf" vel kominn í hans höndurn. Stefna blaðsins í pólitík teljum vér og líklegt að breytist, þar sem nú er komið nýtt atriði til sögunnar fyrir kenn- ingar Landvarnarmanna, þar sem er ráða- neytisbreytingin danska og þeir atburðir, sem gerast henni samfara, svo sem hefir verið drepið á hér í blaðinu. Álítum vér því að afstaða Landvarnarmanna í pólitík sé nú alt önnur en hefir verið til þessa. Óánægja og óeirðir út af stríöinu verða æ tíðari á Rússlandi. Nýliðar þeir, sem kallaðir eru austur til Asíu gera oft af sér ýmsan óskunda og láta það ótvíræðlega í ljósi, að þeim sé alt annað en ljúft að láta brytja sig niður þar eystra »fyrir keisarann og föðurlandið*. Um jólaleytið reyndi nýliðasveit ein að sprengja í loft upp tvær smáar járnbrautarbrýr til þess að hindra herflutningana austur til Asíu. Herlið kom þá að og réðst á þá og hófst skæður bardagi. Nokkrir af herforingjunum féllu og margir af nýliðunum. Við brýrnar tókst að gera aftur eftir skamman tíma. — í Péturs- borg var fundur haldinn skömmu fyrir nýárið til þess að mótmæla stríðinu og skora á stjórnina að semja frið. Meðal fundarmanna voru vfsindamenn, listamenn og margir aðrir merkir og mætir menn. 1. des. var birt í blöðum um endi- langa Norðurálfuna skjal, er gaf til kynna, að fulltrúar ýmsra pólitiskra flokka og þjóða f hinu rússneska ríki hefðu gert samband með sér til þess að reyna með sameinuðum kröftum að hnekkja hinu rússneska einveldi og kúgun þess, án tillits til margs- konar ágreinings og skoðanamuna inn- byrðis. A þingi því í París, þar sem þetta gerðist voru fulltrúar frá Finn- um, Pólverjum, Armeníumönnum, Geor- gíumönnum og frá ýmsum framsóknar- og byltingafélögum í Rússlandi sjálfu. Þau grundvallaratriði, er allir voru sam- mála um voru þessi: 1) afnám einveld- isins og afturköllun allra ólöglegra til- skipana á Finnlandi. 2) í stað ein- veldisins Iögbundin stjórn, er hvíli á almennum kosningarrétti. 3) sjálfstjórn fyrir hinar einstöku þjóðir og lagaleg vernd þjóðernis þeirra. Fyrir öllu þessu vilja hinir mörgu og sundurleitu flokkar berjast í bróðerni (Þjóðólfur.) »Verði ljds< er þeir sr. Jón Helgason, prestaskólakennari,HaraldurNíelsson,kand. theol. (og sr. Sig. P. Sívertsen á Hofi, fyrstu árin), hafa gefið út nú í níu ár samfleytt, hætti að koma út nú um nýárið og mun orsökin til þess vera lélegur stuðningur þjóðarinnar. Blaðið hefir þó altaf unnið í þá átt að vekja menn til umhugsunar um andlega velferð þeirra og veitir víst ekki af að því verki væri haldið áfram, en nú hafa menn breytt þannig, að blaðið er hætt og ætla þeir þá víst að passa sig sjálfir, svo þeir verði ekki í vandræðum, þegar farið verður að gera upp reikning- ana hinumegin. »Hekla*, söngfélag það, er Magnús organ- isti Einarsson stýrir, hélt samsöngva tvo nú um helgina og voru þeir allvel sóttir. Er mál manna að söngmennirnir taki stöð- ugri framför í list sinni og er það eðlilegt, því Magnús er góður söngkennari og legg- ur einnig mikla alúð við kensluna. í þetta sinn var þeim mest hrósað fyrir »Ólafur Tryggvason* af þeim 15 lögum sem þeir sungu í hvort skifti. Annað kvöldið skemti Halldór læknir Gunn'iaugsson áheyrendunum með kvæða- upplestri meðan »Heklungar« hvíldu sig við sönginn. Vakti það fögnuð mikin og ánægju eins og vant er, þegar maður sá kemur hér »á senuna« — einkanlega þó hjá hinum tilfinninganæmari hluta mann- kynsins. Friðrik Harríson, hinn alkunni hirt- ingarvöndur syndugraEnglendinga,stór- skammar alla ráðandi flokka landsins, nú um nýárið — nema stefnu friðar- þingsins í Haag og lægni Játvarðar konungs í að skirra vandræðum og sætta þjóðir og ófriðarseggi. — Hann birtir stefnuskrá, sem honum sýnist líklegust fyrir landa hans að fylgja. Helztu atriðin eru: að bindindismálin séu endurskoðuð og ákveðin með lögum; að fríkirkjukröf- um séu miklu meiri gaumur gefin og skólar á ríkiskostnað séu undanþegnir öllurn trúarbragðamatningi og vand- ræðum; að Tíbet sé látin hlutlaus, án allra bóta og skatta tit Englendinga; að umráð gullfélaganna í Suður-Afríku sé frá þeim tekið; að sé tollamáli Chamberlains nokkuru skeytt, þá verði öll fjárhagsmál ríkisins tekin í einu á dagskrá; að hernaðarskatturinn sé feld- ur, en eignaskattur (eftir vissum gjald- þolsmæli) lögtekinn; að verkmannalögin, sem giltu fyrir 30 árum, séu endurnýjuð. Og loks að írar íái tregðulaust fulla heimastjórn, annaðhvort eins og Glad- stone gerði ráð fyrir, eða aðra eins góða. Harrísons viðkvæði er venjulega sama efnis, sem Leo Tolstoj kennir, að tvent sé mesta skaðræði vorra tíma (sem og jafnan hafi átt sér stað): Kirkjan og pólitíkin! Munur þeirra nefndu skörunga og vandlæt- ara er að öðru leyti töluverður. Tol- stoj er trúmaður mikill á sinn hátt, en Harrfson er pósítívisti og hatar öll ákveðin trúarbrögð. En báðir eru reformatórar miklir. M , Fyrirlestur um bókasöfn og þýðingu þeirra hélt Guðmundur læknir Hannesson laugar- dagskvöldið 1 r. þ. m. á »Hótel Akureyri«. — Fyrirlesturinn var illa sóttur. Meðmœlendum með Magnúsi Kristjáns- syni sem. þingmannsefni Akureyringa fjölg- ar stöðugt og þykir nú öllum auðsætt að þýðingarlaust sé fyrir hvern sem væri að ætla að keppa við hann um sætið. Mannalát. Þuríður dóttir Björns Ólafs- sonar gullsmiðs á Oddeyri andaðist 4. þ. m. og var tæring banamein hennar. Hún var mannvænleg stúlka. Jðhanna Ólína Schou frá Húsavík, sem lengi var á Laxamýri, andaðist í Reykja- vík 10. jan. s. 1. eftir langa legu, 84. ára að aldri. Hafði hún flust til Rvíkur með Snjólaugu Sigurjónsdóttur frá Laxamýri og manni hennar Sig. kaupmanni Björns- syni og var hjá þeim þar til hún andað- ist. Hún var atkvæðakona um margt og mörgum að góðu kunn. Konráð Jónsson hreppstjóri að Bæ á Höfðaströnd andaðist í janúar s. 1. Hann var dugnaðarmaður, vel metinn og góður bóndi. >Fjalar« heitir timburverksmiðja sú, sem »Gjh.« gat um í sumar, að væri verið að stofna á Húsavík og ætti að ganga fyrir vatnsafli. Hún er nú tekin til starfa fyrir nokkru síðan og býðst til að taka að sér ýmsar trésmíðar fínni og grófari. Einnig tekur hún trésmíðalærlinga til kenslu. Verk- stjórar eru Eiríkur Þorbergsson og Jón Bald- vinsson báðir þjóðhagasmiðir, en gjaldkeri er Jakob Hálfdár.arson borgari á Húsavík. Þingeyingar hrósa mjög vinnu verksmiðj- unnar og frágangi á smíðisgripum hennar og segja gott við hana að skifta. — »Gjallar- horn mun síðar flytja nákvæmari skýrslu um fyrirtækið. Herskipan í orustum er nú mjög að verða ólík þeirri, sem áður tíðk- aðist — segir einn enskur fregnriti. í Manschúríinu í stórorustunum í sum- ar voru oft 40 enskar (8 danskar) mílur á milli yztu arma framhersins hjá Rúss- um. Yfirhershöfðinginn situr í búð sinni rólega, 2 mílur, eða 3 eða 4 frá orust- unni. Er raðað kortum fyrir framan hann, en til beggja handa eru borð og á þeim málberavélarnar og nógir menn til að handleika þær. Fer þvf þar alt fram þegandi, að kalla eins og á fínustu vinnustofu — meðan skot- hríðin dynur og menn deyja og særast þúsundum saman í nágrenninu. Foringj- um Rússa hættir enn við að hækka sér, þatr sem þeir fylgja deildum sínum og sækja þarf fram eða mikið skal vinna; er þeim herrum því mikill háski bú- inn. En foringjar Japana fara mjög gætilega sjálfir með líf sitt, enda vita hermenn Japana það, og vilja ekki að þeir hætti sér, og óþarfi er slfka liðs- menn að eggja. Að vinna sigur með hörðum og snöggum áhlaupum og hreystiverkum, er nú orðið illgerandi; bardagarnir eru ekki orðnir nein á- hlaupaverk; tiltölulega sjaldan eins mannskæðir (sé rétt farið að) eins og áður, en standa margfalt lengur en fyr, og sakir þess verða manndrápin svo mikil. Aður urðu Iiðsmenn að berjast hungraðir hálfa og heila daga (eins og t. d. við Idsted um 6—10 st.), en nú er dátunum borið nóg að bíta og brenna út á vígvellina. Stór svæði eru oftlega milli deildanna (regi- menta), sem hver hefir venjulega alls konar liðsmannategundir fyrir sig: fót- lið, skytlur, léttreiðlið (dragóne), stór- skotalið (artillerí), dreifskyttur, hag- leiksmenn (ingeniöra) o. fl. Herar skiftast í divisíónir, brigader (corps), regímenti, bataillíónir og kom- pae"'- M. J. Verzluij konsuls J. V. Havsteens á Oddeyri selur tneð nrjög góðu verði rnót peningum Ofnkol og Steinolíu, bæði í stór- og smákaupuin. Enn- fremur Saltkjöt, Tólg og ágætt Smjörlíki. Alt góðar og vandaðar vörutegundir. jllsokka og sjóvet/inga borgar enginn hærra verði ef varan líkar en verzlun konsuls Havsteens á Oddeyri. —= Sjók;Iœði =— og -ðfc SjóstigvéN^* sterk og vönduð fást með góðu. verði í Söludeiid Gránufélagsins. jliillifafapeifsur í Söludeild Gránufélagsins.

x

Gjallarhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.