Gjallarhorn - 20.10.1910, Side 2
46
GJALLARHORN.
IV.
Verður alþingi frestað?
Sú spurning er nú efst í huga
flestra þeirra er láta sig nokkuru varða
livað gerist í landinu.
Og full von er til að svo sé. —
Höfum vér stjórn er vill traðka á
landslögum og setja ofsalega eigin-
girni í hásætið, eða stjórn er hugsar
um að hegða sér eftir lögunum í einu
og öllu?
Stjórn er reynir að teygja lögin á
alla vegu, sér í hag, eins og hrátt
skinn, eða stjórn er ann öllum rétts
hlutar af hverju máli — flokksandstæð-
ingum jafnt og flokksmönnum — og
lætur ætíð lög vera lög?
Stjórn, er þorir að halda fram rétti
vorum út á við, standa sviphrein og
upplitsdjörf gagnvart útlendu valdi,
eða stjórn sem skríður í felur, mjakar
sér skjálfandi áfram á maganum af
skriðdýrshætti og étur ofan í sig hvað
sem vera vill —ef danskurinn yglir sig.
Höfum vér stjórn er ætlar að halda
alþingi á lögákveðnum tíma? Eða stjórn
er ekki þorir að kalla þing saman vegna
hræðslu við að hún verði þá að velta
úr valdasessi, sem hún komist svo
aldrei í aftur að eilífu?
Öll blöð landsins, að undanteknum
þeim sem Björn ráðherra og með-
hjálparar hans eiga, öll þau sem eru
honum óháð, hafa fastlega tekið í
strenginn með það, að þinginu verði
ekki frestað.
Og alveg áreiðanlegt er það, að
mikill meiri hluti þjóðarinnar krefst
hins sama: að þingið komi saman á
tilætluðum tíma.
Víst er það sömuleiðis, að ýmsir af
þingmönnum er fyltu meiri hlutann á
síðasta þingi, vildu ekki skrifa undir
audaþingsáskorunina, vegna þess, hve
stutt yrði þangað til þing kæmi saman.
sem tæki til starfa um miðjan febrúar.
En hvað veldur því að ráðherrann
vill fresta þinginu?
Kunnugir segja að það sé hræðslan
um völdin, eða réttara sagt hræðslan
við það að missa völdin — og ekk-
ert annað.
Hann ætli sér að losast við kon-
ungkjörnu þingmennina sem nú eru,
og útvega sér aðra geðþekkari í þeirra
stað — nýja gæðinga sem verði hon-
um þægir og auðsveipnir í hvívetna.
Og reyna svo að lafa í embættinu
með þeirra hjálp og aðstoð áfram.
Það væri geðslegt háttalag! Dá-
laglegt þjóðræði!
»Gjh.« ætlar í lengstu lög að vona
að ekki komi til slíkra óláns-óhappa.
Því það teldi það vera ólán fyrir
þjóðina alla, að hafa þanrt mann í
æðsta valdasæti landsins er svo hegð-
aði sér. Mann í ráðherrasæti, sem
hringlaði með samkomutíma alþingis
fram og aftur eftir eigin geðþótta og
í eigin hagsmuna skyni!
Hamingjan hjálpi þjóðinni þá.
SÍLDARNET,
KÚTA,
STJÓRA
og DREGG
selur undirritaður nú þegar.
ý\. Schiötþ.
Kynnisferðir í nýjum stíl.
iii.
Hér skal nú aftur snúa að alvör-
unni í þessu efni. Skal fyrst spyrja:
»Hvað fara menn að sjá?« Svörin geta
verið mörg og margvísleg, því að margt
er að sja ög margt að læra. En fyrst
er að tala um hinn andlega undirbún-
ing slikra ferða, því að ekki er hinn
ytri búningur einhlýtur, eins og nesti
og nýir skór, góðir fararskjótar og val-
ið föruneyti. Hin mesta nauðsyn er á,
að þeir, sem vilja ferðast um ókunn-
ar sveitir sér til fróðleiks og öðrum
til nytsemdar, fái þá fræðslu og und-
irbúning áður en þeir leggja upp, sem
ómissandi er, og einkum ef flýta þarf
yfirreiðinni, sem oftast mun mega gera
ráð fyrir. Hið fyrsta, sem menn þurfa
að vita deili á fyrirfram, tel eg þetta:
að vita hvar vegir liggja, vita hvað
merkast er að sjá og kynna sér í
hverri sveit fyrir sig, kannast við staði,
örnefni og helztu höfuðból, kannast
við helztu torfærur, afbrigði og vega-
mót; þar næst að þekkja aðalatriði
hvers héraðs á fornum sem sfðari
tímum, og enn er eitt, að vita hvað
helzt er að nema í hverri sveit, hvað
búnaðarhætti snertir, félagsskap og
allar framfarjr í menningu, sérstaklega
hvað skóla snertir. Þá þurfa menn að
vita hverja merkishölda og húsfreyjur
er að hitta, svo og hverja helzt eigi
að kjósa leiðsögumenn. Því betur sem
ferðamenn milli héraða hafa kynt sér
þessi og fleiri deili, þvf nytsamari og
skemtilegri reynist ferðin; er og ein-
sætt, að í ferðinni séu ritfærir menn
og helzt fleiri en einn, svo og nokkr-
ir vel orðfærir, enda ættu allir að vera
vaskir menn og vel siðaðir. Er nú og
svo langt komið, að í hverri sýslu má
velja utn unga menn (og konur), sem
sótt hafa sér góðan mentunarstyrk til
realskóla landsins. En hvorki ættu slík-
ar ferðir að vera vísindalegar né póli-
tfskar — það sfzt af öllu —, enda á
slík viðkynning öll að snúa í bróð-
ernisáttina og til að festa þegnskáp
og þjóðlyndi, en til að sefa sundrung
og tordóma. — Að þeir ungu menn,
sem suðurferðina gerðu í sumar, hafa
engar frásagnir birt um ferðalag sitt,
má ekki átelja fyrir þá sök, að sú
ferð var hin fyrsta og með litlum fyr-
irbúnaði gerð, enda farið svo fljótt yf-
ir heiiar sýslur, að lítils fróðleiks er
að vænta. Til þess að skoða til hlýt-
ar eina sýslu, ef alt markvert skal telja
með, milli fjalls og fjöru, má varla
tiltaka styttri tíma en io—12 daga.
Aths. „Gjh" hefið heyrt að í vændum sé
ferðasaga þeirra félaganna í suðurferðinni í
surnar, og eigi hún að birtast í einhveiju
tímaritinu, áður en langt líður. Þeir Sigurð-
ur Jónsson skáld á Arnarvatni og Jón Sig-
urðsson í Ystafelli höfðu verið ritarar flokks-
ins og haldið dagbók í ferðinni. Semja þeir
og sennilega ferðasöguna.
IV.
Rangárvallasýsla.
Alt er svipur bjá sjón þegar það
hérað skal skoða. — Það er yfirleitt
landsins sögurfkasta og svipmesta
hérað. Tveir eru þeir staðir, sem
bjóða mönnum átakanlegasta yfirsýn
yfir þá sýslu. Annar er Hekla, en hinn
Qammabrekka í túninu á Odda, þótt
sá bær standi nálega þingmannaleið
nær hafinu. En gera verður ráð fyrir
sumardegi og heiðskýrum himni, enda
gefst það sýni oft er líður á sumar.
Engin sýsla á landinu er frægari I
sögum eins og kunnugt er, og engin
í náttúrus'ógu þess, stórfeldari, nema
Skaftafellssýsla, en bæði er það, að
sú sýsla kemur minna við sögur, enda
er strandflæmi hennar eins og utan
við landið og undirlagt af ógnum og
ódæmum elds og vatna, er haldið
hafa þeim kynslóðum er þar búa í
helgreipum. Hvergi hefir ofríki náttúr-
unnar orðið manninum yfirsterkara eða
sýnt sig miskunarlausara en þar; finn-
ast menjar þess og merki þegar í
Landnámu. En lífið er lífseigt, enda
finnast þar enn nokkurir hinir feg-
urstu og frjósömustu blettir á Islandi.
Og svo sagði vitur maður, Hilmar
landshöfðingi, að hvergi hefði hann
séð fegri útsýn, en frá Skaftártungu-
heiðum, er hann sá niður yfir Tung-
una og Síðuhéraðið. En hvað um það,
Katla og Skaftáröræfin, sem þar eru
á hvora hönd, fæla alla fegurðarnautn,
en vekja ógn og ótta. Þarna — þarna
austur frá komu þeir Ingólfur að landi.
Þarna — þarna vestur frá s viku þrælarnir
Hjörleif, fóstbróðir hans; flýði Ingólfur
þau heljarhéruð og hélt áfram sinni for-
lagaleit. A harmaleik byrjar landsins
saga. Sjálf sögudís vors lands hefir
sjaldan árætt að kveða um héruðin á
»fjallabaki« Rangárvalla. Tvö vers man
eg um ógnir Kötlu. Annað eftir Egg-
ert Ólafsson, er svo hljóðar:
»Undur yfir dundu
upp úr Kötlugjá,
himin og grænar grundir
grátlegt var að sjá —
sautján hundruð fimmtíu og fimm.
Voðalegar vikur þrjár
varaði plágan dimm.«
hina kvað Bjarni Thorarensen (eigin-
lega uin Kúðafijót).
>Jökulfijót rennur um sandana svart,
sent upp úr náheimi berg gegnum hart,
dökk gnaefa feigðarkuml eyrunum á,
sem ógróin ieiði yfir jörðuðum ná
um kirkjugarð strjállega standa.«
En um héraðið hinu megin kvað
Jónas Hallgrímsson.
»Landið var fagurt og frítt,
Og fannhvítir jöklanna tindar,
Himinin heiður og blár,
Hafið var skínandi bjart«
o. s. frv. Hér er lífið og lífsgleðin
komin í kveðskapinn. Og ekki þurfti
Jónas að kveða: »Landið var fagurt og
frítt, því landið er það enn, þrátt fyrir
það að »ólgandi Þverá veltist yfir
sanda«, og það að helmingur sýsl-
unnar liggur undif sífeldum áföllum
elds og sandroks, svo og vatna. Samt
er sýsian yfirleitt fögur og frjó, enda
sundurleit yfir að líta: glitrandi vötn,
grænir hagar og g*"«bt sandar skiitast
á frá hraunum Heklu og út að hafi.
Milli Rangánna (o: Rangárvallahrepp-
ur) eru landbrotin mest; hortði þar
til auðnar þegar harðindin gengu þar
yfir 1882—84, en s>ðan hefir sveltin
furðuvel hjarnað viði og meiri hluti
þeirra 30—40 jarða, sem þá ióru (
auðn með öllu, eða að miklu leyti^
eru aftur bygðar. Og f fleStum grem-
um kvað þar nú orðið breytt til batn-
aðar. Þingeyingum gefst þst margt
minnisstætt og fróðlegt að Hta, en
ekki lærist það í eínni svipan eða á
einni fljótri yfirreið, því alt aðrar
venjur og búskaparhættir hafa ríkt í
þeim sveitum, en hér nyrðra tíðkast,
þótt ýmislegt færist nú í venjulegt
horf. Eg geri ráð fyrir, að skoðun
einnar sýslu sé ærið nóg í hverri
yfirreið, svo að fullum notum verði:
»Þú stóðst á tindi Heklu hám,« kvað
Jónas. Og víst er þaðan dýrðlegust
útsýn yfir þetta hérað. En Hekla er
dutlungakind, eins og Geysir bróðir
hennar og fagnar ekki gestum nema
á tyllidögum. Aftur nýtur útsýnar frá
Odda — hinu forna, elzta fræðasetri
á Fróni. Þaðan blasir við, eins og
hringsvið forn-Grikkja, hinn fagri fjalla-
hringur kringum Suðurlandsflatlendið
milli Eyjafjalla og Reykjanesskaga,
40—50 Q fermílur að víðáttu. Og það-
an sjást, kvöld og morgna, einhver
fegurstu litbrigði á landinu. Þar var
eg staddur þegar eg raulaði fyrir
munni mér kvæðið er svo byrjar:
»Eg geng á Gammabrekku
er glóa daggartár,
og dimma Ægisdrekku
mér dunar Rangársjár.
Með hörpu hróðurssmáa
og höfuð bert eg geng,
til tals við tífa háa
og titra finn hvern streng.«
Um þær sveitir má segja — þrátt
fyrir sífeld áhlaup og umrót Heklu
og ofsafenginna vatna — eins og Jón-
as kvað um Gunnarshólma þar austur
af: »að lágum hiífi hulinn verndar
kraftur«. Þar eru enn einhverjir fríð-
ustu blettir á Islandi og nokkurir
hinir beztu bæudur og fyrirmyndar-
menn og bú, sem vert er og unaður
heim að saikja.
»G Rangárgrundin glaða
nú glóir þú við sól;
en inikil mein og skaða
þér mælir tímans hjól.
Og sárt þú máttir sýta,
og syngja dapran brag,
er yfir alt að líta
var/eyðihjarn og flag.
En rörnrn þótt yrði raunin
við rok og gadd og sand,
þá gróa gómlu hraunin,
og grær á ný þitt land.
Og enn þá anga fögur
þín ungu hjartablóm,
og enn þinn ljómar lögur
með lífsins silfurhljóm.«
M.J.
Utan Ur ljeimi.
Nýjasta uppfyndning Edisons.
Hann heldur áfram með sínu óþreytandi
hugviti að finna nýjar og nýjar uppgötv-
anir er gjörbreyta smásaman mikiu í heim-
inum.
Sú síðasta er, að hann hefir að nokkru
leyti sameinað Fonografinn og Kinemato-
grafinn á þann hátt, að um leð og *ýnd-
ar eru lifandi myndir heyrist hverskonar
hljóð sem er, samsvarandi því sem sýnt
er. T. d. hefir hann sýnt mannsmynd koma
fram á sjónarsviðið með leirdisk í hönd-
unum og henda honum í gólfið, heyrist
maðurinn þá fyrst segja að hann ætli að
kasta diskinum, og er diskurinn sést koma
við gólfið og sundrast, heyrist brothljóðið
greinilega.
Um útbúnað þessa áhalds hefir Edison
eigi enn sagt annað en það, að rafurmagn-
ið geri aðalhlutverkið. Það virðist því lík-
legt, að hér eftir muni >talandi lifandi
myndir« brátt koma í staðinn fyrir »lifandi
myndir*.
Ahaldið nefnir hann »Kinetofon«.
Jörundur Hundadagakóngur. Danskir rit-
höfundar tveir, hafa samið leikrit út af
hervirki Jörundar hér á íslandi, og á það
að vera sögulegt, en ýmsar vitleysur eru
í því, og sennilega verður ekki sparað að
reyna að gera íslendinga sem líkasta Eski-
móum, þegar það er sýnt á leiksviði, eins
°S Sert Mefir verið á konunglega leikhús-
inu undantarið, þegar Danir hafa verið að
sýna þar föður Thorvaldsens myndhöggv-
ara (Gottskálk Þorvaldsson). Leikrit þetta
Jörundur kóngur — var sýnt síðast í
september á Friðriksbergsleikhúsi en var
• flautað út« vegna þess að Jörundur og
kærasta hans íslenzk er Valgerda hét döns-
uðu vals eftir lagi er vikið var við eftir
>Kong Christian«. Er það eitt af þjóðlög-
um Dana og þoldu þeir ekki að það væri
haft í fíflskaparmálum.
Caruso söngmaðurinn mikli, er í kvenna-
málsvandræðum um þessar mundir. — í
fyrra var hann um tíma í Milano og kynt-
ist þar leikmær einni torkunnarfagurri.
Fóru svo leikar að hann hét henni eigin-
og voru þau mikið saman. Meðtl annars
fóru þau skemtiferð til Berlín og var faðir