Gjallarhorn - 22.12.1910, Blaðsíða 1

Gjallarhorn - 22.12.1910, Blaðsíða 1
QJALLARHORN. Ritstjóri: Jón Stefánsson. Hafnarstræti 3. • • ••• • • • • • • ••• • ••••••• ♦ IV, 21. Akureyri 22. desember. f 1910. Jóri Ghrisíinn Stephánssoi) dbrm. — timburmeistari. Brunabótafélagið fö- JNJordisk Brandforsikring tekur í brunaábyrgð hús, innbú, vörur o. s. frv. Umboðsmaður: JÓN STEFÁNSSON, Akureyri. Fánamálið. Hann lézt hér í bænum, að heim- ili sjnu, á sunnudagskvöldið 18.þ.m., rúmlega 81 árs að aldri. Hann var fæddur á Yztabæ í Hrísey á Eyjafirði 25. okt. 1829, sonur Stefáns hrepp- stjóra Baldvinssonar og Ingibjargar Brandsdóttur, og ólst upp hjá afa sín- um, séra Baldvini Þorsteinssyni á Upsum. Um tvítugt réðst hann til Ólafs Briems timburmanns á Grund í Eyjafirði, til trésmíðanáms, og að pví loknu fór hann utan, til Dan- merkur, og lagði stund á stórskipa- smíði. Árið 1858 kom hann úr ut- anförinni og settist þá að hér á Akureyri og hefir búið hér síðan. Þangað til nú fyrir nokkrum árum, að hann var þrotinn orðinn að heilsu, stundaði hann iðn sína af hinum mesta dugnaði. Mun hann fyrstur manna hafa smíðað stokk- bygð skip hér norðanlands. — Eitt með fyrstu húsunum, sem hann reisti hér á Akureyri, mun vera lyfjabúðiri; bar það lengi af öðrum húsum hér í bænum. Margir lærðu hjá honum trésmíði, og var hann jafnan talinn með þeim fremstu 1 þeirri grein, enda var hann maður listfengur og einkar sýnt um alt verklegt. Árið 1859, 10. des., gekk hann að eiga Þorgerði Björnsdóttur, rit- stjóra Jónssonar, og áttu þau tvo sonu; dó annar í æsku, en hinn um tvítugt, og varð hann mjög hahndauði föður sínum. Árið 1879, 23. maí, misti hann konu sína, en að þrem árum liðnum, 4. nóv. 1882, kvæntist hann Kristjönu Magnús- dóttur; varð þeim þriggja barna auðið, og er eitt þeirra á lífi, Svafa kona Baldvins Jónssonar bókhaldara hér í bænum, en tvö dóu á barns- aldri. Engum, sein til þektu, mun þykja það ofmælt, að Jón sál. €tephánsson hafi verið með állra merkustu borg- uruin þessa bæjar. Hann var gáfað- ur maður og víðlesinn, svo að fáir stéttarbræðra hans munu verið hafa jafnokar hans að því leyti. Bókasafn átti hann óvenjulega mikið og gott. Ritaði hann talsvert hér í Akureyr- arblöðin um eitt skeið. Hann hafði lifandi áhuga á öllu, er til framfara og hagsbóta horfði fyrir bæjarfélag- ið og landið í heild sinni, og það alveg fram f andlátið; fylgdist hann betur með i því, sem var að gerast og máli skift, en margir yngri menn- irnir, en ekki leit hann jafnan sömu augum á hlutina og aðrir, og var þá oft nokkuð þungorður í garð þeirra, er andstæðir voru því, er hann áleit rétt að vera. Við kunningja sína var Jón sál. hinn kátasti f viðmóti og hafði jafnan spaugsyrði á hraðbergi, enda var hann hniítinn í svörum og meinfindinn þegar því var að skifta. Eins og nærri má geta um annan eins hæfileika- og dugnaðarmann, hafði Jón sál. ýms trúnaðarstörf með höndum um æfina. Þegar Akureyri fékk kaupstaðarréttindi —1862— var hann kosinn bæjarfulltrúi og gegndi því starfi í mörg ár, og ýms fleiri opinber störf hafði hann með hönd- um. Að bindindismálinu vann hann með dugnaði og atorku meðan kraft- ar hans entust, en fjarri var honum alt ofstæki. Gerðist hann félagi Good- templarastúkunnar ísafold 1890 og var í henni upp frá því. — Þegar amtsráðið kom upp „Trjáræktar- stöðinni" hér í bænum nú fyrir 9 árum, var Jóni Stephánssyni falín umsjón með henni. Rækti hann það starf ásamt konu sinni með svo frá- bærri alúð og nákvæmni, að hún varð brátt fegursti bletturinn í bæn- um og þótt víðar væri leitað. Hann iét sér og mjög ant um Ræktunar- félagið og var varaformaður þess. Á síðasta aðalfundi félagsins var honum veitt 100 kr. þóknun á ári í viðurkenningarskyni fyrir ræktun- arstarfsemi hans, og Búnaðarfélag íslands veitti honum jafnmikla upp- hæð. Á áttugasta afmæli hans í fyrra færðu Ræktunarfélagið og Good- templarar honum skrautrituð ávö^p og vottuðu honum þakkir fyrir störf hans í þarfir þessara félaga. Árið 1896, 18. apríl, var hann sæmdur heiðursmerki dannebrogs- manna, og voru allir á einu máli um það, að sá sæmdarvottur væri að verðleikum. Tvö síðustu árin var Jón sál. rúm- fastur og oft illa haldinn, en las þó þegar hann mátti og lék við hvern sinn fingur þegar kunningjar hans komu til hans. Enda átti hann því láni að fagna, að eiga ástríka konu, er stundaði hann með stakri nær- gætni og lét einkis ófreistað til þess að létta þjáningar hans — að svo miklu leyti sem í hennar valdi stóð. Allir, sem höfðu náin kynni af hinum látna merkismanni, munu jafnan minnast „gamla Jóns meist- ara" með virðingu og hlýjum hug. Bazar í Edinborg. „Grýla kallar á börnin sín þegar hún fer að sjóða —« En meira hefir Edinborg að bjóða. Fyrst fór litli Langleggur logandi prjáli útsteyptur, í skrúða-kerru skorðaður og skringilega dubbaður með ljósum og rósum, með básúnu og bumbum og beljandi trumbum. Brunandi upp ,hjá skóla um brekkur og hóla, um torg og um stræti með töfrandi kæti að bjóða lýð á Bazarinn til Jóla. Köllin háu, hróp og org heyrðust þá um bygð og íorg: „Kaurinn lái kvef og sorg; komið að sjá í Edinborg!" Þar er músik, maisgrjón, möndlur, fíkjur, grammófón, apelsínur, epli, ber, allskyns hnetur, skrín og ker. Allskyns möblur, maskínur, mannagrjón og rúsínur, alt sem mýkir eymd og fár, alt sem fegrar kinn og hár. Silkislipsi, svunturnar, saumavélar, hoggormar, fingurbjargir, fiugeldar, og’ fínu ástarpílurnar. Nóaörk með naut og svín, nýársvers og rykkilín, lotterí um Indlands auð, ormaduft og sætabrauð. Þar er merkis myndaval, Mikáel í Portúgal, Gunnar meður geirinn sinn, Golíat og Skarphéðinn. Þar eru gervöll þjóðskáldin, þar er Grýla kerlingin, stelpan Skjóða skökk og stutt og skórinn af henni Gilitrutt. Komið því og kastið sorg, konur og menn með net og dorg. Enginn býður betra torg en Bazarinn í Edinborg. Fyrirspurn. Er ekki starfsárið 1910—11 enn þá byrjað í »Skautafélagi Akureyrar* ? Félagsmaður. Vér hyggjum að svo muni vera, en beinum spurningunni til réttra hlutað- eigenda. Ritstj. Ungmennsfjelag Akureyrar hefir á fundi 16. þ. m. samþykt svohljóð- andi tillögu: „Til þess að hrinda fánamálinu áleiöis, telur félagið heppilegt að lögleiddur verði sérstakur staðarfáni og ákveður þvi að beita sér fyrir, að skorað verði á nœsta alþing að samþykkja lög þess efnis og telur ceskilegt að lögin geti öðlast gildi fyrir 17. júni 1911.“ Gjh. mun minnast nánar á málið við tækifæri. *Leikfelag Akureyrar.< Það fer haegt á stað og hefir jafnvel heyrst að það muni nú helst ætla það fyrir sér að liggja í dái yfir veturinn að minsta kosti. — Er þeð illa farið ef satt reynist, því engar líkur eru taldar til þess að aðrir sýni hér sjón- leika, sízt svo að nokkru gagni verði, en bæjarbúum naumast vansalaust að hafa full- komnasta leikhús landsis og nota það eigi. Helzt mun það vera fjárþröng, sem haml- ar félaginu, leikar illa sóktir hér en ráð- endur hússins, »Templarar< þykja ósann- . gjarnir um leigu og illir í viðskiftum yfir höfuð. — Sýnist þó eigi nema réttmætt að gera þá kröfu til þeirra að þeir hliðri svo til, eftir föngum, að bæjarbúum yfirleitt kæmu sem mest not af húsinu, sem fram að þessu hefir verið haldið uppi með annara styrk frekar en »templarac og nú í seinni tíma að sögn, nær eingöngu fyrir stoð eins ut- anreglumanns. Félagið sókti um lítinn styrk til bæjar- stjórnar í haust, en mun ekki hafa fengið sem beztar undirtektir. — Ef til vill sýna nú »templarar< rögg af sér og halda uppi góðum sjónleikjum hér í vetur? — Messur um hátíðarnar: Aðfangadagskvöld: Akureyri, kl. 6. e. m. Jóladag: Akureyri, kl. 10V2 f. m. Sama dag: Lögmannshlíð, kl. 1 e. m. Annan í Jólum: Akureyri, kl. 12 á h. Gamlaárskvöld: Akureyri, kl. 6 e. m. Nýjársdag: Akureyri, kl. 10V2 f. m. Sama dag: Lögrnannshlíð, kl. 1 e. m. Á morgun verður ekki messað. Nafnspjöld með áprentuðu nafni fást í prentsmiðju Odds Björnssonar. Jóla-ognýárskort stnekklega prentuð fást hjá Oddi Björnsgyni, —^3^—

x

Gjallarhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.