Gjallarhorn - 28.12.1911, Síða 1
GJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
--------------------------------------—---------------- ------------------------------ ••••?••"••;
Y . Akureyri 28. desember l 1911.
^ A A A A A A A A -A. * A A A A A.A A A .A A * A A
Verzlunarbúð J. V. Havsíeens
á Oddeyri verður lokuð frá í dag, vegna vörukönnunar, til 7.
janúar n. k., getur pví ekkert lán átt sér stað á meðan, en selt
verður gegn peningum og vörum daglega frá kl. 10 f. h. til kl
3 e. h., og innborgunum veitt móttaka alla virku dagana upp í
skuldir.
Kjörþing
fyrir /tkureyrarkaupstað
verður haldið í Good-Temlarahúsinu miðvikudag-
inn 3. jan. 1912 og byrjar kl. 12. á hádegi. Verða
þar kosnir 2 fulltrúar í bæjarstjórn kaupstaðar-
ins til næstu þriggja ára.
Fulltrúalista ber að afhenda oddvita kjörstjórn-
ar fyrir hádegi tveim sólarhringum á undan kosn-
ingu, og fer hún fram samkvæmt lögum 10. nóv
1903. —
Bæjarfógetinn á Akureyri 20. des. 1911.
Guðl. Guðmundsson.
Opinbert uppboð.
Mánudaginn 8. janúar 1912, kl. 11 f. h., byrjar
afarstórt uppboð sem verzlunin Edinborg lætur
halda á öllum vöruleifum sínum.
Gjaldfrestur 6 mánuði.
Aðrir skilmálar verða auglýstir á uppboðs-
staðnum.
Akureyri 27. desember 1911.
G. Jóhannesson.
Fjalla-Eyvindur. Vélarbátur ferst.
+
Frú Elín Olgeirsson,
kona Karls Olgeirssonar verzl-
unarstjóra á ísafirði andaðist
19. p. m. af hjartaslagi. — Hún
hafði nokkrum dögum áður
verið á gangi á götu par í
kaupstaðnum og hrasað eitt-
hvað lítilsháttar, en hélt svo
áfram leið sfna, sem ekkert
væri að. Einni eða tveimur
mínútum síðar kom í ljós, að
hún hafði fótbrotnað ofan við
öklann, pví bein stakst pá út
úr fætinum. Læknir batt pegar
um brotið og gerði við, en
sárið hafðist illa og lá hún
sarpjáð með hitaveiki nokkra
daga, unz fóturinn var tekinn
af, en henni gat ekki batnað
að heldur. Hefir hér slysalega
tekist til í frekara lagi og pess
verið getið til, að læknishjálp
hafi verið áfátt.
Frú Elín sáluga varð aðeins
26 ára að aldri. Hún var fædd
í Hnífsdal við ísafjörð, dóttir
Guðm. kaupmanns Sveinsson-
ar par. Hún stundaði nám hér
á kvennaskóla Akureyrar og
síðan í Khöfn. 1904 giftist hún
eftirlifandi manni sínum og áttu
pau eitt barn. Hún var höfð-
ingleg kona og fríð sýnum,
gáfuð og skemtileg og einkar
prúð í viðmóti.
Bruni á Siglufirði.
Á jólanótt brann sölubúð Gránu-
félagsins á Siglufirði, mikið hús og
vandað, nýlega bygt, með öllu er í
var. Ekki vita menn hvernig eldurinn
hefir komið upp, en fregnir segja, að
enginn hafi gengið um húsið síðustu
24 klukkust. áður en eldsins varð
vart. Fullyrt er og, að eldurinn hafi
komið upp uppi á lofti í húsinu, eða
þar hafi menn séð hann fyrst.
Höfuðbækur verzlunarinnar voru 1
eldtraustum skáp í miðju húsinu og
voru þær mjög skemdar, en þó læsi-
legar.
Geymsluhús stóð nær áfast við söiu-
búðina og varð því bjargað með mik-
illi karlmensku og lífshættu að heita
mátti. Jón Guðmundsson verzlunar-
stjóri sýndi mikinn dugnað við björg-
unina og ýmir fleiii Siglfirðingai.
Gullletruð
Jlýárskort
fást d
prentsmiðju Odds Björnssonar.
Kvæði
til Hannesar Hafsteins.
á 50 ára afmæli hans.
Hvísla’ um þig í hljóði
hópar glaðra minna,
eins úr leik sem óði.
yndi bræðra þinna!
Par varð afli ungu
alt að leik og skeiði:
Straumastrengir sungu,
stormur glímdi’ á heiði.
Stefnir þú að stríði,
stýrðu sömu hendur;
horfðir hátt við lýði,
hverjum manni kendur.
Fleýi’ og frægð var bjargað,
fram úr þröng var ratað,
engum auði fargað,
engum vini glatað.
Heyrðu, Hannes góði.
Heilsaðu fríðri gígju,
sem bar sól í óði
sumri björtu’ og nýju.
Hreimar hörpuljóða
himin landsins yngja.
Gott er vorið góða.
Gaman er að syngja.
Pinn Þ. E.
Hörpu þú stiltir,
hvelft sungu strengir,
manndóms og munar
magnaðan klið.
»Heill fyrir eldfjörug
yngjandi ljóðin,
góðskáldið snjalla!«
gellur nú við.
pygg þökk hins liðna
þú, sem öld téðir
dáðir og snilli,
drenglyndi mest!
Hollar æ fylgi þér
hamingjudísir.
Ung lineigð í æginn
eygló þín sezt.
Stgr. Thorsteinsson.
Svona vermdi vetrarkvöld
vorsins barn á keltu sinni.
Sittu heill með hálfa öld,
heila drenglund, glæstan skjöld;
enn á glettin geislavöld
gígjan vors í hendi þinni;
því er Ijóði ljúft í kvöld
listaskálds og vinar minni.
Porsteinn Erlingsson.
Fózeta-afmællO.
ísfirðingar mintust þess inyndarlega.
Guðm. Guðmundsson frá Gufudal flutti
rækilegan fyrirlestur um Skúla Magn-
ússon. Þá var sungið kvæði það, sem
hér er í blaðinu, eftir Guðm. skáld
Guðmundsson og síðast talaði Helgi
Sveinsson bankastjóri um starfsemi
Skúla. Samskot eru orðin þar allmikil
f minningarsjóðinn og þeim haldið á-
fram.
Rvik 27/i2.
»Fjalla-Eyvindur«, hið nýja leikrit
Jóhanns Sigurjónssonar, var leikið hér
í fyrsta sinn f gærkvöldi fyrir fullu
húsi áheyrenda, er gerðu mikinn róm
að leiknum. Ungfrú Guðrún Indriða-
dóttir leikur »Höllu« og tekst mjög
vel. Leikurinn er sérlega áhrifamikill
og er gert ráð fyrir mikilli aðsókn
að leikhúsinu, meðan hann verður
sýndur.
Leiktjöldin eru einkar vönduð og
falleg. Máluð af mikilli list.
ísaf. 23/i2.
Sex menn druknuðu af vélarbát úr
Álftafirði við Isafjarðardjúp á mánu-
daginn var. Veður var ekki vont og
er haldið að vélin hafi bilað og bát-
urinn þess vegna ekki komist til lands
og farist svo nóttina eftir, þvf þá gerði
hvassviðri. Mennirnir voru allir úr
Álftafirði og hétu : Jón Rögnvaldsson
(formaður j, BæringGuðbrandsson, Krist-
ján Auðunsson, Magnús Guðmundsson,
Ótafur Ólafsson og Ragnar Aðalsteins-
son.