Gjallarhorn - 07.12.1912, Side 1
GJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
VII. 10. •
Akureyri 7. desember.
I 1912.
Sjómenn!
Hvað lofa menn mest i verinu?
Ollum ber saman um
SJÓFATNAÐ frá Helly I. Hansen, Moss og
F I S K I L I N U R frá Bergens Notforretning.
Biðjið því um þetta hjá kaupmanni yðar.
Umboðsmenn:
Carl Sæmundsen & Co.
G. Gíslason & Hay, Ltd.
.Reykjavík Leith
er elzt og stærst af íslenzkum heildsölu-
verzlunum, og stendur því langbezt að
vígi með að
selja
og útvega, kaupmönnum og kaupfélögum,
allar útlendar vörur, hverju nafni sem nefn-
ast, með hæfilegu verði og góðum kjörum og
kaupa
og taka í umboðssölu, allar íslenzkar af-
urðir, svo seljanda verði sem hagnaðarmest.
Firmað hefir erindreka í
Noregi og Danmörk.
Kaupmenn og kaupfélög!
Áður en þið kaupið hjá öðrum, eða ráð-
stafið innkeyptum afurðum, ættuð þið að
leita upplýsinga hjá
G. Gislason & Hay, Ltd.
HVERS VEGN/t
vátryggja inenn eignir sínar, hús, bú-
slóð, kvikfénað, skip, báta o. s. frv.
gegn tjóni, sem ef til vill kemur aldrei
fyrir, en
trassa aB vátryggja líf sitt
gegn dauðanum, sern áreiðanlega tek-
ur það fyr eða síðar?
Daglega hafa menn dæmi fyrir aug-
unum, er sýna hve lífsábyrgð hefði
komið að góðum notum, og hve mikla
hjálp hún hefði getað veitt þá og þá.
Margir spyrja: hvar á eg að
kaupa mér lifsábyrgð?
„Andels-Anstalten Tryg“
er stærsta og ódýrasta lífsábyrgðarfé-
lagið, er starfar í Danmörku. Arið sem
leið voru keyptar lífsábyrgðir í dönsk-
u m lífsábyrgðarfél. fyrirþessarupphæðir:
Andels-^nstaltenTrygkr. 18.500.000
Hafnia — 14.317.421
Stats-Anstalten — 13.000.000
Danmark — 6.000.000
Dansk Folkeforsikring — 5.185.652
Carentia — 5.000.000
Nordisk Livsforsikring — 1.813.371
Fremtiden - 1.293.559
Dan - 800.000
Koldinghus — 200.000
Andels Anstalten langefst á blaði.
Barnalíftryggingar eru hvergihent-
ugri né betri en f þessu lélagi. Hægt
að kaupa ábyrgðir þannig, að öll ið-
gjöld hætta, ef faðir barnsins eða
fóstri deyr, en lífsábyrgðin er samt
sem áður í fullu gildi og verður borg-
uð út á ákveðnum tima.
Allir ættu að líftryggja sig í
„Andels-Anstalten Tryg.“
Umboðsmaður:
fón Stefdnsson Akureyri.
Júlíus Havsteen
yfirréttannálajlutningsmaður
Strandjfötu 37
er til viðtals kl. 10—ll f. h. 2—3 og 5—6 e. h.
Talsimi 93.
Venalez
V2 kasinn á
7 krónur
Tóbaksverzlun
Joh. Raguelssonar.
Bœkur sendar „Gjh.“
Annúll nitjándu aldar. -
Safnað hefir síra Pctur
Guðmundsson frá Grfms-
ey. I, hefti. Ak, lgl2
Prentsmiðja Odds Rjörns-
sonar.
Utgefandi þessarar bókar, Hallgrím-
ur Pétursson bókbindari hér í bænurn,
segir svo frá, í formála fyrir henni,
um það, hvernig hún er orðin til:
»Eftir að faðir minn, síra Pétur Guð-
mundsson, sem lengi var prestur* í
Grímsev, lékk lausn Irá prestsskap
1895, tók hann að safna öllu því sam-
an, sem hann gat náð til um það er
gerst hafði á landi hér á 19. öld;
varði hann til þessa öllum stunduni,
og saínaði öllu þvi', sem hann gat til
náð, bæði eftir prentuðum og skrif-
uðum heimildarritum, tíðavísum, dag-
bókum, bréfasötnum og frásögnum,
sem hann var sér út um úr ýmsum
áttum. Rit þetta hafði hann fullgert að
mestu fram að 1850, og safnað mikl-
um drögum til sfðara hluta aldarinnar
alt fram að aldamótum «... Nú
vildi eg ekki láta þetta stórvirki föður
míns (alla f gleymsku, og hefi því ráð-
ist í að gefa út til reynslu eitt hefti
af annál þessum, til þess að sjá, hver-
jar viðtökur ritið fær hjá íslendingum.
. . . »Ritið mundi verða í 2—3 bind-
urti, og er íyrirhugað að vandað regist-
ur verði með hverju þeirra.« . . .
Annáíl þessi er fróðlegur, því þar
er ýmsu safnað á einn stað, svo létt
Ef vantar þig föt bœði falleg og góð,
þú fœrð þau hjá Gudmanni bezt,
þar sniðið er ali eftir „engelskum móð“
og efni til vandað sem mest. —
Og vanti þig jólagjöf, vísi er þér bezt
að vitia til Gudmanns, og sjá,
því sannlega hefir hann fallegast, fiest,
sem fœst þessu jarðríki á.
er að finna það ef á liggur. Síra Pét-
ur sál. lagði mjög mikla alúð við verk-
ið og sérstaklega áherzlu á það, að
ná í safnið ýmsum söguþáttum og
munnmælum, sem annars hefðu að
likindum glatast. í þessu fyrsta hefti
sem komið er út, er lítið af þess-
háttar, en menn ættu að kaupa það,
til þess að stuðla að því að útgáfan
geti haldið áfram og mun þá sjást að
margir þeir atburðir eru skráðir sem
munu þykja fróðlegir og skemtilegir,
en eru nú að gleymast eða gleymdir.
Síra Pétri var létt um að skrifa og
sést það t. d. af þættinum af morð-
málum þeirra Bjarna og Steinunnar,
(sem er í þessu hefti) að frásögn hans
er óþvinguð og greinileg, og að hann
hefir ekki verið neinrj kláufi, en þó
eru margir þættir safnsins af því sem
enn eru óprentaðir, miklgm mun bet-
ur samdir. Eg las mestan hluta þessa
annáls, handrits hjá síra Pétri, síðasta
árið sem hann lifði, og þekki það
því. Ræð eg mönnum óhikað til þess
að kaupa þetta sem kotnið er út og
halda svo áfram Það er virðingarvérð
ræktarsemi af útgefandanum að ráð-
ast í útgáfuna, því ekki mun hann
græða fé á henni.
lim láð og lög.
Sftnfréfftr f dag.
— farðarför Björns fónssonar
fyrv. ráðherra fór fram i Reykjavik
i gœr að viðstöddu miklu ýjölmenni.
Kristján konungur X. sendi mikinn
og fagran blómsveig á kistu hins
látna, er var til sýnis i stjórnarráðs-
húsinu nokkra daga á undan greftr-
uninni.
— Bát hvolfdi við Viðey á mánu-
daginn með 4 mönnum. Premur varð
bjargað, en einn druknaði, Kristján
Benediktsson verkamaður úr Viðey,
rúmlega tvitugur. Hann náði i ár
þegar bátnum hvolfdi og gat hald-
ið sér uppi á henni um stund, en
misti af lienni og sökk alt i einu,
rétt þegar komið var að þvi að hon-
um yrði bjargað.
— Áfengisklúbbunum i Reykjavik
var lokað 1. þ. m.
— Einar Benediktsson er að láta
prenta nýja kvæðabók eftir sig. Út-
gáfan verður mjög vönduð og bók-
in á að heita „Hrannir“
— Brunastöð er nýlega fullgerð
i Reykjavik með brunasimum og öll-
um útbíinaði eftir nýjustu tizku er-