Gjallarhorn - 07.12.1912, Blaðsíða 2
36
OJALLARHORN
VII.
Sfórt uppboð.
Eg hefi áformað að breyta verzlun minni og
læt því selja allar vöruleifar mínar við opinbert
uppboð, sem haldið verður við hús mitt við
Hafnarstræti nr. 100, og byrjar fimtudaginn 12.
des., kl, 11 f. h.
Allt verður selt. Langur gjaldfrestur.
Akureyri 6. des. 1912.
Jóhannesson.
Guderin
fæst á
Akureyrar Apoteheki.
Borgið „Qjallarhorn"!
Þeir sem hafa veitt blaðinu móttöku frá
byrjun, en aldrei borgað einn eyri fyrir
það, [eru vinsamlega beðnir að greiða
þvi skuld sina nú fyrir áramótin. Upp-
hæðin er ekki há hjá hverjum einstökum
kaupanda, en blaðið munar miklu að eiga
hana hjá mörgum. Það er ekki gefið’út
af neinum >flokkssjóði« og þarf á öllu
sínu að halda.
lendis. Brunaboðar eru 29. Slökkvi-
lið er og skipað i bænum og eru í
þvi 36 menn fastir, 12 fyrir hvern
aðalhluta bœjarins ('þrjá).
— Andrés Féldsted augnlœknir
kvœntist i haust án „handaálegging-
ar“ yfirvalda og klerka og hlaut lof
kreddulausra manna fyrir. Nú ný-
lega fór Stjórnarráðið á stúfana, úr-
skurðaði þetta hjónaband ógilt að
lögum, og hótaði Féldsted jafnvel
sakamálshöfðun!! Er svo sagt að
hann muni ætla að giftast borgara-
legu hjónabandi til þess að gera
þeim rétt-trúuðu til geðs.
— fón Hermannsson skrifstoju-
stjóri slasaðist á mánudaginn. Datt
á götu í Reykjavík, i mikilli hálku,
og meiddist i fæti og handlegg svo
hann liggur rúmfastur.
— Vélarbátur sem „Export“ hét
sökk á laugardaginn á Isafjarðar-
djúpi, kom leki að honum snögglega
og varð ekkert við gert. Annan vél-
arbát bar að þegar „Export“ var
rétt að sökkva og gat sá með naum-
indum bjargað mönnunum af „Ex-
port“
— Landburður af þorski á ísa-
firði oggrend. Á laugardaginn höfðu
3 vélarbátar aflað 6 þúsund pund
hver.
— Pjófnaðarmál mikið og flókið
er komið upp i Skagafjarðarsýslu,
og hefir Magnús sýslumaður Guð-
mundsson haldið réttarpróf i þvi
undanjarið. Líkur sagðar til að tveir
eða þrír séu riðnir við málið, og
aðallega um kinda-þjójnað að ræða.
— Christján Popp kaupmaður á
Sauðárkróki fór til Kaupmannahafn-
ar með „Ceres“ um daginn, alfar-
inn frá Sauðárkróki. Kona hans og
börn voru farin á undan honum
— Peir síra Björn Porláksson á
Dvergasteini og Jóh. Jóhannesson
bœjarfógeti á Seyðisfirði fóru til
Reykjavíkur með „Botnía“ að sögn
á hinn væntanlega þingmannafund
um sambandsmálið.
— Kosningar til Alþingis (í stað
hinna dánu alþingismanna) fara fram
i Suður-Múlasýslu, Barðastrandar-
sýslu og Gullbringusýslu 1. mai
nœstk.
Trjáplöntun
í stórum stil aetlar ungmennafélag-
ið >Arroðinn.« f Öngulstaðahreppi,
að gera á næsta vori. Hefir Einar
bóndi Arnason á Eyrarlandi gefið land
til þess í svonefndri Búðalág og ráð-
gerir félagið að gróðursetja 8oo plönt-
ur fyrst um sinn. Fleiri félög ættu
að fara að dæmi >Arroðans« og er
þetta þess vert, að því sé baldið á
pfti, öðrum til eftir breytni,
Ófriðurinn á Balkanskaga.
Vopnahlé komið á.
Símað var frá Khöfn í gærdag að
vopnahlé væri komið á, áBslkanskag-
anum, samþykt al báðum málspörtum
og ófriðinum þar með þvt lokið að
menn vona.
Astandið í Miklagarði er hræðilegt
segir sama símfrétt. Kólera geysar þar
og ætlar alt að drepa. Að meðaltali
hafa dálð þar úr henni 50 manns á
dag undanfarið.
Ekki getur skeytið neitt um mis
klíðina milli Serbíu og Austurríkis- og
má þvi vona að hún jafnist með stór-
Veldagerðinni eða á annan friðsamleg-
an hátt.
y\kureyri.
Afmœli Guðl. Guðmundssonar bæjar-
fógeti og alþingismaður 8 desbr.
Hallgr. Krislinsson kaupfélagsstjóri
og kona hans, komu með >Botniu«
til Seyðisfjarðar á miðvikudaginn, úr
utanför sinni. Þeirra er von landveg
að austan að viku liðinni.
Kyikmyndafélagið hefir fengið nýjar
vandaðar myndir frá útlöndum með
síðustu skipsferðum. Eru það óslitin
leikrit sem mörgum mun þykja mikill
fengur í að sjá og góð skemtun og
vcrður nánar sagt frá þeim sfðar. Fél-
agið byrjar bráðlega að sýna mynd-
irnar í hinum nýja samkomusal An-
tons Jónssonar á Oddeyri og ættu
bæjarbúar að sækja vel sýningar þess,
svo það geti haldið áfram störfum.
Pormóður Eyjólfsson bókhaldari á
Sigluíirði, er hefir legið hér á sjúkra-
húsinu nær hálft ár, fór heim til sín
með >Mjölni« og var á góðum bata-
vegi. — Steingr. læknir gerði á hon-
um mikinn og hættulegan skurð sem
hepnuðist vel, svo hann vonar að
Þormóður verði jafngóður og albata
Stúdenlafélagið hélt fund á >Hótel
Akureyri* 5. þ. m. Þar flntti Matth.
þjóðskáld Jochumsson fyrirlestur um
>Alþýðuskáld a fyrri öld, á Norður-
landi « Fyrirlesturinn var sérlega fróð-
legur og skemtilegur. Þyrfti að kom-
ast á prent.
Skautafélagið. hafði skemtifund f
gærkvöld á »Hótel Akureyri.« Félag-
ið ákvað, meðal annars, að fara mik-
inn »sleðatúr« milli jóla og nýárs,
Skipaferðir. Ringheim, norskt eim-
skip kom frá Reykjavík á þriðjudag-
inn, tekur hér saltfisk og fer austur
um land til Spánar.
Mjölnir, skipherra Datnm, kom aust-
an um land á miðvikudaginn. Farþeg-
ar frá Seyðisfirði: Hallgrímur Einars-
son myndasmiður og frú hans.
Prjonasaumur
er keyptur hæsta verði í vefnaðar-
vöruverzlun
Gudmanns
Efferfölger.
Frá Seyðfirðlnaum :
— Nýlega voru kosnir í niðurjöfn-
unarnefnd Pájl Guttormsson bæjargjnld
keri og Sveinn Arnason.
— Slys 23. f. m. urðu tvö börn f
Mjóafirði fyrir skoti er hljóp úr hlað-
inni byssu er ungur drengur var að
rjála við. Annað þeírra særðist á öxl
og baki, hitt á höndum.
— Botnvörpungurinn »Ágústa« kom
hingað 20 f. m Hafði lent í mikhim
bafís, 50 fjórðungsmílur út af »Horni«
brotið tvö skrúfublöðin og orðiu lekt,
Utan úr heimi.
Vara-forseti Bandarikjanna var kos-
inn Thomas Marzhall landstjóri í Ind-
iana. Hann hefir lítið haft sig frammi
í pólitik þar til hann fyrit tveimur ár-
um varð landstjóri í Indiana. Þar áð-
ur var hann við ýms lögfræðisstörf.
I. P. Möller íþróttamaður hefir ferð-
ast um England nú undan farið og
haldið fyrirlestra um »Mín aðferð,« og
gefið leiðbeiningar viðvíkjandi þeim
efnum. Nýlcga héldu ýms hinna stærri
fþróttafélaga Lundúna honum heiðurs-
samsæti þar í borginni.
Siórbruni varð nýlega í Ringe í Dan-
mörku, var það greifasetur Muckadells,
greifa sem brann. Inni brunnu 1200 svfn
Og 140 dýr. Húsin voru vátrygð fyr-
ir 116 þús kr. en nm gripi og lausa-
fé er eigi kunnugt.
Jörðin ferst. Þýzkur prófessor Schaltz
að nafni, kveðst hafa vísindalegar
sftnnanir fyrir þvf að jörðin farist ár-
ið 1922. Hann segist bráðlega gera
opinberlega grein íyrir sönnunargögn-
um sfnum.
Parísar-konur nota ilmvatnsinnspraut
ingar sér til stundar-hressingar í stað
morfíns.
/ tungubroddinum hefir maðurinn
næmastar tilfinningar.
Danir eru taldir mestu matmenn
heimsins.
»
Alfons konungur hefir nú fyrir
skömmu, byrjað á að kynna sér allt
er lýtur að kafarastörfum, og ætlar að
bregða sér sjálfur niður á sjávarbotn.
Vísindamaður þýzkur hefir stungið
upp á að leggja sérstakan háan skatt
á þá menn í þýzkalandi sem noti mik-
ið útlend orð.
Frakkland hefir selt á þessu ári
bifreiðar til Englands fyrir 39 miljón-
ir króna.
Prtslar íEnglandi geta fengið keypt-
ar ræður sínar tilbúnar, prentaðar, fyr-
ir hverja m^sau,
Jíóta- „g
netjagarn
í verzlun
Sig. Sigurðssonar.
YSSA tvíhleypt
vöríduð, nýleg, hefir
horfið nýlega. Merkt
Burgsmuller & Sön.
Ríflega póknun verður greidd peim
sem getur skilað henni eða gefið
upplysingar um hvar hana er að
finna.
Akureyri 2/u 1912
Halldór Skaptason.
Tvistur
nýkominn í verzlun
Sig. Sigurðssonar.
í Ást/alíu byrjar sumarið fyrstu dag-
ana af nóvember.
»Quö blessi bis: KristJán!"
Eftirfarandi smásaga er sögð af því
er ríkisþingið danska var sett 7. f.
m.: Þegar Kristján konungur X, hafði
lokið að lesa upp ávarpsræðu sína til
þingsins, stóð J. C. Christensen á
fætur og sagði: »Konungurinn lifi!«.
Þingmenn tóku undir með nfföldu
húrra, en þegar síðustu húrra — tón-
arnir voru að deyja út, rauf sterk
karlmannsraust af áheyrandapalli þögn-
ina, og hvelt og snjalt heyrðist um
þingsalinn: »Guð blessi þig KristjánD
Eftirlitsmaður einn, er var nærstaddur
þeim er kallaði þetta, þaut þegar að
honum og spurði hverju sætti að hann
dirfðist að rjúfa helgi þingsins. »Eg
veit eg má ekki tala hér, en það var
svo fallegt, það sem hann sagði<
svaraði hinn og hvarf inn í mann-
þröngina án þess menn vissu hver
hann var, en síðan var sagt að það
hefði verið gamall sjómaður.
Klrkjan.
Hádegismessa á morgun. [Skemri
guðsþjónusta.j