Huginn - 22.08.1907, Side 2

Huginn - 22.08.1907, Side 2
2 N ÝJJ U N G A R konurnar Þórunn Finnsdóttir og Hólmfríður Rós- enkranz, er stýrt hafa kaffihúsinu »Uppsölum«. Hótel ísland hefir verið lokað þessa daga sökum vörukönnunar og þessara umskifta. Ceres kom frá útlöndum norðan um land mánudagsmorgun 19. þ. m. Farþegar allmargir, þar á meðal útlendir ferðamenn. Strokkur í Haukadal er farinn að gjósa á ný af miklum móði, enda hefir hann hvílt sig um 11 ár. Bata sinn á hann að þakka Bjarna Jónssyni trésmið, því að Bjarni lét veita á brott köldum læk, sem í hann íéll, og leið þá ekki á löngu að hann tæki að gjósa. Reykjavíkurlækurinn liefir þornað upp með öllu sakir langvarandi þurka og er sagt að það hafi ekki borið við fyrri í manna minnum. f Jón Yídalín konsúll andaðist hjer í bæn- um þriðjud. 20. þ. m. Hafði verið vanheill lengi. Konungsviðtökurnar í Seyðisfiröi fóru fram á þá leið, sem ráð var fyrir gert í fréttaskeyti því, er síðasta blað »Hugins« flulti. Flotinn kom inn á fjörðinn ld. 2 e. m. á fimtu- daginn. Fögnuðu hvalveiðabátarnir honum með skotum. Á hafnarbryggjunni voru heiðursbogar reist- ir og yfir þeim letrað: »Velkominn konungur ís- lendinga« og »Velkomnir, þingmenn bræðraþjóðar«. Hafa gestirnir kannast við ávarpið, því að bogar þessir fögnuðu þeim áður á husum Godthaabs-verzl- unar í Reykjavík og voru svo flutlir austur. Ræður héldu bæjarfógeti, konungur, Hannes Hafstein og Steffensen, sumir oftar en einu sinni. Boð var hjá konungi um kveldið í skipi lians. Flot- inn leystist úr höfn kl. 10 um kveldið, var þá skot- ið flugeldum og æpt fagnaðaróp. Skipin héldu síðan beint í haf og ætluðu að taka land í Sogni í Noregi. Krossar og nafnbætur enn: I Seyðisfirði urðu þeir riddarar Jóhannes Jóliannesson bæjarfógeti og Stefán Th. Jónsson kaupmaður. Dannebrogsmenn urðu: Gísli Jónsson gullsmiður, Gunnar Pálsson bóndi á Ketilsstöðum, Halldór Benediktsson á Skriðuklaustri, Jón Bergsson á Egilsstöðum og Jónas Eiríksson fyrr- um skólastjóri á Eiðum. Síðustu krossafréttir eru þær að riddarar eru þeir Kristján Zimsen konsúll, Ásgeir Sigurðsson kaup- maður og Sigurður sýslum. Ólafsson í Kallaðarnesi. Dannebrogsmaður Ólafur ísleifsson við Þjórsárbrú. Synt yfir Oddeyrarál. Lárus Rist sundkennari á Akureyri synti yíir Oddeyrar-álinn þriðjudagsmorg- uninn 6. þ. m. samkvæmt heitstrenging sinni í ung- mennafélagi Akureyrar í vetur. Varpaði hann sér í sjóinn alklæddur og tíndi af sér öll fötin á sundinu, vatnsstígvél, olíustakk, olíubrækur, treyju, vesli, bræk- ur og nærskyrtu. Tók þetta 3—4 inínutur, en 34 mínútur liðu frá því er hann hljóp á sund og þangað til hann hafði þurt land undir fótum austan megin Qarðarins. Fremur var kalt í sjó, 8 stig á R. við bryggjurnar, en víst allmiklu kaldara í álnum. (»Norðurland«). Helgi Valtýsson formaður Ungmennafélags Reykjavikur verður kennari við Flensborgarskólann í vetur. Hann fer héðan úr hænum áleiðis til Seyðisfjarðar á laugardaginn með konu sinni. Fer hún kynnisför til Norcgs. Ungmennafélagið liélt Helga kveðjugildi í gærkveldi. Fyrir minni hans mælti Ásmundur Gestsson. Helgi talaði fyrir minni íslands og minni Ungmennafélaganna. Auk þess töluðu Jón Sívertsen, Ásgrímur Magnússon og Jak- ob Óskar Lárusson. Kvæði var Helga einnig flutt í gildinu. Kenslustúlka, sem vill kenna stúlkubarni lestur, skrift og handa- vinnu næsta vetur, getur fengið góð kjör hjá áreið- anlegum inanni í Stykkishólmi. Semja skal við Bjarna Jónsson frá Vogi. Afgreiðsla Ing'ólfs er ílutt í vesturenda á Hótel ísland, í herbergið gegnt skrifstofu Stórstúlcunnar. Kaupendur blaðsins tilkynni þangað, ef van- skil verða á því. Itezti oi* liollasti kaffiibætiriiin er frá verksmiöjunni liövetand í Kanpinannaliöfn. STÓRT tRVAl nýkomið i J. l’. T. l$I{1l)i :'S verzlun af: Borðlömpum, Hengilömpum, Eldhúslömpum, Standlömpum og ómplum, og alt því tilheyrandi. fást í söluturninum. UNGAISLAND. Gtl. Carlberg I.ageriil. Mörk Skattefri. Tuborg Pilsneröl, Tuborg Wineröl, fæst í J. P. T. Brydes verzlun. Olíufatiiaður: Kdpur, Buxur, Ermar, Sjóhaítar, Svuntur í verzlun Matthíasar Matthíassonar. XJ mboðsmadur. óskað er eftir aðaluinboðsmanni á Islandi fyrir ágæta skilvindu. Sýnishorn í Reykjavík. Umsókn sendist á skrifstofu Hugins. Mjög gott og ódýrt undirsæng- uríiður fæst í verzlun Kristinns Magmíssonar. Ingólfsstræti nr. 3 er landsins hezta, stœrsta og elzta. Það er því engum efa bundið að bezt er að kaupa þar allan skófatnað. Með síðustu skipum komu miklar birgðir þar á meðal dálitið af: hollenzkum skófatnaði fyrir karla og konur oí) brúnum karlmannsstígvélum. tdi UU KRISTJAHSSONAR hefir nú aftur fengið uýjar btrg-ðip af hinum alþektu góðu málning'avörum. I vei’zlun Gruiinars Eiuarssouar fæst: KJÖT af uxum, kvigum, nautum og sauðum. Nýreyktur LA-X. Allskonar matvörur og álnavörur m. m. H E Y er til sölu. R. v. á. cTCálslín, datacfni, cTetf. - cRtt vanóað. 0- Arider5eri&5öri. Ú rval af Körfum og’ Töskum fyrir »Sportsmenn« í j. p. t. jjryíe’s verzlun. 11, (limiteret) (Innborgað lilutafé 1 miljón króna). tekur í ábyrgð alskonar vörur milli íslands og út- landa; ennfremur milli Hafna á íslandi, með góðum kjörum. Umboðsmenn félagsins eru : O. Johnsen & Kaaber LækjargÖtH 4, ReykjaTÍlí. w’ í'fiðursoðin matvæli af öllum tegundum og Karl Petersens þar á meðal „Fuente“, fást í c7. c?. cZ cfirtjóes verslun. á-v-e-x-t-i-r fást í verzlun Matthíasar Matlhíassonar. Clement Johnsen, Bergen. Ritsímautanáskrift: CLEMENT. láárlir, ) o. s. Upplýsingar: Wallendahl & Sön. — Bergens Privatbank. É Eiríkur Kjerúlf læknir Vesturgötu 22. Heima virka daga frá 10 til il f. h. og 2—3 e. h. Chocolade, Confect-brjóstsykur og annað sælgæti, fæst ávalt í verzlun Matthíasar Matthíassonar. Ritstjórar Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Gunnarsson. Pxentsmiðjan Gutenberg.

x

Huginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Huginn
https://timarit.is/publication/187

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.