Huginn - 20.02.1908, Side 1
II. árg.
8. tl>l
Reykjavík SÍO. íebr. 190©.
1
4
I
♦
t*
heflr beztu mótoraolíu og aðrar smurninga- ^
olíur.
Menn snúi sér lil útsölumanna í Reykiavík v
Nic. Bjarnason kaupm. og Magnúsar Blöndahls ^
trésmiðameistara. ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Samsöng-ur.
Laugardag 15. og sunnudag 16. þ. mán., stýrði
Sigfns Einarsson samsöng í Bárubúð og hefir »Hug-
inn« falið mér að segja af honum.
Það mun víst flestum þykja vandratað meðal-
hófið í dómum um samsöngva ef þeir eiga að vera
ýtarlegir, enda eru llest blöðin okkar vön að þegja
um það, sem þar fer fram eða hlaða eintómu lofi
á söngfólkið, en eitt blaðanna þylur nú orðið aðeins
last um söngfólkið fyrir munn úrvalsspámanns síns
— og það all ókurteislega. í þetta sinn er mér ljúft
að dæma og lofa söngfólkið fyrir frammistöðu sína.
Því það á það fyllilega skilið og þessir samsöngvar
voru að mínu álili fullu feti ofar en þeir, sem eg
áður hefi haft tækifæri að hlýða á. Áheyrendur virt-
ust og mjög ánægðir með það sem þar var framborið
og margir fóru bæði kvöldin. Söngskráin var smekk-
lega samantekin og alt á henni nýtt og hér áður
ekki sungið, að undanteknu síðasta sönglaginu, —
sungið hér áður af sama söngflokk.
Fyrsta lagið var brúðarsöngur úr Op. Lohengrin
eftir Richard Wagner; er sá söngflokkur hans heims-
frægur, en Wagner hafði það fram yfir ílest söng-
skáld, að hann samdi sjálfur textana við Operur sín-
ar og hafði nú Bjarni Jónsson frá Vogi snarað brúð-
arsöngnuni á íslenzku. Tókst þetta lag mikið vel
þótt erfill sé og vitanlega sómi sér betur í leiknum
sjálfum á leiksviði, sérstaklega af því að mikill hluti
þess er sungið bak við leiktjöldin, en sem kunnugt
er vantar alfan slíkan útbúnað í Bárubúð; þar að
auki missa slík lög ætíð nokkurs í að vera rifin út
úr samhenginu, eru sem hlekkur slitinn úr viðburða-
keðju leiksins. En góðrar þakkar vert er það, að
lofa fólkinu að bragða, þótt ekki sé nema á smábita
af söngkrásum þeim sem erlendis eru daglegt brauð,
borið fram á leiksviði. Næstu tvö lög söng Einar
Indriðason; voru þau eftir Gounod og tókust honum
þau furðanlega. Einar er ungur og söngrödd hans
óþroskuð, vantar festu og hljómfylli, en væntanlega
bætir hann röddina smátt og smátt og er hann óef-
að gott söngmannsefni. Þessi tvö lög sem hann
söng voru lionum of erfið, en hann velur vonandi
betur við hæli sitt næst.
Þá söng karla- og kvenflokkurinn 3 lög eftir
Sigfús; eru þau nýsamin og í þeim alíslcnzk undir-
staða, en leikið undir söngnum á piano, Af þess-
um sönglögum hans er »Vorvísa« Jóns Thoroddsens,
lipurt og létt lag, raddirnar leika sér í því hver um
aðra eins og lömbin um »blómgaða bala«. Hin tvö
lögin eru við »Skammdegisvísur« Þorsteins Erlings-
sonar og »Vorhimin« Þorsteins Gíslasonar; lekst
þar Sigfúsi í hinu fyrnefnda að ná hinum eymdar-
lega sultarsöng með dinnnum, breiðum og þungum
tónum, en dregur upp í hinu síðarnefnda vorhiminn
með fríðum, breiðum, björtum og háum, — mér
liggur við að segja bláum tónum. Tókust söngflokkn-
um þessi lög ágætlega, það var mjög ánægjulegt að
heyra hve vel var æft og frágangur allur góður.
Þyrflu ekki önnur söngfélög að fyrirverða sig fyrir,
að taka sér sóngflokk Sigfúsar til fyrirmyndar og
reyna sig á þessum sönglögum hans.
Þá var nú komið að lengsta og ekki veigminsta
þælti söngskránnar. Það var hvorki meira né minna
en frægur »Septett« Beethovens, Opus 20, leikinn af
frúnum Ástu og Valborg Einarsson á Flygel. Naut
þar í einu bæði fimni, smekks og mjúkra handa, og
óbætt að fullyrða, að ekki hefir verið betur leikið hér
nokkru sinni á hljóðfæri af tveimur. Ekki hafa
menn vanist því liér, að lilýða á tónverk Ieikið á
piano í fullan V2 kl.tíma, nær því hvíldarlaust, og
mátti því búast við ókyrð í sætunum og að minsta
kosti hósta og stunum að gömlum Reykjavíkursið,
en við ekkert af þessu yarð nú vart; — alt varhljótt
og kyrt og engum svelgdist á, því aðdáanlega var
leikið og í þessu meistaraverki Beethoven’s er svo
krögt af yndislegum smálögum og »motivum«, að
það hlaut að fjötra hugi áheyrendanna á meðan að
var leikið. Fæstum mun nægilegt að hlýða á Septett
þcnna eitt skifti, hann er svo efnisríkur og marg-
brotinn, er eins og skrautlegt himinljós, sem við nán-
ari og betri athugun greinist sundur í margar dýrð-
legar stjörnur.
Því er nú ver að samsöngvar þessir voru ekki
vel sóttir, hvernig sem á því hefir staðið; embættis-
menn og liið svonefnda »heldra fólk« fjölmenti mjög
fyrir skömmu við tvo samsöngva, sem aðrir héldu,
og mun því ekkt hafa þótzt hafa tima né peningaráð
til að sækja þessa samsöngva, sem báru langt af
hinum, að þeim að öðru leyti ólöstuðum.
Skal eg svo enda með því, að skora á Sigfús
og söngfólkið að endurtaka þessa samsöngva, balda
þá sem alþýðusamsöngva »fyrir fólkið«. Eg býst
sem sé við, að alþýða manna hafi fult svo næmar
tilfinningar og eyrun eins opin fyrir góðum söng og
»heldra fólkið«.
Á. Th.
K rétt i r.
Fréttabréf
frá fréttaritara Hugins í Ivaupmannahöfn.
Kliöfn 2. febr. 1908.
Stórþjófur. í Milano dó fyrir skömmu maður
einn, Georges Manolescu að nafni, 37 ára gamall.
Þóll ekki yrði hann langlífur, var hann orðinn kunn-
ur um allan heim fyrir glæpi sína, fífldirfsku og ó-
svífni. Hann var því alment kallaður »konungur
þjófanna«. Gegnir það stórfurðu, hve mörgu hann
hefir komið af á ekki lengri tíma.
Manolescu var fæddur árið 1871 í Ploésci, bæ
í Rúmæníu. Faðir hans var herforingi og kvæntist
4 sinnum. Móðir Georges dó þegar sveinninn var 2
vetra. Þegar Georges var 14 ára gamall, fór liann í
hermannaskóla og þótti þar liinn efnilegasli. En þá
langaði hann út í heiminn og fór af stað með rúm-
an franka í vasanum. Hann fór til Konstantínópel
og þóttist þar vera blindur. Þar stal hann 20 pund-
um frá tyrkneskum liðsforingja, er gert hafði vel lil
hans. Árið 1887 var hann kominn til Aþenu og
hugði nú til heimferðar til Rúmæníu, en skorti fé.
Þá tók hann það til bragðs að veita, eða þykjast
veita sjálfum sér banatilræði hjá sendiherranum
rúmænska til þess að reyna að ná sér í peninga.
Hann var þá svo óheppinn, að særast svo mjög, að
liann varð að liggja lengi á spítala milli lieims
og helju.
1889 komsl hann til Parísarborgar og þá fóru
nú glæpirnir að gerast stærri. Hann var vanur að
stela ýmsum vörum úr stærstu búðum bæjarins og
skila því síðan aftur daginn eftir, sem hann sagðist
hafa lceypt, gegn fullri borgun. Þannig græddi hann
mörg hundruð franka á mánuði. En þetta nægði
honum ekki. Hjá 37 gimsteinasölum stal diann gim-
steinum er kostuðu 540,000 franka alls. En í 37.
skiftið var hann tekinn og dæmdur í 4 ára fangelsi
og var þá tæpl. 19 ára gamall. Þá er hann hafði
tekið út hegningu þessa, fór hann aftur til Rúmæníu
til föður síns og þaðan til Monte Carlo, en varð svo
óheppinn að tapa 9000 frönkum á stuttum tíma í
spilum. Þaðan fór hann til Canada og vann þar
17000 dollara og náði sér þannig upp.
í Chicago kallaði hann sig hertogann af Otranto
og vildi íyrir hvern mun ná þar í rika stúlku og
giftast henni, en menn vildu hvervetna sjá skilríki
hans og þá liafði hann sig á braut hið bráðasta. Á
leiðinni frá Cbicago til San Francisco stal hann í
lestinni tösku með gimsteinum, er kostuðu 27,000
dollara, og 2000 dollurum í peningum. Vegna dirfsku
hans grunaði hann enginn og varð hann jafnvel um
tima leynilögregluþjónn í Cliicago.
Undir nafninu »prinsinn af Padua« fór hann
til Japan og þaðan aftur til Ameríku og því næst til
London, lifði þar eins og greifi og bjó þar á einu
helzta gistihúsinu. — En þar varð hann aftur uppvís
að þjófnaði og var dæmdur í fangelsi, en losnaði
þaðan brátt aftur. í Ostende fékk hann nokkra ræn-
ingja til að ráðast á brasiliskan auðmann, er liann
var kunnugur. Það sló þegar í liarða bardaga og
Manolescu lést verja vin sinn, en notaði tækifærið til
að stela af honum 37000 frönkum. (Frh.)
Sigfús Einarsson kennir söng í Hafnarfirði í
Flensborgarskólanum og í barnaskólanum. Auk þess
hefir liann þar söngfélag, sem hann er söngstjóri hjá.
í því félagi eru nálægt 30 manns. Þetta félag hélt
nýlega samsöng í Hafnarfirði og ætlar að endurtaka
hann núna á laugardaginn. En á sunnudaginn fer
það fram á Álftanes og syngur á Bessastöðum. Það
er um Hafnfirðinga að segja, að þeir eru þeim mun
söngelskari en Reykvíkingar, að þeir eru eins fjöl-
mennir við samsöngva hér sem vér.
Blindur drengur þarf hjálpar til þess að kom-
ast á blindra stofnun. í kvöld ætla nokkrir lista-
menn að halda skemtun í því skyni. Ágætir kraftar,
ágæt skemtun, hverjum manni sómi að styrkja fyr-
irtækið. Fyllið húsið, góðir Reykvíkingar.
J Nýútkomið:
æ samanteknir af Sigfúsi Einarssyni.
^ Þetta eru 24 tvírödduð lög og 2 hring-
leikar einkar skemtilegir eftir Matthías Þórð- ^
arson.
Kostar að eins 60 aura. — Fæst hjá bók-
sölum og í söluturninum.
slani
'0
rerður líka ljómandi fallegt.
Febrúarblaðið kemur ekki út fyr
en síðustu daga mánaðarins, en það
♦ ♦
| Nýútkomið: 4
♦ Misvindi. ♦
♦ ♦
4 Þvðingar eftir Bjarna Jénsson frá Vogi. 4
♦ ♦
4 Kostar að eins 50 aura. Fæst hjá bók- ^
♦ sölum og í söluturninum. ♦
♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦