Höfuðstaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Höfuðstaðurinn - 19.10.1916, Qupperneq 1

Höfuðstaðurinn - 19.10.1916, Qupperneq 1
HOFUÐSTAÐURINN 21. tbl. Fimtudaginn 19. október. 1916 Stúika — þrifin og vönduð — óskast til hjálpar við eldhússtörf. Hátt kaup. — Nægur frítími. Frú D a h I s t e d t, Laugaveg 23. D í v a n óskast til kaups nú þegar. Upp- lýsingar í prentsm. f>. Þ. Clementz. Peningabudda fundin. Upplýs- ingar í prentsm. Þ. Þ. Clementz. Eitt herbergi og eldhús eða aðgang að eld- húsi óska nýgift hjón að fá nú þegar. Afgr. vísar á. Góður Dívan óskast til leigu nú þegar. — Afgr. vísar á. HÖFUÐSTAÐURÍNN Sláturhúsið. Slátrun er lítil þar nú að sögn, hefir smáminkað undanfarið. T. d. í gær hafði verið slátrað þar 9 lömbum og einni kú. — En von er þó á einhverju af sláturfé enn. Fjölbreyttust og fallegust is- lenzk tœkifœriskort eru til sölu á Laugaveg 43 B, hjá Friðfinni Ouðjónssyni. Island fer héðan á morgun kl. 4 áleiðis til útlanda. Gullfoss fer að líkindum ekki fyr en á Sunnudag. Framhald greinarinnar um mjólkurmálið, sem birtist hér í blaðinu í gær, bíður næsta blaðs. Undanrenna var seld hér í bæuum á stöku stað á 21 — 22 aura líter. Verður það lítil búbót fyrir þá, er helzt þuifa mjóikur með. Blár ketlingur hefir tapast. Þeir sem kynnu að finna hann eru vinsamlega beðnir að gera aðvart í Lækjargötu 12 A uppi. Oóð fundarlaun. Verzlun Asg, G. G u n n laugssonar & Co., Ausíurstræti 1, hefir fengið miklar birgðir af aliskonar Yeínaðarvöru og Fatnaði með e.s. Oullfossi og e.s. Islandi. Til dæmis amerískan Nærfatnað feikna úrval, Kvensokka úr alull á kr. 1,60 pr. pr„ Lffstykki, Barnanærfatnað og fjölda margt fleira. Kjólatau - Tvisttau - Sængurdúk - Flauel o. m. fl. -----Komið og lítið á vöruna og verðið.- Virðingarfylst. &UY\ntau^ssot\ & Co Austurstræti 1. Sykurverð Hvítasykur högginn er nú seldur i ! í sumuro verzlunum á 55 aura V, /2 ^ kg. Þó mun mega fá hann á 45 1 | aura Vs kg. Annars er mjög sykur- : Iftið í bænum. Vantaði nú ekki i annað en að sykur yrði ófáanlegur, ^ eða svo dýr, að ókleyft væri að í kaupa, — ofan á mjólkurleysið. Brezku samningarnir. í 42. tbl. Landsins frá 11. okt. þ. á., er birt grcin með þessari yfirskrift cftir Matth. þórðarson, erindreka Fiskifélagsins. Lýsir hann þar, að því er ófróðum virð- ist með nokkrum rökum, að svo ófimlega hafi tekist til um þessa l samningagerð, að landsbúar tapi 1 við hana 15—22 miljónum króna. Eru atriði í greinargerð hans, sem virðast ef rétt væri frá skýrt eigi aðeins baka þeim, er fyrir verk- inu hafa staðið, fjárhagslega, held- ur hegningarlagalega ábyrgð. það sem ófróðum verður fyrst að hugsa, er þeir lesa grein þessa, er þetta: Hefur þessi maður skil- yrði til að vita meira eða betur en vér hinir svo að vér megum trúa orðum hans? Og svarið hlýtur að verða játandi. Hann er launaður af landsfé og hefur á hendi opinbert starf, einmitt það, að vera á varðbergi og gæta þess, sem sagt er að samningur þessi fjalli um, söluhorfur og sölu fslenzkra sjávarafurða. Hann er kjörinn af þeim mönnum, sem reka stærsta atvinnuveg landsins, útgerðarmönnum, en meðal þeirra eru svo margir nýtir menn, að eigi má ætla að þeir velji í þá trúnaðarstöðu slíkan afglapa, er þarf til að rita grein þá er hér um ræðir, ef hún væri eigi á rökum bygð. Og það verður cigi séð annað, en þing og stjórn hafi viðurkent hann með því, að leggja fé úr landssjóði til þess að launa honum. \ það virðist því þurfa meira en órökstudd orð, til að sannfæra ófróðan almenning um að um- mæli hans og tilvitnanir séu fleip- ur eitt og staðlaust gjálfur. Höfundurinn ber saman verð- lag það,er áskilið kvaðveraísamn- ingi landsstjórnarinnar við Breta og það verðlag, sem var á helztu sjávarafurðum á heimsmarkaðin- um (í Noregi) um það leyti, er samningurinn var gerður og sem hann segir að hann hafi haft til- boð um að því er snertir sumar vörutegundir. þá ber hann sam- an samningsverðið við verð það, er kaupendur vildu gefa fyrir vöruna við skipshlið á íslandi, og loks samningsverðið við það verð, er Norðmenn fái fyrir samskon- ar vöru og hann telur að íslend- ingar einnig hefðu getað fengið, ef rétt hefði verið að farið. Tel- ur hann tap landsmanna samkv. fyrsta samanburðinum 18,5 milj. kr., samkv. öðrum 15,75 milj. kr. og 21,75 samkv. hinum þriðja samanburði. Hann kveðst ófróður um hvort eða hver nauðsyn landstjórninni hafi borið til að semja við Breta og skal það strax tekið fram, að eigi er kunnugt um, að um það atriði liggi annað fyrir en órök- studd staðhæfing þeirra er að samningnum stóðu af hálfu ís- lendinga, ýmist í þá átt, að eigi hafi orðið komist hjá að semja eða að ver mundi hafa farið, hefði eigi verið samið. Veikir hið síð- ara allmjög hið fyrra þar eð það bendir ótvírætt á, að eigi hafi legið brýn — þvingandi — nauð- syn til samninga. En hafi svo eigi verið, hefir landsstjórnin og þeir, sem með henni hafa starfað gert sig seka um gjörræði í með- ferð á fé og frjálsræði landsbúa, sem óþekt er í sögu þessa lands og þótt víðar væri leitað. Höf. getur þess sem og hefir verið látið í veðri vaka, að samn- ingur þessi eigi að hafa verið ’ gerður til þess að tryggja land- inu innflutning frá Bretlandi, en rekur svo, að Islendingar mundu hafa getað fengið nauðsynlegar framleiðsluvörur svo sem stein- olíu, veiðarfæri, salt og jafnvel kol frá Ameríku, telur þó að ætla megi að kol hefðu mestu um ráð- ið (það sem er, vitanlegt að kola- forða vorn höfum vér jafnan feng- ið frá Bretlandi). En segir hann að svo hafi verið, því að nokkur (Framhald á 4. sfðu.)

x

Höfuðstaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.