Höfuðstaðurinn - 08.11.1916, Page 1
HÖFUÐSTAÐURINN
41. tbl.
M I ð v i k u d a g i n n 8. nóvember.
1916
HÖFUÐST A® UROTir S
hefir skrifah fu og afgreiðslu í jg
Þinghollsstmti 5.
Opin daglega frí 8—8.
Útgefandinn til viðtals 2-2 og 5-6. |j
Ritstjórnar og afgr.-sími 575.
Prentsmiðjusími 27.
Pósthólf 285.
I HÖFUBSTABUEin f
i'j kemur út daglega, ýmist heilt jg
blað árdegis eða hálft blað árdeg- j|
S is og hálft síðdegis eftir því sem jg
1 ástæður eru með fréttir og mikils- 3
g verðandi nýjungar, ,:jj
S 5t^asKK*w»««a»æKwwas!BfiBt}SiK®
Draumur Jóns Jóhanns-
sonar faest í Bókabúðinni á Lauga-
veg 4.
Byssa, framhlaðin óskast keypt
nú þegar, Afgr. vísar á.
Togleðursslanga ný
á afturjhói bifreiðar er til sölu.
Verð 22 kr. — Uppl. í prentsm.
Verzlunarmál vor
Nú er Danir í reyndinni hafa i
hœtt að fara með verslunarmál *
vor og fengið oss sjálfum þau í
hendur, liggur það í augum uppi
að þjóðin þarf að ráðstafa þess-
um málum eftir bestu föngum.
Frá því er Danir sleptu þess-
um málum f sumar, hefir sér-
málaráðherrann íslenski farið með [
þau og gerf samninga við erlend {
ríki um verslunfvora. Pessir samn- j
ingar er sagt að séu bindandi >
fyrir oss til nýjárs. En hver á |
svo að semja ef það verður ó- j
hjákvæmilegt. Á sérmálaráðherr- í
ann að gera? Á núverandi ráð- ]
herra að vera það?
Þessu verður þjóðin að ráða
fram úr fyrir næsta nýjár.
Lítum nú á afstöðu ráðherra
gagnvart þjóðinni. Hún átti kost
á að láta í ijósi álit sitt á hon-
um í sumar, hún hefir gert það,
þar er ekki um að villast. Þjóð-
in hafnaði E. Arnórssyni sem
fulltrúa símim.
Þótt eitt kjördæmi hafi sfðar
valið E. A. fyrir fulltrúa sinn, '
M. Júl. Magnús
læknir.
Lækningastofan er flutt úr Lækjarg. 6
upp á Hverfisgötu 30.
Viðtalstími sami og áður 10—12 og 61/*—8.
RÁÐLEGGIN G!
Háttvirtu bæjarbúar og
aðkomumeun gem þurí-
iðaðtaupa ykkur góð-
an og kröftugan mat
kaupið hann hvergi
annarsstaðar en á
Kaffi og Matsöluhusinu
„FJALLKON AN”,
Laugavegi 23. Sími 322.
-----■- U
Dagsbrúnarfundur
verður haldinn á fimtudaglnn (9. nóv.) á venjulegum stað kl. 7V, sd.
Enn fremur tilkynnist félagsmönnum hér með, að fundir verða
haldnir annanhvern fimtudag (2. og 4. fimtud.) hvers mánaðar og
verða að jafnaði ekki auglýstir hér eftir, fyrst um sinn.
Fjölmenniö á fundinn,
Stjórnin.
Nýja verzl, Hvg. 34.
Til að rýma fýrir nýjum vörum sem
koma með s.s. GOÐAFOSS verður
frá í dag selt með
5°|0 og 10°|o afslætti.
PflT Notið tæklfaerlö I
þá breytir það i engu afstððu
þjóðarinnar til hans.
Það virðist því vera augljóst,
að þjóðin æskir þess ekki, að
þessi maður fari með völd, hvað
þá að völd hans séu aukin.
Hvort sérmálaráðherra vor, hver
sem hann er, á að fá þessi nýju
mál í hendur, sem þjóðin nú
verður að taka á sfnar herð-
ar, en sem konungur og Dana-
stjórn hingað til hafa farið með
fyrir vora hönd, eru enn óút-
kijáð af háifu þjóðarinnar.
En flokkaskiftingin í þinginu er
þannig nú sem stendur að vér verð-
um að telja það mjög varhugavert
af þjóðinni að fela sérmálaþing-
inu og sérmálaráðherranum þess
nýju mál, þvf að vel gæti svo
farið að þau yrðu þá gerð að
sparkefni milli flokkanna.
Nú er nokkuð orðið Ijóst um
afstöðu flokkanna á þinginu og
það er bersýnilegt, að enginn
þeirra hjálparlaust getur myndað
stjórn.
Heimastjórnarflokkurinn og
sjálfstæðismenn verða að líkind-
um nokkuð jafnir. Það verða því
flokksleysingjar og ráðherraflokk-
urinn, þó sá síðarnefndi virðist
vera ærið fáliðaður, sem miklu
ráða um það hvernig stjórnin
verður skipuð.
Þetta ætti að vera næjanlegt
til þess að sýna það, að stjórn-
in g e t i orðið þanntg skipuð að
þeir menn fari með völdin, sem
þjóðin ber minst traust til.
Ef stjórn þessi ætti svo að fara
með mál vor út á við, þá væri
þjóðinni í því hin mesfa lítilsvirð-
ing. Enda trúum vér því trauðla
að nokkur maður vilji Ijá slíkum
ráðstöfunum atkvæði sitt og fylgi.
Hér virðisf þvf ekki vera nema
um eina leið að velja. Þjóðin
verður að ráðstafa verzlunarmál-
unum, sem Danir hafa skilað f
hendur vorar. Pað umboð sem
Danir hafa haft frá Islendingum
til þess að fara með þessi mál,
geta þeir ekki selt öðrunt í hend-
ur, þeir geta aðeins afhent um-
boðið umboðsgjafanum sem sé
íslenzku þjóðinni, sem svo ráð-
stafar þeim eftir sfnum eigin geð-
þótta.