Höfuðstaðurinn - 25.01.1917, Page 2
HÖFUÐSTAÐURINN
vm vzmm-}
HðPUBSTAfiUEmr |
kemur út daglega, ýmist heilt »
blað árdegis eða hálft blað árdeg- §
is og hálft síðdegis eftir því sem gf
ástæður eru með fréttir og mikils- m
verðandi nýjungar,
S
Duglegir drengir
óskast til að selja
Eeiðhjólaverksmiðjair
Fálkinn
Bréfið
hefir fengiö sfmanúmer
Hermaður í íremsíu skofgrafaroð, ef að skrifa heim, en það eru
ekki fáir erfiðleikarnir sem hann hefir við að stríða, á meðan hann er
að skrifa. Kúlurnar þjóta óaflátanlega og sprengikúlurnar springa og
skella alt . kring. Skrifborðið er blikkfata, og kassi lagður yfir, og
byssan hans rís upp við vegginn. Hann má búast við að verða kallað-
ur þá og þegar t<l að standa á verði eða taka þátt í stormáhlaupi. Því
er um að gera að flýta sér að Ijúka við bréfið, áður en það verður of
Höfuðstaðurinn
seinf.
kostar 6 0 a u r a um
mánuðinn, fyrir fasta
kaupendur. — Pantið
blaðið f síma 5 7 5
-----eða 2 7.--------
Stór jörð til sölu
ásamt hlunnindum laxveiði og
Maflaie ðe Tbelies. «««■«•
—o—
A. v, á.
Eins og vér höfum getið um i
áður hér í blaðinu er fræga spá-
konan franska, Madame de The-
be dáin. Nú höfum vér séð henn-
ar nokkru nánar getið í nýjuslu
útlendum blöðum og viijum vér
því láta lesendur vora sjá eitt-
hvað af því sem er sagt.
72 ára gömul hefir nú ein af
frœgustu konum Frakklands dá-
ið, spákonan Madamede Thebe,
án þess að hafa sagt dauða sinn
fyrir svo kunnugt sé. Annars
sagði hún margt fyrir og menn
trúðu henni sökum þess, að spá-
dómar hennar margir hverjirfóru
i merkilega rétta átt.
Hún hafði ekkert við sig af
nornaleyndardómi miðaldanna.—
Henni svipaði mest til efnaðrar
konu af borgaraflokki, endamun
hún helst hafa átt þar heima, að
minsta kosti hefir hún unnið sér
töiuvert inn í spátímum (kon-
FjaUkonuútgáfan
Nýútkomið:
Cymelfna hin fagra.
Hjólhestar
sem eiga að gljá-lakkérast, eru menn beðnir um að
koma með í þessum mánuði.
Hjólhestaverksmiðjan Fálkinn Laugaveg 24.
Nýlr kaupendur
HÖFUfiSTAÐAEINS
fá gefins það sem eftir er þessa mánaðar
og allan kaupbætirinn sem lofaður er.
au^^a \ ^.öJuBstaBuuuv.
Kauplð
sultationstimum) sínum. Þá sóktu
til hennar menn og konur af öil-
um stéttum, til þess að láta hana
iesa örlög manna úr höndum
þeirra.
Sjálf tók hún sig alvarlega mjög,
vafalaust hefir hún ekki vísvit-
andi farið með svik. Hún skoð-
aði sig sem vísindamann og víst
er um það, að hún hafði sálar-
lega innsýn á háu stigi er gerði
það að verkum að hún gat að
mörgu [leyti séð í gegn um þá
menn sem til hennar Ieituðu.
Alla æfi sína hafði hún sveit
eiðsvarinna fylgismanna, sem
létu mikið yfirj þeim spá-
dómum hennar, sem komið höfðu
fram, svo sem morð Carnotfor-
seta, jarðskjálftana í Messina —
og heimsstyrjöldina. Sá sem fyrst-
ur varð til þess að festa trúnað
á orð hennar og svo að segja
kom henni á framfæri f París var
Alexander Dumas.
Umboðsmenn hafði hún í flest-
um löndum. f Danmörku var
það frú Aarbye, þekt kona. Hún
fékk spádómana senda í sfm-
skeytum og kostaði 300 krónur
hver, höfðu þó heidur fallið í
verði eftir að Madame Thebs hafði
spáð því að ófriðurinn mundi
enda í mars 1916. Þegar þetta
brást sagðist hún hafa átt við
stjörnuárið 1916, en það á vfst
ekki að enda fyr en í maí 1917,
Heimsófriðurinn krafðist einnig
fórnar af þessari konu. Hún átti
einn son og hann fór í herinn.
í skotgröfunum fékk hann lungna-
bólgu, sem dró hann tit dauða.
Hún gat aldrei yfirunnið sorg-
ina út af missi sonarins og hef-
ir það vafalaust átt drjúgan þátt
f því að fara með heilsu hennar.
Bréf frá Budapest.
Balkanhraðiestin var hægt færð
yfir hliðarsporið hjá Herczeghalom,
enn voru til beggja hiiða við spor-
Ið leyfarnar af járnbrautarlestinni,
sem fórst þar við járnbrautarsiysið
hraeðilega. Öðru tnegin var eimreið-
in og óhemja af rusii sem einu
sinni hafði veriö járnbrautarvagnar,
hinu megin Var skrautvagn klofinn
eftir endilöngu. I honum var það
að ungverskur stjórnmálamaður fórst