Höfuðstaðurinn

Issue

Höfuðstaðurinn - 27.02.1917, Page 3

Höfuðstaðurinn - 27.02.1917, Page 3
HÖFUÐST AÐURINN Höíuðstaðurinn, Bezta blaðið. Odýrasta blaðið. Bíndindi gegn ofdrykkju Aiþýðuvald gegn auðvaldi Hreinskilni gegn leynibralli NYJA VERZLUN IN H VERFiSGÖTU 34. Alskonar tilbúinn fatnaður gg gg fyrir dömur og börn ÁSKRIFTARSEÐILL [Oerið svo vel að klippa þenna seðil frá og senda hann á afgreiðslu blaðsins]. Undirskrifaður óskar að verða áskrifandi Maskínolia - Lagerolia Cylinderolia H. I. So ttjSI Oerið svo vel að senda mér kaupbœíirinn og (*J) blöðin frá því i dag gefins. 01 Nafn Hf M & UOL XJ UUUitQ^'uUUUUU Höfoðstaðurinn kostar 6 0 a u r a um mánuðinn, fyrir fasta kaupendur. — Pantið blaðið í síma 5 7 5 eða 2 7. Vátryggið gegn eldi vörur og innibú hjá British Dominions General Insurance Co. Ltd. London. Aðalumboðsmaður á íslandi Garðar Gíslason Reykjavík. Sími 681. \ ^öJttðsAaðnum* Þori. Þorleifsson Ijósmyndari, Hverfisgötu 29. Ljósmyndatími kl. 11—3. Duglegir drengir kaupendur »Höfuðstaðarins«, sem ekki fá blaðið með * w** skilum, eru beðnir að gera viðvart á afgreiðslunni, svo hægt sé að bæta úr því. — Sími 575, óskast til að selja 'göfuðstaðinn Smaauo^s\t\aar kosta 2 V3 eyrir orðið. Skilist í prentsmiðjuna, Ingólis- stræti 2, sími 27, eða á afgr biaðsins í Þingholtsstræti 5, óskast til morgunverka. A. v. á. Fósturdóttirln 132 133 134 Bæði börnin höfðu legið í mislingum, þungí haldin, einkum þó Axel. Sólarhring- um saman hafði honum ekki verið hugað líf. Harmi foreldranna verður ekki með orðum lýst. Harmþrungin og vonlaus, hafði móðirin vakað nætur og daga yfir barninu sínu, og beðið til guðs heitt og innilega, en hinn örlagaþrungni spádómur, að þau greifahjón- in rhundu deyja barnlaus, hreidi hana og fylti angist og kvíða. Greifinn vakti oft hjá henni og þótt hann vildi feginn gera alt, sem f hans valdi stóð, að létta byrgði konu sinnar, fann hann það þó brátt, að konan en ekki maðurinn, á heima við sjúkrabeð- inn. Greifafrúin saknaði Matthiidar sáran, en nú var hún lasin og gat því enga hjálp veitt henni, nema að senda henni við og við hughreystandi línur, og þær voru jafn- an sem sólargeisli fyrir hana og sem græð- andi balsam hinu særða móðurhjarta. Tíminn leið, og smámsamaa rénaði sjúk- dómurinn og bráðum voru börnin úr allri hœttu. Það voru sannarlegir gleðidagar.— Um þessar mundir þóttust menn verða varir reimleika nokkurra, kring um Galdra- nes. Gömlu sagnirnar um Galdra-Ingiríði, fengu nú nýtt líf og breiddust út um alt, auknar og ýktar, eins og títt er um slíkar fregnir, og brátt var ekki um annað talað, en reimleikann í Galdranesi. Greifafrúin hafði þó ekki orðið neitt vör við þessar sagnir. Menn höfðu verið svo hræddir við veikindin á Víkingsholm, að öllum samgöngum hafði verið slitið. Menn vissu það og að greifafrúin vildi engar slík- ar sagnir heyra, og þotðu því ekki að hafa þær svo hátt, að þær nœðu eyrum hennar. * 4* * Sumri var tekið að halla. — Börnin voru nú komin á fætur, en höfðu ekkert verið látin fara út enn. Greifafrúin gat nú óhrædd yfirgefið þau og falið þau umsjá Elísu, og nú afréð hún að leggja af stað til Galdra- ness, að hitta Matthildí. Hún hafði ekki getað heimsókt hana lengi og Matthildur hafði ekki heldur getað komið til hennar. Þegar greifafrúin nálgaðist Galdranes, barst henni að eyrum undarlegur ómur, líkt og einhver syngi raunalega, langt frá; engin orðaskil heyrðust, en aðeins nokkur hiuti lagsins. Það var eitthvað svo sorg- þrungið og átakanlegt í söngnum, að hroll- ur fór um greifafrúna og það var sem ein- hver nístandi kuldatilfinning legðist að hjartarótum hennar. Svo varð alt hljótt aftur og söngurinn þagnaði, en það var eins og grátþrungin andvörp sundurkraminnar sálar, bærust með blænum og fyltu loftið alt um kring. Þegar greifafrúin kom inn til Matthildar, sat hún í svo þungum hugsunum, að hún tók ekki eftir komu gests síns. Greifafrúin nam staðar í dyrunum og varð sem steini lostin, er hún sá þá breyt- ingu er orðin var á vinkonu hennar. — Guð minn góður, þú hefir víst verið þungt haldin, og hefir bannað að Iáta mig vita um það, góða Matthildur mín, og greifa- frúin gekk tii hennar, faðmaði hana að sér og grét fögrum tárum við brjóst hennar, eins og húu hafði svo oft gert áður.

x

Höfuðstaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.