Höfuðstaðurinn - 24.03.1917, Page 1
'•f
HÖFUÐSTAÐURINN
174. tbl.
Laugar daginn 24. marz
1917
Gangverð
erlendrar myntar.
Kbh. 9. Bank. Pósthús
100 mörk 55,60 57.00 57.00
Steri.pund 16.60 16.95 17.00
100 frankar 60.00 61.00 61.00
Dollar 3.51 3.65 3.75
sænsk kr. 107,50 106.50
norsk kr. 103,50 102.50
HÖFUÐSTABURINN
Afli.
Innan Garðskaga er nú sagt að
sé hlaðafli í net. Mjög björgulegt
um að litast i Keflavík og Leiru,
Stephans-kvöld.
í gærkvöld var allmannmargt í
Bárunni. Þar var haldið Stephans-
kvöld, eins og auglýst haföi verið.
Fyrst söng þar flokkur manna
(karlakór)’ tvö kvæði, eftir St. G.
St. Fyrra kvæðið með nýju lagi,
eftir Laxdal, mjög snoturt lag. Þá
talaöi Ágúst H. Bjarnason, prófess-
or, um skáldið, Stephan G. Steph-
anson, og las upp nokkur af helztu
kvæðum skáldsins. Var gerður góð-
ur rómur aö. Þá var sunginn ein-
söngur og þar á eftir flutti Her-
mann Jónasson erindi um St. G.
St. og ættmenn hans. Svo klykti
Ríkharður út meö kveðskap, eu var
kvefaður, svo hinar gullfögru vísur,
sem hann fór með, nutu sín ekki
eins vel og vant er að vera hjá
honum.
Var skemtunin þðkkuð með dynj-
andi lófaklappi.
Earl Hereford
kom inn í gærkvöldi eftir 8 daga.
Hafði fengið 76 lifrarföt.
Jón forseti
kom inn í gærkveldi, hafði um
60 lifrarföt, eftir rúml. viku-útivist.
Messað
á morgun í Fríkirkjunni í Rvík
kl. 5 síðd. síra Ólafur Ólafsson.
Nýársnóttin
veröur leikin í 20. sinn nú um
helgina.
Hámarksverð,
35 aurar, hefir verið sett á rjúpu.
Biskupsvígsla
fer fram í Dómkirkjunni sunnu-
^aginn 22. apríl n. k.
Símskeyti írá útlöndum.
Frá fréttaritara Höfuðstaðarins.
Kaupm.höfn 23. marz.
Sendiherrar bandamanna í Pefrograd hafa viö-
urkent bráðabirgðasijórnina rússnesku.
Framsókn Frakka og Englendinga heldur áfram.
Hámarksverð,
Hámarksútsöluverð á rjúpum er 35 aura rjúpan.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 23. marz 19i7.
S'a- &aaen.
á ógreiddum gjöldum til bpejarsjóðs Reykjavíkur
svo sem : holræsagjöldum, lóðargjöldum« gangstétta-
gjöldum. erfðafestugjöldum, sótaragjöldum, vatns-
skatti Og salernagjöldum föllnum í gjalddaga 31. desember
1915, 1. apríl og 1. október 1916 á fram að fata, og verður
lögtakið framkvæmt að 8 dögura liðnum frá birtingu þessarar
augiýsingar.
Bæjarfógetinti í Reykjavík, 23. marz 1917.
Sig. Eggerz
settur.
Flag
Ideal
Libbys
Royal Scarlet
allar þessar tegundir hafa reynst ágaetar, fást hjá
Jóni frá Vaðnesi.
et í >t»etjt»söU
Aðalfundur
íþróttasambands Reykjavíkur var
haldinn í gærkvöldi. Voru lesnir
upp og samþyktir reikningar fyrir
umliðiö ár, og hafði sambandið
borgað 1000 kr. af þeirri skuldsem
Völlurinn var í. Síðan voru samþ.,
endursk. og endurb. lög fyrir samb.
ein af aðalbreytingunum frá gömlu
lögunum er það, að þar er ákvæði
um þau skilyrði, sem félög þurfa
aö uppfylia til þess að fá inntöku
í sambandið. Stjórnin var endur-
kosin og endurskoðendur sömul.,
2 félög höföu æskt inntöku í sam-
bandið en ákvörðun um það mál
var frestað þar til þessum félögum
hefir veriö gert kunnugt hvers af
þeim er krafist til þess aö þau fái
inntöku í sambandið.
Fundurinn var ágætlega sóktur
og Iýsti miklum áhuga á íþrótta-
lífinu í bænum.
Ingólfur
kom úr Borgarnesi í gærkvöldi.
Samsöng
heldur karlakór úr K. F. U. M.
á morgun. Söngstjóri Jón Hall-
dórsson bankaritari. Þess má vænta
að samsöngurinn verði vel sóttur
vegna þess fyrst og fremst að K.
F. U. M. er að svo góðu þekt,
söngstjórinn einn af þeim beitu,
sem völ er á og hefir lagl mikla
alúð við að sfa flokkinn og síðast
en ekki síst má geta þess, að allir
textarnir sem sungnir verða eru
íslenzkir, að einum undanteknum.
Að þessu sinni þarf fólk því ekki
að hræðast það, að það geti ekki
fylgst með sögnum textana vegna.
Þinglesin afsöL
15. marz:
Sigurður Oddsson selur 22. des.
f. á. Eggert Jónssyni húseignina
Gíslaholt við Vesturgötu fyrir 7000
krónur,
Eggert Jónsson selur 6. janúar
þ. á. Sveinbirni Guðmundssyni
sömu eign fyrir sama verð.
Samúel Jónsson f. h. Jóhannesar
Lárussonar selur 28. f. m. Sveini
Björnssyni lóðina nr. 49 við Lauga-
veg fyrir 3500 krónur.
Theodóra Thoroddsen selur 2.
þ. m. Þórði Bjarnasyni húseignina
nr. 12 við Vonarstræli fyrir 50000
krónur.
Oddur Gfslason selur 10. þ. m.
Hirti A. Fjeldssted húseignina Bakka
við Bakkastíg fyrir 12000 krónur.
Katrfn Magnúsdóttir selur 13. þ.
m. Ásgrími Péturssyni eign sína
Nýlendu fyrir 3000 krónur.