Höfuðstaðurinn - 12.04.1917, Side 1
HOFUÐSTAÐURINN
190. tb!.
Fimtudaginn 12. apríl
II
19(7
-.TaTí-
-‘Ití?'
Nýja
verzlunin
Hverfisgötu 34.
SSSSg
AHskonar tilbúinn
fatnaður
fyrir dömur og börn.
'■ i '"-tXéWj 111
—— 'XTOÍ —'—
HÖFUÐSTAÐURINN
Afmœii.
Ungfrú Ragnheiöur Stefánsdóttir.
Trúlofun
Guðrún Páisdóttir Halldór Lofts-
son.
Island
kemur sennilega síðari hluta dags-
ins í dag.
Sindri
fór í gærkvöldi tii Stykkishólnis.
Hafði meðferðis mikið af kornvöru.
Fisk
var verið að selja á götunum hér
í morgun, en heldur þótti mönn-
um, sem hórfið tnundi af honum
mesta nýja bragðiö.
Reglugerð
um aðflutning á kornvöru og
smjörlíki, birtist hér í blaðinu í
dag, Hefir Stjórnarráðið gefið hana
út nýlega.
Afgreiðslumaður
Bergenfélagsins, hefir beðið að
láta þess fgetiö, að honum sé ó-
kunnugt uut það, hvort Kora eígi
að koma hingað aftur, hann hafi
enga tilkynningu fengið um það.
Ritsímasamband
er aftur komið við Seyðisfjörð,
en mjög illa hefir landsíminn vfða
farið í páskaveðrunum. Staurar
brotnað hrönnum saman og ilt úr
að bæta víða hvar.
»Hundakirkju«:
er&sagt að hertoginn ætli að láta
reisa og verði sjálfur klukkari, af
því hundarnir þoli svo illa hljóðið.
Heyrst hefur það einnig, að mikil-
mennið, með bankastjórann í fóarn-
inu, aetli að veröa meðhjálpari.
ViIIi.
K. F. U. M.
A -D. Fundur í kveld kl.9Va-
Allir ungir menn velkomnir.
Símskeyti írá útlöndum.
Frá fréttaritara Höfuðstaðarins.
Kaupm.höfn 9. apríl.
Þýzkalandskeisari lofar að gefa
Prússum demokratiska stjórnarskrá. Þó
verða framkvæmdirnar látnar bíða þar
tií eftir ófriðinn.
Cuba hefir sagt Þjóðverjum stríð á hendur.
na aiflnm kornvöru og smjörllki.
Samkvæmt heimild í lögum 1, febrúar 1917, um heimild fyrir
landsstjórnina til ýmsra ráðstafana út af Norðurálfuófriðnum, eru
hér með sett eftirfarandi ákvæði:
1. gr.
Allan rúg, rúgmjöl, hveiti, maís, maísmjöl, bankabygg, brís-
grjón, völsuð hafragrjón, haframjöl og smjöilíki, sem til landsins er
flutt héreftir, tekur landsstjórnin til umráða og setur reglur um sölu
á vörunum og ráðstöfun á þeim að öðru leyti.
2. gr.
Þeim, sem fá eða von éiga á slíkum vörum frá öðrum lönd-
um, ber í tœkan tíma að senda stjórnarráðinu tilkynningu um það,
svo þaö geti geit ráðslafanir viðvíkjandi vörunum, sem við þykir
eiga í hvert skifti. í tiikynningunni skal nákvæmlega tiltaka vöru-
tegundirnar og vörumagnið.
3. gr.
Lögreglustjórum bera að biýna fyrir skipstjórum og afgreiðslu-
mönnum skipa, sem flytja hingað vörur þær, er getur í 1. gr., að
eigi megi afhenda slíkar vörur móttakendum fyr en stjórnarráðið
hefir gert ráðstafanir viðvíkjandi þeim í þá átt, er að framan greinir.
4. gr.
Brot á móti ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum alt að
5000 kr. og fer með mál út af þeim sem um önnur lögreglumál.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Þetta er birt öilum þeim til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.
1 stjórnarráði íslands, 11. apríl 1917.
Sigurður Jónsson,
Jón Hermannsson.
Bókaskápur,
lítill, éskast keyptur.
Uppl. í prentsmiðjunni.
Þjóðverjar
í Bandaríkjunnm snúast
með Wilson.
Fulltrúa fundur þjóðernisfélags
Þjóðverja í Bandaríkjunum, sem
s agter aðhafi um 3,000,000 meðiimi
var haldinn nýlega. Mættu þar
þýzkir fulltrúar frá tuttugu ríkjum.
Var þetta eftir að Wilson sagöi skil-
ið við Þýzkaland, og samþykti fund-
urinn að standa fast við hlið Wil-
sons í þessu máli og taka til vopna
með honum ef á þyrfti aö halda.
Sú tillaga var samþykt á fundinum,
að Þjóðverjar skyldu stofna her-
deildir alþýzkar tii að sendast á
móti Þýzkalandi, ef til striðs kæmi.
— Sjóðir, sem félagið hefir safnað
tii hjálpar þurfendum í Belgíu, yrðu
uotaðir til að mæta kostnaðinum,
sem hersöfnun og öðru yrði sam-
fara. Eldlegur áhugi kom í Ijós á
fundinum, að liggja ekki á liði sínu
í þarfir Banbarfkjanna. Einkenni-
lega mun mörgum koma þetta íyrir
sjónir frá háífu Þjóðverja. En er
nokkur maður tii svo lifandi dauð-
ur, að ekki elski hann mest allra
landa landið, sem hann lifir og er
fæddur f.
Þýzkt vikublað í New York, sem
heitið hefir »Fatherland* (Föður-
landið), hefir ákveðið að breyta um
nafu eftirleiðis og nefnast »New
Worldí (Nýja verðldin). Er þetta
einn vottur hreyfingar þeirrar, sem
nú gerir svo mikið vait við sig
syðra, »Bandaríkin eiga aö sitja í
fyrirrúmi*, og leggur ritstjóri blaðs
þessa áherzlu á það, að þeir Þjóð-
verjar, sem borgarar séu Bandaríkj-
anna, geti ekki tekið upp málstað
Þýzkalands ef hann sé andvígur
velferð Bandarfkjanna.
(Heimskr.).
Bannlögin.
I.
Bannlögin eru brotin, því neitar
enginn — jafnvel brotin frekar en
mörg tða flest önnur lög — til
þess að bölvun áfengisins haldist
sem mest í landinu, þjóðinni til
niðurdreps og til þess að lögin
séu brotin sem mest. Virðist það
sem verst er í manneðlinu aura-
girnd, lastafýsn einstakra manna —