Höfuðstaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Höfuðstaðurinn - 15.04.1917, Qupperneq 3

Höfuðstaðurinn - 15.04.1917, Qupperneq 3
HÓPUÐSl AÐURINN »Eg held að eg verði starfsmað- ur einhverskonar fyrir Western Union*. »Hefiröu mikiö kaup?< »Tíu á viku — stundnm meira«. »Segðu okkur frá þvf«. »Félagið útvegar okkur reiðhjól, sem kosta 40 dali, fyrir 25,75 og skó sem annars kosta 4—6 dali fáum við fyrir 2,40 sökum þess aö félagið kaupir svo mikið. Viö fá- um 2l/s cent fyrir hverja sendifetð og sama fyrir svar þó við tökum það í sömu ferðinni*. »Hvað ertu gama!i?« »15 ára«. »íslar.d er vist nokkuð kalt, er þaö ekki? Hvernig líkar þér við Ameríku?< • Bandankin eru mikið land. Mér líkar vel við fólkiö og veðrið. Það er ekki eins ka't á íslandi eins og í Michigan, en veturinn þar er í 8 mánuöí*. »Á eg aö taka nokkuð svar? Þakka«. »Eg vil heldur að þessi drengur komi en nokkur annar< sagöi skrif- ari fylkisstjórans þegar Qeorg lok- aði hurðinni. Og aðrir segja það sama. Afengispeningar og blöð. —0— Qott dœm! tár Danmðrku. Við og við heflr geflst tæki- færi til að minnast eins, sem býsna algert er f Ameríku,S en kemur þó fyrir nær, en það er að á- fengisframleiðendurmeð auðmagni sínu reyna að ná tökum á blöð- unum, og gera þau að verkfær- um sínum. Aðferðirnar, sem til þessa eru notaðar, eru ólíkar og fer alt eftir ástæðum. Stundum stofna áfengisframleiðendur sín eigin blöð, stundum kaupa þeir yfirráðin yflr öðrum eldri og vel þektum blöðum.f> Stundum láta þeir sér nægja að kaupa sér vel- vild blaðanna, annaðhvort með fjárstyrk, eða þá með miklum og velborguðum auglýsingum. Oft kemur það fyrir að blöðin eru „mötuð“ kauplaust frá auglýsinga og „agitations“-skrjfstofum áfeng- isframletðenda með greinum og pistium, þar sem áfengismeðferð öll er lofuð en barist á móti bind- indisstarfseminni. Hér í Evrópu, og einkum á Norðurlöndum, er áherslan iögð á auglýsingarnar og „agitationir“ til þess að fá yflrráðin yflr blöð- unum. Og er þá gengið eins langt og unt er. Nýjasta dæmið er frá Kaupmannahöfn. í nokkur ár hefir verið gefið þar út dagblað, „Hovedstaden *, eina dagblaðið í Khöfn að þvíer vér höfum fundið, sem hefir sýnt skilning á bindindisstarfseminni. Blað þetta segir eftirfarandi frá áreksti sinum við áfengisfjármagn- ið: Vér komum fyrir nokkrum dög- um meö grein um bráöabirgöabann gegn tilbúningi áfengisvökva/'sem fleirí og fleiri krefjast að koutið veröi á. Á þesrum tímum, þegar vér líðum fyrir kolaskort og þegar vér höfum allar ásiæður til að fara gætilega með kornbirgðir vorar, þá skilja t. d. bændurnir ekki hvers- vegna þeim er bannað að fóöra skepnur sínar með kotni þegar á- fengis ftamleiöendum er leyft að gera áfengi úr korninu, þar sem hvorki menn n« skepnur þ u r f a áfengis. Og í borgunum situr mörg húsmóðirin og húsbóndinn hnuggin og spyr hvernig á því standi, að kol fást ekki til þess að framleiða rafmagsljós og suðugas, þótt ölgerðir og brennivínsverk- smiöjur hafi miklar kolabirgðir. Vér iéllumstá þessa skoöun. Og án þess að minnast nokkug á alls- herjar varanlegt bann, fyrir alt land- ið, þá mættum vér með bráða- byrgðarbanni undir núverandi sér- stöku kringumstæðum, þegar mestu ástæður eru til þess að spara það sem unt er aö spara. Grein þessi hefir samt oröið oss dýr svo sem vér og bjuggumst við. Auglýsingar frá verksmiðjun- um og skyldum iðnaðargreinum, gera löiuverða upphæð árlega. Og stjórn sameinuðu öigerðarhúsanna hefir líka flýtt sér að ákveða að þegar maður taki slíkar greinar um bráðabirgðabann verði maður vit- anlega útilokaður frá viðskiftum við þá sem bannið kemur óþægilega. Vér segjum þetta nú ekki til þess að gerast séistaklega harðir í garð sameinuðu ölgerðarhúsanna, sem ómögulega verður sagt að hafi komið jafn heimskulega fram og þegar »Hovedstaden« byrjaöi að koma út, þegar þau þá sögðu oss fjárhagslegt stríð á hendur vegna þess aö vér höfum hvatt þá bæjarfulltrúa, sem þá átti að kjósa til þess að heröa á kröfunum um Ijós og loft f veitingaknæpunum, svo og hvað veitingatimann snerti. Nú aftur á móti þegar um er að ræða bráðabirgðabann gegn á- fengistilbúningi — þess er þó að gæta að ekki var taiað um bnsin gegn tilbúningi >skattefrí« drykkja — þá er aðferð þeirra skiljanbgri, og eins og áður er sagt ekki meira en við var að búast. Nei, þegar vér getum þessa hér, þá er það vegna lesend- anna. Vér viljum að þeir viti hvaða þvingun blöðin eiga oft við að búa og hve mjög fjárhags- ástæðurnar geta orðið þvingandi fyrir blað, sem ekki viil iáta binda sig af auglýsingunuro. Spurningin um þaö, hve roikiö vald auðmann- anna í raun og veru er yfir blöð- unum, varöar almenning mikiilega. Af góöum ástæðum fær spurning þessi ekki það svf»r,' sem þolir dagsbirtuna. En eitt og annað tilfelli, — eíns og bannfæring þessi af hálfu öl- gerðarhúsanna — getur þó varpað d á I i 11 u Ijósi á málið og að minsta kosti verið íhugunarefni. — Pað sýnir hve mikil freisting ligg- ur í þessu fyrir blöðin og hve erfitt það altof oft er að reiða sig á áreiðanleik biaðanna. Svo mörg eru orð danska blaðsins. f>að vanta heldur ekki hér Svíþjóð tilfelli, þar sem grunur virðist leika á, að áfengisfjármagn- ið leiki neitt smáhlutverk hvað snertir auglýsingar, og ekki ein- göngu þær, heldur jafnvel les- mál líka. Öðru vísi verður varla skýrt það æði sem sum blöðin sýna í því að berjast á móti öllu sem bindishreyfinguna snerttr. — En því frekar er það áríðandi að vér eins og Bandartkjamenn gef- um alvarlegar gætur að hngsun- um og ráðagerðum sem miða að því að gera blöðin óháð að minsta kosti áfengisfjármagninu. (Reformatorn). Fósturdóttirln 273 Eins og þeirra líma siður var, hafði Axel veaið saemdur heiðursnafnbót og gerður varðliðsforingi í hestliðasveit Iffvarðarins, sem nefnd var »Aust-GauIa-riddaradeildin«. Sigrfður var naerri 16 ára, fögur og blíð eins og vormorgun. Hrafnsvart hárið féll f bylgjum um herðar og bak og alt í hnés- bætur. Vöxturinn allur í samræmi og hreyf- ingar hennar léttar og yndislegar. Hún var alment kölluð »skerjagarðs lilj- an« því hörundslitur hennar nálgaðist meir liljuna en rósina. Oreifahjónin unnu henni hugástum og væri greifinn henni sem faðir, gekk greifa- frúin henni engu síður t móðurstað. Sigríður hélt enn áfram með kirkjugarðs- göngur sfnar, og hverju hún hvíslaðt að trjánum og blómuuum þar úti, vissi enginn nema guð og blærinn sem þaut f trjánum á kvöldin. — Aldrei nefndi hún gröfina á nafn, ekki einu sinni við frú Ehrenberg, en hún gat sér til um hugsanir hennar og það sem lcegi henni setíð svo þungt á hjarta, þóttist lesa spurninguna í svip hennar. innileg vinátta var enn á milli Axels og Sigríðar, en greifafrúin sem var glöggskygn eins og konur eru jafnan vanar að vera á 274 slíka hluti, þóttist Jesa í augum Axels ást til Sigrfðar og hún hugsaði til þess með htyllingi, ef það skyldi koma fram, sem hún hafði lengi óttast. Oreifafrúin áleit því hyggilegast að aðskilja þau um lengri tíma og láta Sigríði fara til móður Jakobs greifa. — Fjarlægðin veldur oft gleymsku og fyrnast ástir sem fundir. En hún vissi ekki hvernig hún ætti að víkja að þessu máli við greifann, það var svo viðkvæmt og ömurlegt { alla staði. jakob greifi hafði ekki verið jafntíður gestur á Vikingsholm og fyrrum. Hann var oröinn aðstoðarmaður foringja síns og varð aö dvelja hjá honum lengstum. Oftast nær kom hann þó heim um helgar og dvaldi heíma yfir sunnudaginn, þar kunni hann best við sig. Vináttuþel það, er Jakob greifi hafði jafn- an sýnt Sigríði, frá þvl hún kont fyrst til Vikingsholm, hafði þróast, eftir því sem árin liðu og greifafrúin óskaði og vonaði, að sú vinátta yrði enn meiri og innilegri þar sem barntð var nú orðið að gjafvaxta mey. — ó, að hann elskaði hana, hugsaði hún 275 oft — og eg fengi að ieggja blessun mfna yfir ástir þeirra og sameíningu. Það var fagurt sumarkveld. jakob greifi hafði verið gestur um tfma á Vikingsholm. Magisterinn og Louise voru trúiofuö, og dvöldu nú í prófastsgarði. Oreifinn var úti á enjum að iíta eftir heyskapnum og frú Ehrenberg hafði farið í sjúkravitjun til gam- allar konu. Oreifafrúin, Jakob og Sigríður sátu úti í laufskálanum. Oreifafrúin þóttist hafa tekiö eftir því nú, meðan Jakob hatði dvalið hr ima, að hann hefði litið hýrum augum íil Sigríðar, fremur en nokkru sinni áður. Þótti henni vænt um. Hefði Sigríður ekki verið viðstödd, mundi greifafrúin hafa sagt frænda sínum hvaö henni bjó í brjósti. En nú varð hún að þegja, en gladdist í hjarta sínu yfir því, sem hún vonaði og óskaði að verða vildi. Hún þóttist sjá fagra sýn fram undan. Alt í einu bar skugga fytir dyrnar, og Axel slóð í dyrunum, beinvaxinn, hár og tfgulegur. Sigríður hafði tekið skjótum breytingum við komu hans. Hún horfði niður fyrir sig og hrafnsvörtu lokkarnir hennar léku um blóðrjóða vangana.

x

Höfuðstaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.