Ingólfur

Issue

Ingólfur - 26.06.1904, Page 1

Ingólfur - 26.06.1904, Page 1
 INGÓLFUR. II. ÁII. Keikjavík, suniiudaginii 2G. jiiní 1904. 27. blað. ÞÝZKAR BÆKUR OG BLÖÐ úl.vegar E. Gunnarsson, Laufásv. 6, Rvík i l llli ii i iii ii l' i li i i i i i i i i, l i ll H'i i ■ l i l i l l l ii i i i ii i i ii i i i iiiiiilinii ÞJÓBHÁTlÐ r verður haldin á Landakotstúninu eins og að undanförnu 2. ágúst 1904. Nánara auglýst síðar. í aðalnefnd þjóðhátíðarinnar. Reykjavík 22. júni 1904. Kristján Þorg-rírassoii. Indriði Einarsson. Hannes Hailiðason. Pétur Jónsson. Guðmundur Jakobsson. Haukuriiin. Grott áttu, hraðfleigi haukur, sem hamrana biggir! Frelsið er eign þín og arfur frá ómunatlðum. Himinsins heiðblái faðmur, hafið og fjöllin alt er þitt víðlenda veldi — voldugi haukur! Augu þín morgninum mæta þá mirkt er í dölum, sólgeislinn firsti er sindrar þú svefninum léttir. Útsín frá tindinum efsta í árdegisfriði unt er þór einum að líta — alfrjálsri haukur! Skuggarnir láglendið likja, þó ljóst só hið efra, bigðin er þögul, hún blundar i blækirrum friði. Einstakur ljósgeisli læðist að lokuðu blómi, svo rennur sólin liið neðra og sveitirnar vekur. Blika þá dögglitir dalir í dagroða hjúpi, öræfi, óbigð og heiðar með alfrjálsum hjörðum; vötnin með heiðrikum himin í hildjúpu fangi, særinn og fannhvítir fossar að fótum þór singja. Fjallanna frjálsborni sonur! þér fegurðin lítur, hollvættir himinsins líða þinn hástól í kringum; sægolan svifin af hafi á svalandi vængjum sólheitum sunnanblæ mætir með söngóm úr dalnum. Volduga vængi þú breiðir — í vorloftsius bilgjum stígur þú hærra og hærra Langfrjálslindasta lífsábirgðarfélagið á Islandi er Umboðsmaður: Jens B. Waage. og hverfur loks sínum. Síðasta bergmálið sofnar af sönghljómi jarðar, himinþögn hátignardjúpa þín hjartaslög rjúfa. * * * Ljóðafugl lítinn ég geimi — hann langar að fljúga „lengst út i ljósið og daginn“ og lífsglaðan singja. Helst vildi’ hann haukum þeim líkjast, sem hæst geta flogið, fái hann ei filgt þeim til himins, fljótt skal hann deia! Hulda. Lítilþægir liðsmenn. —:0:— Nokkrir af þeim svokölluðu heima- stjórnarmönnum, sem hafa verið of ráð- vandir til þess að láta sér linda undir- skrift Deuntzers undir skipunar- bréf hr. Hannesar Hafsteins, hafa viljað telja sjálfum sér trú um, að úr þessu gæti orðið bætt með því að hr. H. H. skrifaði einnig sjálfur undir. Þessi átilia firir þá sjálfa til þess að afsaka framkomu ráðgjafans er rojög auðvirðileg þegar hún er brotin til mergjar. Það sem alt veltur á í þessu máli, er einuugis, hvort gilda skal eða gilda skal ekki sá ifirlístur vilji síðasta alþingis, að sérmálalöggjöf vor öll eigi að vera ó- háð hinu danska ráðaneiti konungsins. Hitt er marklaust, hvort sérmálaráðhcrr- ann er einnig látinn vera raeð í ráðun- um eða als ekki, því að standi firir fram- an hann nafn og ráðstöfun hins danska ráðherra, þá kcmur sá íslenski á eftir, sem danskur embættisbróðir hins, er sækir vald sitt til sömu uppsprettu: danska ríkisvaldsins. Forsætisráðherrann stendur á skjalinu eins og sú tala, sem hefur sjálfstætt gildi, hvað sem líður núlli því, sem kinni að koma á eftir. Menn kunna að segja að undirskrift Hafsteins gæti þó haft það gildi, að hægt væri að koma fram ábirgð á hondur hon- um firir ráðherraskipunina. En til þess er að svara, að first og fremst gæti á- birgðarspurningin aldrei komið fram í því atriði. Maðurinn mundi naumast verða uppvís að því, að hafa gert sig sekan í vítaverðum misskilningi, þótt hann dæmdi sjálfan sig hæfan til stöð- unnar. Og í öðru lagi þarf ekki undir- skrift hans til ef um ábirgð væri að ræða, því að ákvæði ráðgjafaábirgðarlaganna ná einnig til þess, að ráðgjafinn hefur látið viðgangast, að hann var skipaður til þessa inikilvæga embættis. Skipunarskjalinu hefur verið haldið leindu firir almenningi, en í hirðblaðinu hafa staðið dilgjur um það einhverjar, að óvíst væri að vita, nema H. H. hafi einn- ig skrifað undir það. Það er nú naum- lega hugsanlegt, að ráðgert sé að bæta undirskrift þessari við þegar H. H. kem- ur næst á konungsfund. En á hinn bóginn mun óhætt að fullirða, eftir því sem upp- líst hefur orðið með umsögn kunnugustu manna, að enginn annar en Deuntzer einn hefur gefið út skipunina. En hvort sem nafn hr. H. H. filgist þar með fir eða síðar, þá verður það jafn-vonlaust verk að fá ærlega íslendinga með heil- brigðri skinsemi til þess að þiggja þá réttlæting á þessu broti heimastjórnarráð- herrans gegn vilja alþingis, gegn sínum eigin orðum og gegn þeim skíra firirvara sem öll þjóðin hefði látið uppi, þá er hún var leidd til þess, að fallast á „stjórnar- bótina“. Það er annars hriggilegt, að jafnvel nú, eftir að grímuleikur heimastj.leiðtoganna hefur snúist upp í opinbera og viður- kenda baráttu á móti öllum skoðunum um sjálfstæð réttindi íslands, skuli vera til þeir menn af nokkrum flókki, utan klíku Danasinnanna sjálfra, er vilja vera að bera í bætifláka og afsaka slíkt atferli sem hér er um að ræða. Það hlítur að vera gott vatn á millu þeirra er vísvit- andi gera nú alt til þess að venja íslend- inga af öllum sjálfstæðishugmindum sín- um, er þeir heira og sjá grunhigna og meinlausa mótstöðumenn innlimunarinnar vera að unga út hraparlegum vitleisum og vanþekkingar-firirslætti til varnar þeirri klíku, er mennirnir þikjast þó vera að berjast á móti. Betra væri og hollara, að slíkir menn gengi hreinlega ifir í flokk Danasinna, er vilja níða úr íslendingum seinustu rækt- artaugar þeirra til landsréttinda og sjálfs- stæðs þjóðernis, vilja láta sem þeir miði að öðru takmarki í bráðina og annað veifið, til þess að þeir geti komið sínu betur fram, og treista því, að valdið, beitt með hæfilegri hlutdrægni með eða móti, muni að lokum getá kveðið niður alla verulega mótspirnu landsmanna gegn innlimunarfarginu danska. Á s g r í m u r.

x

Ingólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.