Ingólfur

Tölublað

Ingólfur - 26.06.1904, Blaðsíða 2

Ingólfur - 26.06.1904, Blaðsíða 2
106 INGOLTUR. Nír kjötmarkaður. Alþingi veitti í íirra 2000 krónur til þess að senda mann til útlanda, er skildi kinna sér markað á islensku sauðakjöti. Var það tilætlun þíngsins, að maður þessi skildi Ieita að níum markaði og riðja kjötverslun landsins níar brautír. Þetta var lofsvert í alla staði og mjög mikilsvert, þar sem hér er um að ræða þá vöru, er landbændur hafa mesta og þeirra hagur er mest undir kominn að vel seljist. Yar og mikill áhugi á því meðal bænda, að ítarlegar tilraunir væri gerðar í þessu efni. Hafði málið verið rætt áður af ímsuin áhugamönnum og þótti þeim vænlega áhorfast, er þingið tók svo vel í strenginn. Bn alþingi á ekki úr að aka. — Það er nú alkunnugt og viðurkent, að valdaflokk- ur þingsins er nokkurs konar „innbirðis lifsábirgðaríélagu, þar sem sérhver ber sinn hlut frá borði. Hefur þetta komið fram svo margvíslega að langt væri upp að telja. Hver hefur fengið sína hlutdeild. Liðtækir utanþingsmenn hafa einnig feng- ið sinn hlut. Lífsábirgðarfélagið hefur farið svo trúlega í sakirnar, að það hefur jafnvel ekki viljað láta kosníng í sóknar- nefnd falla á aðra en þá, er haft hafa sömu landsmálatrúna sem „miðstjórninu. — Þingflokknum þótti nú auðvitað ljótt að láta „einn þarfasta þjóninn“ verða út- undan. Brjóstgæðin réðu, svo að Her- manni á Þingeirum voru fengnir pening- arnir og sendiförin. — Að vísu var það búnaðarþingið sem réð erindrekann, að nafninu til, en þar voru hæstráðendur sömu menn, sem at- kvæðamestir eru í lífsábirgðarfélaginu á þingi og að tillögum þeirra og undirlagi annara félagsbræðra fór nú erindsreka- valið eins og það fór. Reinslan sjálf hefur best vitni borið, hvort þessi ráðstöfun var jafnholl landinu, sem hún var samkvæm meginreglu vald- hafanna. Erindrekinn hefur nílega skírt frá för sinni og árangri hennar í Búnaðarritinu. Vér teljum með öllu óþarft að gera að umtalsefni allar þær málalengingar, sem erindrekinn hefur um þetta ferðalag sitt og afrek, enda þótt þær sé nálega eini beini árangurinn af för hans. En þessar voru helstu framkvæmdirnar: Kjötbjóður kemur við á tinnfhöfn í Noregi, talar þar við fáa menn og hefur sig lítt í frammi. í því landi hafði hann einnig áður fengið allmikla reinslu um kjötmark- að, því að síðustu árum höfðu nokkrar kjöttunnur úr hans bigðarlagi verið seld- ar einhverjum smásölum á Jaðri. Þar var því ekkert verulegt að gera, því að kjötbjóð var ekki kunnugt um, að íslenskt saltkjöt hefur til þessa tíma verið selt einna mest í Noregi. Næsta ár á undan voru seldar þar um 8000 tunnur. Erind- rekinn hraðaði ferðinni þaðan sem mest hann mátti og komst til Kaupmannahafn- ar. Þar sat hann lengi vetrar. Þó var hann mjög fljótur að koma ár sinni þar firir borð og reka erindi sín. Var hann svo heppinn að fá þegar í stað marg- víslegar vitranir um það hvert hann skildi fulltingis leita. Ekki segir hann hverjar þær voru, en „alt virtist benda á, að maður inn væri stórkaupmaður Sigurður Jóhann- esson.“ Þar með hafði erindrekinn náð takmarkinu, náð í nían erindreka, sem leisti hann af hólmi og gat svo verið á- higgjulítill það sem eftir var vetrarins. Reindar skrapp hann til Noregs sem snöggvast. Þar lofuðu þrír kaupmenn að reina að selja íslenskt kjöt næsta vetur. Erindrekinn tekur sjálfur fram í lok frásagnar sinnar árangur fararinnar og er hann þessi. („Takið þið nú vel eftir“): Ef landsmenn vilja þá geta þeir sent velnefndum Sigurði Jóhannessini 2000 tunnur af kjöti og reinir hann að selja það svo dírt sem unt er og afla því álits.1 — Væri heppilegast, að kjötið kæmi frá þeim höfnum, sem flitja út best kjöt. Hér gefst á að líta nia markaðinn, sem erindrekinn hefur útvegað. Ekki er hann nú margbrotnari! En um meðferð kjötsins leggur erind- rekinn áherslu á þetta: „Meðferð kjötsins sé nægilega hreinleg". (Ágæt uppgötvun). „Flokkun þess sé hagkvæm og áreiðan- leg". — (Hér er hængur á: — „Skoðanir hafa verið skiftar um, hversu hagkvæm- ast værí að flokka kjöt frá íslandi, og get eg enn eigi homið með ákveðnar til- lögur í þá átt,“ segir Hermann sjálfur. Flokkunin verður því að bíða first um sinn). „Sem stitstur tími líði frá því að fénu er slátrað, til þess að kjötsins er neitt.“ (H. vill þó helst hafa einn kjötsala í allri Danmörku til þess að salan gangi nógu dræmt og verðið haldið hærra vegna kjöt- eklunnar). „Söltun sé bundin við, til hvers kjötið er notað og hvenær það er selt.“ (Engar ákveðnar tillögur koma þó um söltunina, svo að uppgötvanin er nokkuð óljós). Þetta eru „bendingarnar" um meðferð kjötsins, landar góðar! Dírmætar, enda kosta þær 2000 krónur. — Búnaður. Ársfundur Búnaðarfélags íslands var haldinn í Iðnaðarmannahúsinu 22. þ. m. Lagður var fram reikningur félagsins síðastl. ár; í sjóði var við árslok 31236 kr- 60 aura. Björn Bjarnarson, hreppstjóri, í Gröf hreifði því að nauðsinlegt væri að fá á- reiðanlega vitneskju firir því hver skil- vindutegund væri hentugust hér á landi og hver væri mest notuð á smábúum á Norðurlöndum. Lofaði félagsstjórnin að reina að fá upplísingar um það eftir því sem kostur væri á. ') Hr. S. J, hefur selt islenskt. kjöt í fjölda- mörg ár, og er eflaust svo góður kaupmaður, að hann hafi gert sér far um að halda fram gæð- um þoss og verði svo hátt sem unt var, — svo að mörgum sínist hér Iitlar níungar á ferðum. [26. júní 1904.] Rætt var um það að nauðsinlegt væri að hraða því sem mest að útbreiða kunn- áttu og æflngu í plægingum. Vigfús Berg- steinsson á Brúnum bar upp svohljóðandi tillögu er var samþikt ineð öllum atkvæð- um: „Fundurinn skorar á búnaðarþingið að láta svo fljótt sem ástæður leifa kenslu í plægingum fara fram að rainsta kosti á einum stað í hverri af þeim síslum lands- ins, sem hefur landbúnað að aðalatvinnu- vegi.“ Björn Bjarnarson vakti máls á því að stuðla þirfti að því af alefli að grasfræ- sáning irði sem almennust, og taldi hann ráðlegt að nota útlent grasfræ með því að grasfrærækt hér innan lands mundi verða stopul og kostnaðarsöm. Kom hann fram með eftirfilgjandi tillögu sem samþikt var í einu hljóði: „Fundurinn skorar á búnaðarþingið að hlinna með stirkveitingum að ræktun lands- ins með grasfræsáningu, þegar reinsla er fengin firir hverjar grasfrætegundir best þrifast hér.“ Vigfús Bergsteinsson skírði frá að hann hefði nílega rifið hús þar sem galvanícerað járn hafði verið undir torfþaki; hús þetta hafði verið rakalaust framhísi, bigt firir 21 ári, og var nú járnið eftir þennan tíma alveg óskemt er húsið var rifið. Á eftir Búnaðarfélagsfundinum síndi verkfræðingur Palmer frá Stokkhólmi skil- vinduna Alfa-laval og strokk af nírri gerð. Hann síndi hvernig skilvindan er tekin sundur, hreinsuð og sett saman aftur og gerði hann það á 5—10; mínútum, svo skildi hann nímjólk og bjó til smjör í strokknum og bnoðaði og fórst alt þetta svo höndulega að líkara var liprum kven- manni. Jafnframt fór hann nokkrum orð- um um skilvindur og mjólkurgerð, hvatti menn til að fjölga kúnum því hér væri mjólkin ágæt og gætum vér þessvegna fullkomlega þolað samkepni við Dani og Svía með smjör á enska markaðinum. Um leið og allir höfðu fengið ofurlítinn smjörbita upp í sig var þessum fjöruga fundi slitið. Síningar. Það er að kalla má nítt í búnaði vorum að hafa síningar á búpen- ingi. Hefur það víða reinst gott ráð til að hvetja menn til umbóta á meðferð á fénaði og kenna mönnum hverjir kostir séu bestir og hvernig þá megi skapa. Búnaðarfélag íslands hefur veitt 1125 kr. til verðlauna, þó með þeim skildaga, að jafnmikið fé komi annarsstaðar að. Síningar hafa nú verið haldnar í Rang- árvallasíslu, Skaftafelssislum, Árnessíslu, Kjósarsíslu. En í Skagafirði og Húna- vatnssíslu verða þær haldnar innan skams. Er Guðjón ráðunautur Guðmundsson farinn norður í þeim erindum. Verður síðar getið árangursins af síningum þessum, þá er þeim er lokið.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.