Ingólfur

Issue

Ingólfur - 26.06.1904, Page 4

Ingólfur - 26.06.1904, Page 4
108 INGOLFUR. [26. júní 1904.] Embættisprófí í læknaskólanum hafa þeir lokið: Mattías Einarsson með hárri 1. eink. (188 st.) og Jón Rósenkrans með hárri 2. eink. (147 st.). Sie semper tyrannis. Bobrikoff landshöfðingi Rússakeisara í Finnlandi hefur verið Finnum og frelsi þeirra hinn óþarfasti maður og ilt undir hans valdi að búa. Farþegar á „Ceres“ höfðu fregnir frá Finnlandi er þeir komu til Leith. Yoru þaðan sögð þau tíðindi, að maður einn að nafni Eugéne Schau- mann, hér um bil 30 ára að aldri, sonur ráðherra eins, hefði skotið Bobrikoff til bana og sjálfan sig á eftir. Er það drengilegt verk og sínir að enn eru þó menn til, sem kunna að látaharð- stjóra fá makieg málagjöld. Fari öllum harðstjórum sem þessum. Frá útlöndum. Kaupznannahöfn 15.—6, —1904. Ófriðurinn. Það hjakkar í sama far- inu enn. Smábardagar á landi og sjó hafa þó verið nokkrir, en eigi er auðið að vita með vissu, hvert tjón hefur hlotist af þeim. Fregnir þær, er koma frá Péturs- borg, segja að Japansmenn hafi beðið mikið tjón á sjó og landi, mist mörg skip og þriðjung landhersins, en það er svo langt frá því, að fregnir þessar hafi sann- ast, að menn vita nú með vissu að jap- anski landherinn er í góðu gengi. Hvort skipastóll Japansm. hefur orðið firir nokkru verulegu tjóni, látum vér því liggja milli hluta first um sinn. í bardaga einum á landi mistu þó Japansm. allmikið lið. Þeir sóttu hæðir nokkrar, er Rússar höfðu á valdi sínu og er bardaginn tók að hallast á Rússa brugðu þeir upp hvita fánanum, að sögn Japansm. Japansm. hættu þá aðsókninni og gengu upp á hæðirnar til að taka móti föngum og herfangi, en er þeir komu að skotgörðum Rússanna, létu þeir skotin dinja á japanska liðið. Japans- menn féllu þar unnvörpum, vígamóðurinn ógs og hver ofurhuginn á fætur öðrum stiklaði ifir fallna liðsbræður, hver her- flokkurinn á fætur sótti fram svo að segja í opinn dauðann. Slík áhlaup stóðust Rússar ekki og flíðu sumir, en aðrir voru herteknir. Mjög ódrengilegt bragð af Rúss- um, sé það satt, að þeir hafi þannig mis- brúkað hvíta fánann. Ifirforingi japanska landhersins er skip- aður Jamagata, sá hinn sami, er stírði her þeirra í ófriðnum við Kínverja. Arturs- höfn er stöðugt sótt bæði á sjó og landi. Allar fregnir frá Artúrshöfn eru óljósar og óáreiðanlegar, en svo lítur út sem vista- skortur muni þar innan skams, sagt er og að herinn fái ekki fullan verð. Eru slíkar fregnir hafðar eftir Kínverjum, er flúið hafa burt úr borginni. Eftir síðustu fregr.um er útlit firir að Kuroki muni fara að sækja á Rússaherinn. Togo heldur Artúrshöfn og ströndunum í kring stöðugt í herkví. Japansm. leggja alt kapp á að hreinsa hafið og hafa þegar eiðilagt urm- ul af rússneskum tundurvélum. Norður- floti Rússa gerir ímsar óspektir, rænir skip og sagt er að hann hafi jafnvel skotið á japanskar borgir. Er það mest af óheppi- legum atvikum, þoku og þessháttar að norðurfloti Japansm. hefur ekki náð í Rússann ennþá. Líkur eru til að nú horfi til stórtíðinda í Kóreu. Vladivostockflot- inn hefur níðst á tveim fólksflutningaskip- um Japansm. og sökt þeim. Khöfn, 17.-6—1904. 1 morgunblöðunum er ímislegt um Norð- urflota Rússa, en fregnirnar ern þó ekki áreiðanlegar. Sagt er að floti Rússa hafi skotið í kaf nokkur flutningaskip firir Jap- önum og hér um bil 1000 manns hafi beðið bana af Japönnm, þótt margir kæm- ust af, en um afdrif rússneska flotans eru sagnirnar óljósar, sumar fregnir segja, að flotinn hafi með öllu verið hertekinn af norðurflota Japansm., en aðrar fregnir, sem stafa frá Rússum, segja að tvö skip rússnesk hafi komist undan. Á landi engar sérlegar níar fregnir, þó virðist sem Japansm. beri alstaðar hærra hlut, eftir morgunblöðunum að dæma og það eiga þeir líka að gera. 2 skæðar orustur nílega, hin firri c. 16. júní, við Nafankau. Firir Rússum hers- höfðinginn Stackenberg. Herma fregnir svo frá, að Rússar hafi mist 10,000 manns, sem ímist hafi verið drepnir, særð- ir eða herteknir. Ekki getið um fall af Japönum. Önnur orusta við Telisse c. 18. Þar var firir Japönum Oku hershöfðingi, sig- urvegarinn frá Nanshau. Höfðu Japanar betur. Rússar mistu 2000. (Eftir enskum blöðum til 20. júní). Ennþá er óaldarbragur í Armeníu, sagt að 3000 manna hafi beðið bana og 50 borgir eiddar, Hvert sníst hjartagæska stórveldanna? Ingvi konuiigur. Eftir Gustav Freytag. Hann var maður mildur í skapi, hraustur og göfuglindur. Sé ég að sini hans er eins farið. Þá er ég sá hinn unga af- reksmann að leikum firir skemstu, þá var mér sem rætst hefði gamall draumur. Því að í fornvinaraugu sá ég þar, en eigi gestsauga, og á ní tók ég í þá konungs- hönd, er ég hafði eitt sinn snortið erlend- is. Firir því vil ég biðja honum þjóðar- hilli og sætis á bekk vorum“. Hinn gamli maður settist hægt niður og var gerður góður rómur að máli hans með vopnabraki: „Heill Járnskeggja! Heill Ingva konungi! Og gestarétt skal hann af oss hafa“. Jarl stóð þá upp og sleit þinginu og mælti: „Þakka vil ég iður, vinir rnínir og land- ar. En það skal alt gleimt vera, sem hér hefur mælt verið og skal engi við annan erfa það er á milli bar. Því að einhuga áliktun samir höfðingjum þjóðarinnar, svo að eigi spilli sundurlindi friðinum". Ásvaldur jarl gekk frá manni til manns og tók handsöl að þessu. Sintram hafði og handsöl að því, og brosti vingjarnlega, er jarlinn leit á liann. Hróðmar veitti handsöl og mælti um leið: „Er mér það gleði“, og fór þá bros um hin alvörugefnu andlit, er menn heirðu orð hans. Stall- arinn lauk nú upp dirum og gengu menn út á engið, þar sem Iandsmenn höfðu safn- ast saman. Þar veitti mannfjöldinn Ingva landsvist með fagnaðarópi. Buðu þeir honum að ganga í mannhringinn og filgdu honum siðan til arinelds jarls sem siður var til. Þar unnu þeir hvorir öðrum eiða Ingvi og höfðingjar landsins. Skilagrein. Meðtekið til minnisvarða Jo'nasar llallgrímssonar: Innborgað 21/e- Frá Leikfélagi 592,75 Söngfélagi stúdenta 50,00 Gjöf frá Magnúsi Torfas. sislum. 22,50 — — Ragnh. Pétursd. Engei 10,00 Halldör Jónsson. verður að öllu forfallalausu haldinn í dómkirkjunni næstkomandi miðvikudag 29. júní. Góðar HÆNUR eru til sölu. — Ritstj. vísar á. Työ herbergi til Ieigu handa einhleipum mönnum á ágætum stað i bænum frá 1. júli. Ritstj. visar á. Alþíðufræðsfa Helgi Pétursson: Jarðfræðis firirlestur inni við Elliðaár í dag. Menn komi saman við Rauðará kl. 12 á. h. Gjald 10 aurar. Betra TÆKIFÆIU en nokkurn tíma annars! — Nú fæst hjá Andrjesi söðla- smið Bjarnasyni Laugaveg 11. Sjerlega góðir söðlar og hnakkar fyrir sjerlega lágt verð. Útgefandi: Hlutafólagið Ingólfur. Kitstjóri og ábirgðarmaður: Bjarni Jónsson frá Yogi Eólagsprentsmiðjan.

x

Ingólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.