Ingólfur


Ingólfur - 08.01.1905, Side 1

Ingólfur - 08.01.1905, Side 1
III. AR. Keykjavík, siiinmdagiim 8. jan. 1905. 1. blað. Langfrjálslyndasta lífsábyrgðarfélagið á íslandi er M S T A E “. Umboðsmaður: Jens B. Waage. Minning þín. MÍN bjartkæra brjóstuga sveit! með hraunbeltin svört og grá, með iðgrænan engjareit, og uppsprettu lindlr smá. Ég ekkert indælla leit en afdalafjöll þín blá, er sveipar þau snnna heit i sumarkvölds roðabrá. Þið ástkæru sumarsvið! Þú syngjandi elfarflóð! er sorgmæddum færir frið og ílytur þeim gleðiljóð um yndið i íslands dal um alþýðu trygð og ró, um hreinhjaitað vinaval, er við þína strauma bjó. E»ið háleitu hamratröll! við blíðanna efstu b?ún, ég man ykkur, elska’ ykkur öll, já, eins og hin grænu tún. Mörg blásóley blíð og smá við brjóst ykkar þiggur skjól, mörg hrislan fríðgræn og há þar heiisar voii og sól. Þú fossandi íjallalind! mín fornvina tær og hrein, og skoðaði marga mynd þá með þér eg dvaldi ein. Á mjúkgrænum mosabeð þú mig hefnr svæft við nið og daggskæra dranma léð í dvala og sælum frið. Mín bjartkæra, brjóstuga bygð! þú hefur mér sannað þrátt að átthaga ást og trygð er öflgari hverjum mátt. Eg veit -gegnum von og stríð viknandi mændi’ eg heim þótt veröld raér opnaðist víð af valdi, uuaði, seim. Eg heyri þinn sólskríkjusöng, eg svíf fyrir vors þíns blæ um vetrarkvöld leið og löng þá lífi ég slít við sæ. Þín blikandi daggardjúp sem dýrmæt barnæskutár i hjartans minningahjúp eg hyl um daga og ár. Eg get fkki &ð því gert — mig grípur harmur og þrá; cg veit ei með vissu hvert, mig voair bera þér frá. E'i eitt er að eilífu víst: — Þótt örtögin breytist mín — mér ekkert ijúfar fær lýat en lifartdi minsing þín. Hulda. Ingólfur. „Ingólfuru sendir baupöndum sinuxn nýárskveðju og óskar þeim og öllum landslýð heilla og hagsældar á þessu ári og öllum ókomnum tíma. Þess er fyrst að geta, að ritstjóraskifti urðu við blaðið nú um áramótin. Hefir Bjarni Jónsson frá Yogi látið af ritstjórn fyrir þá söb, að hann vildi eigi við hlíta þau kjör, er hlutafélagið gat boðið. Er blaðinu mikil eftirsjá að honum, því að hann hefir veitt því góða forustu, ritar tungu vora manna bezt, er óbil- andi landvarnarmaður og vill í hvívetna vernda og auka frelsi þjóðarinnar og efla. vöxt hennar og viðgang í andlegum efnum og verklegum. — En úr því er að ráða, sem komið er og hefir nú ann- ar maður verið ráðinn til þess að sjá um útgáfu blaðsins þetta ár. Þegar „Ingólfur“ var stofnaður fyrir tveimur árum stóð svo á, að þjóðinni var með öllu bægt frá umræðum um stór- vægilegar breytingar á stjórnarfari lands- ins. — Aíþingismenn og blaðamenn virt- ust hafa tekið höndum saman um það að láta þjóðina ganga blindandi að lög- festingarákvæðinu í „stjórnarbótinni!", kölluðu það „útrætt mál“ og þótti „dirfska“ að vekja nobbuð máls á út- rýming þess. Var það því vissulega mikið og þarflegt hlutverb, sem „Land- vörn“ og „Ingóífur tókust á hendur, er þau vildu vekja þjóðina til skoðunar á því, sem á seyði var og varðveita elcV gamlan íslands rótt, sem allir landsmenu höfðu fast við haldið til skams timu, þótt nú væri að engu hafður. Þessu hlutverki hélt „Ingólfur“ einn fram allra blaða eftir það er „Landvörn11 hætti að koma út. Var það fyrst þeg- ar „Ingólfur" hafði til fulls dregið grím- una af tálbrögðum Danastjórnar með því að koma upp undirskriftar-hneyksl- inu, að ýms önnur blöð vöknuðu af svefni og tóku i sama strenginn. En þótt fleiri hafi skoristí leikino, þá verð- ur þó ekki sagt, að hann hafi legið á liði sínu til þess að hvetja þjóðina til athugunar um rétt sinn og sæmd. Geta mætti þess og, hve Ingólfur hef- ir unnið að því að hnekkja ýmsum van- hugsuðum nýungum, sem tildrað var upp á siðasta þingi og er þá skemst á að minnast: Gaddavírslögin og þegn- skylduna. A hinn bóginn hefir Ingólfur stutt sönn framfaramál, landbúnað og sjávar- útveg og ekki síður mentamél, listir og vísindi. Tangu vora hefir hann viljað vanda eftir mætti. Ingólfur þykist þvi hafa átt full- kominn tilverurétt og erindi til íslenzku þjóðarinnar. Framvegis mun jlngólfur halda fram þeirri st.efnu í öllum höfuðmálum, sem þegar er hafin og hann hefir áður fylgt. Vill hann berjast gegn allri íhlutun er- lendra stjórnarvalda um sérmál Islands og halda uppi merki fyrir auknu sjálf- stæði og menning þjóðarinnar, hvað sem líður hagsmunum einstakra manna eða flokka. Iugólfur flytur ritgerðir um allskonar landsmál og hafa margir fróðir menn og rithæfir heitið honum fylgi sínu og styrk. Hann kemur sér og vel við skáld og listamecn og mun því færa mönnum kvæði, sögur og ritdóma við og við. Einnig mun hann leitast við að skýra frá öllum þeim tíðiudum og nýmælum, sem mönimm er forvitni á og fróðleik- ur að vita. Markmið Ingólfs er það i stuttu mál að ísland sé fyrir íslendinga og hór búi frjálsir menn í frjálsu landi. Undanhald lijá stjórnarliðinu. Magasíu — stjórnarblaðið „Reykjavík“ hefir hiugað til vorið ófyrirleitnast allra blaða hér á landi í því að reyna að leiða aímnbing á glapstigu um réttau skilning á framferði hinnar nýju stjóruar vorrar í viðleitni hounar að gera öll þjóðréttindi vor að enga. En uú í seinni tíð befir blaðið sýnt það i ýrosu, að það sjálft | er líka farið að verða vart lekans á stjórn- | arskipinu og ritstjóri þess er því farinn að búa sig undir að yfirgefa fleytuna, eins og rotturnar, áður en hún sekkur. Það er órækt vitni um þennan undir- búniug ritstjórans til þess að bjarga sér, að hann er nú allt í einu farinn að þræta fyrir það, að hann hafi nokln^ tíma neit- að því, að ráðherraskipuain væri brot á stjórnarskránni, með þeim hætti, sem hún fór fram. — Og þetta kemur upp úr kaf- inu þegar banu liefir háð harðsnúna miss- irisbaráttu gegn þvi, að Hannes Hafstein ætti ámæli skilið fyrir það að hafa tekið

x

Ingólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.