Ingólfur


Ingólfur - 08.01.1905, Blaðsíða 4

Ingólfur - 08.01.1905, Blaðsíða 4
4 INGOLFUR. [8. jan. 1905]. nr fyrir landi. Bak við þær gnæfir hár höfði sðl- roðinn yfir víkina. — Tjöldin ern koypt frá Dan- mörk fyrir 600 krónnr og hefir Carl Lnnd málað þan. — Höfuðborgin. Jarðskjálftakippur snöggur fanst að- faranótt 27. f. m. um kl. 5 árdegis og annar minni síðar um morguninn. Smáufsi hefir gengið hér inn á Víkina og náðst nokkrar tunnur í fyrirdrætti. — í eitt skifti var varpan full af ufsa en festist þá á akkeri og rifnaði, svo að öll veiðin slapp. Ætti Hafnarnefnd að sjá um það, að akkeri lægi ekki hingað og þangað í botninum. E>ví að slíkt getur orðið til stórtjóns, einkum ef sild hleyp- ur inn á höfnina, eins og stundum vill til. Hafnarsjóður á nú um 80 þúsund kr. svo að honum ætti ekki að vera ofvaxinn jafnlítill kostnaður. Ráðsmenskustarfið við Laugarnesspítal- an erlaust frá 14. maí. Hefir hr. Guðm. Böðvarsson sagt af sér starfinu. Árslaun eru 1600 kr. og ókeypis húsnæði, hiti og ljós. Umsóknarfrestur til 1. apríl. Magnús Andrésson próf. á Gilsbakka er skipaðurí milliþinganefud fátækramála í stað Páls Briem. „Unga ísland“ heitir nýtt barnablað með myndum, sem hefst nú ir eð nýárinu. Útgefendur eru „Barnavinirnir“, en rit- stjóri Lárus Sigurjónsson. Blaðið kemur út einu sinni á mánuði og kostar kr. 1,26 um árið. — Fyrsta blaðið er komið út. Það er ritað með miklu fjöri og á hreinu og góðu máli. Frágangur allur er vand- aður og mun blaðinu verða vel fagnað. Seltlrníngar halda hlutaveltu til ágóða lestrarfélagi sínu um þessa helgi í skóla- húsinu í Mýrarbúsum. Vænta þeir þess að Reykvikingar heimsæki þá þangað í kveld til þess að ná sér í nokkra happa- Leikfélag skélapllta lók þrjá gaman- leika milli jóla og cýárs í ieikhúsi Breiðfjörðs. Þeir léku fimm kveld og var of'tast húsfyllir. Tvo síðustu dagana seldu þeir aðganginn og rann ágóðinn í Bræðrasjóð. Slys vildi til um borð í eimskipinu „ísafo!d“ hér á höfninni á föstudaginn var. Slitnaði lykkja, sem hélt tveimur saltpokum, er dregnir voru upp úr lest- inni, svo að þeir féllu niður í hana aftur og komu á herðar manni, er stóð þar álútur við vinnu og var það geysi- mikið högg. Maðurinn var þegar flutt ur í spítaia. Hafði hann kostast innan og sköfnungsbeinið á öðrum fæti var brotið, svo að beinin stóðu út úr skinn- inu. Guðjón Guðmundsson ráðunautur er á ferðalagi um Mýrar og Borgarfjörð í búnaðarerindnm. Igúst Bjarnason heimspekingur fiytnr fyrirlestur í Bárubúð mánudag 9. þ. m. kl. 8^ síðdegis. Efni: Útbráðsla kristninnar og Ágústínus. Skilagrein. Meðtekið til minnisvarða Jonasar Hallgrímssonar: Frá Hornfirðingum samskot kr. 50,00 Fyrir 200 lotterí-seðla borg- af Halldóri Jónssyni . . — 200,00 Rvik. *4/io ’04. Halldör Jónsson. íslandsbanki ávaxtar peninga með innlánskjörum. Vext- irnir eru alt að 3 kr. 60 aur. af hund- raði á ári, auk vaxtavaxta. því að vextir reiknast tvisvar á ári. Viðskiftabók fæst drætti. Hlutabankinn tekur framvegis peninga af mönnum á vöxtu með góðum kjörum svo sem auglýst er hér í blaðinu. Við- skiftabók fæst ókeipis og eigendur fjár- ins geta gefið hverjum sem vill ávísanir á það í bankanum. „Verði ljús“, er þeir hafa gefið út séra Jón Helgason prestaskólakennari og Har- aldur Níelsson cand. theol., er hætt að koma út nú frá nýári. Eru níu ár síðan það var stofnað. Gruðmundur Eggerz lögfræðingur hefir verið skipaður setudómari í málum þeirra Lárusar sýslumanns Bjarnasonar og séra Helga Árnasonar í Ólafsvík. — Hann tók sér far til Borgarness á „Reykjavíkinni" á fimtud. var, áleiðis vestur í Stykkis- hólm. Bcnedikt Gröndal var allmjög veikur fyrir jólin. Hann er nú orðinn frískur aftur. ókeypis. Enn fremur geta ’menn gefið hverjum sem vill ávísanir á innlánsfé sitt í bankanum. Nánara um þetta í 'við- skiftabókinni. Vel skotna Fálka og Himbrima kaupir Júlíus Jörgensen. Til Seltirninga. Eg undirskrifaður hefi beðið Benedikt Sveinsson á Skólavörðustíg 11 að veita móttöku fyrir mína hönd gjöldum til sveitarsjóðs Seltjarnarneshrepps og óska því að gjaldendur hreppsins greiði útsvör sin til hans. Bngey 2. jan. 1905. BJARNI MAGNÚSSON (Qjaldkeri Seltjamameshrepps.) Ingólfur kemur út í hverri viku einu sinni eða oftar. Verð blaðsins verður sem áður aðeins kr. 2,SO; borgist fyrir 1. júlí. Ritstjóri blaðsins annast af- greiðslu þess og eru kaupend- ur beðnir að gera honum aðvart ef vanskil verða á því. Skrifstofa og afgreiðsla er á Skólavörðustíg 11. Bœjarmenn geta sér til hægðarauka pantað blaðið 1 bókbandsverkstofu Halldórs- sonar E>órðarsonar, Laugaveg 2, og einnig vitjað blaðsins þangað, ef þeir verða fyrir vanskilum, Þeir útsölumenn blaðsins og kaupendur út um land, sem ekki hafa þegar skýrt frá, hversu mörg eintök þeir vilja fá frá þessu nýári, eru vinsamlega beðnir að senda tilkynning um það hið fyrsta. leikur i IðBaðermarmahúsiim í kvöld. JqTiti Storm Bræðurnir G. og 8. Eggerz, candidati juris, flytja máþsemja samninga og aunast yfir höfuð að tala öll málaflutn- ingsmanns störf. Heima kl. 12—2 og 5—7 síðdegis. — Suðurgötu 8, 1. sal. Atvinnu óskar ungur og áreiðanlegur reglumaður við eitthvað sem lýtur að skrift eða reikn- ingi, eða aðra þokkalega vinnu, annað- hvort tímavinnu eða fastavinnu. Ritstj. ávísar. 17—18 ára gömul getur fengið að læra prentiðn nú þegar í Félagsprentsmiðj- unni. Semja skal við Halldór Þórðarson. Utgefandi: Hlutafélagið Ingólfur. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sveinsson. Félagsprentsiniðjan.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.