Ingólfur

Issue

Ingólfur - 10.06.1906, Page 4

Ingólfur - 10.06.1906, Page 4
102 INGOLFUR. [10. júní 1906.] að í því blaði ætti að birta auglýsingarn- ar um næstu þrjú ár. Nú eru þau þrjú ár liðin, fyrir nokkrum tíma, og engin a&glýsing er enn kom- in frá stjórninni um það, hvar nú eigi að birta þessar auglýsingar. Það er því engin lögleg ákvörðun enn gerð af stjórninni um það, hvar birta eigi stjórnarvalda-auglýsingar, til þess að bindandi só fyrir almenning. En þá er alls ekki unt að birta álög- legan hátt innkallanir í búum og aðrar auglýsingar, sem lög ákveða að birta skuli í blaði í Reykjavík, því að stjórn- in heíir ekki tiltekið, hvert það blað skuli vera. Birting þeirra auglýsinga í Þjóðólfi, er því alveg marklaus og hefir verið þ&ð síðan 1. apríl Eða hafi birtingin í Þjóðólfi nokkurt gildi þá hefir hún alveg s&ma gildi í hverju öðru blaði, sem út kemur í Reykja- vik. Það má því senda Ingólfi slíkar auglýsingar til birtingar ekki síður en Þjóðólfi, og meira að segja öllu heldur, þvi að þá getur þó enginn sagt að brot- ið só gegn því sem alþingi vildi, aðþær birtist í óháðu og ókeyptu blaði. Yesalings stjórnin hefir ekki ætlað að láta á því bera, að hún Yildi launa Þjóðólfi aftur, en hún hefir ekki gætt þess, að verkið þurfti að vinna hér fyr- ir allra augum, ef að gagni átti að koma. Eins og nú stendur, er það meira en vafasamt, hvort nokkur er skyldur að mæta eftir innköllun eða annari lögboð- un, sem birt er í Þjóðólfi. En það er auðsætt, hvilíkt ólag og réttaróvissu getur leitt af slíkri aðferð sem þessari, og verður tjónið af henni ekki tölum talið. A sjó og landi. Hafís og vesturfarlr. Jósep Jóusson á Melum í Hrútafirði kom hingað fyrir viku að norðan og sagði Húnaflóa vest- anverðan og firðina alla fulla af hafís. En kaupfar var komið til Blönduóss og hefir þá verið greiðfærara austur þaðan. „Yesta" komst þó ekki lengra en á Sauðárkrók á dögunum og varð aðsetja þar á land vörur og póstflutning, er til BlönduÓ3S átti. Kom „Yesta“ norðan að til Seyðisfjarðar 27. þ. m. og hafði meðferðis Sigfús Eymundsson og með honum „allmarga vesturfarau að „Austri" segir. - Fúsi gamli sprettur upp norðan- lands á hverju vori þegar hafísinn og hretin koma, — „kviknar“ þar við vor- kuldann líkt og mývargurinn austur í Grafningi í sumarhitanum. Sigfús fylgdi flokknum til Skotlands, en er nú aftur kominn heill á húfi, jafn- vígur til hvors, sem er: að safna öðrum fólksfarmi vestur eða setjast um kyrt í sæmdir þær, er stjórnarliðið hefir veitt honum, gjaldkerastörf flokksins og störf- in i bankaráðinu! Mannalát. í aprílmánuði s. 1. andað- N^liomiö i verzlun Aðalstræti 6, (nyrðri dyrnar): Laukur — Kartöflur - Borðsalt — Ostur — Spegipylsa — Seruelatpylsa — Marg- ar tegundir af kaffibrauði og margt fleira. Gjörið svo vel að líta inn í búðina, og þið munið komast að fullt svo góðum kaupum sem annarstaðar. ist Guðrún Oddsdóttir á Hálsi í Köldu- kinn, kona Baldvins bónda Sigurðssonar, á áttræðisaldri. Hún var ættuð af Alfta- nesi, gáfuð og góð kona. — Frú Rann- veig Laxdal, kona Eggerts kaupmanns Laxdals á Akureyri, lózt 20 maí, fimm- tug að aldri. — Frú Guðlaug Jónsdóttir á Eiðum, kona Jónasar Eiríkssonar skóla- stjóra, lézt 27. mai, 53 ára að aldri. Eggert bóndi Stefánsson á Glerá í Eyja- firði lézt 11. maí, 62 ára. Mikill atorku- maður. Ilúsbruni. íbúðarhús og verzlunar- hús Kaupfélags Breiðdæla brunnu til kaldra koia aðfaranótt 20. f. m. Lítið kver með myndum frá Islandi hafa þeir Ólafur Þ. Johnson og Karl Finsen gefið út nýlega. í því eru 16 myndir af ýmsum nafnkendum stöðum og fleira. Þar eru þrjár myndir frá Reykjavík, ein af þvottalaugunum, Þingvelli, Öxarárfossi, Almannagjá, Geysi, Gullfossi, Heklu, Þjórsárbrú og Skógafossi, þrjár frá Vest- mannaeyjum og loks ein af íslenzkri brúði í skautbúningi. — Myndir þessar hafa flestar verið prentaðar áður á bréfspjöld- um þeirra félaga, sem getið var um í Ingólfi í fyrra, en hér eru þær mun stærri og skýrari. Þær eru vel prentaðar og snoturlega um búnar, í rauðum spjöldum, en framan á er prentað ísland, með gullnu letri. Valið á myndunum hefir tekist vel, nema einni af miðbænum í Reykjavík. Hún er tilkomulítil og úrelt, því að sá hluti bæjarins hefir breyzt mikið síðan hún var tekin. Að öðru leyti er myndasafnið einkar- eigulegt og má búast við að það seljist vel. Einkanlega mun það ætlað útlend- um ferðamönnum, enda kunna þeir vel að meta slíkt. Eru myndabækur með líku sniði til sölu á hverju strái erlendis, þótt ekki hafi íslendingar haft svo mikið við sitt land fyrr en nú, að gefa út safn af myndum héðan og skulu þeir félagar hafa þakkir fyrir útgáfuna. Kverið kostar eina krónu. Höfuðborgin. Slys. Á þriðjudaginn var féll þriggja missira gamalt barn, út um glugga og beið þegar bana. Barnið átti Hjörleifur Þórðarson frá Hálsi. Trúlofuð eru ungfrú Elísabet Halldórs- dóttir (bókbindara) og Þórarinn Egilson verzlunarmaður. Kveikt í húsi. Kl. 4 aðfaranótt hvíta- sunnu vóru menn vaktir til þess að slökkva eld í búð H. S. Hansons kaup- manns í Grettisgötu. Tókst það greið- lega með nokkrum fötum af rigningar- vatni, sem stóð þar í ílátum nærri. Auð- sjáanlega hafi verið kveikt i búðinni, steinolíu verið helt í tréspæni í glugga- kistunum, og léreftsstranga í hyllunni. Ekki hefir enn orðið uppvíst um brennu- manninn. Hanson var erlendis og hafði búðin verið læst nokkrar vikur. f Þorlákur Gtuðmundsson frá Fífu- hvammi, fyrrum alþm., lézt í Hlíð við Reykjvík á fimtudaginn var. Á áttræðis- aldri. Ágætt margarine nýkomið í verzlun Kristins Magnússonar 6 Aðalstræti 6. aœS33E3Sg3SES5353œgBœS3œS3æS33g ! í \ í Klukkur úr og úrfestar, sömuleiðis gull og silfurskrautgripi borgar sig bezt að kaupa á Laugayegi nr. 12. Jóhann A. Jónasson. ISSSSE3H3K3E3: Gjalddagi Ingólfs er 1. júlí. Kaupendur eru vinsamlega beðnir að greiða þá andvirði þessa ár- gangs, og eins ef þeir skulda frá fyrri árum. Allir skuldlausir kaup- endur fá góðan bækling i kaup- bæti. Útgefandi: Hlutafólagið Ingólfur. Kitstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sveinsson. Félag«rrent»miðJ*n.

x

Ingólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.