Ingólfur - 27.08.1906, Side 3
27. ágúst 1906.]
IN6ÖLFUR.
145
eg séð og get fullirt að bókin verður góð
og mun eg hafa hana við kenslu hér eft-
ir, ef nokkur þorir að læra þísku hjá
mér.
Eg er líka viss um að bókin verður
kærkomin forstöðumanni og þískukennara
„almennamentaskólans", því að hingað til
heflr engin kenslubók íslensk verið til í
þessu máli.
Mér þikir vænt um að þessi ungi efnis-
maður getur fengið stirk til bókarinnar
af fé því er Alþing hefir veitt til kenslu-
bóka. Hann á stirkinn skilinn og bókin
á hann skilinn.
Bókin kemur út um mánaðamótin seftbr.
— oktbr.
Kostnaðarmaður er Guðm. Gamalíelsson
og sínir hann enn að hann vill gefa út
góðar bækur.
Bjarni Jónsson
frá Vogi
Á sjó og landi.
Mannskaðasamskotin. Landar vorir
vestan hafs hafa vikist drengilega við
og safnað þegar síðast fréttist 2200
dollurum. Sýnir það hugarþel þeirra til
íslands.
Barn dó af bruna & Ölvaldsstöðum
á Mýrum 13. þ. m. Hafði kviknað í föt-
um þess — enginn heima nema annar
óviti.
Flóa-áveitan. Haft er það eftir herra
Thalbitzer hinum danska, að bezt muni
að veita Þjórsá yfir Skeið, en Hvítá yfir
Flóa. Um kostnað er hann sagnafár enn.
Kirkjusðngsbók Jónasar Helgasonar
kemur bráðum út í nýrri útgáfu. Hafa
þeir Brynjólfur Þorláksson forsöngvari
og Sigfús Einarsson söngskáld yfirfarið
bókina og búið til prentunar. — Guðm.
Gamalíelsson gefur út.
Svanur heitir bók ein, sem bráðum
kemur út á kostnað sama manns. Er
það úrval af íslenskum kvæðum og fylg-
ir lag (einraddað) hverju kvæði. Stgr.
Thorsteinsson hefir safnað kvæðunum, en
Brynjólfur Þorláksson annast lögiu.
indriði Einarsson leikritaskáld starf-
ar nú að því, að eudurbæta fyrsta leik-
rit sitt, Nýársnóttina. Er sagt að nokk-
ur von sé þess, að bæjarbúum verði
sýnt á leiksviðinu í vetur, hverjum
breytingum hún hefir tekið í meðferð-
inni.
Árni Gjarborg hefir með bréfi úr Kol-
botnum heimilað Bjarna Jónssyni frá
Vogi að gefa út þýðinguna af Huliðs-
heimum og að þýða „í helheimi“ og
gefa það út. Huliðsheimar koma út
þessa dagana.
Dráttur á útkomu blaðsins stafar af
annríki í prentsmiðjunni.
Eiríkur Kjerulf, cand. med. kom
hingftð til lsnds ásamt konu sinni 22. þ.
m. á „Tryggva konungiA Hann tekur
við Eyrarbakkahéraði í oktober í haust
og þjónar því fyrst um sinn í forföllum
Ásgeirs læknis Blöndals.
Járn. Síðastliðið ár nam járnframleiðsl-
an í heiminum 520,000,000 smál. Þetta
ár er búist við meiri framleiðslu allt að
600 miljónum. Járnið er alls ekki hreint
í þeim bergtegundum, sem það er unnið
úr, í þeim er venjulega ekki meir en 50°/0
járn og oft minna. Þegar nú er litið á
það hversu járnþörfin fer vaxandi með
ári hverju verður manni fyrir að spyrja
hvaðan járnið fáist þegar þær námur eru
uppunnar sem nú eru þektar. Sænskum
jarðfræðingum telst svo til að í þeim járn-
námum sem þektar eru í heiminum og
borgi sig að vinna, séu um 60,000
miljónir smál. af járni. Eftir nú verandi
eyðslu endist þetta í 100 ár, en ettir því
skemur, sem eyðslan yrði meiri. Aðal
jarnnámurnar eru í Svíþjóð og á Spáni
hér í álfu og annarsstaðar mestar á Ný-
fundnalandi, Kanada og í Kína. Stærð
námanna 1 Kína er ekki rannsökuð enn,
menn vita aðeins að þær eru miklar.
Hver veit nema ísland geti á sínum
tíma bætt úr járnþurðinni.
Hausar.
Hausinn á mér var eins og steinn.
Hugsanirnar sátu þar allar þversum, fast-
ar og freðnar eins og sprek undir snjó.
Eg stóð upp og gekk um gólf. Eg sló í
hausinn, og eins og bergmál leið mér í
hug vísa Kristjáns:
Með hnefum slærðu haus á þér,
er hyggur þú muni vísdóm geyma;
þær dyr að knýja ónýfct er,
þvi engin lifandi sál er heima.
Mér varð litið í spegilinn. Það var
sem mér sýndist. Eg var að verða hrukk-
óttur í framan og hárið var að þynnast.
Eftir tvö, þrjú, fjögur . . . ár verð eg orð-
inn sköllóttur, hrukkóttur og heilinn
eins og freðinn hafragrautur. — Alt
í einu datt mér kunningi minn í
hug. Eg sá hann í huganum þar sem
hann sat við miðdagsverðarborðið fyrir
missiri óvenjulega bragðlegur í andliti, og
segir upp úr eins manns hljóði: „Mikið
ansvíti hressist maður við að láta hana
frú Þorkelsson þvo sér um höfuðið.“ Nú
datt mér þetta í hug, og svo fór eg til
frú Þorkelsson. Og ég lét þvo mér um
höfuðið, og lét baða andlitið á mér í heitri
gufu, smyrja það, nudda það, þvo það og
fága og bursta það með rafurmögnuðum
njarðarvetti. Svo var mér kembt með
rafmagnaðri hárgreiðu. Og smámsaman
færðist líf í hausinn á mér, hugsanirnar
rumskuðu, þegar rafmagnsstraumarnir
gengu um heilann. Andlitsvöðvarnir fengu
nýtt líf og þrótt. Og þegar eg leit í
ipegilinn sýndiit mér eg vera tín árum
yngri og hausinn fanst mér hlaðinn af
rafmögnuðum hugsunum, sem lýsa
mundu langt fram á komandi öld. Þó
eru fáeinar hrukkur eftir í andlitinu, en
þær ætlar frú Þorkelsson að slétta í haust
og hárinu hefir hún lofað vexti og við-
gangi, ef eg kem við og við og læt hana
þvo mér um höfuðið og greiða mér með
rafmagnsgreiðunni. —
Ef til vill finst mönnum, að þetta komi
ekki öðrum við en sjálfum mér. En má
eg spyrja: Er ekki betra að geta sagt:
„Það er eg hefi hárið,“ heldur en: „Það
var eg hafði hárið“ ? Eru menn of fal-
legir, þótt þeir sé ekki sköllóttir og er
andlitið of unglegt, þó að menn verði ekki
hrukkóttir fyrir örlög fram? Eða ætli
menn sé of andríkir, þótt rafmagnsstraum-
ar fái við og við að líða um heilann?
Góðir hausar eru mikils virði: Nú hefi
eg fengið minn í lag. Far þú og gjör
hið sama.
„Þú verður ungur í annað sinn,
ef þú gjörir það.“
X.
Marconi-loftskeyti.
Frá ýmsum löndum. Lögreglan i
Marseilles á Frakklandi hefir uppgötvað
samsæri um að myrða Falliéres ríkisfor-
seta, er hann kæmi þar nú bráðum. Lög-
reglau hefir höndlað ítalskan mann, er
hafði sprengiefni í vörzlum sínum.
Ymsir helztu menn í frjálslyndaflokkn-
um á Cuba hafa verið höndum teknir og
komst við það upp alvarlegt samsæri, þar
sem haft var i ráði meðal annars að
myrða forsetann, Palma.
Tyrkjasoldán heldur hátíðlegt vegna
batans, sem hann hefir fengið, og hefir
skipað að sleppa bandingjum, þeim er tek-
ið hafa út */s ídæmdrar hegningar.
Vagnlest af sprengitundri (dýnamit)
sprakk á einum stað í Mexiko og tætti í
smátt 30 þarlendra verkamenn og marga
verkstjóra norðan úr Bandaríkjum.
Svertingi var af lífi tekinn dómslaust
í Greenvood í Suður-Karólínu fyrir að
hafa veitt tilræði hvítum kvenmanni og
svertingjastúlku. Ríkisstjórinn var við-
staddur og hét á lýðinn að hætta við það
fólskuverk en það hreif ekki hót.
Verkfallsmenn í Argentínu brutu með
grjótkasti glugga í járnbrautarlest Eoots
Bandaríkjaráðgjafa (utanríkis)', og meiddu
margt fólk. Root sakaði ekki.
Ibrahim Egiptaprins hlaut bana af bif-
reiðarslysi.
Svertingi veitti enskri stúlku árás í
Lake Georgía í Ameríku, og eru þúsund
manns í eftirleit eftir honum um landið.
Sjdhattur og sumarskdr
fundust neðarl. á Hverfisgötu. Má eig-
andi vitja þess á Hverfisgötu 6.