Ingólfur - 28.10.1906, Side 4
182
INGÖLFUR.
[28. okt. 1906].
að eins örmjó eiði á milli peirra og landið
umhverfis er mjög vogskorið; víða skerast
langir tangar fram í vötnin og í mörgum
þeirra er urmull af smáum og stórum hólm-
um. Fyrir þeitn, sem sæi landið ofan frá
mundi það því verða líkast útþöndu neti.
Yíðast er þetta land vaxið birki og furu-
skógum, þar sem ekki eru akrar eða óræktað
mýrlendi og móar. í>ótt Finnland sé skóg-
land rnikið, þá er það þó ekki frjósamt land.
Jarðvegur er þar viðast grunnur. Loftslag
er þar fremur kalt, en heilnæmt mjög. A
sumrin getur þó hitinn orðið mjög mikill,
svo að korn vex þar þótt allnorðarlega sé.
Annars lifa Finnar mest á landbúnaði, skóg-
arhöggi og fiskveiðum. Enn sem komið er
verður ekki annað sagt en að landið gefi
fremur lítið af sér móts við víðáttu þess.
í>að er hverju orði sannara sem hið mikla
skáld Finnlands, Runeberg, segir í hinu al-
kunna finska þjóðkvæði „Vort land, vort
land“, að lítil gnægð sé þar gulls, en það
er eigi síður satt að Finnar elska þetta land,
(sbr. þýðing sr. Matthíasar):
„Oss þykist fremri þjóðin hver,
en þetta landið elskum vér,
með útsker, fjöll og eyðimó
er oss það gullland nóg.“
Eins og flestum mun kunnugt byggja
Finnland tvær fjarskyldar þjóðir: Svíar vest-
antil og með ströndum fram og þeir eigin-
legu Finnar, sem eru af hinum altaska kyn-
stofni og Mongóla ættar. Finnar eiga því
marga frændur í Austurálfu heims, Kína, Jap-
an og víðar; í Norðurálfu eru þeir ekki
frændmargir, þegar frá eru taldir Magiarar á
Ungverjalandi sem eru þeim allskyldir. Upp-
haflega greindist þjóðin í tvo all-fjarskylda
flokka, sem nú eru víðast runnir saman: Ta-
vasta og Karela eða Kyrjála. Karelar eru
dökkir á hörund og brúneygðir. I>eir eru
fjörrnenn og elska mjög söng og skáldskap,
en fremur eru þeir hvikulir og tilfinningarikir.
Þeirn svipar því mest til hinna suðrænu þjóða
með sinu dökka ólgublóði.
Tavastar eru fjölmennari. í>eir eru hæg-
látir í framgöngu og dulir í skapi, nægju-
samir og þolgóðir. £>eir eru ljósir á hörund
og kinnbeina háir augun eru skásett, var-
irnar breiðar og vex þeim lítt skegg, sem
Njáli. Þeir sverja sig rneir í kyn Mongóla
eins og þeim er venjulega lýst.
Svo ólíkir sem þessir tveir mannflokkar
eru, þá svipar þeim þó saman að því leyti
sem sjálfstæðistilfinningin er mjög rík hjá
báðum og tilfinningin fyrir eigin rétti og
manngildi. Jafnvel 800 ára útlent vald og
margskonar hörmungar hafa ekkigetað drep-
ið frelsisþrá þeirra og sjálfstæðisanda. Þjóð-
erni sitt og tungu hafa þeir jafnan leitast
við að varðveita þótt oft hafi hættan vofað
yfir af hálfu hinnar rússnesku stjórnar.
Nyrzt í landinu búa Lappar, sem lifa eins-
konar flökkulífí. Þeir hafa eigi önnur hús-
dýr en hreindýrið. Lifa þeir að mestu frá-
greindir öðru menningar og félagslífi og mæla
aðra tungu, sem vart mun skilin annarsstaðar-
Lappar standa flestir á fremur lágu menn-
ingarstigi og sumir þeirra eru heiðnir.
Framh.
ir
tekur móti fé til ávöxtunar með iunlánskjörum. —
Hæstir inniánsvextir 41/20/0-
Með amerisku kappi ryður
Wolverine báíamótorinn
sér til rúms um allan heim
Fleiri þúsundir af mótor þessum eru seldar árlega en tugir af
mótorum þeim, er menn þekkja hér á Iandi.
Upplýsingar hjá:
P. J. Torfason
á Flateyri.
ott ísl. smjör
fæst í verzlun
H. P. Duus.
Steinolía
góð í verzlun
H. P. DUUS.
aigarme
í t pd. stykkjum best í verzlun
H. P. Duus.
„Valurinn”.
Reykvíkingar, sem ætla að kaupa „Val-
inn“ snúi sér beint til hr. cand. phil.
Einars Gunnarssonar
1 Templarasundi.
„Valurinn" kostar aðeins 3 kr. en
er þó jafnstór stærstu blöðum landsins.
Að efni verður hann fjölbreyttari, en flest
önnur blöð.
Gleymið ekki að panta „Valinn“
sem fyrst.
Þeir, sem þurfa að kaupa hús og
lúðir, eða að láta rita veðskuldabréf, af-
salsbróf, kaupsamninga og aðra samn-
inga, án þess að á slík bréf komi athugra•
semdir, — sem eigi er sjaldgæft anuars,
— geta snúið sór til Jóns Sigarðssonar
bæjarfógetaskrifara Vesturgötu 28.
í verzlun
fást Victoriubaunir á 17 aura pd.
hálfbaunir - 11 — —
margarine - 38 — —
Kensla.
Undirrituð tekur að sér að kenna byrj-
endum klaver og harmoniumspil.
Frú Anna Pálsdóttir.
Þingholtsstræti 23.
liðuFsoðinn fiskur
hvergi eins góður og ódýr sem í verzlun
Kristins Magnússonar
14 aura potturinn, fæst hjá
Kristni Magnússyni.
Oliufatnaður
vandaður og ódýr fæst hjá
I.
Útgefandi: Eflutafélagið Ingólfur.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Benedikt Sveinsson.
réUgiprentamiðJaD.