Ingólfur

Tölublað

Ingólfur - 04.11.1906, Blaðsíða 4

Ingólfur - 04.11.1906, Blaðsíða 4
186 INGOLFDR. mætti búast þegar um jafn fjarskyldar þjóð- ir er að ræða. Saga beggja þjóðanna er raunasaga, sem markað befir djúp spor í svip þeirra og skapað ýms þjóðareinkenni, sem báðum þjóðunum eru sameiginleg. Báð- ar þjóðirnar hafa verið sviftar sinni dýrustu eign, frelsinu, og kannske átt mikla sök á því sjálfar, þótt báðar hafi elskað frelsið og kunnað illa ófrelsinu. Báðar hafa þær á öll- um öldum borið og bera enn heita frelsisþrá í brjósti; þvi að konunga og kúgara þrælar hafa þær aldrei viljað vera og lengi hafa þær þráð þann „vin sem leysti þær úr bönd- um“. — En þótt ég heíði feginn viljað rekja sögu Pinna ítarlega, þá getur það ekki orð- ið, því að bæði myndi það taka oílangt rúm i blaðinu og auk þess munu aðrir færari til þess starfa. í>ess skal aðeins getið að Einn- land hefir lengstum verið sambandsland Svía og vóru kjör þess þá vel þolanleg móts við það sem síðar varð undir Rússum. Það eru nálega 5 aldir, sem saga Einna fellur að mestu saman við sögu Svía. Það var á síðasta hluta 13. aldar og í byrjun 14., sem Þorkell Knútsson fullnaði starf það sem Byrgir jarl hóf, að brjóta Finnland undir krónu Svía. Svíar þröngvuðu aldrei mjög kosti Einna og unnu þeim jafnan nokkurs sjálfstæðis, en lítil vörn var Einnum einatt að stjórn Svía gegn Rússum, sem jafnan leituðu færis að hremma Einnland undii* þrældóms okið. Kom það bezt í ljós á óstjórnar og ó- friðarárum Karls XII. Alt frá þeim timum fengu Rússar stöðugt fastari og fastari tök á Einnlandi sem lauk með því, að Svíar af- söluðu sér landinu með öllu i hendur Rúss- um árið 1809. Hjálpuðust þar að afleiðing- ar fyrri ára óstjórnar og óáranna í Svíþjóð og Einnlandi og konungleg ómenska Gústafs IV. Svíakonungs. Erá þeim tíma hefir Finn- land lotið stjórn Rússa. Zarinn í Rússlandi hefir kallast stórfursti Einnlands. Vald sitt hefir hann sett í hendur hinu svo kallaða ráði (senati). Eorseti þess er landstjórinn á Einnlandi. í þessu ráði hafa auðvitað venju- legast setið stálharðir stjórnarsinnar og hefir þeim verið jafn illa við allar breytingar og frelsishreyfingar sem þjófunum við hegning- arlögin. Skárst hefir stjórn Rússa verið á dögum Alexanders II., sem endurreisti þing þjóðarinnar þar sem eiga sæti kjörnir menn úr öllum stéttum landsins: aðals, presta, borg- ara og bænda. Allar mikilsvarðandi sam- þykktir þessa þiugs hafa þó orðið að ganga gegnum hreinsunareld ráðsins. Nú er komin breyting á stjórnarfyrirkomu- lagið á Pinnlandi sem kunnugt er. Árið 1901 átti með valdi að innieiða algert einveldi og útrýma með öllu finnsku þjóðerni og sjálf- stæði. Það var innlimun á allra hæsta stigi. Engin kúgunarvopn voru ónotuð látin af hendi Rússastjórnar. Prentfrelsið var tak- markað að stórum mun, rússneska tungu átti að innleiða f öllum skóium og hærri stöðum og þröngva inn rússneskum yfirvöldum um land allt. Það átti að svínbinda Pinna um aldur og æfi við harðstjórnarokið rússneska, en eins og allir vita hristu Einnar af sér okið í fyrra með svo miklu snarræði og vit- urleik, að sagan þekkir ekki dæmi slíks. Síðan hafa Finnar notið meira sjálfstæðis en nokkru sinni áður og standa nú í sambandi við Rússa fremur sem sambandsþjóð, en undirlægja. Keisarinn sjálfur* undirskrifar mikilsvarðandi laga og stjórnarákvæði án annarar milligöngu. Dagana sem vér dvöld- um í Einnlandi í sumar, staðfesti keisarinn t. d. mjög frjálsleg kosningarlög handa Einn- um. Samkvæmt þeim lögum hafa nú kven- [4. nóvý 1906]. Ritsíminn. Landsímastöð af 3ja flokki var opnuð 1. nóvember á Yöllum í Eyjafjarð- arsýslu. menn jafnan rétt til kosninga sem karlmenn. Eftir því sem um er að gera una þvi Einnar allvel stjórnarfarinu; þó munu enn allmiklar viðsjár þar með mönnum, einkum að því er snertir jafnaðarmenn (socialista). Eramh. Leiðréttingar. Misprentast hafði í siðasta blaði Ingólfs, tillaga stúdentafélags- ins um kaupfánann, og er hún svo rétt: „Kaupfáni Islands skal vera blár feldur óklofinn með hvítum krossi; álmubreidd krossins skal vera */8 af breidd fánans, þá er mælt er við stöngina; bláu reitirnir nœr stönginni skulu vera réttir ferhyrn- ingar, og bláu reitirnir fjær stönginni jafn- breiðir þeim en tvöfalt lengri“. I sama bl. var rangprentað nafn glímu- mannsins þingeyska, er skoraði á Olaf Valdimarsson til kappglímu; átti að vera Sigurður Sigfússon (sölustjóri í Húsavík). Stjórnarfranskan er enn við sama á símskeyta-eyðublöðunum, síðan nokkrar stærstu villurnar voru leiðréttar um dag- inn eftir leiðrétting Ingólfs. í 20 orðum eru þar enn 7 villur. Ef samskonar vill- ur væru í íslenzku þýðingunni á þessum orðum, þá ætti hún að vera á þessa leið: „svor borgaður — brýnn svor borgaður — veðtökuskírteini — útsinding borguð.“ TjI hvers er verið að prenta slika frönsku og reka hana framan í hvern útlending? Er það til þess að sýna það að síma- stjórnin hér sé skipuð mentunarlausum trössum, sem geta ekki séð um prentun á fáeinum frönskum orðum óbjöguðum, eftir erlendum eyðublöðum prentuðum ? Væri réttara að fella slíka auglýsingu niður og hafa e nga frönsku á eyðublöð- unum, ef það verður eigi gert með öðru móti. „Valurinn”. Reykvíkingar, sem ætla að kaupa „Val- inn“ snúi sér beint til hr. cand. phil. Einars Gunnarssonar í Templarasundi. „Valurinn“ kostar aðeins 3 kr. en er þó jafnstór stærstu blöðum landsins. Að efni verður hann fjölbreyttari, en flest önnur blöð. Gleymið ekki að panta „Valinn“ sem fyrst. Þeir, sem þurfa að kaupa liús og lóðir, eða að láta rita veðskúldabréf, af- salsbréf, kanpsamninga og aðra samn- inga, án þess að á slík bréf komi athuga- semdir, — sem eigi er sjaldgæft annars, — geta snúið sér til Jóns Sigurðssonar bæjarfógetaskrifara Vesturgötu 28. Kensla. Undirrituð tekur að sér að kenna byrj- endum klaver og harmoniumspil. Frú Anna Pálsdóttir. PÍDgholtsstræti 23. 3SraSgggggggagraSggSgg5raSgg!SgSggSggSgg5gq5 Klukkur, úr og úrfestar, sömuleiðis gull og silfurskrautgripi borgar sig bezt að kaupa á Laugavegi nr. 12. Jóhann A. Jónasson. jKSESKSSSESK Útgefandi: Hlutafélagið Ingólfur. Kitstjóri og ibyrgðarmaður: Benedikt Sveinsson. VölaeirrentamiftJtD.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.