Ingólfur - 17.03.1907, Page 3
. INGÓLFUíR
43
Eftirmæli.
Ólina Ólafsdöttir ekkja í Dufansdal
í Otradalssókn andaðist síðastliðið haust.
Var hún fædd í Tungumúla á Barða-
strönd 4. febr. 1848. Hún var gift
Bjarna bónda Péturssyni í Dufansdal og
iézt hann 1901. Er helstu æiiatriða
hans getið í blaðinu „Arníirðingi,“ er
þá kom út í Bíldudal. Bjuggu þau hjón
fyrst Barðaströnd á Vaðli og siðan í
Dufansdal til æfiloka. Börn þeirra hjóna
eru 5 álífi: Ólafur Veturliði skipstjóri
í Bíldudal og Pétur skipstjóri báðir
kvæntir, Jöruudur skipstjóri, sem nú er
i Reykjavík, kvæntur maður, og Sigríð-
ur gíft Eiríld bónda í Dufandsdal, syni
Kristjáns Kristjánssonar skipasmiðs í
Bíldudal.
Þann tíma er eg kyntist þeim hjón-
um bjuggu þau laglegu búi í Dufansdal.
t au vóru einkar vinsæl og nutu virð-
ingar allra, er kyntust þeim. Vóru
bæði samhent i öllu því er prýða mátti
heimili þeina; er ) eim viðbrugðið fyrir
gestrisni og hýbýlaprýði ogjafnan vóru
þau miklir styrktarmenn sveitar sinnar.
Ólína sál. var fyrst við bú eftir lát
manns sins, en síðan hjá böinum sínum.
Hún var stilt í luud og hreinhjörtuð,
trygg og vinföst. Hún var búkona mikil
og sívinnandi, hraust og tápmikil; lá
hún stutta banalegu, rúma tvo sólar-
hringa. Mun vinsæld hennar og atgervi
að góðu minst í þessu bygðarlagi.
J. Á.
Ólafur prammi.
Ólafnr pramini er altal' að grafa og grafa
— grat'a upp jörðina. Hann grcfur með
höndunum, með stafnum, með pál og með
reku. Um hávetur og t heljarfrosti stendur
liann sveitlur við júrnkallinn í klukahöggi.
ÓJufur pramtni fær uldrei hvíld né ró. Hann
verður að leita. Og hann leitar. Hann leit-
ar í görðunum hak við húsin ; hann leitar
út um holtin, undir stórum steinum; liunn
grefur og grefur; en helzt í kring um Kol-
viðarhól, — þar er staðurinn. A ferðum
sínum lekur hann stundum viðbragð út af
veginum og fer að róta upp þúfu í grendinni
og grafa með stafnum. Hann þýtur upp um
miðjar nœtur, tekur reku i hönd og fer að
grafa — Ólafur prarnmi er að leita að unn-
ustunni. Hver þessi unnusta lrans er, það
veil enginn. Ólafur pramnri hefir aldrei sagt
neinunr frá því. En hann veit að lrún er
i álögum niðri í jörðinni. Það er þess vegna
uð hann er altaf að grafa. Hann ætlar sér
að ná lrenni upp úr moldinni, livað sem það
kostar, og hann hefir óbifanlega trú á því,
að það muni takast að lokum. Hann hefir
svo oft lieyrt til hennar og talað við hana.
Hunn hefir stundum ekki átt eftir nema eitt
einasta kvartil ofan að henni.
Eg efust ekki um að Otafur prammi held-
ur áfram að leita til dauðadags ; eg veit að
hann deyr með rekuspaðann i hendinni og
sigurbros á vörum, eg veit að kvartilið, sem
liunn á eftir til að komast á fund unnust-
unnar, hverfur þegar liann deyr.
Menn halda að Ólalur prammi sé villaus.
En hjá honum lifir neisti af eldinum, sem
hitar upp heiminn, ástriðunni, sem stælir
hvern vöðva og knýr lil athafna. Það er trú
mín, að þar sem Ólafur prammi hefir grafið
muni síðar vaxa fagur gróður. Ilann fann
ekki það sem hann leituði að, en fræin finna,
þó seinna verði, moldina sem hann plægði. —
Sigurður fáfnisbani reið vafurlogann umhverf-
is liöll Brynhildar Buðladóttur á Hindarfjalli,
og liann varð frægur fyrir. En enginn skal
a-tln, að vofurlogarnir hafi verið ógreiðari
en helfreðin íslenzka moldin. —
Er það heimskuleg hugsun, að klakahögg
Ólafs pramma heyrist gegn um skarkala
heimsins inn í helgidóm tilverunnar — að
þau séu talin þar og rituð f lifsins bók ?
G. F.
Um liéraðslæknlsembættlð í Reykja-
vik hefir heyrst að þeir sæki: Guðm.
Hannesson, Sæmundur Bjarnhéðinsson^
Sigurður Magnússon, Jón H. Sigurðs-
son og Steingrímur Matthíasson.
Grafreitakonurnar.
Eftir Guy du Maupassant.
Þeir sátu fimm saman félagar eftir
miðdegisverðinn. Þeir vóru allir af
betra tæi, vel efnum búnir og á bezta
aldri. Þrír þeirra vóru kvæntir, tveir
ókvæntir. Þeir vóru því vanir að hitt-
ast einu sinni í mánuði til þess að rifja
upp endurminningar æskunnar o? héldu
áfram að spjalla saman þegar máltíð
var iokið og langt fram á nótt. Þeir
héldu með sér tryggri vináttu og var
hugþekt að hittast, og þessir samfund-
ir vóru þeim einna ljúfastar stundir
æfinnar. Þeir skeggræddu um alt,
sem Parísarbúar gera sér far um; vaið
tal þeirra helzt uppsuða af nýungum
morgunblaðanna, sem oftast verður er
menn hittast.
Jósep de Bardon var þeirra mestur
gleðimaður; hann var ókvæntur og tók
öflugan þátt í unaðsemdum borgarinnar.
Hann var hvorki spiltur né svallsamur,
en nýjungagjarn, ör og g'aðvær; stóð
hann nú rétt á fertugu. Hanu var
veraldarmaður, eftir því sem það orð
er fylst og bezt viðhaft, gáfaður en
ekki ýkjadjúpsær, fjölhæfur að þekking
en hvergi stálsleginn, fann skjótt hvað
feitt var á stykkinu en rakti fátt til
rótar. Var honum því sýnt um aðgera
flest atvik söguleg, hvort sem var um
sjálfan hann eða hann hafði heyrt þau og
séð í annara fari og hafði hann jafnan
smásögur á reiðum höndum. Sveipaði
hann þær tvöföldum hjúpi skops og
dulskygni og skreytti þær skemtilegum
athugasemdum. Var hann því talinn
hrókur alls fagnaðar.
Hann var málhreyfastur þeirra félaga
á samfundum þeirra. Áttu hinir það
víst að einatt hefði hann sögu að segja
og hann hóf frásögnina óbeðinn.
Hann sat með vindlinginn í munnin-
um og hálft konjaksstaup á diskinum
fyrir framan sig og leið vei af tóbaks-
ilmnum, sem blandaðist saman við eim-
inn af heitu kaffinu. Hann kunni auð-
sjáanlega vel við sig og undi veru
sinni á þessum stað svo vel, sem nokk-
ur vera getur unað þar sem henni er
hugþekkast — eins og trúaður maður
við altarið eða gullfiskurinn í keri
sínu.
Framh
Erlend símskeyti
til Ingólfs frá R. B.
Kh. 14-. marz kl. C.
Fransld lierskip sprengt.
Það bar til í Toulon á Frakklandija
þriðjudaginn, 12. marz, að franskt höf-
uðorustuskip mikið, Jena, fórst gersam-
lega af púðursprengingum. Þar létust
118 manna, en 44 fengu mikil sár og
margir minni. Engin vitneskja enn
fengin nm það, hvort glæp er um að
kenna eða slysi.
Lciðréttingar. í greininni um „For-
skrifun“ í síðasta tölubl. (L. s. 4. d. 8.
1. a. o.) stendur: Og hann hittir nagl-
ann á höfuðið,“ á að vera: Og hann
hittir naglana á höfuðið.“
1 9. tölubl., þar sem minst var láts
Bergs hvalveiðamanns stendur, að hann
hafi átt „5 börn, 1 son og 4 dætur“,
en á að vera: 6 börn, 1 son og 5 dæt-
ur.
Einar Arnérsson lögfræðingur verð-
ur ritstjóri og útgefandi „Fjallkonunn-
ar“ framvegis og tekur við henni nú
þegar.
Úr Vestmannacyjum er Iagólfi skrif-
að 10. þ. m.:
Ofsardk austan var hér í gær. Lágu
sjö vélarbátar úti í nótt.
Ajii í gær var mest 400 á skip. Sum-
ir fengu ekkert. Tiðin mjög.ill.
lslenzlá fáninn, sem Stúdentafélagið
hefir gengist fyrir, er kominn á stöng
hjá G. J. Johnsen kaupmanni hér í
Eyjunum.
Til minnis.
Alþýðulestrarfélag Reykjavikur. Lestrar-
stofa (Pósthússtr. 14) opin (1. okt. — 30
apr.) alla virka daga kl. 6—9.
Augnlœkning ókeypis i læknaskólanum 1.
og 3. þriðjud. í hverjum mán. kl. 2—3.
Baðhúsið er opið virka daga kl. S—8 en
sunnud. kl. 8 — 12 á hád.
Búnaðarfélag Islands. Skrifstofa (Lækjarg.
1G) opin alla virka daga kl. 12—2.
Bcejarfógetaskrifst. opin kl. 9—2 og 4—7.
Bœjargjaldkeraskrifst. opin kl. 12—3 og 5 — 7.
Bœjarpósturinn er borinn kl. 81/, árd, og
kl. 5 siðd. alla virka daga, en kl. 872 árd.
sunnud. Póstbréfakassarnir eru tæmdir virka
daga kl. 7'/2 árd. og kl. 4 síðd. Sunnudaga
kl. 772 árd. Þó er kassinn á Póstslofunni ekki
tæmdur fyr en 10’ áður en pósturinn er borinn.
Boejarstjórnarfundir eru 1. og 3. fimtudag
hvers mánaðar. Hetjast kl. 5 síðd.
Forngripasafnið opið, miðvikud. og laugard.
kl. 11—12.
Héraðslœknirinn er lieiina kl. 2—3.
Iioldsveikrahœlið opið fyrir sjúkravitjend-
ur kl. 2—3‘/a.
Islands banki opinn kl. 11—3‘/4 og 5*/2 — 7.
Landakotssjúkrahúsið opið fyrir sjúkra-
vitjendur lcl. ÍO1/^ —12 og 4— 5.
Landsbanki Islands opinn kl. 10'/2—2 ‘/2.
Bankastjórnin við kl. 12 — 1.
Landsbókasafnið opið kl. 12—3 ogC—8.
Landsskjalasafnið opið þriðjud. fimtud. og
laugard. kl. 12 — 1.
Lyfjabúðin opin alla daga frá kl. 8—8.
Loekning ókeypis í læknaskólanum livern
þriðjud. og í’östud. kl. 11—12.
Náttúrugripasafnið opið á sunnud, kl. 2—3.
Pósthúsið opið virka daga kl. 9—2 og 4—7.
Pósthólfin kl. 9—9. (Norðan og vestanpóst-
ur fara venjulega kl, að morgni en aðrir
póstar kl. 8 að morgni).
Ritsimastöðin opin á virkum dögum kl.
8. árd. til 9 síðd.; á helgidögum kl. 8—10
og 4—5.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar kl. 10 — 4.
Söfnunarsjóður Islands opinn (Lækjarg. 10)
fyrsta mánudag Iivers mánaðar kl. 5—6.
Talsími bœjarins opinn virka daga kl. 8
árd. til 10 síðd. Sunnudaga kl. 8—11 árd.
og 2—5 síðd. Á 1. dag jóla, páska og hvítas.
kl. 9—11 árd.
Tannlœkning ókeypis (Pósthússtr. 14) 1.
og 3. mánudag hvers mánaðar kl. 11 — 1.
Afgreiðsla Ingólfs
er hjá ritstjórum blaðsins:
Skélavörðustíg 11.
Og
Klrkjustræti 12.
Ef vanskil verða á blaðinu eru menn
beðnir að snúa sér sem fyrst til
annarshvors ritstjórans.
Skilageiu.
Samskot lil minnisvarSa Jónasar Uallgrímssouar:
Árið 1906:
1. jatiúar í sparisjóði . . . kr. 304,05
Ágóði skemtisamkomu (írú
Jarþrúður) — 109,45
Gjöí Ól. Óskars Lárussonar —. 5,00
Seld baukavaxtabréfin . . . — 1100,00
Vextir af þeim —8/o • • — 5,23
Frá Q-uðm. Kerulf .... — 2,00
— sr. Jens Pálssyni . . . — 5,00
— Hirti Iljartarsyni . . . — 5,00
— nokkrum Mývetningum . — 50,00
— Höfðliverfingum (Sigurj.
læknir) — 50,00
— Sig. Þórðarsyni sýslum. — 20,00
— Gilsbakka — 10,00
— Dalasýslu (Björu sýslum.) — 55,05
Saíuað á Akureyri .... — 255,00
— í boxbók — 27,86
Frá Brjánslæk — 5,00
— Pétri Zóphóuíassyni . . — 5,00
— Þingvallasveit (J. Halak.) — 10,00
— sr. Guðm. í Reykliolti — 10,00
— E. Laxdal Akureyri . . — 50,00
— A. Eéldsted — 10,00
— Bjarna Sæmundssyni — 5,00
— Birni Kristjánssyni . . — 100,00
— Geiradalshreppi, samskot — 13,00
— Vilh. Bernhöft .... — 10,00
— Þórði Pálssyni .... — 10,00
— Guðm. Eyjólfssyni . . — 1,50
— Eundafélag Húsavíkur . — 92,00
— Þór. Halldórsd., Rangá — 24,00
— Jóni Jónss. Nefbjarnarst. — 9,00
— 2 á Svalbarðsstr. (Berg-
vin Jóh.) — 10,00
— Erl. M.agnússyni . . . — 5,00
— Keldnhverfingum . . . — 18,00
Seldir lotteriseðlar .... — 272,00
kr. 2663,39
Borgað inyndasmið
og koparsteypara kr. 1700,00
Porto af sendum .
peniugum . . — 3,82 kr. 1703,82
— 959,57
Vextir i sparisjóði 1906 . . — 24,60
í sparisjóði 31. des. 1906 kr. 984,17
Rvík. 28/2 ’07.
Halldör Jönsson.
Verzlunin Lindargötu 7
hefir aftur fengið nægar birgðir, þar á
meðal:
Sykur — Smjörlíki — Kart-
öflur — Æ ais — Epli —
Vefnaðarvörur — Niðursoð-
inn fiskur — Ávextir o. m. fl.
Alt sclt édýrt eins og að undan-
förnu.
MjÐVIKUDAGINN þann 20. þ. m.
verður í'uudur haldinn í „Hinu ísl.
kvenréttindafélagi“ í litla salnum uppi
á loftinu í Iðnaðarmannahúsinu. Allar
þær konur sem vilja ganga í félagið
eða eru hlyutar þessu máli eru beðnar
að mæta á fnndinum til að kynna sér
tilgang og fyrirkomulag félagsius.
Fundurinn hefst kl. 8’/2 síðdegis.
Stjórnin.
Leiðsögukver
um ísland á þýzku kemur út í vor.
Þar ættu þeir að auglýsa, sem við-
skifti vilja eiga við útlenda ferðamenn.
Um auglýsingar skal semja við
Einar Gunnarsson Templarsundi 3.,
áður en næstu póstskip fara til út-
landa.
Leikfélag Reykjavíkur,
Trilby
verður leikin á sunnudaginn 17.
þ. m., kl. 8. síðd.
í síðasta sinn.