Ingólfur

Útgáva

Ingólfur - 11.10.1908, Síða 2

Ingólfur - 11.10.1908, Síða 2
162 INGOLFUR ríkisráðaneytið synjaði um meðmælin með þeim ummælnm, að verzlunaraam- band milli Norega og íalands miðaði ekki að því að efla hag danska rikis- ins. Lövland varð stei hissa á svariuu og sneri sér þegar til sendiherra Dana í Kristjaníu. Hann varð líka agndofa og gat engu til þess svarað. Féll svo mál þetta niður. Mál þetta er þess vert, að það sé tekið til rækilegrar umræðu heima, því að það sýnir ljós- lega hinn blíða bróðurhug Dana til vor, eins og nefndarmennirnir íslenzku segja. Þess höfðum vér eigi vænst, að svo ríkur væri einokunarandinn og Græn- landsbragurinn í hugskoti Dana og allra sízt þess, að stjórn Dana sæti á svikráðum víð frelsi það og rétt. er þeir hafa þó veitt o°s og viðurkennt. Þá flutti Ólafur Björnsíon fróðlega og snjalla ræðu, sem ekki verður þó frá skýrt hér, og síðan ýmsir fleiri. Þá er hæst stóð samdrykkjan, kom símskeyti til hátíðarinnar frá Reykja- vík og var þar sú fregn, að Björn Jónsson ritstjóri væri orðinn þingmaður Barðstrendinga. Þessu var tekið með dynjandi lófataki. Seinna var sent símskeyti heim frá hátíðinni, er þannig var orðað: Lifi sjálfstæðið, lifi Skúli! Hátíð þessi stóð yfir langt fram á nótt og þótti hin bezta. Þ^ss þarf naumast að geta, að drukk- in voru full margra fremstu sjálfstæðis- manna landsins, Skúla Thoroddsen, Ingólfsritstjóranna, Bjarna frá Vogi, Björns Jóussonar o. fl., minni bænda o. s. frv. Um aðflutningsbanu. Ég veit fullvel, að ekki verður það til að afla sér vinsælda á landi þessu að láta í ljósi þær skoðanir á aðflutn- ingsbanni, sem ég ætla að láta í Ijósi hér. Eu ég hugga mig við, að ef menn þykjast færir um að drótta að mér einhverjum óheiðarlegum tilgangi með grein þessari, þá geti sú aðdrótt- un ekki orðið á þá leið, að ég sé að sækjast eftir lýðhylli. Ef nokkur grunur skyldi verða eftir um þetta atriði, þá vona ég, að ég taki hann algerlega af með því að játa, að mér flnst alls eigi viðeigandi, að leitað sé atkvæðis þjóð- arinnar um roál, sem Jnenn, er af landsmönnum hafa varið mestum tíma til að hugsa um landsmál, enn þá eru ósammála um. Eins ætla ég að taka það fram strax, að ég ætla ekki að álasa banninu fyrir það eitt, að það skerði freisi manna, þótt ég hinsvegar álíti það sorglegan vott um vöntun á þeirri frelsisást, sem ávalt er verið að eigna þessari þjóð, hversu bannið hefir fengið mikinn meirihluta við hina ný- afstöðnu atkvæðagreiðslu. Heldur ekki ætla ég að minnast á tollinn, með því að ég bygg, að við munum með ýmsu öðru móti geta grætt á útlendingum þeim, er hingað koma. Ég verð því að reyna að finna máii mínu önnur rök. Allir eru á eitt mál sáttir um, að ofnautn áfengis só skaðleg og ég held, að bannmeðmælendur noti sjaldan of sterk orð til að lýsa, hversu skaðlegar afleiðingarnar geti orðið, þótt þeim stundum hætti við að ýkja, hversu al- ment bölið sé. Nú er það eðJiIegt, að menn reyni að íirra sig og aðra þessu böli og eru margar aðferðir til þess og er ein af þeim aðflutningsbannið. Það er skilianlegt, að mönnum, sem byggja þ»ð æðsta markmiðið með bindindisvið- leitni si ni að koma í veg fyrir of- drykkju þyki það b^zta aðferðin, þar sem mönnum með lögura sé bannað að selja áfengi og jafnvel að flytja það til land'ins, en áður hafi fortölur og smávægis lagahindranir orðið að nægja. É? held nú, að það að koraa í veg lyrir ofdrykkju geti ekki verið mark- mi\ heldur að eins meðal, sem sé meðal til að gera menn betri og hamingju- samari. Það er þetta, sem ég vona að bannmeðmælendur séu mér samdóma um að sé markmið þeirra. En aðflutningsbannið hefir engin betrandi eða sœluvekjandi áhrif á menn- ina. Ef vínið sjálft orsakaði bölið, ef það væri eins og einhver ill vættur, sem gera þyrfti landræka, væri bannið ágætt. En svo er ekki. Rót bölsins býr í okkur siálfum. Það erum við, sem gerura okkur vitlausa með víni (þ. e. a. s. nokkrir af okkur), en það er ekki vínið, sem gerir okkur vitlausa. Með banninu verðum við í siðferðislegu tilliti engru betri menn, en við vorum áður. Yið myndum hafa engu minni tilhneigingu til að gera sjálfum okkur skaða og myndum engu fremur kunna að breyta þannig, að lífið yrði verðara að lifa, en áður. Þær siðferðislegu framfarir og þær framf. í hamingjusemi, sem þeim eru samfara, vinnast vissu- lega ekki með því að teknar séu frá osi freistingarnar með valdi. En það gerir bannið. Það tekur frá oss freist- ingu með valdi og þ»ð freistingu, sem við erum ekki nein börn í að fást við, heldur höfum glímt við frá því fyrsta. Af því, sem ég hefi sagt, þykist ég mega draga þá ályktun, að afleiðingin af banninu verði sú, að við munum að eins svala óhóflegum fýsnum okkar á annan hátt, en áður. Ég þarf varla að nefna dæmi, möguleikarnir eru svo margir og úrræðaefnin svo óþrjótandi. Ég hefi nú reynt að sýna, að bannið sé gagnslaust, en nú mun ég reyna að sýna, að það sé Iíka skaðlegt. Það sviftir okkur dyrkeyptri reynslu, reynslu þess, hve skaðlegt sé að láta leiðast af girndum sínum. Nú segja menn oft, að reynslan sé fengin, drykkjumenn sjái, að ofcautn víns sé skaðleg og þó geti þeir ekki hætt. Þetta færa menn sem sönnun þess, að þeir geti ekki hætt, nema þeir séu neyddir til þess. En þetta er stór misskilningur. Menn breyta ekki af skynsemi, heldur af til- finningum, eins og menn vita. Menn breyta oft á móti betri vitund, en þar fyrir eru þeir ekki neyddir til að halda því áfram. Tilfinningar ná að lokum svo sterku valdi, að maður lætur undan þeim. Og maður verður að gæta að því, að margra kynslóða reynslu þarf til að losna við einn löst. Ef menn nú með valdi eru sviftir vininu, þá gleymist þeim æfing, er þeir hafa fengið i að hafa stjórn á sjálfum sér. Því er nú svo varið, að samband er á milli allra fyrirbæra í mannfélaginu, svo að framfarir í einni grein hafa áhrif á allar aðrar greinir og það, að maður lærir að neyta víns hóflega eða máske neita sér um það algerlega, kennir manni sjálfsafneitun í öllu öðru. En með banninu gleymum vér þessari reynslu og það böl, sem vér höfam liðið, verður o«s að minna gagni, en ella. Þessir gallar fylgja banninu, ef vér gerum ráð fyrir því bezta, nefl. að ekki verði hægt að lauma inn víni. En lík- legt þykir mér, að jafnvel töluverðu muni verða laumað inn og er það óneit- anlega stór galli á lagagrein. að ekki er hægt að framfylgja henni, fyrir utau það, að aðrar greinar laganna líða við, að ein er fótum troðin. Það hefir ekki ósjald- an roynst svo, þar sem bannið hefir verið lögleitt, að það hefir verið leitt úr lögum vegna leynilegrar vínsölu. Það, sem ég hefi sagt um bannið, má eins segja um hverja þá lagalega hindrun, sem lögð er fyrir frjálsa notkun áfengis. Auk þess mætti segja margt um þá núverandi áfengislögnjöf þessa lands. Mér hefir t. d. alt af fundist, að lagagreinin um, að ekki megi selja minna, en 3 pela af brennivíni í einu, muni ekki síður auka ofnautn víns, en minka hana. Eins get ég ekki séð annað, en að hin núv. lög um vínsölu geri ekkert gagn, en meðal annars það ógagn, að með þeim selur landsstjórnin áfengiseinokun rikustu borgurunum, þeim, sem eru svo vel staddir, að þeir geta borgað 500 kr. á ári. Menn mega ekki halda af þessu. sem ég hefi aagt, að ég sé á móti lagalegri hindrun gegn ofnautn áfengra drykkja. Það eru til margar aðferðir til þess að hindra hana, án þess að frjáls notkun áfengis sé bindruð. Ég ætla þó ekki að fara fleiri orðum um þetta, en mun verða ánægður, ef ég get fengið ein- hvern vin aðflutningsbannains til að efast um gildi þess. Ó. Þorsteinsson. Bréf til Ingölfs úr Horuaíirð i 16 sept. 1908. Samg-Ung-ar ;í sjó og landi. — Þjóðminn- ingardagur. — Tíðarfar og heyskapur. — Yerzlun. — Stjórnmál. Heill og sæll Ingólfur. Það þykir vel til fallið í iláttulokin, að senda þér skeyti úr þessu héraði, sem er svo innilukt og afskift, að bein- a«t liggur við að skoða það sem oln- bogabarn jvorra æðstu stjórna. Sam- göngurnar hafa ekki verið glæsilegar hingað í sumar. Að vísu áttu þær að verða viðunanlegar, eftir því sem við megum vænta, því að samkvæmt ályktnn síðasta þings átti strandbáturinn að koma hér við í Hornafirði í 12 ferðum milli Reykjav. og Akureyrar framan lands. En sýnd var veiðin en ekki gefin. Þegar í fyrstu ferðinni að sunnan 17. apríl aular skipstjóri skipinu upp á saudrif innan við höfnina, og fyrir enn meiri aulaskap og danska drýldni hanga þeir þarna heilan mánuð. Kenna svo því um, að höfnin hafi tekið svo miklum breytingum, að óhæfilegt *é að sigla á Hornafjörð framar, að minsta kosti jafnstórum bát og Hólum. Þar af leiddi, að hið sameinaða beið ekki boðanna og tilkynti stjórnarráðinu, að það hefði lagt fyrir skipstjórann á Hól- um að sigla ekki framar inn á Horna- fjörð. Tvívegis var skrifað héðan í stjórnarráðið út af þessu háttalagi og skorað á stjórnina að rétta hlut vorn og láta ekki „hinu sameinaða“ haldast bótalaust uppi bein samningsrof. Auk þess var þangað send skýrsla frá hafn- sögumanni Guðm. Jónssyni í Þinganesi, sem er greindur og gætinn maður, þar sem hann eftir nákvæma mælingn á höfninni og ósnum, vottar, að engin hin minsta breyting hafi átt sér stað á þessu svæði síðan það var mælt upp árið 1900 af skipstjóra Hammer á Diönu. Þó ber skipstj. á Hólum það fyrir rétti, er sýslumaður okkar Sig. Eggerz hélt yfir honum og skipshöfninni í vor, að hann hafi lagt skipinu nákvæmlega á sama stað og áður. Svo leið og beið — 4 mánuðir fullir — þangað til 9. þ. þá koma Hólar eins og fj. úr sauðar- legg inn undir Ós, og orga þar, þangað til út í þá var farið úr landi. Flytur skipstjóri þær undra fréttir, að ‘érhafi nú verið bo'ið að sigla á Hornafjörð samkvæmt áætlun. Auðvitað kemur okkur þetta að engu Iiði héðan af þetta ár. Það er augsýnilega gert til mála- mynda. Tjón það er við höfum liðið við það að strandferðirnar brugðust al- gerlega i sumar, er því að engu bætt. Unnið hefir verið að vegabót hér í sýslu af landssjóðs bálfu í sumar, bæði í Suðursv. og Nesjum, en hvorugur sá vegarspotti kemur að verulegum notum sem naumast er að vænta, þar sem féð var að eins 8 þúsund kr. í alt og töluvert fór í ferða og flutniugskoitnað. Lengi megum við bíða eftir færum vegum, þegar svoua smásálarlega er úr hnefa skamtað. Og seint munum við fá sírnann. Grasspretta í góðu lagi og veðrátta einmuna góð til næstliðinna mánaða- móta að brá til úrkomu. Heyfengur allmikill. Nokkuð af heyi úti enn. Verzlunarhorfur afar-ískyggilegar. Útlend vara í geypi-háu verði, skuldir töluverðar, en innlendar afurðir frá- munalega verðlágar (ull 58 a. hv. nr. 1, kjöt 19, 17, 15, og 13 a. pd., mör 20 a. og gærur 25). Yerzlunarstjóra- skifti eru í aðsigi á Höfn. Fer Þórh. Daníelsson, er gengt hefir því starfi í 8 ár, og áunnið sér að maklegleikum virðing og bylli almennings, enda er hann drengur góður, frjáLJyndur og ötull framfaramaður. í hans stað á hingað að koma Sigfús Daníelsson verzlnnarstjóri af Eikifirði. Þjóðminningardagur var haldiun fyrir Austur-Skaftafellssýslu 17. júní siðastl. við samkomuhús Nesjahrepps. Var þar fjölmenni allmikið eftir því sem hér getur orðið, og skemtun allgóð, veðreið- ar, ræðuhöld, söngur, flutt kvæði, afl- raun á kaðli, hlaup, stökk og glímur. Til verðlauna veittar 75 kr. úr sýslu- sjóði. Þótti alt þetta takast furðu vel i fyrsta sinn. Vantaði þó bezta liðs- mann, Þorleif hreppstj. Jónsson í Hólum er var veikur, og kosinn hafði verið formaður þjóðminn.dagsnefndarinnar. Var í hans stað kosinn séra Benedikt Eyjólfsson í Bjarnanesi. Stjórnmálin búru stundum á góma hér eins og annarstaðar. Að visu barst Uppkastið undursamlega okkur seint i hendur, og enn siðar allar þær vís- dómsfullu skýringar á því, sem innlim- unarmönnum hefir verið svo brátt um, að koma inn í almenning. Enda þurfti þeirra ekki við. Allfbstir sáu þegar í byrjun. að með því var réttindum og sjálfstæði landsins teflt í tvísýnu, og því engin leið á að ljá því óbreyttu fylgi. En þeir uppkastsmenn hafa víst ætlað okkur Skaftfellinga auðunna. Gerðu því ekki út í upphafi nema lé- legt fjögra manna far til að fiska fyrir Guðlaug. En er þeim þótti seint og illa ganga veiðin, þrátt fyrir ýmiskonar brellur og beitu, þeysti höfuðpaurinn sjálfur fram úr herbúðunum og hugðist að smala rækilega Þrátt fyrir alt og þrátt fyrir alt — ekki veiddust fleiri en c. 40 þorskkindur á öll skipin. Svo fór um sjóferð þá. Erlend símskeyti til ÍDgÓlfS. Khöfn 6. okt. Ferdinand (Búlgarafursti hefir) aug- lýst Búlgaríu konungsríki. Ófriðar- horfur (milli Búlgara og Tyrkja). f Chrtstian Zimscn fyrrum konsúll Frakka og kaupmaður lézt á fimtu- dagskveldið hér í bænum, nær 68 ára að aldri,

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.