Ingólfur - 29.11.1908, Síða 1
VI. árg.
48. blad.
INGÖLFUR
Reykjavík, suimudaginn 29. nóvember 1908.
Talan á síöasta tölu-
blaði var röng á sumum
eintökum; átti aö vera 47
en ekki 48.
Kaupendur blaðsius eru beðnir að athuga þetta.
VACUUM OIL COMPANY
hefir beztu mótoraolíu og aðra smurningaolíu.
Menn snúi »ér til útsölumanna í Reykjavík Nic. Bjarnason
[U kaupm. og Magnúsar Blöndahls tré*míðameistara.
Q!
Gisjsrsjsrsrsisisisrsisjsisisfsisisisjsj^isjsjsisisrsisisiBi
íslenzku-kensla.
íilenzku ætti að kenna betur en
gert er. — Og þaðj ættij að kenna
hana fleirum. Námfýii manna hér er
talsverð. En þaðer almenn skoðun náms-
manna, að þeir geti helzt látið ís-
lenzkuna sitja á hakanum. Þeir sem
skóla sækja, leggja alment minsta rækt
við hana, vegna þess að þeir vilja held-
ur verja tíma sínum til þess að lesa
annað, sem þeir hyggja nauðsynlegra.
— Og þeir sem kaupa sér tímakenslu,
vilja heldur verja fé sínu til þess að
læra að fleyta sér í öðrum málum.
Ea skólarnir fara líka illa með ís-
lenzkuna. Það er ,ekki hugsað nóg
um að vekja virðingu fyrir móðurmál-
inu. Á rneðal námsmanna þykir
alment sá mestur maðurinn, sem getur
blandað flestum útlendum orðum inn í
ræðu sína. — Skólarnir ættu bæði að
leggja meiri áherzlu á kunnáttu skóla-
sveina í íslenzku við próf en gert er
og bannfæra allar slettur. Kennararnir
eiga ekki eingöngu að hlýða yflLr mál-
fræði og spyrja um orðamyndir eins og
í grísku; þeir eiga að benda lærisvein-
um sínum á það, að sú mesta hneysa
sem þjóð getur gert sér sé að glata
málinu, en vísasti vegurinn til þess sé
að misbjóða þvi í daglegu tali. Því
að þótt Pétur setji í huga srnm gása-
lappir um orð sín og setningar, þá fær
Páll ef til vill ekkijgreint þær. Og
því læra börnin málið, að það er fyrir
þeim haft.
Það er nú vonandi að kennaraskól-
inn innræti nemendum sínum — vænt-
anlegum barnakennurum — áhuga fyrir
íslenzkukenslunni, eD það er ekki nóg.
Börn fyrir innan fermingu tala vana-
lega gott mál eða svo er það til sveita,
oft í forusögustíl. Það stafar af lestri
fornsagnanna, og í annan stað af því
að þau eru lítið eða ekkert farin að
læra í öðrum málura, og það sem þau
læra, lesa þau á íslenzku. — Mest
hætta býst ég við að móðurmálinu sé
búin, þegar unglingarnir eru farnir að
leggja að mun stund á lestur útlendra
mála og kenslubóka og er því mjög
áríðandi að ruenn jafnframt því námi
fái góða kenslu í íslenzku.
Það á nú að vera áhugamál þjóðfé-
lagsins að viðhalda málinu og bæta það,
— og þess vegna er það líka skylda
þess að gera alt til þess sem í þess
valdi stendur. En á hinn bóginn er
það eðlilegt að fátækur einstaklingur
láti það sitja fyrir að læra útlend mál,
svo að hann geti lesið bækur, sem hann
ætti annars ekki kost á að kynna sér.
Enda er það algengt að menn sem ekk-
ert hafa lært í íslenzku fái sér kenslu
í öðrum málum, og er þá ekki við öðru
að búast, en að íslenzkan dragi dám
af útlendu málunum. —Enviðþví verð-
ur þjóðfélagið að sjá. Og eini vegur-
inn til þess er að veita sem flestum að
unt er ókeypis kenslu ííslenzku — og
sjá um að þeir einir kenni, sem líkleg-
ir eru til þess að glæða virðinguna
fyrir málinu. Það verður sérstaklega
að vanda kennaravalið. Því miður er
ég hræddur um að í mörgum skólum
voTum sé ísletzku-kenslan rlgrrlega
ónýt, eða jafnvel verri en það, vegna
þess að kennararnir hafi alls enga hæfi-
leika til þess að kenna hana.
Til kaupstaðanna fara þeir flestir,
sem ætla sér að læra eitthvað og mik-
ill fjöldi æskulýðs landsing dvelur lengri
eða skemri tíma í kaupstöðunum. Þess
vegna tel ég sjálfsagt að alþingi veiti
fé og fái menn til þess að kenna al-
menningi íslenzku ókeypis fyrst og
fremst hér í Reykjavík, þar sem þeir
eru flestir saman komnir, sem mundu
vilja verða kenslunnar aðnjótandi, og
svo fljótt sem unt væri í hinum kaup-
stöðunum.
Eg hefi oft heyrt skopast að málleysum
Færeyinga og „Iandsmáli“ Norðmanna,
en „hver sem þykist standa gæti að
sér að hann ekki falli“, svo sem skrif-
að stendur.
Yér erum hreyknir af því að „hver
alþýðumaður hefir fult gagn af því að
lesa sögurnar á fornmálinu“, en hvað
verður langt þangað til að það verður
„næstum fult“ — eða „gott gagn“?
Það bið ég alla góða menn að at-
huga.
Orímar Kolbeinsson.
Felliveður og skipskaðar.
Enskt botnvörpuskip sekkur.
Ofsaveður hafa verið í vikunni sem
leið víða um land. Á miðvikudags-
kveldið 25. þ. m. fórst enskt botnvörpu-
skip úti fyrir Áðalvík vestra með allri
áhöfn. Þjrú lík vóru rekin áfimtudags-
kveldið.
Fjórtán ensk botnvörpuskip náðu
höfn í Dýrafirði, sum allmjög brotin og
menn stórlega meiddir. Yar þá vant
tveggja skipa: ,,Paragon“ og „Queen
Álexandra", beggja frá Hull. Eu talið
er víst, að annaðhvort þeirra sé skip
það er fórst fyrir Áðalvík, og efasamt
þykir að hitt sé heldur ofansjáfar.
Hafði verið hið mesta felliveður vestra
og fannkoma allmikil.
íslenzkukenslan
viö Wesley College í Wiunipeg
heldur áfram eins og að undanförnu,
þótt illa horfðist á um það mál um
tíma í sumar. Eru þstta gleðilegar
fréttir, því að eflaust er íslenzkukensla
þessi all-öflugur þáttur til stuðnings
íslenzku þjóðerni þar vestra.
Lands yflrrótturinn. Dómaraem-
bættið, sem laust var er veitt Halldóri
Daníelssyni bæjarfógeta. Talið er lík-
legast að Jón Magnússon verði bæjar-
fógeti, úr því að hann sótti ekki um
dómaraembættið.
Bjarni Jónsson frá Vogl flytur fyrir-
lestur í kveld í Iðnaðarinannahúsinu.
Prestvígðir vóru þeir á sunnud. var
Guðbrandur Björnsson frá Miklabæ og
Haraldur Níelsson. Hann verður prest-
holdsveikraspitalans í Laugarnesi í stað
séra Friðriks B''riðrikssonar.
„Laura“ kom norðan og vestan um
land á sunnudagsmorguninn. Meðal
farþega vóru: Albert Jónsson frá
Stóruvöllum, Kristján Benediktsson frá
Leifsstöðum, Marinó Hafstein sýslumað-
ur, Benedikt Þórarinsson og Pétur
Bjarnason frá ísafirði o. m. fl.
Leikfélagið leikur nú Skuggasvein
gamla í Jgríð og ergi og hefir hann
verið vel sóttur. — Bráðum verður far-
ið að leika Bóndann á Hrauni eftir
Jóhann Sigurjónsson.
Jónas Guðlaugsson og frú hans
halda samkomu annnaðhveld. Jónas
flytur fyrirlestur, en frúin les npp norsk
kvæði. Hún heflr tamið sér upplestur
og lesið norsk Ijóð í leikhúsum víða
erlendis.
Samkomur ýmsar vóru hér í höfuð-
staðnum í vikunni. Einar Hjörleifsson
flutti tvo fyrirlestra um „dularfull fyrir-
brygði“. Jónas Guðlaugsson flutti fyr-
lestur um Gísla Brynjólfsson og frú
Thorborg Guðlaugsson las kvæði eftir
Björnsson og Ibsen á undan og eftir. —
Ennfremur talaði frú Bríet Bjarnhéðins-
dóttir um tvo kvenskörunga í Vestur-
heimi.
Yeðrátta var afbragðsgóð íalthaust
víða um land, einkum norðan lands.
Yóru þar lengst af sólskin um daga og
sunnanvindar hlýir. Sunnanlands hefir
verið úrkomusamt. Nú hefir veðrafar
verið svipult um hálfan mánuð og þó
helzt síðustu dagana. — „Lára“ hefir
legið hér á höfninni afhafnalaus dögum
saman vegna ofvíðris.
Trúlofuð eru ungfrú EmiliaSighvats-
dóttir (bankastjóra) og Jón Kristjáns-
son nuddlæknir.
Slys. Maður féll útbyrðis af vélar-
báti á Önundarfirði 8. þ. ro. og drukn-
aði. Hann hét Guðbjarni Bjarnason, á
BJateyri, átti konu og börn.
í niðurjöfnunarnefnd Reykjavikur
vóru í gær kosnir:
Guðro. Guðmundsson, Vegamótum.
Guðro. Þorkelsson, Pálshúsum
Gunnlaugur Pétursson.
Halldór Diníelsson, bæjarfógeti.
Jes Zimsen, kaupm.
Jón Brynjólfsson, kaupm.
Jón Magnússon, Skuld.
Jón Þórðarson, kaupm.
Kristín Jakobssnn.
Kristinn Magnússon, kaupm.
Mattías Þórðarson.
Pálmi PálssoD, kennari.
Sigurður Briem, póstmeistari.
Sigvaldi Bjarnason.
Þorsteinn Þorsteinsson, skipstj.
AUs kusu 323 kjósendur, en á kjör-
skrá 2850.
Fyrirlestur í Iðnararmannahúsin í dag,
kl. 6 e. h.
Bjarni Jónsson frá Vogí:
Eplin.
Forngripasafnið verður sýnt
í dag kl. 2 — 3. — Upp frá þvi verður
það ekki sýnt fyrst um sinn sakir flutn-
ings.
Jóla- og nýárskort
eru nýkomin, sérstaklega falleg og ó-
grynni úr að velja. Einnig allskonar
tækifæriskort
fást í þingholtsstræti 18
Svanlaug Benediktsdóttir.
Þar fást einnig bundnir líkkranzar
úr ýmsu efni.