Ingólfur


Ingólfur - 16.12.1909, Síða 2

Ingólfur - 16.12.1909, Síða 2
194 INGOLFUR Hr. Kofoed-Hanaen hafði þyi miður aleppt því úr fyrirleatri aínum að lýsa vexti útlendra skógplanta, sem gróður- settar hafa verið hér og hvaða útlit væri á, að þær gætu þróast hér. En þetta kemur máske fyrir í öðrum fyrir- lestri. Hr. Kofoed-Hansen beindi þeirri á- skorun að íslenzkum blöðum að beita sér fyrir þetta mál, vekja athygli þjóð- arinnar á því og vekja og glæða áhuga fyrir því. Fyrirlesturinn var heldur treglega sóttnr, og má vera að það hafi verið nokkuð að kenna vondu veðri, en al- menningi ætti sannarlega að vera það nær að hlusta á slíka fyrirlestra og þennan i stað þess að sitja bíspert og hlusta á dularfullar vitleysur. O. Bókaútgáfa Jóh, Jóhannessonar*. ÁttuDgurinn. Ryík 1909. Kostnaðarmaður Jóh. Jóhannesson. Sökum aðstöðu og þjóðarhátta verður ætið mikil þörf skáldskapar hér á landi. Skáldskapurinn er ein grein listanna, hin alþýðulegasta og hin göfugasta. Öðrum greinum iistanna er svo háttað að þær geta varla risið, blómgvast og haldist við nema hjá ríkum og fjöl- mennum þjóðum. E>ær eru ávöxtur rót- gróinnar þjóðarmenningar, en þær eru staðbundnar. Þeir sem vilja njótafag- urrar húegjörðarlistar, höggmynda, mál- verka, söngs- eða leiklistar verða að heimsækja þá staði, sem hafa verið eða eru höfuðból menningarinnar. Þar á móti eru verk stórskáldanna alheims- eign, þau eru hvorki bundin við stund nó stað. En við íslendingar erum svo að segja öreigar á flestum sviðum listanna. Og okkur vantar þar að auki mörg af allra nauðsynlegustu skilyrðunum til að geta bætt úr því. Okkur skortir líklega ekki listagáfur, en hvað stoðar það ef engin eru hjálparmeðöl ? Þar við bætist svo, að við erum afar af- skektir og þeir sem geta notið stað bundnu listanna af eigin reynslu verða ætíð tiltölulega fáir. Skáldskapurinn fær þvi alveg sérstaka þýðingn hér á íslandi. Hann sem er að eins ein grein á tré listanna, gengur okkur í stað listarinnar allrar. Sé þannig litið á, verða bókmennt- irnar einn af aðal-þáttunum í þjóðar- uppeldinu; og sá þáttur er undinn úr mörgum strengjum. Góðskáldið gefur hina hæstu formfegurð, það göfgar smekkinn, það gefur unglingunum fyrir- myndir, það kennir þeim veiku heilsu- samlegt litillæti. Það yljar tilfinningar þeirra sem geta fundið til. Það skýrir sjón þeirra sem geta séð. Það bregður sjóngleri fyrir augu lesarans. Undir því kvikar sá heimur sem skáldið sá. Þar Iiðast sundur hinir flóknu vefir lífs- ins. Þar falla burtu sundurlaus smá- atriði sem annars glöptu manni sýn. Aðalatriðin koma fram, mynd af mann- lífinu nákvæm, Ijós og sönn í aðaldrátt- unum, en hafin í hærra veldi af göfgi Mstarinnar og fullkomnari en lífið sjálft. Ekkert mundi hollara okkur íslending- um en að fá sem mest af þvílíknm skáldskap. Af þessum ástæðum var mér það * Jafnvel þótt ég sé ekki samþ. stefnu Ingólfs í bannmálinu hefi ég heldur kosið að birta grein þessa hér en í flokksblöðunum, eins og nú stendur á. Uöf. VERZLUN HVERFISG. 4B REYKJAVÍK. TALSIMI 142 Af hinum gOÖU — IiyU — ÓClýrU vörum, sem verzlunin hefur lagt kapp á að hafa boðstólum, g’Ofu.I* bún nú frá þessum degi til nýárs miliinn afslatt. 10 15 50 — afslátt *** 011x1 sem ©r, o o o o o ftfsl áft afá látt ef rtemur 1 krónu. af fyrir yngri sem eldri. af Vetrarliöttum fyrir dömur og telpur. af nýjum vörum með s|sSterling Hentugar fyrir yngri sem eldri. Ekki mikiö, en ljóst í upphafi, að erfitt var að dæma hlutdrægnislaust um útgáfu hr. Jóh. Jóhannessonar. Ég sá að allar kring- nmstæðnr mundu knýa mann til að vera honum allt of hliðhollur. Égþekti manuinn að vísu ekki neitt. Ég hafði ekki og bjóst ekki við að hafa sömu atvinnu og hann. Ég hafði enga per- sónulega ástæðn til að líta á starfsemi hans nema frá sjónarmiði þjóðarhags- munanna. En mér var kunnugt um, að útgef. hafði byrjað með tvær hendur tómar, eu sýnt mikinn dugnað í at- vinnurekstriuum. Slíkt er að öllum jafnaði virðingarvert. Enn fremur við- urkendi ég að þörf okkar var tilfinnan- leg, og hins vegar að um auðugan garð var að gresja hjá flestnm af frænd- þjóðnnum, þótt ekki væri lengra leitað. Mér fanst, að þeim sem ætli að velja þær, mundi fara líkt og Aladin í töfrahellinum: Gimsteinar mundnblika allt í kringumjihann; varla gæti bjá því fariðUað hann veldi nokkra af þeim fegurstn. Þegar þar við bættist að Bóksalafélagið hafði lagt stein í götu útgef., þá þótti mér sem ég gæti unnið ijúft og þarft verk með því að halda uppi hlífiskildi yfir ofsóttum velgjörðar- manni þjóðarinnar. I þvílíkum huga sneri ég mér að bókum hr. Jóh. Jóhannessonar, leit yfir titlana og sá að þær voru flestar eftir ameríska höfunda. Allir voru þeir lítt kunnir og þjóðerni þeirra gaf ekki sem beztar vonir um, að hér gæti verið um vernleg listaverk að ræða. Væri listamaðurinn sjálfum sér nógur, sinnar eigin gæfusmiður og verk hans til vor komin eins og himinfallnir steinar öllnm öðrum mönnum að þakka- lausu, þá væri rangt að gera ráð fyrir nokkru óvenjulegu getuleysi í þessu efni fremur hjá einni þjóð en annari. En mun því þannig varið? Er lista- maðurinn þó ekki fyrst og fremstmað- nr með holdi og blóði, í flestu svipaðnr samtiðarmönnum sínum? Hefir hann ekki eins og þeir erft þá almennt mann- legu eiginleika að viðbættnm þeim sem einkenna þjóð hans? Hafa ekki hin ytri kjör í föðurlandinu mótað hann eins ogjþá ? Hefur honum ekki tæmst saman með þeim andlegur arfur í máli, trú, siðum, minningum og menning allri ? Hefur ekki sá „rnóður", sá „skóli“, sem gekk yfir löndin í hans tíð haft áhrif á hann einsjog aðra menn ? Vissu- lega. Sökum sameiginlegra eiginleika, eigna og viðfangsefna er listamaðurinn bundinn liður I þeirri miklu lifandi heild, sem hugsar og starfar allt í kring um hann. Sú fylking „sækir öll fram sem einn maður og reynir að brjóta niður þær hömlur, sem þrengja að mannsandanum á þeim tímu, með þeim víg-vélum er samtíðin veit beztar. Hér og þar í þessari fylking standa Mstamennirnir og enginn þekkir þá úr hópnnm nema honum sé bent á þá. Þeir eru að eins álíkir í einu: að þeg- ar sterkar geðshræringar, áköf sorg eða innileg gleði hristir innri mann þeirra niður að neðstu undirstöðu, þá geta þeir „krystallað", mótað í fagurt og varanlegt form hugsanir samtíðarinnar sem lágu í loftinu og umkringdu þá. En líf hverrar kynslóðar ér stutt; hún hverfur úr sögunni og nýir menn ganga fram á leiksviðið með breytt viðfangsefni og breyttan hugsunarhátt. Þá myndast ný stefna eða skóli og meðan hann drottnar gleymist flest af því, sem nndangengna kynslóðin fann til og fékst við um leið ogbeinhennar molna í kirkjugarðinum. En upp af þeim mikla grafreit þess horfua skðla rísa þó hér og þar nokkrir óbrotgjarnir bautasteinar. Það ern stórverk lista- mannanna, „krystallarnii", brot af andlegri aameign allrar aldarinnar. Ög lítum nú um stnnd á nokkra ís- lenzka listamenn. Standa þeir í nokkru nánu sjáanlegu sambandi við samtíð sína. Athugum t. d. þrjú höfuðskáld okkar: Egil, Hallgrím og Jónas. Egill lifir á ráns- og vikingaöld, þegar sá Mfir bezt og er mest virtur, sem mestu blóði hefur úthellt og fiestum mönnum á kné kornið. Egill yrkir þá líka nm aflið og mátt einstaklingsins. Hallgrím- ur er uppi á niðurlægingaröldinni, sam- tiða fulltrúunum sem sátu með tárin í angunum í Kópavogi. Sá verulegi heimur er dapurlegur, gefur fólkinu

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.