Ingólfur


Ingólfur - 08.11.1914, Qupperneq 3

Ingólfur - 08.11.1914, Qupperneq 3
INGOLFUR 175 Egyftaland frá Sýrlandi, en um atburði þaðan hefir ekki frézt. Nokkra daga þótti óvíat, hvort veru- leg alvara yrði úr ófriði Tyrkja og sat aendiherra þeirra í Lundúnum eina og ekkert hefði í skoriat. En samkvæmt skeyti frá „CentralNewa", er hingað barat í gær, hafa Bretar sagt Tyrkjum ófrið á hendur og þegar tekið Cyprus-ey. Rússar hafa sent lið inn í Tyrkja- lönd í Asíu (Armeníu). Yar það kom- ið 25 enskar mílur inu fyrir landamæri og hafði lagt undir sig 15 smáborgir. Tyrkir hörfuðu undan. Tyrknesk herskip hafa skotið á borg- ina Batum við Svartahaf í Kákasuslönd- um Rússa. í borginni eru 28500 íbúar. Norðtjarðarbréf. Noiðfirði 26. okt. 1914. Kæri Iagólfur! Af því að eg sé þig minnast áfram- komu kaupmanna síðan ófriðurinn byrj- aði, og þú dregur taum alþýðu, einsog þín var von og vísa, þ4 langar mig til að hripa þér fáeinar línur um það, hvernig kaupmenn hér brugðust við. ófriðarfréttin barst hingað sunnudag- inn 2. ágúst og var mikið um hana rætt allan þann dag. En mánudsgsmorgun- inn 2. ág. vóru komin „*prengidufl“ í tvær stærstu verzlanirnar og höfðu „sprengt alt upp“, það er að segja verð- ið, því að t. d. matvara var hækkuð um þriðjuog og helming. Rúgmjöls- tunna varð 28 kr. úr 18—19 kr. Kaffi kr. 2,40 tvípundið, áður kr. 1,70; „ex- port“ kr. 1,70, áður 1,10; höggvinn syk- ur 84 aura tvípund, áðnr 52 aura og annað var eftir þessn. Var nú ekki talað um annað en þessa „sprengingu" þann dag, og þó var verið að rífa vörurnar út úr þessum tveim verzl- unum, því að fólk varð hrætt um, að engar vörur kæmist til landsins og bin- ar verzianirnar höfðu svo sem engar vörur. Ekki var heldur um auðugan garð að gresja hjá þessum tveimur kaup- mönuum, en þeir „pírðu“ furðanlega á milli manna, — það mega þeir eiga. Kaupmennirnir þorðu tæplega að kaupa fisk og alls ekki fyrir peninga. HeJzt tóku þeir fiskinn gegn sinum upp- sprengdu vörum. XXX. Gegen die Dnmmheit kitmpfon die Götter selbst vergebens. Schiller. 1. Förum nú aðra leið, og íhugum sitt- hvað af því sem vitað er í stjörnufræði, jarðfræði og líffræði; þá mun enn verða greiðara fyrir um skilning á því, að líf er til viðar en á þessari jörð og leitað til lífsambands hnattanna á milli. íhug- um ésækni lífsins; jafnvel í snjó og ís hafast við einhverjar lífverur. íhugum ennfremur hvernig líftegundirnar breyt- ast; sumum fer aftur, þar er eitthvað sem mistekst, aðrar ná meiri og meiri fullkomnun; ihugum hvernig lifandi verur gera samband sín á milli, og það því fremur sem þær hafa meira vit. Margbreyttust og mest er þessi sam- bandsviðleitni í mannlegu félagi, og miðar auðsjáanlega að því, ef vel vegn- aði, að koma á einu mannfélagi um alla jörð. Takmörk félaganna eru altaf að færast út. Stefnt er að vit- eða hugs- anafélagi með ræðu og riti, og fjar- skynjun með verkfærum komin á, landa og heimsálfa milli. Styrjaldir spyrna á móti þessari viðleitni; rísa þær, einsog allar deilur, af misskilningi 0g vaDþekk- ingu. Það virðist óhætt að gera ráð fyrir, að væri þekking og vizka i meiri Verðlag í Norðurmnlasýslu og Seyðisfjarðarkaupstað í Októbermánuðl 1914. Yerðið er samkvæmt skýrslum kaupmanna til sýslum. í Múlasý«lu og bæjarfóg. í Seyðisfirði, er sendar hafa verið eftir beiðni „verðlagsnefDd \rinnar“. Vörutegundir: Bikkaf'.: Vopnafjörður- Borgarljörður: Seyðisfjörður: Rúgur 30 aurar Ekki til Ekki til 27 aurar Rúgmjöl 31 — 30,6 aurar 30,6 aurar 27—30 — Hveiti 36 — 32,4—37.8 — 36-41,4 — 1 O 1 c- 05 GM Hrsgrjón Ekki til 43 2-45 — Ekki til 35 t—41 — Bankabygg Ekki til 36 36 aurxr 31—40 — Baunir Ekki til 33,8 40.5 ~ 38 — Völsuðhafragrjón 56 aurar 45 — 45 — 41—42 — Mais 24 — 27 — Ekki til 23,t - Kaffi 165 — 180—198 — 202,5 aurar 198—220 — Kandís Ekki til 72 — Ekki til Ekki til Melís 70 aurar 60 —69 4 — 68,4 aurar 63—66 aurar Púðursykur Ekki til 63 — 59,4 - 55-61 — Kartöflur 14 aurar 13,5 — 12« - 10-12,ð - Kjöt 58 — 52—60 — 60 — 60 — Nýr fiskur 14 - Ekki til Ekki til 16-24 — Smjör Ekki selt 160 — Ekki selt 180 — Smjörlíki Ekki til 135—144 — 144 aurar 128—144 — Rúgbrauð Ekki selt Ekki selt Ekki selt 30 — • Ofnkol 5 anrar 3,24 »Qr*r 36 aurar 2)7 - Salt 3,2 3,24 3)8 2,7 - Steiaolía 34 — 28 8 - 36 krónur fatið 26—32 — Nýmjólk Ekki seld 20 — Ekki seld 20 — Alt netto pr. Kilogram, nema mjólkin pr. Liter. Þegar svona var komið var með öllu óverandi hér, þótt afli væri góður. Fjöldi Sunnlendinga varð að hætta og tók sér fari héðan á „Pollax" 8. ágúst. Fær- eyingar urðu einnig að flýja heim á „Flóru“ 23. ágúst og vóru orðnir full- aðþrengdir. Nú er stórum farið að batnahér, því að pöntunarfélag hefir fengið vörur, en lítið hefir lækkað hjá kaupmönnum. Svoua ríkir kaupmannsandinn gamli enn hér á íslandi. Finst mér hann svip- aður og á 18. öldinni, þegar Skúli fó- geti átti í höggi við „Hörmangarafé- lagið“ og „Hið almenna verzluuarfélag". Býzt eg við, að honum hefði sýnst furðu- lítið breytt til batnaðar, ef hann hefði litið upp úr gröf sinni og komið í búðir hér á Norðfirði í sumar. Fiskafli hefir alment verið góður á róðrarbáta þá, sem hægt hefir verið að halda úti og í meðallagi á vélabáta. Heilsufar manna hefir verið skaplegt, en þó hefir lungnabólga verið að stinga •ér niður til þessa. Kíghósti hefir og gengið. Hettusótt er hér enn og hefir verið að taka einn og einn mann siðan í marz í vetur. K. „Flóra“ kom á fimtudaginn síðustu ferð BÍna norðan og vestan um land. Farþegar vóru margir. Þar á meðal: Hjalti Jónsson og Kolbeinn Þorstelns- son skipstjórar, norðan af Akureyri, Bergur Rósenkranzion kaupm. af Flat- eyri, Kolbeinn Árnason kaupm. af Ak- ureyri, Eggert Jónsiou frá Nautabúi í í Skagafirði, Pétur Leifsson Ijósmyndari frá Húsavík, Marino Hafstein f. sýilu. maður frá Þórshöfn á Langanesi. — Flóra fór í fyrrakveld áleiðis til Noregs. „Ceres“ fór í gærmorgun frá Leith áleiðis hingað. metum, vit mannkynsins á hærra stigi, væru engar styrjaldir. 2. Að lifandi verur eru til á jörðu hér, neyðir oss til að gera ráð fyrir lífi ann- arsitaðar í heiminum. Lang-eðlilegast er að hugs sér lífið á jörðu hér þann- ig til komið, að hinar fyrstu ófullkomnu líftegundir hafi tendraat af lífgeislum frá öðrum hnöttum, þegar kólnuu jarð- ar var nógu langt komið. Mér þykir liklegast, að frumtegundirnar hafi ver- ið fleiri en ein, og að allar líftegundir á jörðu hér, eigi ekki einn aameigin- legan jarðneskan „forföður". Sólkerfin eru óendanlega mörg, og það er óendanlega liklegt — það er að segja víst — að á mörgum af þessum biljónum biljóna af jarðstjörnum, sjeu til lifandi verur, sem sveiflast í geimnum, •umar ákaflega ólíkar því sem er á þessari jörð, og ákafa miklu lengra komnar, en aðrar á líku reki. Hugsum 098 jarðstjörnu sem er 200,000 milur að þvermáli, eða rúmlega eins og sól vor, og munu þó miklu stærri til vera. Hugsum oss að lifandi verur hafi á slíkum hnetti haft margtfalt betri á- stæður til að þróast en á þessari jörð, og hundrað sinnum lengri tíma eða meir. Reynum að skilja, að tilgangur lífsins er að sigra dauðann. Skyldu ekki verur á slíkum hnöttum vera komnar mjög miklu nær því takmarki, en mennirnir hér á útjaðri vitheims, eða jafnvel hafa sigrað dauðann. Og fyrir löngu mundu vitverurnar á slíkri jörð, sem vér mundum nefna guði, hafa leitað sambands við aðra hnetti, og jafn- vel kunna að fiytja sig hnattanna á milli, þar sem eru álika vitrar og mátt- ugar verur til móts, eða þó að nokkru munaði. Og með aumkvun mundu guðirnir á slikum hnetti, eða öðrum fullkomnari, hugsa til þeirra hvergi nærri skynlausu eða tilfinningalansu skepna, sem nefna •ig menn og hafast við á slíkum kot- hnöttum sem jörð vor er; lifa skamt og ekki vel; eiga sér enga heimspeki sem því nafni sé nefnandi; hafa ekki skilið tilgang lífiins, og eru á glötun- arbarmi. Því að á jörðu hér virðist helzt stefnt til fullkomnunar í helvízku, og svo gæti farið, að sú „æðri“ mann- tegund sem fram kemur á jörðu hér, der Úbermensch, ofurmennið, hefði mátt sinn beinlínis af því að kvelja þá sém minni máttar væru. Það er margt sem heldur er í þá átt, og hefir verið á jörðu hér, þó að miklu verr vegni í f Jóhann Jóhannesson kaupmaður lézt á beimili sínu hér í bænum mið- vikudagsmorguninn 4. þ. m. Hafði hann tekið inn svefnmeðal (Veronal) á sunnu- dagskveldið og vaknaði síðan ekki til meðvitundar. Hann var fæddur 23. júlí 1870 að Læk i Ölfuai. Hiagað fluttist hann fyr- ir 10 árum. Græddist hér allmikið fé á bókaútgáfu, fasteignaverzlun o. fl. — Um gjöf hans til gamalmennahælis er fyri'r skömmu eetið og hefir verið á hvers manns vörum um hrið. Konu sína misti Jóhann í sumar og var síðan ekki samur maður. Yar hann orðinn bilaður á heilsu og hafði þjáðst af svefnleysi síðustu vikurnar. Einn dreng eiga þau hjón á lífi. Um Ísland og ófriðinn flytur Bjarni Jónsson frá Vogi alþýðufyrirlestur í dag í Iðnó. Byrjar kl. 5. e. h. Úr Núpasveit er ritað 23. f, m. Veðrátta hefir verið góð og mild lengst- um síðan um hvítasunnu í vor. Hey- skspaitíð var hagstæð til 6. september. Þá brá til óþurka, og síðan verið stöð- ug skúratíð og óþurkar, þar til nú fyr- ir viku að þurkar komu. Hafa vist flestir náð heyjum sínum nú, en mjög hröktum, eins og nærri má geta. Sum- ir höfðu súldrað þeim saman áður, enda gerði hæsur um göngurnar, eða 19. og 20. sept. Nú er góður hngur í mönnum og bú- ast flestir við góðum vetri, en setja þó víðast færra á af skepnum en undan- farandi haust. — Verð á kjöti og gær- um er með bezta móti, en fé aftur rýr- ara en undanfarin haust; þó furðuvænt eftir því, hversu seint voraði dfe víða laklega fram gengið. „Magnhild", leignskip Zöllners og Kaupfélaga er nýkomið til Kópaskers með vörur og eru þær ódýrari eu bænd- ur höfðu búist við eftir sögn fasta- kaupmanna. Rúgmjölstunna t. d. 25 kr'onur. — Aftur tók skipið hér 400 tunnur af kjöti, ull frá sumarkauptíð og einnig gærur og tólg. Heilsufar manna hefir verið með lak- asta móti. Stafar það mest af kig- hósta, sem kom hér á öudverðu sumri á flest heimili. Hafa börn legið mjög þungt í honum sumBtaðar og ein þrjú dáið hér í héraði. f Frú Þuríður Guðmundsdóttir, kona Kristins Jónssonar vagnasmiðs á Frakkastíg 12 hér í bæ andaðist 3. þ. m. Hún var fósturdóttir Guðmundar bóksala Guðmundssonar á Eyrarbakka. Lætur hún eftir sig mörg ung börn á lífi. Bæjarstjórnarkosningar eiga fram að fara í Rvik innan skams. Munu þá verða kosnir þrír fulltrúar, í stað þeirra Péturs Guðmundssonar, sem farinn er úr bænum og hefir sagt af sér starfinu, Jóliauns heitins Jóhannessowar og nú- verandi borgarstjóra Knud Zimsens. — Jafnframt verða nokkrir menn kosnir í niðurjöfnunarnefnd bæjarins. Borgaralegt lijónaband: Á fimtu- daginn vóru þau Böðvar Kristjánsson kennari og Guðrún Thorsteinison gefin saman í borgaralegt hjónaband. •likum stöðum sem hin nýja liffræði (Kosmobiologi) nefnir inferna crudeli- tatis eða grimdarhelvíti; slika staði •em þessi jörð er, nefnir hún inferna stupiditatis, heimskuhelvíti eða heimsku- víti, og vill þó, einkum á styrjaldar- tímum, bregða til verri víta, á jörðu hér. (Frh.) Helgi Pjeturss.

x

Ingólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.