Ísfirðingur - 09.09.1898, Blaðsíða 4
4
ur að hreinsa eða láta gera það. Veldur
þetta hættu, eigi að eins fyrir þeirra hiis,
heldur og fyrir þau hús, er nálægt standa,
enda þótt þar sje hreinsað og að ööru leyti
fyllilega haldið við samkvæmt fyrirmæl-
um lögreglusamþyktarinnar.
Vér förum því þess á leit, að hin hátt-
virta bæjarstjórn vilji vera svo góð og lita
á þetta mál, og breyta því í betra horf,
helst á þann hátt, að einhver sérstakur
maður hafl þetta starf á hendi gegn sann-
gjarnri borgun úr bæjarsjóöi. Ætti hann
svo að fylga þeim reglum er honum væru
settar og álitnar væru fullnægjandi. Hæfl-
legt gjald yrði að leggja á húsráðendur
og álítum vér að nægja mundi að hafa
það 75 anra fyrir hvern reykháf með til-
heyrandi pípum í hverju einloftuðu húsi.
Vér fjölyrðum ekki meira um þetta að
sinni, en vonum að máli þessu verði gaum-
ur gefinn svo fljótt sem við verðurkomið.
Nokkrir húsráðendur.
Til gagns eöa gamans.
Verið getur, að menn geti stundum
haft gagn af því, að flnna þyngd nauta
með mælingu. Oft má það líka verða til
gamans, til þess að sjá hve nærri fer t. d.
um kjötþyngdina.
Gildleiki nauta er mældur með sterk-
um mæliþræði, ekki grófum, rétt aftan við
bógana, og er þétt mælt svo þráðurinn
mótist inn í hörundið. Gildleikinn er tek-
inn í þumlungatali. Þá er mælt eftir
hryggnum frá fremri rönd herðablaðsins
og aftur á tortu, svo rétt horn myndist ef
bein Hna gengi frá lengdarlínunni niður á
konungsnef. Lengdin er talin I þumlung-
um. Nú er þumlungatala gildleikans
margfölduð með sjálfri sér og þaö sem út
kemur með þumlungatölu lengdarinnar,
því sem þá kemur út skal skifta með 270.
Kemur þá út öll þyngdin í pundum. Setj-
um dæmi: Naut sem er 55 þuml. gilt og
53 þuml. langt mundi vera 593 pd. og tæp
80 kv. 55 X í* = 3025; 3025 X 53 =
160325 : 270 = 59348/s4 pd. Þessi þyDgd
reynist fremur of há en of lá, sem svar-
ar 4°/0.
Ef menn vilja nú vita hver kjötþyngd-
in muni vera, þá eru 48 þumlungar teknir
af gildleikanum og margfaldaðir með 4
sem verða pd. Þá þumlunga tölu, sem
eftir er af þuml. tölu gildleikans, skal
svo margfalda með 12, og verða það
líka pd.
Tökum dæmi af sama nautinu: 48 X 4
= 192 pd.; 7X12 =84; 192+84 =
276 pd. af kjöti.
Þegar menn iðka þessar mælingar, þarf
ekki miklu að skakka.
þegar naut eru rekin eða flutt á annan
hátt langa n veg, þá léttast þau oft töluvert.
Þegar svo þyngdarmunurinn á kjötinu er
metinn til peninga, og því bætt við annan
kostnað, er af fluttningnum leiðir, þá má
sjá hvort þetta borgar sig, þegar miðað
er við kjötverð á hinum ymsu stöðum.
B ú i.
Þér ungu meyjar, menn og frúr, sem óskið
að temja yður þá íögru list, að geta tekið
til máls á mannfundum, þjóðfundum og þing-
um, þér ættuð að ganga i málfundaióiagið
»Visir« hér í bænum. Þar reyna menn að temja
sér að taka skipuiega til máls, standa upp, biðja
um orðið og láta svo skoðun sína i ljósi, ljóst
og greinilega, en hinir sitja og hlusta á. Er
þessi aðferð all-ólík þeirri, sem venjulega á
sér stað á amtráðsfundum, sýslufundum og
málskrafsfundum karla og kvenna á gatna-
mótum og öðrum hagkvæmum stöðum.
Reynið að brjótast fram úr því.
Ef einhverjir fullorðnir vilja, geta þeir
fengið tilsögn hjá mér, og byrjað hér eftir
hvenær sem þeir kjósa helst.
Auk Þess, sem ég hef áður auglýst,
veiti ég nú þeim tilsögn er vilja læra að
færa tvöfalt bókhald (líka kallað ítalskt-
bókh.). Svo veiti ég og tilsögn í rúm-
málsfræði, sem hver maður þarf að kunna
dálítið í. — ísafjöröur. — J. Frímann.